Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Fyrir nokkrum áratugumátti ég orðastað við ungtskáld sem kvaðst verahaldið ljóðrænni
vatnsorkusálsýki. Ástæðan væri sú
að hann sæi ekki annað fyrir sér en
bunulæki og bakkafagrar ár. Eftir
langdvalir erlendis hefði hann lagst
í Jónas Hallgrímsson og nú væru
töfrar Rómar og Parísar horfnir og
allt sem hann reyndi að semja væri
hlaðið þessari sérkennilegu, bráðlif-
andi vatnsorku svo að ekkert annað
kæmist að.
Sjálf hef ég aldrei beinlínis lagst í
Jónas en samt er hann snar þáttur af sjálfri mér. Þegar sunnudagslærið
var í ofninum fórum við pabbi oftast út að ganga og þá þuldi hann fyrir
mér það sem honum þótti magnaðast hjá Jónasi. Mig minnir að Fjallið
Skjaldbreiður hafi haft mest áhrif á hann og enn finnst mér ég heyra
hljómþýða rödd hans fara með eftirfarandi hendingar úr því:
Belja rauðar blossa móður,
blágrár reykur yfir sveif
undir hverfur runni rjóður
reynistóð í hárri kleif.
Svo lét hann mig fara með
kvæðið Óhræsið og Ísland
farsælda frón, sem ég kunni
ágætlega en átti til að rugla
röð erindanna og þá leiðrétti hann mig samviskusamlega. Stundum þegar
hann fékk sér í glas með gömlum skólabróður sínum og vini barst talið að
Jónasi og þá lagði ég gjarnan við hlustir. Pabbi sagði að þótt Jónas væri
snillingur væri stundum braglýti hjá honum að finna, t.d. þessar ljóðlínur
út kvæðinu Réttarvatn:
Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér.
og sumt í kveðskap Jónasar jaðraði við að vera leirburður eins og eft-
irfarandi staka um Suðursveit.
Suðursveit er þó betri
en Seltjarnarnesið var
taðan er töluvert meiri
og tunglið rétt eins og þar.
Vinurinn var umburðarlyndari og hafði meiri áhuga á rómantísku ljóð-
unum hans Jónasar. Hann fór með kvæðið Ferðalok og úr Hulduljóðum,
sem mér þótti miklu fallegra en Fjallið Skjaldbreiður og Ísland farsæld-
arfrón. Svo talaði hann um ástkæra ylhýra málið sem hlýjaði mér inn að
hjartarótum. Og þannig seytlaðist Jónas inn í mig, kannski á sama hátt og
ljóðræna vatnsorkusálsýkin sem greip unga skáldið á sínum tíma.
Sonarsonur minn fékk ljóðasafn Jónasar í fermingargjöf nú í vor og ég
gat ekki stillt mig um að lesa fyrir hann nokkur erindi. Hann brosti fallega
þegar ég fór með þessar hendingar úr erfiljóðinu um Tómas Sæmundsson.
Flýt þér vinur, í fegra heim;
krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
Drengurinn er góður námsmaður og ætlar að leggja fyrir sig eðlisfræði
í framtíðinni. „Það er vegna þess að hún getur útskýrt hvernig allt virkar,“
sagði hann. Ég hefði kannski átt að segja honum að engin eðlisfræði gæti
útskýrt hvernig skáldið mitt, Jónas Hallgrímsson, virkaði á mig.
Ljóðræn vatns-
orkusálsýki
Tungutak
Guðrún Egilson
Þótt Jónas væri snillingur var stundum
braglýti hjá honum að finna.
Þótt samgöngur á milli landa hafi stórbatnað ogbylting hafi orðið í fjarskiptum tekur stundumlangan tíma fyrir nýjar hugmyndir, skoðanir,hugsanir eða viðhorf að berast milli landa. Þegar
ég kom fyrst til Bandaríkjanna fyrir rúmlega hálfri öld
fannst mér einna skemmtilegast að komast í tæri við nýjar
hugmyndir, sem þar voru til umræðu, ekki sízt í háskóla-
samfélaginu, en höfðu ekki náð að nema land hér af ein-
hverjum ástæðum.
Og þótt merkilegt kunni að virðast er eins og nýir hug-
myndastraumar og breytt viðhorf í öðrum löndum eigi enn
erfitt með að ná til Íslands, alla vega tekur það óeðlilega
langan tíma.
Viðhorf í Evrópu til sameiningar Evrópuríkja í eins kon-
ar Bandaríkjum Evrópu hafa gjörbreytzt á nokkrum ár-
um. Sú fallega og göfuga hugmynd, sem hafði það meg-
inmarkmið að koma í veg fyrir eilíf stríð á milli þessara
ríkja, sem staðið höfðu öldum saman, er nú á hröðu und-
anhaldi. Þótt forráðamenn Evrópusambandsins hafi hvatt
aðildarríkin til að efla samstöðu sín í milli í kjölfar ákvörð-
unar Breta um að yfirgefa ESB hefur það þveröfuga gerzt.
Það er „gjá“ á milli sjónarmiða al-
mennra borgara og forystusveitar
ESB, svo vitnað sé í vinsælt orðalag
úr stjórnmálaumræðum hér.
Þessi viðhorfsbreyting í Evrópu
hefur af einhverjum ástæðum ekki
náð til Íslands að nokkru ráði. Í að-
draganda þingkosninga í haust er
það yfirlýst markmið nokkurra stjórnmálaflokka að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu um þá spurningu hvort halda eigi
áfram viðræðum við Evrópusambandið um aðild Íslands.
Nú er það skiljanlegt að stjórnarandstöðuflokkarnir vilji
halda stjórnarflokkunum við skýr og óumdeilanleg fyr-
irheit um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB á þessu kjör-
tímabili. En þá hefði mátt ætla eftir það sem á undan er
gengið að þessir flokkar gætu fallizt á þjóðaratkvæða-
greiðslu um þá grundvallarspurningu hvort Íslendingar
vilji yfirleitt aðild að ESB eða ekki. Þjóðin var ekki spurð
sumarið 2009 og í því fólust hin miklu mistök ríkisstjórnar
Jóhönnu Sigurðardóttur í því máli.
Stjórnarandstöðuflokkarnir ætla hins vegar að stytta
sér leið, alveg eins og þeir reyndu að gera 2009 og reyna að
notfæra sér stórpólitísk mistök núverandi stjórnarflokka,
sem hverfa frá þessu máli á þessu hausti án þess að hafa
dregið aðildarumsókn Íslands að ESB formlega til baka.
Það ótrúlega kæruleysi þeirra mun seint gleymast.
Hvernig er staðan í Evrópu nú?
Hún er svona:
Bretar hafa ákveðið að yfirgefa Evrópusambandið. Sú
ákvörðun þeirra hefur haft önnur áhrif innan ESB en for-
ráðamenn þess gerðu sér vonir um.
Í Frakklandi er nú vaxandi andstaða við ESB, bæði til
hægri og vinstri í pólitíkinni. Francois Hollande forseti
stendur nú frammi fyrir nýjum áskoranda á vinstri væng.
Sá heitir Arnaud Montebourg og er fyrrverandi ráðherra í
ríkisstjórn forsetans og talinn í vinstra armi Sósíalista-
flokksins. Hann segir Evrópusambandið komið á leið-
arenda og að fólkið í Frakklandi hafi ekki lengur áhuga á
því.
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakkands, ætlar
að reyna að endurheimta embættið og telur beztu leiðina til
þess að sveigja enn lengra til hægri og taka upp óvin-
samlega stefnu gagnvart útlendingum og múhameðstrúar-
mönnum en auk þess vill hann afnema Lissabon-sáttmál-
ann, sem hann sjálfur þrælaði í gegn sem forseti og sjá til
þess að löggjöf frá ESB gangi ekki framar franskri löggjöf.
Hvort sem frambjóðandi sósíalista verður Hollande eða
Montebourg munu þeir sem í framboði verða þurfa að
kljást við Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar sem
vill úrsögn Frakka úr ESB.
Alþjóðlegur viðskiptaritstjóri Daily Telegraph í London
segir hugmyndir Montebourg í ætt við
ríkjandi viðhorf í Póllandi og Ung-
verjalandi en ráðamenn í þessum
tveimur fyrrverandi leppríkjum Sov-
étríkjanna hagi sér á þann veg að þeir
séu í raun að yfirgefa ESB, þótt ríkin
séu formlegir aðilar.
Joseph Stiglitz, Nóbelsverðlaunahafi
í hagfræði, sagði fyrir nokkrum dögum í samtali við vefritið
Business Insider, að pólitísk og efnahagsleg vandamál Ítal-
íu væru orðin svo alvarleg að þau gætu orðið banabiti evr-
unnar sem sameiginlegs gjaldmiðils ESB-ríkja. Ítalía er
þriðja stærsta aðildarríki evrunnar.
Í greiningu, sem tekin hefur verið saman hjá Deutsche
Bank (en sá banki á líka í tilvistarkreppu) er því haldið
fram að mistökum Seðlabanka Evrópu megi líkja við mis-
tök þýzka Reichsbank og Seðlabanka Bandaríkjanna á
þriðja tug síðustu aldar, sem hafi stuðlað að Kreppunni
miklu.
Í Belgíu eru nú uppi hugmyndir um að vegna útgöngu
Breta úr ESB verði nýju lífi hleypt í hugmynd um Norður-
sjávarbandalag með aðild Dana, Þjóðverja, Hollendinga,
Frakka, Svía og Norðmanna sem geri viðskiptasamninga
við Breta.
Fyrir skömmu birtust fréttir af skýrslu eins konar innra
eftirlits Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar sem fram kemur að
björgunarleiðangur ESB/Seðlabanka Evrópu/AGS var
ekki farinn fyrst og fremst til að bjarga Grikkjum heldur
bönkum í Norður-Evrópu, sem höfðu lánað óvarlega til
Grikklands og láta grískan almenning borga brúsann.
Hér er aðeins stiklað á stóru um dæmi um viðhorfs-
breytingar í Evrópu sem virðast ekki hafa náð til Íslands ef
marka má þann málflutning stjórnarandstöðuflokkanna að
sjálfsagt sé og eðlilegt að halda áfram samningaviðræðum
við ESB um aðild Íslands.
En ætli nokkur dugur sé í núverandi stjórnarflokkum til
að koma í veg fyrir það?
Fréttir berast seint
frá Evrópu til Íslands
Hugsjónin um
sameinaða Evrópu
er á hröðu undanhaldi.
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Sigurður Ragnarsson sagnfræð-ingur skrifar um erlendar þjóðir
í sögubókina Nýja tíma, sem Mál og
menning gaf út 2006 fyrir framhalds-
skólanema. Sigurður er gamall
kommúnisti sem tók þátt í að þýða
Úrvalsrit Marx og Engels á íslensku
1968. Mál og menning naut ríflegra
styrkja frá Moskvu fram yfir 1970.
Sigurður segir á bls. 246: „Árið
1940 voru Eystrasaltsríkin þrjú, Eist-
land, Lettland og Litháen, innlimuð í
Sovétríkin.“ Hann minnist ekki á að
kommúnistastjórnin í Moskvu her-
nam löndin og beitti aftökum og
fjöldahandtökum til að kúga þjóðir
landanna til hlýðni.
Þegar sögunni víkur að opnuninni
(glasnost) í Rússlandi á níunda ára-
tug síðustu aldar segir Sigurður á bls.
292: „Hin opna umræða varð hins
vegar til að vekja upp gamla þjóðern-
ishyggju í ýmsum lýðveldum. Sterk-
ust varð þessi þjóðernishreyfing í
Eystrasaltsríkjunum þremur, Eist-
landi, Lettlandi og Litháen, en henn-
ar gætti einnig annars staðar. Þar
kom að Eystrasaltsríkin lýstu yfir
sjálfstæði og úrsögn sinni úr Sov-
étríkjunum eins og þau höfðu raunar
heimild til samkvæmt stjórnarskrá
ríkisins.“
Þetta er fráleitt. Eystrasaltsþjóð-
irnar gengu aldrei úr Ráðstjórnar-
ríkjunum, af því að þær gengu aldrei í
þau, heldur voru innlimaðar með of-
beldi. Þjóðernisvitund var sterk í
löndum þeirra allan hernámstímann,
eins og Ants Oras og Andres Küng
lýsa í bókum sem komið hafa út á ís-
lensku. Heimild til að ganga úr Ráð-
stjórnarríkjunum var innantóm and-
spænis ofureflinu, gráu fyrir járnum,
með ritskoðun sína, leynilögreglu og
aftökusveitir. Ísland viðurkenndi
aldrei hernám Eystrasaltsríkjanna,
og varð fyrst ríkja til að endurnýja
viðurkenningu sína á sjálfstæði
þeirra, þótt Sigurður minnist ekki á
það.
Söguskoðun Sigurðar er fyrir-
skipuð í rússneskum skólum. Fleiri
skoðanir hljóta að komast að í ís-
lenskum skólum.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Sögufalsanir um
litlar vinaþjóðir
EBK Huse er eitt af leiðandi sumarhúsa byggingarfyrirtækjum í Danmörku og hafa byggt meira en 6000 hús á
þeim 40 árum, sem fyrirtækið hefur verið starfrækt í núverandi mynd. EBK hefur byggt rúmlega 70 hús á Íslandi.
Við bjóðum upp á 5 mismunandi húsagerðir - allt frá hinu klassiska danska sumarhúsi til nýtísku og stílhreinna
sumarhúsa . Hægt er að velja um byggingarsett eða tilbúna og frágengna heildarlausn.
Opið hús í Hirseholm 111 - AÐEINS sunnudaginn 28. ágúst kl. 12-16
Einstakur möguleiki á að sjá og upplifa frábæra hönnun og gæði húsanna og finna hina einstöku dönsku
sumarhússtemningu! Mosaskyggnir 8, Úthlíð – Sumarhúsabyggð, 801 Selfoss
GPS staðsetning hússins: 64° 16.734’N, 20° 27.924’W
Athugið: Akið að hliði nr. 4 og hringið í Anders í síma +45 4020 3238 og hann mun koma og opna hliðið.
Fylgið veginum Mosaskyggnir og eftir u.þ.b. 800m. frá hliðinu er komið að EBK húsinu, hægra megin við veginn.
Vinsamlegast hafið samband við Anders Ingemann Jensen
í síma 45 4020 3238, aj@ebk.dk eða á slóðinni
www.ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku.
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk
16
56
3
Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús?
WWW.EBK-HUS.IS
DÖNSK HÖNNUN
OG ARKITEKTÚR
Lí
ka
n
p
ho
to