Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 60

Morgunblaðið - 27.08.2016, Side 60
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Svavar Pétur Eysteinsson kallar sig ekki grænmetisætu. „Ég myndi frek- ar kallast „flexitarian“. Ég er svona 99% grænmetisæta, og öll mín elda- mennska og mataræði hverfist um grænmetið, en um leið bý ég hér í miklu landbúnaðarhéraði og hluti af rótgróinni menningu staðarins að t.d. rammíslensk kjötsúpa kunni að verða á boðstólum.“ Svavar, sem rekur matvælafyrir- tækið Havarí, borðar einnig fisk, mjólkurvörur og egg og er það fyrst og fremst kjötið sem hann reynir að forðast. Ástæðan er umfram allt sam- úð með dýrunum. „Ég hætti að borða kjöt árið 2012, að mig minnir, því mér var hætt að lítast á blikuna í verk- smiðjulandbúnaði. Löngu áður var ég farinn að sneiða hjá kjötáti á ferða- lögum til útlanda. Með breyttri neyslu vildi ég leggja mitt af mörkum til að fækka drápum á dýrum,“ segir hann. En að segja skilið við kjötvörurnar er ekki auðvelt fyrir alla og margir sem hika við að taka þetta skref af ótta við að þurfa þá að lifa af litlu öðru en salati og sellerístöngum. „Það er ákveðin upplifun sem fylgir mörgum kjötréttum. Fitan og safinn gefur bragð sem fólk sækir í og á pönnunni, í ofninum eða á grillinu verður til þessi stökka skorpa sem gaman er að bíta í. En það er misskilningur að ekki sé hægt að upplifa það sama með grænmetisfæði.“ Feit og safarík Svavar framleiðir grænmetispyls- urnar Bulsur (www.bulsur.is) og falla þær í flokk safaríkari grænmetisrétta sem finna má. „Hún gerði fljótlega vart við sig hjá mér, þessi fýsn í pyls- ur. Gerist það svo að ég pantaði mér grænmetispylsu á veitingastað í Ár- ósum og kom þjónninn með þennan flotta vegan-pylsurétt handa mér. Pylsan reyndist vera betri á bragðið en margar kjötpylsurnar sem ég hafði smakkað í gegnum tíðina.“ Eftir ítarlegar tilraunir litu Bulsur dagsins ljós. Uppistaðan er lífrænt bankabygg ræktað á Vallanesi. Einn- ig innihalda Bulsurnar lífrænt rækt- aðar nýrnabaunir en chia- og hörfræ eru notuð bæði sem næringargjafi og bindiefni. Reykt paprika, chili og hvítlaukur gera Bulsu-pylsuna bragðsterka og sparar Svavar heldur ekki olíuna svo að pylsan er safarík og feit eins og hún á að vera. Plastfilma heldur Bulsunni saman, rétt eins og gert er með bjúgu. „Þessi filma er einu umbúðirnar, Bulsunum er ekki pakkað í frekara plast,“ út- skýrir Svavar en Bulsur má finna í flestum matvöruverslunum. Þegar plastið er farið af má t.d. steikja Bulsuna á pönnu eða grilli. „En einnig má bregða á leik og kremja pylsuna í buff svo að úr verða hamborgarar, eða fletja hana mjög þunnt og er þá komin skinka á sam- lokuna.“ Fjölbreyttari borgarar Svavar er hrifinn af steiktum og grilluðum mat og leggur ekki endi- lega alltaf ofuráherslu á hollustuna. Rata pylsur og borgarar oft á diskinn og segir hann að ef eitthvað er þá verði réttirnir meira spennandi þegar grænmeti er uppistaðan. „Þegar maður borðar hamborgara með kjöti þá er maður á vissan hátt alltaf að borða sama borgarann, enda buffið yfirleitt frekar svipað. Í grænmetis- hamborgurum er hins vegar hægt að nota ótrúlegt úrval hráefna og gera endalausar tilraunir með ólíkar teg- undir bauna, og með fræin sem notuð eru sem binding. Útkoman er matur sem er bæði mjög „djúsí“ og fjöl- breyttur,“ segir Svavar og bætir við að franskar kartöflur séu vegan og sömuleiðis tómatsósa, sinnep og BBQ-sósa. Það fjölgar möguleikunum hjá Svavari að hann neytir mjólkurvara, en jafnvel ef þeim er sleppt er hægt að gera ótalmargt freistandi og fit- andi góðgæti. Berst talið út í eftir- réttina og nefnir Svavar ísgerð þar sem haframjólk er uppistaðan. „Ég hef verið að gera tilraunir með þann- ig ísgerð fyrir sjálfan mig, en ekki tekist alveg nógu vel en vel heppn- aður haframjólkurís er síst lakari en hefðbundinn mjólkur- og rjómaís og eitthvað sem sælkerarnir ættu hik- laust að setja fókusinn á.“ Ekkert mál að elda Sumir reka sig á það, þegar þeir vilja minnka kjötneysluna, að grænmetismataræðið getur kallað á ögn meiri fyrirhöfn í eldhúsinu. Svav- ar segir reyndar hægt að finna alls kyns fjöldaframleidd grænmetisbuff og -rétti úti í búð en stundum eru innihaldsefnin ekki alveg nógu sniðug þótt ekkert sé kjötið. Reynir hann sjálfur að gera sem mest af sínum mat frá grunni. „Það er alls ekki flók- ið að henda einhverju gumsi í mat- vinnsluvél og buffin eða bollurnar til- búnar eins og skot. Skemmir ekki fyrir að grænmetið er mun ódýrara hráefni en kjötið.“ Gúmmelaði grænmetis- ætunnar  Þó að fólk velji að sleppa kjötvörum þarf ekki að vera salat í hvert mál.  Bulsu- pylsurnar eru safaríkar, feitar og bragðmikl- ar en uppistaðan í þeim er bygg. Áhrif Svavar Eysteinsson og dóttir hans Aldís Rúna. Svavar hætti að borða kjöt til að leggja sitt af mörkum til að fækka drápum á dýrum. Það markaði kaflaskil þegar hann smakkaði gómsætar vegan-pylsur í Árósum. Einfalt Umbúðirnar eru í lágmarkiRendur Grillið er ekki bara fyrir kjöt. Ekki vantar safann í grillaðar Bulsur.  Sjóðið kartöflur, gulrófur og gulrætur í vatni.  Hellið vatninu af (að mestu) og stappið.  Blandið smátt skornu græn- káli saman við.  Kryddið með salti og pipar.  Steikið rauðlauk dágóða stund upp úr olíu þar til hann verður mjúkur.  Bætið við sykri og bal- samik-ediki og sjóðið örlítið lengur.  Takið bulsur úr plastinu og steikið upp úr olíu þar til þær verða dökkar og stökkar.  Berið fram með súrum gúrkum og dijon sinnepi. Bulsur og mús 60 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016 HAUSTMATUR Bygg og spaghettí  Sjóðið 300 g af bankabyggi og hellið vatninu af.  Á pönnu steikið sveppi, lauk, hvítlauk, chilipipar, og annað grænmeti.  Bætið við 2-4 msk. tómatp- úrru og vatni svo úr verði góð sósa.  Jafnframt er gott að setja smátt skorna ferska tómata út í.  Kryddið með salti, pipar, grænmetiskrafti og öðru hressandi kryddi.  Blandið sósunni saman við soðið bankabyggið.  Sjóðið spaghettí og berið fram með byggsósunni. Snarl Grilluð samloka með Bulsu-„skinku“ og osti. Þarf nokkur meira?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.