Morgunblaðið - 27.08.2016, Síða 66
66 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2016
Sveinn Bjarna-
son hefur verið
samofinn lífi mínu
svo lengi sem ég
man. Hann lærði
og starfaði hjá afa mínum Valdi-
mari G. Þorsteinssyni bygginga-
meistara. Árið 1964 urðu svo
fjölskyldur okkar sambýlisfólk í
Álftamýri 6. Bróðir minn leit
dagsljósið skömmu eftir að við
fluttum og ég fór í pössun, þeg-
ar heim kom vildi ég ekki líta
nýfæddan drenginn augum.
Mamma hótaði því að „Sveinn
húsvörður myndi þá bara taka
mig.“ Ég furðaði mig á því í ár-
anna rás hvað konunni gekk til
því um einstakt ljúfmenni var
að ræða.
Erla, Sveinn og strákarnir
Óli og Grétar voru partur af
Sveinn Bjarnason
✝ Sveinn Bjarna-son fæddist 29.
júlí 1931. Hann lést
17. ágúst 2016.
Útför Sveins fór
fram 23. ágúst
2016.
fólkinu í blokkinni.
Þegar háttatími
var kominn kallaði
Erla á strákana –
já, þá voru líka úti-
vistarreglur. Ég
fór stöku sinnum
til Erlu og strák-
anna þar sem við
vorum trakteruð á
kökum og mjólk.
Það var eitthvað í
fasi Erlu og skör-
ungskap hennar sem fékk mig
til að hugsa „já, svona kona
ætla ég að vera þegar ég verð
stór“. Þetta eru vissulega minn-
ingar úr æsku, en svona var lífið
í þá daga. Dag einn ákvað
Sveinn að fara í ökutíma og fá
bílpróf. Ég man eftir því hvað
hann var fínn og flottur þegar
hann fór í ökutímana, hann
eignaðist svo forláta Willys ’48.
Þá minnist ég þess á snjóþung-
um degi, þegar hann kom út
með sveifina og trekkti bílinn í
gang. Þetta gerði enginn nema
Sveinn.
Sveinn var meðlimur í flug-
björgunarsveitinni og þegar
maður sá kappann koma eða
fara í leit fylltist ég lotningu að
þekkja svona mann sem fór út í
óvissuna að bjarga fólki.
Sveinn starfaði síðan við
byggingu á húsi foreldra minna
með afa og var hann við störf
sín þar þegar afi kom rétt til að
líta eftir framkvæmdunum, þá
kominn úr vinnugallanum og í
jakkafötin sín er hann varð
skyndilega brákvaddur á staðn-
um og þar var Sveinn til taks,
eftir þetta urðu tafir á byggingu
hússins. En síðar kom meistari
Valur Benediktsson húsasmiður
til sögunnar en hann og Sveinn
Bjarnason störfuðu ávallt sam-
an eftir þetta. Þeir félagar Val-
ur og Sveinn voru mér innan
handar við smíðar og lagfær-
ingu á hýbýlum mínum, þar
voru þúsundþjalasmiðir á ferð
og verða þeim seint þökkuð þau
störf, útsjónarsemi og lista-
handbragð, einstakir fagmenn
og ljúflingar þar á ferðinni.
Fyrir nokkrum árum hlustaði
ég á viðtal við mann sem sagði
frá hjólatúrum sem hann fór í
en hann sagðist hafa hitt annan
ungan mann við fjallsbrún sem
var á leið í göngu og einnig á
hjóli. Ég þóttist fullviss um að
þarna væri verið að ræða um
Svein. Tilgátan mín reyndist
rétt því þetta var hinn eini og
sanni Sveinn Bjarnason. Þeir
tveir urðu svo ævilangir ferða-
félagar. Þegar ég í dag horfi á
öll háhýsin í Reykjavík í miklu
roki, verður mér hugsað til
Sveins sem sagði að ég ætti að
labba sem næst háhýsunum í
miklu roki því þau væru eins og
fjöllin varðandi vindinn.
Minningar mínar um Svein
eru vissuleg tengdar æskunni;
þegar hann sneið út spaða úr af-
gangsvið á verkstæðinu í kjall-
aranum á Miklubrautinni hjá
afa eða þegar hann sló blettinn
eða þvoði gluggana. Hvað mér
þótti hann góður að gera þetta
allt fyrir ömmu, en svona vann
hann fyrir afa. Nú við þessi um-
skipti lífs og dauða og heim-
komu í handanheim almættisins
hefur verið vel tekið á móti ein-
stökum hugsuði og mannvini og
þau Erla sameinast þar á ný og
sennilega er neftóbaksdósin
ekki langt undan og englar al-
heimsins farnir að hnerra.
Blessuð sé minning Sveins
Bjarnasonar.
Jóhanna B. Magnúsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
BJÖRNS VÍKINGS ÞÓRÐARSONAR,
fv. aðalgjaldkera ÁTVR,
Engihjalla 1, Kópavogi,
sem lést 8. júní síðastliðinn.
.
Guðmunda Inga Guðmundsdóttir,
Anna R. Björnsdóttir,
Þórður Björnsson, Lísbet Alexandersdóttir,
Björn Víkingur Þórðarson,
Vikingur Nielsen,
Alexander Þórðarson,
Benedikt Þórðarson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts bróður okkar, mágs
og frænda,
EIÐS RAGNARSSONAR
bónda,
Fossvöllum, Jökulsárhlíð,
sem lést sunnudaginn 31. júlí.
Sérstakar þakkir fær Björgunarsveitin Hérað.
.
Hermann Ragnarsson Sjöfn Bergmann
Guðný Ragnarsdóttir Arnar Bjarnason
Kristbjörg Ragnarsdóttir Valgeir Magnússon
Ragnheiður Ragnarsdóttir
og systkinabörn.
Faðir okkar og bróðir, afi og langafi,
STEFÁN PÉTURSSON,
sem lést 27. júlí, hefur verið jarðsunginn í
kyrrþey. Sérstakar þakkir viljum við færa
starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir
einstaka hjúkrun.
.
Björgólfur Stefánsson,
Hlynur Stefánsson, Unnur Sigmarsdóttir,
systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
HELMOUT KARL KREIDLER
sjóntækjafræðingur,
varð bráðkvaddur 19. ágúst. Útför hans fer
fram frá Háteigskirkju föstudaginn 2.
september klukkan 13.
.
Steinunn Kristjánsdóttir,
Einar Victor Karlsson,
Dagur Freyr Einarsson, Eydís Lára Einarsdóttir.
Hjartans þakkir til vina og vandamanna og
allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu
og hlýhug við andlát og útför ástríks föður,
stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR INGA SIGURÐSSONAR,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði,
.
Sigríður Margrét Magnúsd., Björn V. Jónsson,
Kristín María Magnúsdóttir, Jón Magnús Sveinsson,
Herta Maríanna Magnúsd., Arthur Pétursson,
Helga Jóna Ólafsdóttir, Ásgeir Friðsteinsson,
Edda Ólafsdóttir,
Þóra Ólafsdóttir, Aad Groeneweg,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
HALLDÓRS SNORRASONAR
matreiðslumeistara,
Kirkjulundi 12, Garðabæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut.
.
Sigurveig Sæmundsdóttir,
Unnur Fríða Halldórsdóttir,
Elísabet Halldórsdóttir, Hjalti Bjarnfinnsson,
Sóley Halldórsdóttir, Þórmundur Jónatansson,
Björn Halldórsson, Berglind Birgisdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
JÓNS GUÐBRANDSSONAR,
fv. héraðsdýralæknis á Selfossi.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir góða
umönnun.
.
Þórunn Einarsdóttir,
Bertha S. Jónsdóttir, Pétur Guðjónsson,
Sigríður Jónsdóttir, Hjörleifur Þór Ólafsson,
Einar Jónsson,
Ragnhildur Jónsdóttir, Anton S. Hartmannsson,
Guðbrandur Jónsson, Guðrún Edda Haraldsdóttir,
Ingólfur R. Jónsson, Svanborg B. Þráinsdóttir,
Sveinn Þ. Jónsson, Selma Sigurjónsdóttir,
Brynhildur Jónsdóttir, Guðjón Kjartansson,
Matthildur Jónsdóttir, Hjörtur B. Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
elskulega föður, tengdaföður, afa og
langafa,
GUÐMUNDAR BENEDIKTS
RÓSMUNDSSONAR
skipstjóra í Bolungarvík.
.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og
barnabarnabörn.
Elsku dóttir okkar, systir, barnabarn og
frænka,
LORIANA BENATOV,
lést 21. ágúst 2016. Jarðsett verður í
Chevreuse 29. ágúst klukkan 15.
.
Leonardo, Lilja, Svetlana,
Margrét amma,
Skafti afi
og fjölskylda. Óttar er farinn.
Hann kvaddi okkur
15. júlí 2016 og var
jarðsunginn 25. júlí
síðastliðinn. Þessi
kraftmikli maður
varð að lúta í lægra haldi fyrir
ólæknalegu krabbameini. Í heil
þrjú ár barðist hann við þennan
vágest af þvílíku æðruleysi og
hugrekki og aldrei var kvartað,
það var ekki til í hans orðaforða.
Hver var Óttar? Hann var
fæddur að Syðra-Laugalandi í
Eyjafjarðarsveit 3. júlí 1929, son-
ur Björns Jóhannssonar og
Emmu Elíasdóttur. Þar ólst hann
upp í fjölmennum systkinahópi á
mannmörgu heimili. Er Óttar var
sextán ára fór hann í Héraðsskól-
ann á Laugarvatni og var þar í tvo
vetur. Seinna fór hann í Bænda-
skólann á Hvanneyri í einn vetur
sem hann lauk með lofsverðum
vitnisburði fyrir frábæran náms-
árangur og dugnað.
Óttar var glæsilegur ungur
maður, það sópaði af honum hvert
sem hann fór, glaðvær og hrókur
alls fagnaðar, hagyrðingur góður,
talaði fallegt og kjarnyrt mál og
góður söngmaður.
Ég tala nú ekki um hvað hann
var góður sögumaður og voru þær
ófáar stundirnar um ævina sem
hann skemmti fólki með alls konar
skemmtisögum og vísum, eftir
aðra og einnig eftir sjálfan sig.
Ævistarfið sem hann valdi var
bóndastarfið. Hann gat ekki hugs-
að sér annað en að eiga heima í
sveitinni. Hann tók við búi af for-
eldrum sínum árið 1966 á Syðra-
Laugalandi og bjó þar í sex ár en
flutti þaðan að Garðsá í sömu sveit
og keypti þá jörð eftir eins árs bú-
setu og bjó þar í 30 ár. Eiginkona
Óttars hét Steinunn Gísladóttir
frá Sámstöðum, glæsileg kona.
Óttar Björnsson
✝ Óttar Björns-son fæddist 3.
júlí 1929. Hann and-
aðist 15. júlí 2016.
Útför Óttars fór
fram 25. júlí 2016.
Þau hjón voru mjög
samhent í öllu og góð
heim að sækja. Þau
eignuðust fjögur
mannvænleg börn
sem eru öll dugandi
fólk og með tímanum
eignaðist Óttar átta
barnabörn.
Mjög snemma fór
Óttar að taka þátt í
félagsmálum í sinni
sveit og var þar lið-
tækur og drífandi eins og í öllu
sem hann kom nálægt.
En aðalstarfinu sem bóndi
sinnti hann vel, var farsæll í starfi,
bjó góðu búi og bætti jörð sína
mikið á sinni búskapartíð, bæði
með nýbyggingum og ræktun.
Þegar Óttar var um sextugt lét
hann gamlan draum rætast og fór
í myndlistarnám og málaði aðal-
lega landslagsmyndir.
Árin liðu og árið 1997 verður
Óttar fyrir þeirri sorg að missa
konuna sína tæplega sjötuga. Eft-
ir þetta vann hann á búi Orra son-
ar síns og tengdadóttur sinnar um
nokkurra ára skeið.
Og enn tók lífið u-beygju í lífi
Óttars eftir að hann kynntist mér
undirritaðri og flutti til mín að
Ytra-Laugalandi. Þá var mín
staða þannig að ég var orðin ekkja
fyrir nokkru. Óttar aðstoðaði mig
á margan hátt er ég opnaði ferða-
þjónustu á heimili mínu árið 2007.
Í veikindastríði hans reyndust
læknarnir Friðbjörn R. Sigurðs-
son og Nick Cariglia honum af-
skaplega vel og mest og best
treysti hann á Nick. Enda brást
hann honum ekki og alltaf gat
hann tekið hann í meðferð og ekki
má gleyma hjúkrunarfræðingun-
um í heimahlynningu, þær reynd-
ust honum frábærlega vel.
Ég vil þakka Óttari samfylgd-
ina þessi ár okkar saman, alla
hjálpsemina, og þennan drifkraft í
að láta hlutina ganga og að láta
gott af sér leiða. Ég kveð Óttar
með virðingu.
Vilborg G. Þórðardóttir,
Ytra-Laugalandi.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig
er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar