Morgunblaðið - 27.08.2016, Page 84
Tónlistarkonan Sóley Stefánsdóttir
mætir í Mengi í kvöld kl. 21 ásamt
hópi góðra vina og flytur tónsmíðar
af nýrri plötu sem mun að öllum lík-
indum koma út á næsta ári. Skipu-
leggjendur lofa seiðmagnaðri stund
með Sóleyju sem lýsir væntanlegri
plötu sinni sem leiðangri um von og
eilíft sumar. Áður hafa kom-
ið út tvær breiðskífur
með Sóleyju, þ.e. We
Sink sem út kom 2011
og Ask the Deep árið
2015 og tvær smáskíf-
ur, Theater Island ár-
ið 2010 og Króm-
antík árið
2014.
Sóley Stefánsdóttir
kynnir nýtt efni
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 240. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Grunur um umfangsmikil fjársvik
2. „Búin að fá nóg“
3. Gljúfrasteinn lokaður út árið
4. Brast í grát er hún sagði sögu sína
Eiðurinn, nýjasta kvikmynd Baltas-
ars Kormáks, hefur verið valin til þátt-
töku í aðalkeppni San Sebastian- há-
tíðarinnar sem er ein af fáum svo-
kölluðum „A“-kvikmyndahátíðum.
Þetta er í annað sinn sem kvikmynd
eftir Baltasar keppir í aðalkeppni San
Sebastian-hátíðarinnar, því 2002
keppti Hafið. Hátíðin fer fram á Spáni
dagana 16.-24. september.
Eiðurinn mun keppa um Gullnu skel-
ina, aðalverðlaun hátíðarinnar sem
eru veitt fyrir bestu mynd. Myndin
verður heimsfrumsýnd á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Toronto sem
hefst 8. september, en daginn eftir
verður hún frumsýnd hérlendis. Balt-
asar leikstýrir og skrifar handritið
ásamt Ólafi Agli Egilssyni auk þess
sem hann leikur eitt aðalhlutverkanna.
Meðal annarra leikara eru Hera Hilm-
arsdóttir og Gísli Örn Garðarsson.
Baltasar lék síðast í kvikmyndinni
Reykjavík Rotterdam, 2008.
Morgunblaðið/Golli
Eiðurinn í aðalkeppni
á San Sebastian
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-13 m/s norðvestan til en annars hæg breytileg átt.
Hiti 8 til 16 stig, hlýjast syðst.
Á sunnudag og mánudag Hæg breytileg átt og víða skúrir. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á
Suðurlandi. Á þriðjudag Gengur í austan og norðaustan 10-15 m/s með rigningu, fyrst
fyrir sunnan. Hiti víða 9 til 14 stig. Á miðvikudag og fimmtudag Norðlæg eða breytileg
átt og dálítil væta í flestum landshlutum, en áfram milt veður.
„Ég þarf að vera á tánum á hverri ein-
ustu æfingu og í hverjum einasta
leik. Þetta er umhverfi sem ég mun
bæta mig mest í. Þetta er mesta at-
vinnumannaumhverfi sem ég hef ver-
ið í, þannig að það er frábært,“ segir
landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunn-
arsdóttir meðal annars í samtali við
Morgunblaðið í dag en hún flutti í
sumar frá Svíþjóð til Þýskalands. »1
Mikil samkeppni hjá
Söru í Þýskalandi
„Við viljum allir byggja ofan
á árangurinn sem náðist á
EM og markmiðið er að
komast í lokakeppnina í
Rússlandi. Við ætlum okkur
á HM. Við upplifðum það all-
ir hversu skemmtilegt það
er að taka þátt í stórmóti og
ekki síður fyrir fólkið heima
á Íslandi og þetta er eitt-
hvað sem við viljum allir
upplifa aftur,“ segir Gylfi
Þór Sigurðsson. »2-3
Viljum allir upp-
lifa þetta aftur
„Mér líður ágætlega hérna en það
verður svo bara að koma í ljós hvað
gerist í framtíðinni. Ég veit að Vesz-
prém vill framlengja samninginn við
mig og ég veit líka af áhuga hjá öðr-
um liðum á mér,“ segir landsliðsmað-
urinn Aron Pálmars-
son, leikmaður
ungverska
meistaraliðsins
Veszprém. »4
Barcelona og Paris SG
eru heillandi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jóhann Helgason tónlistarmaður á
bifreið af tegundinni Jagúar Sover-
eign, árgerð 1986. Bíllinn tengist
bresku konungsfjölskyldunni óbeint
og stjórn Bretlands með skemmti-
legum hætti og er því ekki aðeins
eðalgripur heldur á sér merka sögu.
„Ég hef aldrei verið með bíla-
dellu, tók ekki bílpróf fyrr en ég var
27 ára, en eftir að ég flutti á Sel-
tjarnarnesið 1981 hef ég reglulega
gengið um Valhúsahæð og fyrir ut-
an rafmagnsverkstæði Sævars sá
ég eitt sinn bíla sem ég hafði aldrei
séð áður,“ rifjar Jóhann upp. Hann
segir að þessir bílar hafi vakið for-
vitni sína og einn daginn hafi hann
farið inn og rætt við Sævar, eiganda
verkstæðisins. „Hann kom mér í
samband við Englendinginn Peter
Hugo, sem hefur meðal annars oft
leikið Karl Bretaprins, auk þess
sem hann selur klassíska bíla eins
og Jagúar. Það endaði með því að
hann seldi mér sinn bíl 1999, árið
sem ég varð fimmtugur.“
Vísað til vegar sem prinsi
Leiðir Jóhanns og Peters lágu
fyrst saman eftir að hann keypti bíl-
inn en í ljós kom að Peter rak gjafa-
vöruverslunina Sterling í Hafnar-
stræti í samstarfi við Hilmar
Friðrik Foss. „Við Hilmar heim-
sóttum hann 2008 og í þeirri ferð
fékk ég „nýjan“ ljósarofa hjá kunn-
ingja Hilmars í klassíska vara-
hlutabransanum, úr bíl sem var áð-
ur í eigu Margrétar Thatcher.“
Jóhann áréttar að Peter sé mjög
líkur Karli prinsi. „Hann sagði okk-
ur meðal annars frá því að lög-
reglan hefði eitt sinn stöðvað hann
þar sem hún hélt að hann væri að
villast á leiðinni í húsnæði hirð-
arinnar í nágrenninu.“
Jagúar er ekki sama og Jagúar
Jóhann bendir á að árgerð 1986
sé síðasta árgerð smíðuð sam-
kvæmt ákveðinni ítalskri hönnun.
„Breytingin var ekki til bóta, svona
eins og að breyta lögun kókflösk-
unnar,“ segir hann. Bætir við að
þegar hann hafi verið í kauphug-
leiðingunum hafi hann sagt Peter
að hann vildi dökkbláan bíl með
stýrinu vinstra megin og sér lægi
ekki á, því hann væri búinn að bíða
svo lengi. „Þetta endaði með því að
Peter sagðist vera tilbúinn að selja
mér sinn bíl, sem er reyndar með
stýrinu hægra megin, og því fékk
ég meiri lúxusbíl en til stóð í upp-
hafi, bíl með þaklúgu og ýmsu öðru,
og hann hefur reynst mér sérlega
vel.“
Jóhann notar Jagúarinn eins og
hann þarf nema hvað hann sleppir
því að keyra í snjónum. „Saltið er
svo fljótt að skemma en þetta er
góð árgerð og ég er sáttur enda gef-
andi og gerir lífið skemmtilegra að
eiga svona bíl.“
Lífið skemmtilegra í Jagúar
„Staðgengill“ Bretaprins seldi
Jóhanni bílinn og rofa úr bíl Thatcher
Morgunblaðið/RAX
Tveir góðir Jóhann Helgason tónlistarmaður og Jagúarinn eiga vel saman enda fara þeir allra ferða saman og njóta lífsins, hvor á sinn hátt.
Peter Hugo. Ljósarofinn.