Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/ÞÖK
Útboð Framkvæmdum fjölgar.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Áætlaður heildarkostnaður fram-
kvæmda á vegum Framkvæmda-
sýslu ríkisins og Ríkiseigna, sem
boðnar hafa verið út á árinu og eru
áætlaðar í útboð á árinu, er um 7,7
milljarðar króna. Að viðbættum
þeim framkvæmdum sem þegar
standa yfir er áætlaður kostnaður
um 11,8 milljarðar króna.
Fjárhæð framkvæmda sem kynnt-
ar eru til útboðs á ári hverju hefur
hækkað jafnt og þétt frá árinu 2014.
Árið 2013 var heildarfjárhæðin
rétt tæpir 16 milljarðar, um 7 millj-
arðar árið 2014 og um 7,5 milljarðar
árið 2015.
Að sögn Halldóru Vífilsdóttur, for-
stjóra Framkvæmdasýslunnar, tók
velta vegna verklegra framkvæmda
kipp milli áranna 2014 og 2015, úr
rúmum þremur milljörðum og í
rúma fjóra milljarða. Á fyrstu sjö
mánuðum þessa árs var veltan um
tveir milljarðar.
„Árið 2011 voru verkefni sem voru
á áætlun sett í bið og skorið niður í
framkvæmdum,“ segir hún.
Halldóra bendir á að þær fram-
kvæmdir sem hafi verið kynntar til
útboðs á árinu endurspegli ekki
þann kostnað sem fellur til á árinu,
verksamningar séu gerðir minnst til
eins árs og greitt sé fyrir verkin í
hlutfalli við framvindu.
Heildarfjárhæðir verksamninga
Framkvæmdasýslunnar hafa farið
hækkandi, en árið 2013 var upphæð-
in um 2,2 milljarðar króna, 3,5 millj-
arðar árið 2014 og um 4 milljarðar
árið 2015. Á fyrstu átta mánuðum
ársins nemur heildarfjárhæð verk-
samninganna tæpum 1,6 milljörðum.
„Þetta er að taka hægt við sér. Við
vitum það líka að bygging nýs Land-
spítala er það verkefni sem mun
verða ráðandi í framkvæmdum hins
opinbera á næstu árum. Það er lang-
stærst,“ segir hún.
Halldóra bætir við að einnig séu í
burðarliðnum verkefni á borð við
nýja skrifstofubyggingu Alþingis,
stækkun gestastofu á Þingvöllum og
hjúkrunarheimili.
Útboð fyrir 7,7 milljarða á árinu
Opinberar framkvæmdir taka hægt og bítandi við sér Áætlaður heildarkostnaður vegna verkefna
sem fóru í útboð á árinu nemur 7,7 milljörðum Nýr Landspítali verður ráðandi á næstu árum
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Jólaferð til Brussel&Brugge
Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir
Í Brussel og Brugge ríkir hátíðleg jólastemning á
aðventunni. Báðar borgirnar eru með einstaklega
huggulega jólamarkaði innan um virðulegar gamlar
byggingar og hefur jólamarkaður Brussel verið tilnefndur sá
frumlegasti í Evrópu. Belgískar vöfflur, súkkulaði og annað
góðgæti heimamanna sjá til þess að allir njóti aðventunnar.
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Skoðunarferð til Brugge er innifalin!
24. - 27. nóvember
NÝ
FE
RÐ
Líður flóttafólkinu sem þegar er
komið vel?
„Já, því líður vel. Ég held að það sé
óhætt að segja það. Auðvitað er erf-
itt að flytjast til nýs lands og það
koma alltaf áskoranir. En verkefnið
gengur mjög vel og við getum verið
stolt af því.
Sérstaklega þegar litið er til þess
hvað samstarf milli stjórnvalda,
sveitarfélaga og Rauða krossins hef-
ur virkað vel. Rauði krossinn er með
mjög marga sjálfboðaliða. Það má
samt aldrei gleyma því frábæra
framlagi sem kemur frá sveitarfélög-
unum.“
64 einstaklingar fengið stöðu
flóttamanns eða dvalarleyfi
Þess má geta að innan velferðar-
ráðuneytisins er unnið að því að leita
leiða til að aðstoða flóttafólk sem hef-
ur fengið stöðu sína viðurkennda eftir
hælisleit á Íslandi. Alls hafa 64 ein-
staklingar fengið stöðu flóttamanns
eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum
eftir umsókn um hælisleit á þessu ári.
stofnun Sameinuðu þjóðanna sem
sendi íslenskum stjórnvöldum mál
tíu fjölskyldna.
„Þetta hefur gengið mjög vel fram
að þessu,“ segir Linda Rós. „Móttak-
an á hópunum á Akureyri, í Hafn-
arfirði og Kópavogi hefur gengið af-
bragðsvel. Við erum reynslunni
ríkari eftir mörg verkefni,“ segir
hún.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Já, íslensk stjórnvöld ráða vel við
komu 47 nýrra flóttamanna,“ segir
Linda Rós Alfreðsdóttir, sérfræð-
ingur hjá velferðarráðuneytinu og
starfsmaður Flóttamannanefndar.
Í gær kom fram í fréttum að Eygló
Harðardóttir, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, vill að íslenska ríkið
taki á móti 47 sýrlenskum flótta-
mönnum sem eru staddir í Líbanon,
að tillögu Flóttamannanefndar.
Níu fjölskyldur
Um er að ræða níu fjölskyldur
sem óskað er eftir að komi hingað til
lands. Elsti einstaklingurinn er 78
ára gamall og sá yngsti á fyrsta ári.
Þrjár þessara fjölskyldna eiga ætt-
ingja hér á landi. Þar er á ferðinni
fólk sem kom fyrr á þessu ári sem
kvótaflóttafólk frá Sýrlandi.
Á minnisblaði kemur fram að
Flóttamannanefnd byggir tillögur
sínar á skýrslum frá Flóttamanna-
Ráðum vel við komu
nýrra flóttamanna
Íslenska ríkið taki við 47 sýrlenskum flóttamönnum
Morgunblaðið/Eggert
Hólpin Frá komu hóps erlendra
flóttamanna til Íslands.
Aldrei hefur mælst jafnmikið af
makríl á norðurslóðum og nú í júlí-
mánuði. Þetta kemur fram í skýrslu
Hafrannsóknastofnunar sem hún
hefur birt ásamt hliðstæðum stofn-
unum Grænlendinga, Færeyinga og
Norðmanna, en könnunarleiðangri á
vegum þjóðanna fjögurra lauk í
byrjun ágúst.
Heildarvísitala makríls var metin
10,2 milljónir tonna, sem er aukning
um þriðjung frá síðasta ári. Þá var
vísitala makríls innan íslenskrar
efnahagslögsögu metin 3,1 milljón
tonn, eða 30,6% af heildarvísitölu
stofnsins, og hefur magnið ekki áður
verið meira. Næsthæst er vísitalan
innan lögsögu Noregs, en þar er hún
metin 18%.
Hækkandi yfirborðshiti
Í skýrslunni er að auki tekið fram
að yfirborðshiti sjávar í júlí hafi
mælst einum til tveimur gráðum
meiri en á síðasta ári á mestöllu
svæðinu. Þá var hann einnig einum
til tveimur gráðum meiri en lang-
tímameðaltal mælinga síðustu tutt-
ugu ár.
Mestur þéttleiki makríls við Ís-
land mældist vestan við landið en
hann fannst á nær öllu könnunar-
svæðinu, sem þekur þrjár milljónir
ferkílómetra. Þá fannst meira magn
af honum í norður-, norðvestur- og
vesturhluta svæðisins en á síðasta
ári, þar á meðal innan lögsögu Ís-
lands og Grænlands.
Nokkur skip leiðangursins litu
einnig eftir hvölum og alls sáust um
700 sjávarspendýr, sem er töluverð
fjölgun frá síðustu árum. sh@mbl.is
Aldrei jafnmikið
mælst af makríl
Nær þriðjungur við strendur Íslands
Morgunblaðið/Þórður
Makrílveiðar Næsthæst er vísitala
makríls innan lögsögu Noregs.
„Þetta gekk bara vonum framar, fór langt út fyrir það
sem vonir stóðu til. Þetta sló í gegn,“ segir Ingibjörg
Gréta Gísladóttir, verkefnastjóri lýðræðishátíðarinnar
sem hófst í gær og heldur áfram í dag.
Fundur fólksins er tveggja daga hátíð um samfélags-
mál og stjórnmál og er haldin í Norræna húsinu. Tjald-
búðum var slegið upp þar sem ýmis félagasamtök,
stjórnmálaflokkar, stofnanir og fyrirtæki eru með
starfsemi og þekktir einstaklingar stjórna umræðum.
Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Veðurblíða
var í gær og hluti dagskrár utanhúss.
„Á fyrsta deginum var allt á réttum tíma, öll dagskrá
gekk samkvæmt áætlun. Þetta gekk svo vel að ég get
ekki lýst því hvernig mér er innanbrjósts núna. Við er-
um svo þakklát,“ segir Ingibjörg Gréta. „Eina kvörtun-
in sem ég fékk var að það var alltaf byrjað á réttum
tíma, þannig að ef manneskja kom aðeins of seint þá
missti hún af byrjuninni.“ borkur@mbl.is
Lýðræðishátíð í gangi við Norræna húsið að skandinavískri fyrirmynd
Morgunblaðið/Þórður
Samræða um samfélagið í sólinni