Morgunblaðið - 03.09.2016, Síða 8

Morgunblaðið - 03.09.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Píratar, Samfylking og Viðreisnvilja gera aflaheimildir upp- tækar og halda svo uppboð til að út- hluta þeim á nýjan leik. Þeir sem vit hafa á vara við þessu en það hefur engin áhrif á þessa flokka sem sameinast um að grafa undan undirstöðu- atvinnuvegi þjóðar- innar.    Í Fiskifréttum var ádögunum rætt við tvo menn sem bættust í hóp gagnrýnenda uppboðsleiðarinnar. Árni Bjarnason, for- seti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, segir upp- boðsleið Færeyinga að mestu leyti sjónarspil. Þá segir hann: „Það alvarlegasta við þessar hugmyndir er að yrðu þær að veru- leika byggju sjómenn í fyrsta sinn í sögu fiskveiða við Ísland ekki við neitt atvinnuöryggi. Þeir gætu aldrei vitað hvort þeirra útgerð fengi heim- ildir eður ei. Það felst í þessum hug- myndum ámælisvert virðingarleysi fyrir sjómönnum. Píratar vilja inn- kalla allar aflaheimildir. … Það vant- ar mikið upp á að hægt sé að taka málflutning af þessu tagi alvarlega og ég trúi því ekki að fólk kjósi svona lagað yfir sig.“    Valmundur Valmundsson, formað-ur Sjómannasambands Íslands, varar einnig við uppboðsleiðinni og segir að hann byði ekki „í það ef upp- boðsleiðin yrði farin hér alla leið eins og sumir vilja. Ekki aðeins atvinnu- öryggi sjómanna yrði í hættu heldur margra annarra.“ Hann bætir því við að umbjóðendur hans séu sjómenn „sem vilja vinna hjá góðum fyrir- tækjum sem þeir geta reitt sig á varð- andi vinnu. Við þurfum líka að huga að hagsmunum þjóðarinnar.“    Hvað ætli fyrrnefndum flokkumfinnist um það? Árni Bjarnason Hvað með hags- muni þjóðarinnar? STAKSTEINAR Valmundur Valmundsson Veður víða um heim 2.9., kl. 18.00 Reykjavík 12 léttskýjað Bolungarvík 11 skýjað Akureyri 12 léttskýjað Nuuk 6 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 20 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 rigning Stokkhólmur 19 heiðskírt Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 22 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 15 skýjað London 19 skúrir París 27 heiðskírt Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 21 skúrir Moskva 20 léttskýjað Algarve 28 heiðskírt Madríd 34 léttskýjað Barcelona 30 léttskýjað Mallorca 31 léttskýjað Róm 29 heiðskírt Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 20 alskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 23 léttskýjað Chicago 21 léttskýjað Orlando 24 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:18 20:37 ÍSAFJÖRÐUR 6:17 20:48 SIGLUFJÖRÐUR 5:59 20:31 DJÚPIVOGUR 5:46 20:08 Grænlenski frystitogarinn Ilivileq kom til hafnar á Akureyri í gær- morgun með alls um 800 tonn af heilfrystri síld. Togarinn er í eigu Arctic Prime sem er dótturfélag Brims hf. Veiðin tók skamman tíma og var að sögn skipverja þokkaleg, en að- eins eru tæpar tvær vikur síðan skipið landaði rétt tæplega þúsund tonnum af síld eftir stuttan tíma úti á miðunum. Skipstjórinn er Þorvaldur Svav- arsson og í áhöfn eru 28 menn. Skipið hét áður Skálaberg RE 7 og var smíðað í Noregi árið 2003 fyrir færeyska útgerð. Útgerðarstjórinn Guðmundur Gunnar Símonarson segir að auk síldar veiði togarinn einnig þorsk, grálúðu, karfa og makríl. Á Græn- landsmiðum sé þó veiðin ekki jafn- einföld. „Þeir skipta þessu upp í veiði- svæði. Við megum veiða á fjórum svæðum og þeir deila kvótanum okkar á þau svæði. Þannig að þetta er ekki alveg eins og heima, þar sem þú færð þúsund tonna kvóta af þorski og mátt veiða hann hvar sem er.“ sh@mbl.is Síldveiði góð fyrir norðan Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Síldinni landað Veiðin var þokka- leg að sögn skipverja við löndun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.