Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Skoðaðu húsið nánar á fasteignavef mbl.is
og fáðu söluyfirlitið sent sjálfkrafa.
Síminn okkar er 515 4500 og netfangið
nyhofn@nyhofnfasteignir.is
Löggiltir fasteignasalar | Lárus Ómarsson og Þórður H. Sveinsson
Nýhöfn faste ignasa la ı Borgar túni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s
Fallegt einbýli á besta stað
Vesturgata 41 I 101 Reykjavík
Vesturgata 41 er fallegt einbýlishús í hjarta borgarinnar. Húsið, sem er um 390 fermetrar,
hefur verið mikið endurnýjað en í því eru tvær íbúðir með samtals 14 herbergjum.
Mjög skemmtilegur 60 fermetra sólpallur er á annarri hæð með flottu útsýni.
Þetta er einstakt tækifæri til að eignast þessa fallegu fasteign
á eignalóð í miðbæ Reykjavíkur. Sérinnkeyrsla er meðfram
húsinu og einkabílastæði á lóðinni aftan við húsið.
3. september 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 115.51 116.07 115.79
Sterlingspund 153.17 153.91 153.54
Kanadadalur 88.11 88.63 88.37
Dönsk króna 17.347 17.449 17.398
Norsk króna 13.851 13.933 13.892
Sænsk króna 13.424 13.502 13.463
Svissn. franki 117.75 118.41 118.08
Japanskt jen 1.1147 1.1213 1.118
SDR 161.27 162.23 161.75
Evra 129.09 129.81 129.45
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 162.1354
Hrávöruverð
Gull 1311.5 ($/únsa)
Ál 1587.0 ($/tonn) LME
Hráolía 46.98 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
„Hækkun lánshæfismatsins er frá-
bærar fréttir fyrir Ísland,“ segir
Valdimar Ármann, framkvæmda-
stjóri sjóða hjá Gamma, en í fyrra-
dag hækkaði matsfyrirtækið
Moody‘s lánshæfiseinkunn Íslands
um tvö þrep. Einkunnin fer í A3 úr
Baa2. Moody’s telur horfur um þró-
un lánshæfiseinkunnarinnar nú
stöðugar.
„Ég bjóst svo sem við hækkun í
haust en ekki endilega núna í byrj-
un hausts,“ segir Valdimar. „Þetta
undirstrikar frábæran tvíþættan ár-
angur í ríkisfjármálum. Annars veg-
ar hina hröðu niðurgreiðslu skulda
sem enn sér ekki fyrir endann á.
Hins vegar góðan afgang af fjár-
lögum.“ Hann segir sérstaka við-
urkenningu fólgna í að lánshæfis-
matið hækkaði um tvö þrep í einu
stökki.
Betri fjárfestingarkostur
„Hækkun um tvö þrep er viður-
kenning á stórauknu gjaldeyris-
streymi til landsins og góðum
stöðugleika þar sem verðbólguvænt-
ingar eru lágar og verðbólga er lítil,
sem hefur gert Seðlabankanum
kleift að lækka vexti.“
Valdimar segir þetta undirstrika
góða stöðu hagkerfisins.
„Það ætti svo að hjálpa til við að
klára afnám hafta í kjölfarið, þar
sem erlendir fjárfestar horfa öðrum
augum á landið þegar það fer í A-
flokk og fjárfesting hér verður eftir-
sóttari. Þetta gefur tilefni til að
klára afnám haftanna að fullu,“ seg-
ir hann. „Fyrir innlenda fjárfesta að
vita að hér ríki stöðugleiki og eftir-
sóknarverðir fjárfestingarkostir,
minnka líkur á að þeir leiti í fjár-
festingar út fyrir landið. Þetta
minnkar því útstreymi fjármagns.
Og á móti eykur þetta breidd og
fjölbreytni erlendra fjárfesta sem
horfa til Íslands sem fjárfestingar-
kosts,“ segir Valdimar.
Góð skuldastaða miðað við A3
Matsfyrirtækið Moody’s hefur
unnið að endurskoðun einkunnar-
innar frá 10. júní síðastliðnum. Í
frétt frá fyrirtækinu segir að hækk-
un um tvö þrep endurspegli hraða
og umfang bata í þjóðarbúskapnum
eftir bankakreppuna árið 2008.
Þannig hafi samfelldur hagvöxtur
og aðhald í ríkisfjármálum leitt til
verulegrar lækkunar á skuldum rík-
issjóðs síðastliðið ár. Segir jafn-
framt að Moody’s búist við að sú
þróun haldi áfram og sé staðfest
með ráðstöfun fjármuna frá
þrotabúum fallinna banka á næstu
árum.
Í rökstuðningi fyrir breytingunni
segir Moody’s að búist sé við áfram-
haldandi lækkun skulda og skulda-
staða hins opinbera ætti að lækka
niður fyrir 50% af vergri landsfram-
leiðslu og vera nær 40% árið 2020.
Segir matsfyrirtækið að slík skulda-
hlutföll séu jafngóð eða betri en hjá
þeim samanburðarlöndum Íslands
sem hlotið hafa einkunnina A3.
Moody’s spáir að hagvöxtur verði
5% á þessu ári og 3,9% á því næsta.
Fyrirtækið nefnir að nýleg styrking
krónu og lægri eldsneytiskostnaður
hafi meðal annars haldið verðbólgu
niðri þrátt fyrir verulegar launa-
hækkanir. Þá er nefnt að varfærni
stjórnvalda við losun hafta rökstyðji
breytinguna á lánshæfiseinkunn.
Segir Moody’s að áhætta vegna
aflandskróna í eigu fárra sé mjög
takmörkuð þótt þær nemi 8% af
vergri landsframleiðslu.
Viðurkenning á efnahagsbata
Þróun lánshæfiseinkunnar Íslands hjá Moody´s
Aaa
Aa1
Aa2
Aa3
A1
A2
A3
Baa1
Baa2
Baa3
Rusl-
flokkur 1997 2008 2009 2015
Sérfræðingur segir hækkun lánshæfismats hjá Moody’s tilefni til að ljúka nú afnámi hafta Minni
ástæða fyrir fjárfesta að leita út fyrir landsteinana Breikkar hóp erlendra fjárfesta sem horfa hingað
Hagnaður Samherja nam 13,9 millj-
örðum króna á rekstrarárinu 2015. Er
það umtalsvert meira en árið á undan,
en þá nam hagnaður Samherja rúmum
11,2 milljörðum króna. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA,
nam 19,9 milljörðum króna, samanbor-
ið við 16,4 milljarða árið á undan. Af-
koma af reglulegri starfsemi ársins
2015 var betri en árið á undan, sem
skýrist af góðri afkomu erlendrar
starfsemi, samkvæmt tilkynningu frá
félaginu. Þar segir enn fremur að
tekjur hafi aukist á flestum sviðum og
nettó fjármagnsgjöld án gengismunar
verið mun lægri vegna minni skuld-
setningar en á móti komið að gengis-
munur hafi verið óhagstæðari. Hagn-
aður fyrir tekjuskatt nam 17,4
milljörðum króna.
Rekstrartekjur félagsins voru rúmir
83,7 milljarðar króna á árinu 2015 en
voru rétt tæpir 78,4 milljarðar rekstr-
arárið 2014. Rekstrargjöld eru svipuð
á árunum 2015 og 2014, en þau voru
tæpir 64 milljarðar króna í fyrra.
Eignir félagsins námu 119 milljörð-
um króna í lok síð-
asta árs og eigið fé
var 83 milljarðar.
Heildarskuldir
Samherja lækk-
uðu um tæpa fimm
milljarða króna
milli ára og eigin-
fjárhlutfallið fór úr
64,8% í lok árs
2014 í 69,8% um
síðustu áramót.
Veltufjármunir námu 38 milljörðum
í árslok og veltufjármunir umfram
skuldir 2,5 milljörðum króna. Tillaga
er um að arðgreiðsla til hluthafa vegna
síðasta rekstrarárs nemi 10% af hagn-
aði félagsins, eða um 1,4 milljörðum
króna.
Fjárfest í nýjum skipum
Stærstu fjárfestingar Samherja á
Íslandi eru vegna nýsmíði ísfiskskipa
sem til stendur að afhenda á árinu
2017 og mikilla framkvæmda við upp-
byggingu og tæknivæðingu fisk-
vinnslunnar á Akureyri. Erlendis
voru helstu fjárfestingar í nýsmíði
fyrir dótturfélög Samherja í Kanada
og Þýskalandi en einnig hefur verið
gengið frá samningum um nýsmíði
tveggja skipa fyrir dótturfélög í
Frakklandi og á Spáni. Skuldbinding-
ar vegna fjárfestinga næstu 18 mán-
uði nema nú um 30 milljörðum króna.
Þetta eru fjárfestingar í nýsmíði
skipa, landvinnslu bolfisks og fiskeldi.
vilhjalmur@mbl.is
Samherji með 20
milljarða EBITDA
Eiginfjárhlutfallið komið í tæp 70%
Þorsteinn Már
Baldvinsson