Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. ÁFANGASTAÐURINN ÍSLAND: Opinn umræðufundur Samtaka atvinnulífsins í Hörpu – Silfurbergi miðvikudaginn 7. september kl. 15-16.30 Ný greining efnahagssviðs SA verður kynnt á fundinum. Dagskrá Uppgangur og áskoranir í íslenskri ferðaþjónustu Setning. Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Af hverju Ísland? Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA. Komið fagnandi Óttar Snædal, hagfræðingur á efnahagssviði SA. Margfaldur ávinningur og ánægja gesta: Aðgangsstýring í Bláa Lónið Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins HVER ER STEFNA STJÓRNMÁLAFLOKKANNA? Forystufólk stjórnmálaflokka tekur þátt í umræðum um stöðu og horfur í íslenskri ferðaþjónustu ásamt Grími Sæmundsen formanni Samtaka ferðaþjónustunnar. Fulltrúar Bjartrar framtíðar, Framsóknarflokks, Pírata, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Vinstri grænna taka þátt. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar er fundarstjóri og stýrir umræðum. Kaffi, te og með því frá kl. 14.30. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Íbúar fríríkisins Kristjaníu í Kaup- mannahöfn rifu í gær niður sölubása hasssölumanna á götu sem kölluð er „Pusher Street“ en talsmaður íbú- anna viðurkenndi að þeir hefðu enga trú á því að þetta dygði til að binda enda á hasssöluna og ofbeldið sem fylgdi henni. Íbúarnir hófu niðurrifið eftir að 25 ára hasssölumaður særði tvo lögreglumenn og einn vegfar- anda þegar reynt var að handtaka hann á miðvikudagskvöld. Árásar- maðurinn lést seinna af skotsárum. „Við erum ekki einfeldningar. Við höldum ekki að með þessu getum við tryggt að aldrei verði hasssala stunduð í Kristjaníu, að hass- sölubásar verði ekki settir upp eða sala á hassi verði ekki stunduð með öðrum hætti,“ hefur danska ríkis- útvarpið eftir talsmanni íbúanna, Risenga Manghazi. „Fyrir okkur er mikilvægast af öllu að reyna að gera eitthvað við glæpastarfseminni án þess að beita ofbeldi sjálf.“ Risenga Manghazi bætti við að íbúarnir hefðu látið til skarar skríða vegna skotárásar hasssölumannsins á miðvikudagskvöld og einnig vegna óánægju með vaxandi ofbeldi og skipulagða glæpastarfsemi í tengslum við hasssöluna. „Við höfum beðið lögregluna um að koma ekki hingað. Við viljum gera þetta sjálf,“ hafði fréttavefur Politiken eftir öðrum talsmanni frí- ríkisins, Huldu Mader. „Heiður okk- ar er í veði. Það sem gerðist er óvið- unandi og þess vegna verðum við að taka til.“ Lögreglan ánægð Thorkild Fogde, lögreglustjóri Kaupmannahafnar, kvaðst vera ánægður með framtak íbúanna, sagði að aðstoð þeirra skipti miklu máli en baráttan gegn glæpastarf- seminni tæki langan tíma. „Markmið okkar er að hafa eftirlit í Kristjaníu eins og við getum gert á öðrum svæðum í borginni,“ sagði hann á blaðamannafundi í gærmorgun. „Það getur aldrei verið til góðs að hafa stóran hasssölumarkað í miðri borginni. En þetta snýst ekki aðeins um hass, heldur einnig skipulagða glæpastarfsemi. Um ofbeldið, hótan- irnar og vopnin.“ Lögreglustjórinn bætti við að lög- reglan fylgdist með því hvort hass- sölubásar yrðu settir upp á öðrum stöðum í borginni en það hefði ekki gerst enn. Annar lögreglumannanna, sem særðist í árásinni, fékk skot í höfuðið og var enn í lífshættu í gær. Árásar- maðurinn lést af sárum í skotbar- daga við lögreglumenn og innra eftirlit lögreglunnar hóf sérstaka rannsókn á atvikinu eins og venja er þegar slíkt gerist. Árásarmaðurinn var 25 ára, fædd- ist í Bosníu og er talinn hafa selt fíkniefni í nokkur ár. Lögreglan seg- ir að hann hafi stutt Ríki íslams, samtök íslamista, og tengst ísl- ömsku hreyfingunni Millatu Ibra- him, en þau tengsl hafi ekki haft áhrif á handtökutilraunina eða skot- árásina. Íbúar fríríkisins Kristjaníu rífa niður hasssölubása eftir skotárás fíkniefnasala á lögreglumenn AFP Hafna ofbeldi Einn íbúa fríríkisins Kristjaníu rífur niður hasssölubás. Í Kristjaníu voru áður herbúðir en frá 1971 hefur búið þar fólk sem settist að í yfirgefnum húsum danska hersins og kveðst vilja skapa nýtt samfélagsform. „Höldum ekki að hasssölu verði hætt“ Hreinsun Sölubásar fjarlægðir á „Pusher Street“, götu fíkniefnasala. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Útlit er fyrir að flokkurinn Annar kostur fyrir Þýskaland, eða Alterna- tiv für Deutschland (AfD), sópi til sín fylgi í kosningum til þings sam- bandslandsins Mecklenburg-Vor- pommern á morgun. Flokkurinn hef- ur lagt áherslu á andstöðu við stefnu Angelu Merkel í innflytjendamálum og ef marka má skoðanakannanir getur hann fengið meira fylgi í kosn- ingunum en Kristilegir demókratar, flokkur kanslarans. Í síðustu könnunum hefur fylgi AfD mælst um 21%, Kristilegra demókrata 22% og Sósíaldemókrata (SPD) 28%. AfD hefur oft fengið meira fylgi í kosningum en honum hefur verið spáð í könnunum og tals- verðar líkur eru því á að flokknum takist í fyrsta skipti að fá meira kjör- fylgi en Kristilegir demókratar. Nokkrir stjórnmálaskýrendur telja jafnvel hugsanlegt að AfD skjótist fram úr Sósíaldemókrötum og verði stærsti flokkur sambandslandsins. Fái AfD meira fylgi en Kristilegir demókratar er líklegt að það valdi pólitískum landskjálfta og verði reiðarslag fyrir Merkel, sem hefur átt undir högg að sækja vegna þeirr- ar ákvörðunar hennar í fyrra að opna landamærin fyrir flóttamönnum. Hælisleitendur í brennidepli AfD fékk 24% fylgi í sambands- landinu Saxlandi-Anhalt í austur- hluta Þýskalands í kosningum í mars, um fimm prósentustigum minna en Kristilegir demókratar, og telst það besti árangur hans í kosn- ingum til þessa. Flokkurinn var stofnaður árið 2013 og lagði í fyrstu áherslu á and- stöðu við evrusamstarfið og björg- unarpakka fyrir lönd í skuldavanda á evrusvæðinu. Síðustu mánuði hefur hann þó hamrað á andstöðu sinni við stefnu Merkel í innflytjendamálum og mikla fjölgun hælisleitenda í fyrra eftir að kanslarinn ákvað að opna landamærin fyrir flóttafólki frá Sýrlandi. Umræðan í kosningabaráttunni hefur einkum snúist um fjölgun hælisleitenda í landinu þótt fáir flóttamenn sjáist á götunum í Mecklenburg-Vorpommern, sem var hluti af Austur-Þýskalandi fyrir sameiningu Þýskalands árið 1990. Um 422.000 flóttamönnum sem fengu hæli í Þýskalandi í fyrra var skipt á milli sambandslandanna eftir fólksfjölda þeirra og efnahag og þar af tók Mecklenburg-Vorpommern á móti 25.000 hælisleitendum. Fáir þeirra voru þó um kyrrt í sam- bandslandinu, þar sem flestir ákváðu að leita að vinnu í öðrum sambands- löndum þar sem atvinnutækifærin eru fleiri. Skjálfta spáð í Þýskalandi  Sigur AfD yrði áfall fyrir Merkel AFP Í sókn Leif-Erik Holm, leiðtogi AfD í Mecklenburg-Vorpommern.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.