Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 31

Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Hamraborg 10 – Sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18, laugardaga 11-14 AFMÆLISTILBOÐ VIÐ ERUM 20 ÁRA Með hverjum keyptum gleraugum fylgja sólgleraugu með í kaupbæti Verið velkomin í sjónmælingu Ég er nú örugglega ekki einn um það að muna ekki öll nöfnin á kjörnum fulltrúum okkar Reykvíkinga á Alþingi. Aftur á móti ef þú spyrð fólkið á lands- byggðinni þá þekkir það sína kjörnu fullrúa. Af hverju er þetta svo? Mætti tína margt til, t.d. ójafnt vægi at- kvæða á landinu, og er mér það óskiljanlegt af hverju við lát- um þennan mismun ganga yfir okkur, eitt atkvæði á Austfjörðum er jafngilt tveimur í Reykjavík. Það er grund- vallaratriði í lýðræðislegu þjóðfélagi að allir þegnar samfélagsins hafi jafna möguleika til þess að hafa áhrif á stjórn landsins. Það er löngu kom- inn tími til að laga þetta og þessu vil ég breyta. Löngu sprungið vegakerfi Alþingi setur sveitarstjórnum lög og er það skylda Alþingis að passa upp á að sveitarstjórnarlögum sé fylgt eftir. Af hverju láta þingmenn Reykjavíkur meirihluta borg- arstjórnar bjóða sér og íbúum borg- arinnar upp á ónýtt og löngu sprung- ið vegakerfi þar sem fólk er fast í bílum sínum svo klukkutímum skiptir í viku hverri, fáránlega lélegan að- búnað fyrir eldri borg- ara, mengun og óþrifn- að, gras ekki slegið eða snjór mokaður fyrr en allt er orðið vitlaust, lóðaskort, gjaldþrota leikskólastefnu og aðrar vonlausar hugmyndir? Endalaust er gengið yfir íbúa Reykjavíkur, hvergi annars staðar á landinu kæmust menn upp með svona vinnu- brögð og það í sjálfri höfuðborginni. Þeir bættu við einu stykki Akureyri í mixið Það nýjasta er skipulag 16.000 manna byggðar á Hlíðarenda við hlið Reykjavíkurflugvallar. Þarna á að setja niður sama mannfjölda og býr á Akureyri, á sama blett og þessi van- hugsaði nýi spítali á að rísa. Nóg hef- ur nú verið talað um umferðartepp- una sem nú þegar er vandamál og margfaldast við byggingu nýja spít- alans, en nei nei, þeir bættu við einu stykki Akureyri í mixið! Hvar eru þingmenn Reykjavíkur? Af hverju er ekki svona endaleysa stoppuð? Við verðum að lagfæra og bæta allar stof- næðar strax inn og út úr borginni. Við verðum að fara í byggingu Sunda- brautar. Ég vil sjá þjóðaratkvæða- greiðslu strax um framtíð Reykjavík- urflugvallar. Við verðum að passa upp á að borgarstjórnarmeirihlutinn fari að settum lögum og bæti aðbúnað öryrkja og eldri borgara, en sá mála- flokkur er alltaf látinn sitja á hak- anum. Afnema allar tekjutengingar Við verðum að einfalda og lækka tekjuskatt á almenning, hækka skatt- leysismörkin a.m.k. Í 250.000 kr., taka af allar tekjutengingar við laun frá TR og gera lífeyrisgreiðslur maka erfanlegar. Lækka verður strax tryggingargjaldið á fyrirtæki. Flest fyrirtæki á landinu eru í Reykjavík og það er til skammar hvernig Reykja- víkurborg kemur fram við atvinnu- lífið og úr því þarf að bæta. Ef mér verður veitt brautargengi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík nk. laugardag þá lofa ég því að ég skal berjast með kjafti og klóm fyrir Reykvíkinga. Það er kominn tími til að einhver tali máli Reykvíkinga á Al- þingi Íslendinga og ég vil taka þá vinnu að mér, kjósandi góður. Þingmaður Reykvíkinga Eftir Guðmund Franklín Jónsson » Af hverju láta þing-menn Reykjavíkur meirihluta borgar- stjórnar bjóða sér og íbúum borgarinnar upp á ónýtt og löngu sprung- ið vegakerfi? Höfundur er hótelstjóri. Guðmundur Franklín Jónsson Norðmenn lögðu upp í ferð til Íslands með kindur, kýr, hesta, mýs og hunda. Þeir komu við á Bretlands- eyjum og sóttu sér kvonfang og/eða am- báttir. Allt þetta lið var ekki fyrr komið upp á fjörukambinn á Íslandi en það var allt orðið ís- lenskt. Eins og mér var kennd sagan var það meira að segja rammíslenskt og aldrei spurt hvaða áhrif þetta lið hefði á íslenska náttúru sem var hér fyrir. Fuglar flögra hingað frá útlöndum og ef þeir verpa hér nokkrum sinnum eru þeir íslenskir varpfuglar, jafnvel þótt þeir búi mestan hluta ársins er- lendis. En lúpínan er búin að vera hér meira en tuttugu lúpínukynslóðir og hefur af fremsta megni reynt að bæta fyrir það hrun sem liðið olli á gróðurfari landsins en hún fær ekki ríkisborgararétt. Lúp- ínan skal vera framandi. Aðrir sem hingað koma fá vegabréf eftir nokkur ár. Jafnvel svart fólk frá Afríku verður rammíslenskt á nokkr- um árum. Hugsum okkur ungan mann sem alinn er upp í Hafnarfirði. Hann hef- ur búið í útjaðri bæjarins og verið einn þeirra sem hafa verið meira úti að djöflast en inni í tölvunni. Eitt það fyrsta sem hann man eftir er að labba um lúpínu og alltaf síðan hefur lúpínan verið hluti af lífi hans, enda stór lúpínubreiða rétt við lóðina þeirra. Pabbi hans var líka alinn upp ekki langt frá og man ekki eftir öðru en að lúpínan væri þarna og hrósaði henni alltaf reglulega, meðal annars fyrir að stoppa snjóinn sem annars gerði ófært heim til þeirra. Afi hans benti honum á fagurgróna hlíð með fjölbreyttum gróðri þar sem lúpína hafði vaxið þegar hann var strákur. Þessi ungi maður fer nú í háskól- ann að læra um náttúruna. Einn kennarinn biður nemendurna að skrifa stuttan pistil um þá íslensku plöntu sem þeir væru hrifnastir af. Okkar maður skrifaði að sjálfsögðu um lúpínu. Þá bregður heldur í verra. Hann fær að vita að lúpínan er ekki, er alls ekki, hluti af íslenskri flóru – hún er ágeng og stórskaðleg þar að auki. Okkar maður var heppinn að fá að kynnast sannleikanum og frelsast og veit núna að flóra Íslands er ekki það sem vex á Íslandi, heldur það sem innvígðir telja íslenskt. Það breytir engu hvort einhverj- um, jafnvel mörgum, sé illa við lúp- ínuna en þó blasir blindum við að hún er fyrir löngu orðinn hluti af flóru Ís- lands og tímabært að viðurkenna það. Eftir Gunnar Einarsson Gunnar Einarsson » Þær plöntur sem vaxa á Íslandi tilheyra flóru Íslands. Það á ekki síður við um lúpínuna en aðrar plöntur. Höfundur er bóndi á Daðastöðum í N- Þingeyjarsýslu. Lúpínan er íslensk Á undanförnum ár- um hefur skipulag rík- isstofnana, sem hafa umsýslu með nátt- úruvernd og umhverf- ismálum, verið í brennidepli hvarvetna enda afar mikilvægt málefni. Ísland er eng- in undantekning frá þeirri meginreglu. Það er því mikil yfirsjón að áætlanir stjórnvalda um að sameina málefnasvið Land- græðslu ríkisins og málefni nátt- úruverndar hjá Umhverfisstofnun hafi ekki náð fram að ganga vegna þess að fulltrúi Umhverfisstofnunar í undirbúningsnefndinni skilaði sér- áliti. Af hverju að sameina þessar stofn- anir og verkefni? Ástæðan er einföld. Það eru engin rök fyrir því að ein stofnun sé ábyrg fyrir framkvæmd umhverfislöggjafar og heilbrigðiseft- irlits – sem er afskaplega mikilvæg lagaleg ábyrgð – ásamt því að sinna náttúruvernd og endurheimta vist- gerðir og náttúrugæði sem þarfnast mikilvægrar og faglegrar ráðgjafar. Þessir þættir eru yfirleitt ekki til staðar í sömu stofnunum í öðrum löndum, eins og í Kanada, Stóra- Bretlandi og Bandaríkjunum. Þess vegna er rökrétt að halda þeim að- skildum. Á Íslandi eru nokkrar ríkisstofn- anir sem bera ábyrgð á því að end- urheimta vistkerfi sem skaðast hafa vegna aðgerða mannsins og nátt- úruhamfara. Landgræðsla ríkisins á sér hundrað ára sögu í stöðvun hrað- fara jarðvegsrofs og endurheimtar landgæða, sem glatast hafa vegna sandfoks, flóða og mistaka í landnýt- ingu. Vinnur einnig að rannsóknum og grasrótarverkefnum með bænd- um. Skógræktin með jafn gamla sögu starfar aðallega við skógrækt, yf- irleitt með erlendum trjátegundum með það að markmiði að endurheimta landgæði, en einnig til timburfram- leiðslu og jarðvegsverndar. Hlutverk Umhverfisstofnunar er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um verndun einstakra staða og svæða ásamt því að hafa ábyrgð á umsjón og rekstri friðlýstra svæða. Náttúrufræðistofn- un Íslands ber ábyrgð á rannsóknum og vöktun á náttúru landsins, safnar og greinir upplýsingar um stöðu um- hverfisins, varðveitir náttúrugripi og veitir stjórnvöldum og almenningi ráðgjöf. Það er því augljóst þegar stofnanauppbygging á sviði umhverf- ismála er skoðuð að þá kemur í ljós bæði skörun og tvíverknaður á mála- sviðinu. Þar af leiðandi er um sóun mannauðs og fjármagns ræða við að veita stuðningsþjónustu og einnig er nálgun stofnananna að viðfangsefn- inu ólík, sem hefur oft á tíðum í för með sér mótsagnarkenndar ráðlegg- ingar til ríkisstjórnarinnar um for- gang, aðgerðir og fjármagn er varða verndun og endurheimt auðlinda. Augljóst má vera að mörg skyn- semisrök hníga að því að stofna nýja stofnun – Auðlindastofnun; Natural Resources Agency of Iceland. Í fyrsta lagi var umboð og verkefni um- hverfisráðuneytisins aukið fyrir nokkrum árum af ríkisstjórninni þannig að það nær einnig til auðlinda landsins: Ráðuneyti umhverfis- og auðlindamála, og því ætti það að vera rökrétt að setja á laggirnar stofnun sem getur ráðlagt og framkvæmt ákvarðanir ráðuneytisins. Í öðru lagi, þar sem ráðuneytið hefur ekki ennþá sett fram alhliða stefnumörkun um auðlindavernd og nýtingu, væri ný stofnun með yfirgripsmikla ábyrgð tilvalin til að hafa frumkvæði við þró- un málaflokksins með það að mark- miði að leysa langvarandi baráttu í öflun fjármagns til verndar náttúru landsins. Í þriðja lagi er ljóst að hjá fámennri þjóð munu færri stofnanir draga úr mótsögnum í ráðgjöf og ná frekar að framfylgja ákvörðunum stjórnvalda. Í fjórða lagi mun samein- ing auka skilvirkni og einnig draga úr kostn- aði. Í fimmta lagi munu samskipti margra ólíkra sérfræðinga innan sömu stofnunar, sem hafa að- gang að allri þeirri þekkingu sem þarf fyrir umfangsmikið hlutverk, hafa í för með sér skil- virkari ríkisstofnun. Í sjötta lagi mun stofn- unin geta starfað á sam- hæfðan og samstilltan hátt á öllu landinu þar sem hún veitir ráðgjöf og grípur til brýnna aðgerða til að koma í veg fyrir frekari náttúruspjöll. Auðlindastofnunin yrði einfaldlega ráðgjafi á landsvísu og framkvæmd- araðili. Einkum myndi stofnunin veita ráð á sviði stefnumörkunar um nýtingu auðlinda, um endurheimt vistkerfa og virkni þeirra, um þjón- ustu umhverfisins sem samfélagið þarf á að halda nú og í framtíðinni og hún myndi þróa nýja nálgun til að meta auðlindir, sem kæmi í staðinn fyrir núverandi þrönga nálgun og misvísandi mælikvarða á auðlegð sem byggist á vergri þjóðarframleiðslu. Stofnunin myndi einnig hafa virku hlutverki að gegna í samskiptum við grasrótina. Stofnunin bæri ábyrgð á vernd og rekstri friðlýstra svæða skv. alþjóðlegum reglum, einkum þar sem svæðin eru aðalaðdráttarafl ferða- manna til landsins. Stofnunin myndi gegna forystu í endurreisn illa far- inna svæða og styrkja svæðin til að draga úr neikvæðum áhrifum nátt- úruafla og aukinni umferð gesta. Stofnunin myndi einnig leitast við að bæta framleiðni landsins, bæta og styrkja vistkerfi og starfsemi þeirra. Ég vona því að umhverfis- og auð- lindaráðuneytið muni í fullri alvöru koma á laggirnar Auðlindastofnun, sem myndi sameina fjórar áður- nefndar stofnanir. Sameining stofn- ananna er heilbrigð skynsemi, góð stjórnsýsla og yrði til velfarnaðar fyr- ir íslenska þjóð núna og í framtíðinni. Auðlindastofnun – ný nálgun Eftir Roger Crofts Roger Crofts » Það er mjög miður að stjórnvöldum tókst ekki að sameina málefnasvið Land- græðslunnar og málefni náttúruverndar hjá Um- hverfisstofnun. Höfundur er ráðgjafi á sviði nátt- úruverndar og hefur starfað víða um heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.