Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 32

Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Kaupmáttur ráðstöf- unartekna heimila jókst mikið á síðasta ári m.a. vegna hækkunar launa. Regluleg laun landsmanna voru að jafnaði 7,2% hærri á árinu 2015 en 2014. Meðaltal kaupmátt- araukningar nam um 5,5%. Í Hagsjá Hag- fræðideildar Lands- bankans hinn 8. júní 2015 kom fram að reikna mætti með hækkun launavísitölunnar um 10,1% milli áranna 2015 og 2016 – og kaup- máttar um allt að 8,1%. Kaupmáttur launa á Íslandi er því meiri nú en nokkurn tíma áður. „Skjaldborgin“ og kjör aldraðra Um áramótin 2008 og 2009, í miðjum stormi fjármálahrunsins á Íslandi, nam verðbólgan 20%. Kjör aldraðra hefði átt að bæta sem því nam. Ömurleg síðasta vinstri ríkis- stjórn Íslands, þ.e. ríkisstjórn Stein- gríms og Jóhönnu, ákvað að aðeins fjórðungur lífeyrisþega fengi hækk- un í samræmi við þróun verðlags. Aðrir voru látnir sitja eftir og nutu einungis um 9,6% hækkunar lífeyris á meðan verðlag rauk upp. Vinstrimenn ákváðu að taka rétt- indi af þeim sem síst skyldi. En hver kannast svo sem ekki við slíkt af hálfu þeirrar ríkis- stjórnar? Hún hirti líka húsnæði af ungu fólki og fyrirtækjum. Skjald- borgin sem stjórnin kenndi sig við varð að alræmdu háðsyrði. Eldri borgarar eiga fulla virðingu skilið. Ekki er nóg það sem gert hefur verið til að rétta hlut þeirra. Af- létta verður án tafar skerðingum sem eftir standa. Launahækkanir og kjör aldraðra Sjálfstæðisflokkurinn á að nýta þann umtalsverða árangur sem náðst hefur við að styrkja fjárhag ríkisins til að ganga nú í það að koma þessum leiðréttingum á. Og gera þetta sóma- samlega. Tryggja að aldraðir fái fulla leiðréttingu og njóti síðustu æviár- anna með sæmd – án þvílíkrar skerð- ingar lífsgæða eins og raun ber nú vitni. Hví að bíða? Við sjálfstæðismenn eigum ekki að láta það um okkur spyrjast að við gleymum okkur hvað aldraða varðar. Þannig hefur það ekki verið í gegn- um tíðina. Við eigum áfram að halda í heiðri hið gamla og góða kjörorð flokks okkar: Stétt með stétt. Eftir talsverða yfirlegu yfir talna- flóði má sjá að þörfin er umtalsverð á ári hverju svo leiðrétta megi kjör þeirra verst settu. Þeirra sem urðu undir þegar vinstristjórn Steingríms og Jóhönnu tók af skarið og skerti lífsgæði eldri borgara. Einstaka stjórnarliðar héldu því fram að þetta næmi um 2,5 til 3 milljörðum en það er blekking og fjarri lagi. Þörfin er meiri en leysanleg. Leiðrétting svo fólk hafi vel til hnífs og skeiðar felst í þeim útreikn- ingum sem ég legg hér fram, auk þess að fólk geti haldið reisn á meðal sinna samferðamanna, fjölskyldu og vina. Fjöldi aldraðra Samkvæmt spá Hagstofu Íslands um fjölda fólks yfir 65 ára árið 2020 má sjá á meðfylgjandi mynd að öldr- uðum mun fjölga úr um 46 þúsund í um 53 þúsund manns. Sé ætlunin að hækka aldursmörk til töku lífeyris upp í 70 ár fer sá hópur úr um 53 þús- und manns niður í um 36 þúsund manns umrætt ár. Ljóst er að samhliða mikilli og ánægjulegri fjölgun í hópi eldra fólks á næstu árum, þ.e. íbúa frá 60 ára aldri og upp úr, verða stjórnvöld að gefa sig æ meira að málefnum þessa mikilvæga hluta þjóðarinnar þ.á m. má ekki með skerðingum letja þau frá að drýgja tekjur sínar með vinnu í samræmi við starfsorku sína. Sýna verður fyrirhyggju í þessum efnum öllum og leggja línurnar í tíma, byggja upp traustar stoðir svo þessi hópur geti notið daganna eins og verðugt er og sofið rólegur án fjár- hagsáhyggna fyrir morgundeginum. Skattar og álögur á aldraða Það vekur sérstaka undrun hve fyrirferðarmiklar reglur ennþá gilda um skerðingar á kjörum aldraðra, jafnvel tvísköttun á fjölmarga frá þeim tíma sem lífeyrir var skatt- lagður áður en hann rann í lífeyris- sjóð viðkomandi einstaklinga. Nú þegar þetta kemur til baka er allt skattlagt og skerðingar umtals- verðar vilji fullfrískt fólk vinna sem er komið yfir 65 ára aldurinn. Hvað gerist ef á að hækka aldursmörk í 70? Sjálfstæðisflokkurinn hefur ávallt staðið vörð um þennan hóp og á að halda því áfram að vera framvörður réttinda aldraðra hvar sem er, hve- nær sem er. Það á að vera grunntónn í öllu félagslegu viðhorfi til þeirra Ís- lendinga sem hafa lagt mikið af mörkum og byggt undir og byggt upp okkar ágæta samfélag. Fái ég framgang í prófkjöri sjálf- stæðismanna (3.-4. sæti) og nái þar þingsæti á lista flokksins í Suðvest- urkjördæmi 10. september næst- komandi mun ég leggja mig í fram- króka við að koma til leiðar heildar- endurskoðun á kjörum aldraðra. Ég hef bakrunn, reynslu og þekkingu til að ráðast í þetta verkefni. Það mun ég gera í því augnamiði að leiðrétta varanlega stöðu aldraðra, sem og ör- yrkja. Auka ber kaupmátt verst setta hóps þessa lands og koma í gegnum Alþingi Íslendinga lagaum- gjörð sem tryggir framtíðarskipan þar sem aldraðir geta ávallt borið höfuðið hátt – en ekki harm sinn í hljóði. Nýtum ávinning til að bæta án tafar hag eldri borgara og þeirra verst settu Eftir Svein Óskar Sigurðsson »Eldri borgarar, sem eiga fulla virðingu skilið og bera höfuðið hátt, fengu skerðingu sem ekki hefur verið leiðrétt að fullu. Sveinn Óskar Sigurðsson Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri XD í Suðvesturkjördæmi. Spá um fjölgun aldraðra á Íslandi á milli áranna 2016 og 2020 Heimild: Hagstofa Íslands Spá um heildarfjölda aldraðra á Íslandi á árunum 2016, 2020 og 2040 (yfir 65 ára aldri): 4.500 4.000 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 65 ára 70 ára 75 ára 80 ára 85 ára 90 ára 95 ára 100 ára 105 ára 110 ára 2020 2016 Fjöldi í árgangi 2016 (vinstri ás) Fjöldi í árgangi 2020 (vinstri ás) Ár Áætlaður fjöldi aldraðra 2016 46.000 2020 53.000 2040 76.000 Mikið fjaðrafok varð í samfélaginu fyrir skömmu þegar vitnaðist að ókunnug- ir menn væru komnir til Íslands með fulla vasa fjár og vildu reisa sjúkrahús og hótel þar sem starfað gætu um 1.000 manns, eitthvað með þátttöku reyndra ís- lenskra fjárfesta. Allt var klappað og klárt, staðsetning og samn- ingar um verk sem nemur um 40 milljörðum lá fyrir á einni viku og ímyndarsmiðir unnu sína vinnu með kurt og pí. Málið þróaðist í umræðunni í nokkra daga og það fóru að renna á ýmsa tvær grím- ur. Hverjir voru þessir aðilar? Hvaðan koma sjúklingar? Hvert ætlar þessi risastofnun að sækja sér fagfólk? Ég tel að á einmitt því atriði hafi mjög brotið hvað varðar almenningsálitið. Þetta minnti okkur nefnilega óþyrmilega á hvernig búið er að starfsfólki í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Að öllum líkindum ættum við ekki roð í harðsnúinn samkeppnisaðila á þessu sviði hér á heimavelli eins og aðstæður eru í dag. Stað- reyndin er auðvitað sú eins og all- ir vita að við búum þegar við tak- markaðan fjölda sérmenntaðra heilbrigðisstarfsmanna í heilbrigð- isþjónustunni. Mín reynsla er sú að almennt sé um mjög hæft fólk að ræða sem á greiðan aðgang að spennandi og góðum störfum í heilbrigðisþjónustu víða um heim og það hefur eðlilega freistað margra. Þau risaplön sem nú virð- ast runnin út í sandinn um sinn eiga ekki að vera til nokkurs ann- ars en að vera tímabær áminning um það að við þurfum að hlúa betur að starfsfólki í heilbrigð- isþjónustu á Íslandi. Það er liðin tíð að menntað heilbrigð- isstarfsfólk líti á það sem sjálfgefið hlut- skipti að starfa í ís- lensku heilbrigðiskerfi um aldur og ævi. Við erum í samkeppni um hæfasta fólkið á heimsvísu. Í um- ræðunni ber launa- málin gjarnan hæst og þau eru sérstakt umhugsunarefni, bæði al- mennt gagnvart heilbrigðisstarfs- fólki og svo hins vegar innbyrðis milli einstakra starfsstétta. Þar ríkir talsvert misrétti, bæði með tilliti til menntunar og ábyrgðar. En það eru fleiri atriði sem við þurfum að færa til betri vegar hvað varðar starfsumhverfi heil- brigðisstétta. Vinnuaðstæður og búnaður er víða algjörlega ófull- nægjandi með hliðsjón af ná- grannalöndum okkar. Þetta atriði hefur verið til umræðu hér á landi um langa hríð, einkum snúist um Landspítala en víðast úti á landi hafa stofnanir verið algjörlega vanræktar sem valdið hefur rösk- un og erfiðum rekstri. Það eru auknar kröfur um endur- og sí- menntun sem við þurfum líka að svara, námsleyfi og svigrúm til að kynna sér framfarir og þróun í hverri sérgrein. Heilbrigðisþjón- usta er síhvikult og lifandi svið og það er mikið í húfi. Sérstakt áhugaefni mitt er auðvitað starfs- umhverfi þeirra sem búa og starfa á landsbyggðinni. Starfseiningar eru gjarnan litlar og mikil ábyrgð hvílir á fáum herðum. Þar eru mál oft leyst með aðdáunarverðum hætti við mjög þröngan kost. Staðreyndin er nefnilega sú að á góðæristímabili núverandi rík- isstjórnar hefur enn fjarað undan heilbrigðisþjónustu á landsbyggð- inni. Það vantar nokkur hundruð milljónir inn í rekstur heilbrigð- isstofnana og ákall, beiðnir og greinargerðir til stjórnvalda frá öllum þessum stofnunum hafa engu breytt. Yfirlýsingar stjórn- valda um annað breyta þar engu. Til hvers hefur þetta leitt? Svarið er einfalt, fagfólk er færra, álagið hefur aukist, þjónusta hefur dreg- ist saman, vanskil aukist og eru víða komin á alvarlegt stig. Þetta er óviðunandi fyrir íbúa á lands- byggðinni sem þó hafa sýnt mikið langlundargeð, þeir eru þó stöðugt uggandi. Heilbrigðisþjónusta er ein af meginstoðunum í hverju samfélagi og óbreytt ástand ýtir undir búferlaflutninga. Hugurinn hvarflar að hinu margtuggða hug- taki landsbyggðarstefna stjórn- valda. Eiga íbúar virkilega að sætta sig við þessa birting- armynd? Krafan er vitanlega sú að þeirri þróun sem við höfum upplifað síðustu ár verði snúið við á raunverulegan hátt, að því munu jafnaðarmenn vinna. Það er enn hægt en við höfum takmarkaðan tíma. Gerum betur í heilbrigðismálum Eftir Guðjón S. Brjánsson Guðjón S. Brjánsson » Það er liðin tíð að menntað heilbrigðis- starfsfólk líti á það sem sjáfgefið hlutskipti að starfa í íslensku heil- brigðiskerfi um aldur og ævi. Höfundur er forstjóri Heilbrigðis- stofnunar Vesturlands og frambjóð- andi í forvali Samfylkingarinnar í NV kjördæmi. Nýlega var frétt í blöðunum þess efnis að til stæði hjá stóru matvælafyrirtæki að hefja slátrun í sept- ember á um þrjátíu þúsund lömbum og að selja stóran hluta af- urðanna til Bandaríkj- anna. Mér rann það til rifja. Hérna áður fyrr var þetta svo eðlilegt, þegar fátækt og matarskortur voru landlæg og neysla á kjöti var lífs- spursmál. Nú er öldin önnur og við þurfum ekki lengur að borða kjöt til að draga fram lífið. Það er því allt önnur tilfinning að lesa um slátrun tugþúsunda lamba í dag, ekki síst vegna þess að gróðasjónarmið ráða nú meira för. Þegar ég var ung kona varð ég fyrir þeirri sterku lífsreynslu að koma í sláturhús í sláturtíð. Mér brá að sjá að allt var blóði drifið. Mér varð svo mikið um þetta að upp frá því hætti ég að borða kjöt. Á mínu heimili hélt ég áfram að elda kjöt og fisk og sagði að þetta væri mitt val en að börnin mín hefðu sitt eigið val þegar þau væru orðin eldri. Í þessu sambandi vil ég rifja upp það sem sumir mannvinir mann- kynssögunnar höfðu að segja um þessi mál, en margir þeirra voru bæði dýravinir og grænmetisætur. Frans frá Assisi (1182-1226) lagði ríka áherslu á að koma fram við dýrin af nærgætni og miskunnsemi. Leonardo da Vinci (1452-1519), einn mesti listamaður, hugsuður og vís- indamaður síns tíma, var grænmet- isæta og vildi „hvorki borða neitt sem innihélt blóð né að nokkur lif- andi vera væri sköðuð“. Mahatma Gandhi (1869-1948), leiðtogi Ind- verja, sem einnig var grænmetisæta, sagði að „hægt væri að meta mikilfengleika þjóða og siðferðilega framför þeirra eftir því hvernig komið væri fram við dýrin“. Heimspeking- urinn og grænmetis- ætan Prabhat Ranjan Sarkar (1921-1990) kallaði þá lífsheimspeki Nýmannúð (Neo Hum- anism) að sýna ekki bara fólki kærleika heldur einnig skyni gæddum dýrum. Hann sagði þau hafa sinn tilverurétt, rétt eins og við, og áleit það andlega gæfu að geta hagað lífi sínu á þann hátt að það valdi hvorki mönnum né dýrum þjáningu. Kjarni málsins er að í dag höfum við raunhæft val og margt annað en kjöt er í boði. Þá benda ýmsar rannsóknir til að það sé heilsu- samlegra fyrir okkur og betra fyrir umhverfið að draga úr kjötáti og borða frekar fisk og grænmeti. Það gleður mig að unga fólkið er í aukn- um mæli að gera það. Bændur geta áfram framleitt mjólk og ull án þess að skaða dýrin, ásamt því að rækta grænmeti, korn og skóg og vera með bændagistingu. Við eigum valkost um að taka upp lífsstíl sem er betri fyrir okkur og dýrin. Með því hættum við að valda þeim óþarfa þjáningu og stytta líf þeirra allt til þess eins að borða kjöt. Umhugsun um dýrin í sláturtíðinni Eftir Herdísi Tryggvadóttur Herdís Tryggvadóttir »Kjarni málsins er að í dag höfum við raunhæft val og margt annað en kjöt er í boði. Höfundur er ellilífeyrisþegi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.