Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 34

Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 34
34 MESSURá morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Við Áslaug vor- um bekkjarsystur í barnaskóla og sát- um saman. Okkur fannst við eiga samnefnara, nöfn- in okkar svo lík og hétum báðar Guðrún að millinafni. Við urðum strax góðar vinkonur. Áslaug bjó á Laufásveginum og ég á Amtmannsstígnum, svo það var stutt á milli okkar. Við lékum okkur saman og fórum heim hvor til annarrar og stundum var fengið að gista. Það var spenn- andi því á efri hæðinni bjó móð- uramma Áslaugar, frú Guðrún Indriðadóttir, þekkt leikkona. Hún var einstaklega ljúf og elskuleg og sagði okkur sögur. Hún var góður þýðandi og einn veturinn þegar bekkurinn okkar ætlaði að setja á svið jólaleikrit þýddi hún í snarhasti lítinn ástar- sveitarómans, sem við vinkon- urnar lékum í. Ég lék ástföngnu sveitastúlkuna og Guðrún Agn- arsdóttir lék unga bóndasoninn, sem var að biðja föður minn um hönd mína. Og ekki veit ég hvers vegna einhver af bekkjarbræðr- unum varð ekki fyrir valinu. En frú Guðrún kom á æfingu og gaf álit og allt fór vel. Einn veturinn áttum við Mata- dorspil saman og þá var komið með það í skólann og skipst á að fara heim til hvor annarrar að spila að skóladegi loknum. Svona var dægrastyttingin m.a. á þeim árum. Þetta voru góð ár og margs að minnast. E-bekkurinn var skemmtilega fjölbreyttur og samheldinn og við bekkjarsystk- inin álitum hann besta bekkinn. Sá kennari sem mótaði okkur hvað mest var auðvitað hún frök- en Þuríður Jóhannsdóttir, prestsdóttir og mikil dama. Iðu- lega klædd í prjónadragt með blúnduvasaklút í erminni. Við vorum oft fyrirferðarmikil og há- vær og töluðum mikið en fröken Þuríður hafði yfirleitt lag á að brosa og sýna milda festu. Við vorum báðar skátar og fórum í útilegur innanlands sem utan. Fórum m.a. siglandi á skátamót til Danmerkur sem var mikil upplifun og var lengi minnst. Leiðir okkar skildi um sinn eftir Miðbæjarskólann en við hittumst aftur í Verslunarskólanum, en vorum þá hvor í sínum árgangi. Áslaug hafði þá kynnst ástinni í lífi sínu, honum Jóni Hákoni. Seinna fluttumst við báðar utan til náms og dvalar og tímarnir breyttust. Við vissum af hvor annarri þó að ekki væru oft aðstæður til að hittast, en Áslaug var alltaf jafn- elskuleg og ljúf í viðmóti. Við, nokkrar af bekkjarsystrunum úr Áslaug Guðrún Harðardóttir ✝ Áslaug GuðrúnHarðardóttir fæddist 1. nóv- ember 1941. Hún lést 18. ágúst 2016. Útför Áslaugar fór fram 26. ágúst 2016. E-bekknum, höfum stundum hist gegn- um árin þegar ein sem býr erlendis hefur komið í heim- sókn og Áslaug var með svo lengi sem hún gat því við kom- ið. Það er margs að minnast, en það sem kemur fyrst upp í huga mér þegar ég hugsa til Áslaugar, er dillandi hláturinn og kátínan og brosið í augunum. Það var gott að vera í návist hennar. Hún var falleg og glæsileg og laðaði að sér fólk. Ég hugsa til hennar með hlýju og þakklæti og vil um leið votta ástvinum hennar og ættingjum og þá sérstaklega Áslaugu Svövu, Hauki og Herði Hákoni og Herði bróður hennar, innilegustu sam- úð. Blessuð sé minning Áslaugar Guðrúnar Harðardóttur. Ágústa Guðrún Sigfúsdóttir. Að missa eitthvað er skelfileg tilfinning. Ég missti Áslaugu sem var mér eins og móðir. Áslaugu, sem var mamma æskuvinar míns, kynntist ég þegar ég var barn í leikskóla og hef þekkt hana eftir það. Mér þótti alltaf gaman að koma í heimsókn á Látraströnd 6 þar sem móttökurnar voru einu orði sagt stórfenglegar og ávallt fékk maður svo mikinn stuðning, hlýju og gestrisni. Áslaug hafði alla þessa kosti og fannst mér ávallt gaman að tala við hana um alls kyns hluti. Áslaug var með mikla reynslu og sagði mér ýmis- legt sem hún hafði áorkað í lífinu. Hún hafði alltaf þann eiginleika sem byggðist á mikilli einlægni og var til í að deila hlutum sem reyndist manni mikill fengur. Það sem hún hafði var eitthvað ómótstæðilegt og manni líður eins og hún sé enn í mínu hjarta að vernda mann frá illu og styrkja mann til þess að gera mann að betri manni. Einstaklega gott viðmót sem ég fékk og það er eitthvað sem ég tel mikilvægt, að eiga góða að. Ég var heppinn og lít ég á það sem náðargjöf að kynnast svona ynd- islegri og góðri konu. Þín verður sárt saknað og engin mun koma í þinn stað. En það sem ég hef fengið frá þér mun ég líka gera eins vel og ég get til að miðla þinni reynslu sem þú gafst mér, til annarra. Elsku Höddi og Áslaug, ég samhryggist ykkur og mun góð- ur Guð hjálpa ykkur til þess að yfirstíga þessa þungu raun sem þið eruð að ganga í gegnum. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Guðmundur Árni Sigurðsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar ÁRBÆJARKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 11. Barnastarf kirkjunnar hefst með því að allir koma saman í fyrstu sunnudagaskólasamveru vetr- arins. Ingunn Björk Jónsdóttir djákni og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir leiða stundina. Benjamín Gísli Ein- arsson leikur á píanó. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sig- urður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskól- inn hefur göngu sína í umsjá guð- fræðinemanna Benjamíns Hrafns Böðvarssonar og Sigfúsar Jón- assonar. Kammerkór Áskirkju syngur, organisti er Magnús Ragnarsson. Að messu lokinni selur Safnaðarfélag Ásprestakalls súpu, brauð og mola- sopa í Ási, safnaðarheimili kirkjunnar, á kr. 700. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjá séra Sigurðar Jónssonar og Magnúsar Ragn- arssonar organista. BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11, upphaf barna- starfs. Guðsþjónusta kl. 17, upphaf fermingarstarfs. Fundur í kirkjunni eft- ir athöfn. Lærisveinar HANS leiða sönginn í báðum athöfnum, Margrét djákni og sr. Hans Guðberg þjóna fyrir altari. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Vænst er þátttöku ferming- arbarna. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson. Organisti er Örn Magn- ússon. Fermingarbörn aðstoða ásamt messuhópi. Kór kirkjunnar leiðir söng. Fundur verður með foreldrum fermingarbarna um vetrarstarfið eftir messuna. Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma, kl. 11, í safnaðaraheimilinu. BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Bústaðakirkju leiðir söng- inn undir stjórn kantors Jónasar Þór- is. Messuþjónar aðstoða. Heitt á könnunni eftir messu. Prestur er sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 á vegum sunnudagaskólans. Upphaf safnaðarstarfs. Prestar sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Magnús Björn Björnsson auk Eline Rabbevaag æskulýðsfulltrúa, Söru Lindar Arn- finnsdóttur og Hugrúnar Helgadóttur. Súpa í safnaðarsal að guðsþjónust- unni lokinni. Fermingarfræðsla kl. 12.30. DÓMKIRKJAN | Sunnudaginn nk. mun fermingarstarf Dómkirkjunnar hefjast með messu kl. 11, dóm- kirkjuprestarnir þjóna. Minni á bíla- stæðin gegnt Þórshamri. Fundur með fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra að lokinni messu. Á þeim fundi verður farið yfir tilhögun fræðslunnar og starf vetrarins. EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjón- usta 4. september kl. 11. Væntanleg fermingarbörn vorsins 2017 í Egils- staðaprestakalli eru boðin sér- staklega velkomin til kirkju ásamt forráðamönnum og kynningar- og skráningarfundur vegna ferming- arstarfanna verður að athöfn lokinni. Prestar Egilsstaðaprestakalls þjóna, organisti er Torvald Gjerde. Meðhjálp- ari er Ásta Sigfúsdóttir. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskól- inn fer aftur af stað eftir sumarfrí. Pétur og félagar mæta hressir og kát- ir og hlakka til að hitta alla. Sr. Guð- mundur Karl Ágústsson þjónar. Heitt kaffi á könnunni eftir stundina og djús fyrir krakkana. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Hljómsveit kirkj- unnar leiðir sönginn. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðs- þjónusta 4. september kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunn- arssyni, organista. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 20. Sr. Guðmundur Guðmundsson þjónar. Félagar úr kór Glerárkirkju leiða söng undir stjórn Valmars Väljaots. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Fermingarbörnum úr Vættaskóla, Rimaskóla og Keldu- skóla er boðið sérstaklega ásamt fjöl- skyldum sínum. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt sr. Örnu Ýri Sigurðardóttur og messuþjónum. Vox populi syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Eftir messu verður stuttur fundur um fermingarstarfið í vetur og síðan Pál- ínuboð. Sunnudagaskóli kl. 11. Um- sjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir guðfræðinemi. Undirleikari er Stefán Birkisson. GRAFARVOGUR – kirkjuselið í spöng | Fyrsta Selmessa haustsins kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar ásamt messuþjón- um. Vox populi syngur og Hilmar Örn Agnarsson er organisti. Kaffisopi eftir messu. Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Matthías Guð- mundsson, æskulýðsleiðtogi Graf- arvogskirkju. Undirleikari er Stefán Birkisson. Loksins byrjum við aftur í kirkjuselinu með barnastarfið og eru öll börn, bæði lítil og stór, velkomin. Sama skemmtilega sunnudaga- skólaefni verður í boði hér og í kirkj- unni. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11. Umsjón í vetur hafa Silvía, Ásta Lóa og Hilmar. Öll börn velkomin. Messa kl. 11. Alt- arisganga. Samskot til ABC- barnahjálpar. Messuhópur þjónar. Fé- lagar í kirkjukór Grensáskirkju syngja. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prest- ur er sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. GRUND dvalar- og hjúkr- unarheimili | Guðsþjónusta í hátíða- sal Grundar klukkan 14. Séra Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur þjón- ar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskyldumessa kl. 11. Prestar sr. Karl V. Matthíasson og sr. Skírnir Garðarsson. Tónlistarflutningur í umsjá Ásbjargar Jónsdóttur barnakór- stjóra, hún mun kynna barnakóra- starfið í messunni. Hvetjum ferming- arbörn og foreldra þeirra til að mæta í messuna, það verður kynning á ferm- ingarstarfinu eftir messuna. Það verð- ur boðið upp á kaffi og með því. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmunds- dóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagskóli kl. 11. Prestur sr Þórhildur Ólafs. Barbörukórinn syng- ur. Organisti og kórstjóri er Guð- mundur Sigurðsson. Messunni er út- varpað. Sunnudagskólinn hefst kl. 11 í safnaðarheimilinu. Erla Björg og Hjördís Rós taka vel á móti ykkur. Kaffisopi í Ljósbroti eftir stundirnar. Sjá nánar á hafnarfjardarkirkja.is HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Norski kórinn Paulikor frá Ósló syngur undir stjórn Pers Kristian Amundröd. Um- sjón barnastarfs hefur Inga Harð- ardóttir. Opnun sýningar Erlu S. Har- aldsdóttur-Genesis að lokinni messu. Upphaf fermingarstarfs, fundur með fermingarbörnum og forráðamönnum kl. 12.30. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er sr. María Ágústsdóttir. Org- anisti er Kári Allansson. Félagar í kór Háteigskirkju syngja. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Prestar, sunnudagaskólaleiðtogar og organisti leiða saman hesta sína. Léttur máls- verður og kaffisopi, sjá nánar á hjalla- kirkja.is HRUNAKIRKJA | Uppskerumessa 3. september kl. 11. Fjölskylduhátíð. Leikir, grill og kaffi eftir messu. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnu- dag kl. 20 verður samkoma með lof- gjörð og fyrirbænum. Ólafur H. Knúts- son prédikar. Kaffi og samfélag eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Pink Floyd- messa laugadagskvöldið 3. sept- ember kl. 23, strax að lokinni flug- eldasýningu á hátíðarsvæði Ljós- anætur. Níu manna hljómsveit frá Vestmannaeyjum flytur lög sem hljómsveitin Pink Floyd gerði fræg. KIRKJUBÆJARKIRKJA | Guðsþjón- usta 4. sept. kl. 14. Prestur er Þor- geir Arason, organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknar syngur. Meðhjálpari er Gunnar Guttormsson. Kaffisala Kvenfélags Hróarstungu verður í Tungubúð að athöfn lokinni. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson, sókn- arprestur, prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj- unnar. LANGHOLTSKIRKJA | Barnastarf hefst formlega kl. 11 í fyrstu fjöl- skyldumessu vetrarins. Þau börn sem ætla að taka þátt í kóra- og barnastarfi í haust eru boðin hjart- anlega velkomin ásamt fjölskyldum sínum auk annarra barna. Jóhanna Gísladóttir æskulýðsprestur og Snævar Jón Andrjesson æskulýðs- fulltrúi leiða stundina ásamt Bryndísi Baldvinsdóttur kórstjóra. Messuþjón- ar aðstoða við helgihaldið. Kaffi, djús og epli í safnaðarheimili eftir stund- ina. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafells- sóknar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Kjartans Jósefssonar Ogni- bene. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. NESKIRKJA | Messa og sunndaga- skóli kl. 11, sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir verður sett í embætti af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur pró- fasti. Í sunnudagaskólanum verður boðið upp á nýtt og spennandi efni sem þær Stefanía Steinsdóttir, Guð- rún Þorgrímsdóttir og Katrín Helga Ágústsdóttir sjá um ásamt Ara Agn- arssyni sem spilar undir söng. Í messunni þjóna þau sr. Steinunn Arn- þrúður og sr. Skúli S. Ólafsson. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Stein- gríms Þórhallssonar organista. Pönnukökukaffi og samfélag á Torg- inu. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum, Háaleit- isbraut 58-50. 3. hæð. Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. Túlkað á ensku. Barnastarf. ATH. Breyttan samkomutíma. SELFOSSKIRKJA | Messa sunnu- dag kl. 11. Organisti er Edit A. Moln- ár, Kirkjukórinn syngur, prestur er Guðbjörg Arnardóttir. Súpa og brauð í Safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Fyrsta barnaguðsþjónusta vetrarins. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson þjónar. Sunnudagaskólinn hefst að loknu sumarleyfi. Friðrik Vignir Stef- ánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eft- ir athöfn. SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Á sunnudag er guðsþjónusta kl. 20. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur og leið- ir almennan safnaðarsöng. Organisti er Tryggvi Hermannsson. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og með- hjálpari er Jóhann Grétar Einarsson. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskól- inn hefur starf sitt með fullum krafti kl. 11. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjónusta 4. sept. kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er sr. Bragi J. Ingibergsson. Kaffi og djús á eftir. ÞORLÁKSKIRKJA | Messa kl. 14, sunnudag. Fermingarbörn og for- eldrar þeirra sérstaklega hvött til að mæta. Kór Þorlákskirkju. Organisti er Miklos Dalmay. ORÐ DAGSINS: Enginn kann tveim- ur herrum að þjóna (Matt 6.) Morgunblaðið/Ómar Stykkishólmskirkja. Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19  210 Garðabær sími 842 0204  www.harpautfor.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.