Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Jóhanna Harðardóttir, leikskólakennari á Egilsstöðum, er 50ára í dag. Hún er Hafnfirðingur en fluttist til Egilsstaða árið1989.
„Ég var nýútstkrifuð úr Fósturskólanum þegar við komum tvær
saman hingað austur og ætluðum að vera eitt ár sem urðu tvö áður
en vinkona mín fór, en ég ákvað að vera aðeins lengur. Þá kynntist
ég manninum mínum og er hér enn.“
Eiginmaður Jóhönnu er af Héraði, heitir Stefán Sigurðsson og er
athafnamaður. Börn þeirra eru Agnes, 15 ára, og Sigurður, 12 ára.
Jóhanna vinnur í leikskólanum Hádegishöfða. „Ég vann fyrst á
Tjarnarlandi en flutti mig yfir í Hádegishöfða fyrir þremur árum.
Hádegishöfði er lítill 40 barna leikskóli í Fellabæ.“
Jóhanna ætlar að bjóða til sín gestum á afmælisdaginn. „Ég fer í
sund hvern virkan dag þar sem ég syndi ásamt því að eiga hressi-
lega stund með félögum mínum í morgunsundinu þar sem gert er
grín og mikið hlegið. Það er góð byrjun á nýjum degi.“
Árið 2010 voru stofnaðar Oddfellowstúkur á Austurlandi með
Regluheimili á Egilsstöðum. Jóhanna var ein af stofnendum
Rebekkustúku nr. 15 Bjarkar. „Það er góð nýliðun í stúkunni og
þar fer fram gróskumikið starf sem konur úr öllum fjórðungnum
taka þátt í.“
Leikskólakennarinn Jóhanna kennir í Hádegishöfða sem er í Fellabæ.
Flutti til Egilsstaða
1989 og er þar enn
Jóhanna Harðardóttir er fimmtug í dag
P
álmi Stefánsson fæddist á
Litlu-Hámundarstöðum
í Árskógshreppi í Eyja-
firði. Á bænum ólst
Pálmi upp við öll almenn
sveitastörf. Hann gekk í barnaskóla í
Árskógi, tók þar fullnaðarpróf og
gekk síðan í unglingadeild einn vet-
ur.
Pálmi stundaði bústörf á sumrin
en ýmis störf á vetrum frá nítján ára
aldri, s.s. fiskvinnslu, byggingar-
vinnu og fleira, í Reykjavík, Keflavík
og víðar.
Var með plötuútgáfu
Pálmi flutti til Akureyrar 1961, var
þar eitt ár hjá Nóa bátasmið, starfaði
í fjögur ár hjá Heildverslun Valgarðs
Stefánssonar en stofnaði síðan Tóna-
búðina 1966 og rak hana allt til ársins
2007 þegar Hljóðfærahúsið keypti
Pálmi Stefánsson, fyrrverandi kaupmaður – 80 ára
Á Kanaríeyjum Stórfjölskyldan samankomin á Tenerife árið 2009 en síðan hefur fjölgað í hópnum.
Rak vinsæla hljóð-
færaverslun í 41 ár
Lifir og hrærist í tónlist Auk þess að hafa rekið hljóðfæraverslun og plötu-
útgáfu spilaði Pálmi í danshljómsveitum og er enn virkur í tónlistarlífinu.
Í dag eiga hjónin Ívar
Þórarinsson og María
Haukdal Jónsdóttir 50
ára gullbrúðkaupsafmæli.
Þau hjónin eiga 6 börn, 21
barnabarn og 5 barna-
barnabörn. Þau giftu sig á
Eskifirði 3. september
1966 og búa nú í Hafnar-
firði.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
mánudaginn 5. september, kl. 18 og þriðjudaginn 6. september, kl. 18
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17
Ó
lafurElíasson
Forsýning á verkunum laugardag til þriðjudags
Léttar veitingar frá kl. 17.30
100. listmunauppboð
Gallerís Foldar