Morgunblaðið - 27.09.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2016
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Rúmlega tvítugur karlmaður, sem
ók bíl sínum á 171 km hraða á
Reykjanesbraut um helgina,
reyndist vera með meint kannabis
í hanskahólfi bíls síns. Jafnframt
fundu lögreglumenn á Suðurnesj-
um 10 lítra fötu í bifreiðinni. Var
fatan full af meintum spíra.
Ökumaðurinn viðurkenndi eign
sína á efnum og vökva og jafn-
framt á vog og kannabismyljara
sem einnig fundust í bifreiðinni.
Maðurinn var ekki með ökuskír-
teini meðferðis. Hann var sviptur
ökuréttindum til bráðabirgða
vegna hraðakstursins. Grunur leik-
ur á að hann hafi verið undir áhrif-
um vímuefna undir stýri.
Með kannabis og spíra á 171 km hraða
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Undanfarna daga hefur mikil aðsókn
erlendra ferðamanna verið í norður-
ljósaferðir, enda skilyrði til skoðun-
ar þeirra einstaklega góð, þó hefð-
bundið tímabil norðurljósaferða
hefjist ekki fyrr en um næstu mán-
aðamót. Talsmenn tveggja ferða-
skrifstofa segja sífellt fleiri erlenda
ferðamenn koma hingað til lands í
þeim megintilgangi að sjá ljósin
dansa um himininn og fjölbreytt úr-
val er af ýmiskonar ferðum sem
tengjast norðurljósaskoðun.
Á vef Veðurstofu Íslands er spáð
fyrir um virkni norðurljósa nokkra
daga fram í tímann. Spáin er gefin
upp á talnabilinu 0-9, sem byggist á
svokölluðum kp-kvarða sem lýsir
styrk segulsviðstruflana á jörðinni.
Á vefsíðunni segir að algengast sé að
gildið sé 0-3 og mjög sjaldgæft að
það nái hæstu tölunum. Þar má sjá
að í kvöld er spáð tölunni 4 sem
stendur fyrir talsverða virkni og
annað kvöld hljóðar spáin upp á 6
sem stendur fyrir mikla virkni.
Við fljótlega leit á netinu finnast
fjölmörg fyrirtæki sem bjóða upp á
norðurljósaferðir af ýmsum toga,
eitt þeirra er Reykjavík Excursions.
„Það er eiginlega alveg ótrúlegt að
það sé komið að norðurljósunum aft-
ur,“ segir Kristján Daníelsson, sölu-
stjóri fyrirtækisins, sem býður upp á
ýmiskonar norðurljósaferðir, m.a. á
sjó og í heitum laugum. „Við byrjum
á þessum ferðum í lok ágúst og svo
verður aukning eftir því sem dimmir
meira. Þetta fer svo af alvöru af stað
hjá okkur í október og við bjóðum
vanalega upp á norðurljósaferðir
fram í mars.“
Víða má sjá norðurljósin
Nokkuð mismunandi er hversu
margir eru í norðurljósaferðum á
vegum fyrirtækisins hverju sinni, en
að sögn Kristjáns eru rúturnar í
ferðunum sjaldan færri en fimm í
einu og allt upp í 20. Í hverri rútu
eru 50-70 farþegar og samkvæmt
þessu geta allt að 1.400 ferðamenn
verið í einu í norðurljósaferðum fyr-
irtækisins. Því má áætla að þegar
norðurljósaferðir allra ferðaskrif-
stofa eru teknar saman fari a.m.k.
vel á þriðja þúsund ferðamenn í
norðurljósaferðir á hverjum degi.
Kristján segir að góð norður-
ljósasýn sé á ýmsum stöðum í akst-
ursfæri við höfuðborgarsvæðið og
nefnir þar m.a. Borgarfjörð, Hellis-
heiði, Þrengslin, Reykjanes og
Gróttu. „Svo eru vitarnir mjög vin-
sælir til norðurljósaskoðana,“ segir
hann.
Engin trygging fyrir ljósasýn
Að sögn Kristjáns verður talsvert
vart við að erlendir ferðamenn komi
hingað til lands í þeim megintilgangi
að sjá norðurljósin. Ekki er hægt að
tryggja að ljósin beri fyrir augu í
hverri ferð, enda um margslungið
náttúrufyrirbæri að ræða, en hann
segir að þau megi sjá í meirihluta
ferðanna. „Ég get fullyrt að við
sjáum þau oftar en við sjáum þau
ekki. En það er auðvitað ekki hægt
að tryggja það fyrirfram, ekki frek-
ar en mörkin eru innifalin í fótbolta-
leik. Þeim sem kaupa norðurljósa-
ferð og sjá engin norðurljós er boðið
að koma aftur.“
Annað fyrirtæki sem býður upp á
norðurljósaferðir er Extreme Ice-
land. Þar situr Björn Hróarsson fyr-
ir svörum og hann segir að í fyrra-
kvöld hafi fjórir bílar á vegum
fyrirtækisins verið í norðurljósa-
ferðum og að kvöldið áður hafi þeir
verið sex. Í hverjum bíl eru 18 - 20
farþegar. „Við erum ekki stór ferða-
skrifstofa, við erum pínupeð í þess-
um norðurljósaferðum,“ segir Björn,
sem segir eftirspurnina eftir ferðun-
um vera áþekka og í fyrra og allur
gangur sé á því hvort ferðamenn
bóki ferðirnar með löngum fyrirvara
eða ekki. „Sumir bóka með margra
mánaða fyrirvara, aðrir stökkva til
samdægurs þegar það lítur út fyrir
fallega norðurljósasýn.“
Björn segir að fari svo að engin
norðurljós beri fyrir augu ferða-
mannanna sé þeim boðið upp á að
koma aftur.
„Flestir þiggja það – það er svo
mikill áhugi á að sjá þetta náttúru-
undur. Það eru yfirleitt bullandi ljós
fyrir þá sem vita hvar á að leita að
þeim. En það þarf að vera heiðskírt
og svo er ekki alltaf.“
Norðurljósin seld oft á dag
Mikilli virkni norðurljósanna er spáð næstu daga Mörg þúsund ferðamenn fara í skipulagðar
norðurljósaferðir á degi hverjum Yfirleitt „bullandi ljós“ fyrir þá sem vita hvar á að leita að þeim
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Ljósadýrð loftið fyllir Þessi norðurljós léku um himininn yfir Héðinsfirði
fyrir nokkru. Erlendir ferðamenn koma hingað til þess að sjá þessi undur.
Kristján
Daníelsson
Björn
Hróarsson
Norðurljós myndast vegna
truflana á segulsviði jarðar
sem rafhlaðnar eindir frá sól-
inni valda, samkvæmt vefsíðu
Veðurstofu Íslands. Breytingar
á segulsviðinu eru skráðar á
segulmælingastöðvum víða um
heim, ein þeirra er í Mosfells-
bæ.
Norðurljósaspá Veðurstofu
er gerð á grundvelli þeirra
mælinga, en einnig á grund-
velli skýjafars og veðurs.
Alveg trufluð
norðurljós
SEGULSVIÐ, SKÝ OG VEÐUR
Norðurljós Þessi ljós lýstu upp
himininn yfir Fljótum í Skagafirði.