Morgunblaðið - 27.09.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2016
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Þegar blaðamaður náði tali af Jóni Stefáni Einarssyni arkitekt ígær hafði hann nýlokið fundi með sýslumanni höfuðborgar-svæðisins. Batteríið arkitektar, sem Jón Stefán er einn eigenda
að, hannaði húsnæði í Hlíðasmára 1 þar sem skrifstofur sýslumanns-
ins verða sameinaðar. „Þetta var úttekt en sýslumaðurinn flytur
þangað á næstunni. Fyrr um morguninn var ég að lóðsa hóp sænskra
arkitekta um Hörpuna, en arkitektum finnst alltaf spennandi að
ganga þar um og spyrja þeir margra efnislegra spurninga um bygg-
inguna,“ en Batteríið hannaði Hörpuna ásamt arkitektastofunni
Henning Larsen.
Batteríið var að vinna tvær samkeppnir, annars vegar fyrir versl-
unarmiðstöð rétt hjá Leifsstöð sem heitir Rósasel og hins vegar fyrir
íbúðabyggingar á Hverfisgötu 91, en sá reitur er á horni Barónsstígs.
„Rósaselið er mjög spennandi verkefni og á Hverfisgötunni verða
betri íbúðir 24 alls, á besta stað í bænum.“
Jón Stefán hefur unnið á Batteríinu frá 2004 og verið einn af eig-
endum stofunnar frá 2010. Hann býr í Reykjanesbæ þar sem hann ólst
upp. „Ég hef keyrt í bæinn síðan 2004 og aldrei litið á það sem neinn
vanda, heldur sem kost að hafa þetta næði að búa í Reykjanesbæ.
Þetta er flott leið að keyra og aldrei sama ásýndin yfir hrauninu.
Ég er afleitur gítarleikari en hef gaman af því að taka í hann,“ segir
Jón Stefán spurður um áhugamál. „Ég hef líka mjög gaman af því að
fara í sund, maður syndir sína metra og hittir síðan fólkið í pottunum.
Það verður unninn vanalegur dagur á afmælinu og eftir það verð ég
í faðmi fjölskyldunnar. Það verður skellt í gott partí seinna og fengnir
tónlistarmenn sem kunna að spila.“
Eiginkona Jóns Stefáns er Guðfinna Dís Kristinsdóttir, blóma-
skreytir og flugvallarstarfsmaður, og börn þeirra eru Kormákur
Ragnar 12 ára og Melkorka Sól 10 ára.
Arkitektinn Jón Stefán er einn af eigendum Batterísins.
Harpan heillar alltaf
Jón Stefán Einarsson er fertugur í dag
M
aría Elínborg Ingva-
dóttir fæddist í
Hörg á Svalbarðs-
eyri 27.9. 1946 en
ólst upp á Akureyri.
Hún var ung í sveit á sumrin hjá öf-
um sínum og ömmum, í Hörg á Sval-
barðseyri og í Brekku í Aðaldal. Síð-
ar dvaldi hún nokkur sumur hjá
Hildi, frænku sinni, og Böðvari, á
Gautlöndum í Mývatnssveit.
María gekk í Barnaskóla Íslands á
Akureyri, síðan í nýbyggðan Odd-
eyrarskóla, stundaði nám við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar, lauk stúd-
entsprófi við MA og prófi í viðskipta-
fræði við HÍ.
Eftir háskólanámið starfaði María
í eitt ár á hagdeild Verðlagsstofnun-
ar, var deildarstjóri hagdeildar SÍS,
hóf störf hjá Útlflutningsráði Ís-
lands 1987 og var þar fjármálastjóri
og forstöðumaður erlendra viðskipta
og var síðan viðskiptafulltrúi við
sendiráð Íslands í Moskvu.
María var síðan fjármálastjóri
Reykjavíkur Menningarborgar
1998-2001, framkvæmdastjóri hjá
Íslenska dansflokknum og ráðgjafi
hjá Rekstrarverktaki ehf. Hún var
eigandi og framkvæmdastjóri bók-
halds- og ráðgjafarfyrirtækisins
Beggja hags ehf. frá árinu 2006, en
frá ársbyrjun 2016 hefur hún starfað
hjá KPMG. María er auk þess
skógarbóndi í Rangárþingi ytra. En
hvernig kom skógræktin til?
„Ætli sveitin og ræktun landsins
blundi ekki í okkur öllum, þörfin fyr-
ir að sjá árangur af störfum sínum.
Þegar ég var í Moskvu fannst mér
borgarmengunin mikil og undarlega
farið með fallegt land, það hefur lík-
lega ýtt við mér. Ég festi því kaup á
María E. Ingvadóttir viðskiptafræðingur – 70 ára
Með barnabörnum María með Högna Hallgrími, Jónasi Nóa og Maríu Elenu – og auðvitað eru þau í skógarrjóðri.
María sveiflar haka og
ræktar nýjan skóg
Skógarbændur að störfum María
með nöfnu sinni við trjámælingar.
Elín Margrét Guðmundsdóttir og Jóhanna Valdís Branger héldu tombólu og
seldu dót heiman frá sér og frá ömmu sinni. Þær söfnuðu 1.972 kr. sem þær gáfu
Rauða krossinum til góðra verka.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is