Morgunblaðið - 27.09.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.09.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is SUMUM LEYNDARMÁLUM Á EKKI Að ÞAGA YFIR. GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK? HVAÐ MEÐ KYNFERÐISOFBELDI? Verð 3.995 Stærðir 20-30 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Pollastígvél Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxur m/stretch Str. 36-52 4 litir Kr. 7.900 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta getur að mínu mati haft mikil áhrif á orkuöryggi þjóðarinnar, meiri en menn hafa verið að hugleiða hing- að til. Ég tel að hægt sé að virkja allt að 200 MW á þessu svæði sem er utan hættusvæða vegna eldgosa og flóða,“ segir Kristinn Pétursson, verkefnisstjóri Aust- urgilsvirkjunar í Ísafjarðardjúpi, um möguleika sem er að skapast á að skilgreina tengipunkt á Vestfjörðum til að tengja hugsanlegar virkjanir þar við landskerfið. Uppsetning nýs tengipunkts Landsnets í Ísafjarð- ardjúpi hefur verið talin forsenda fyrir því að hægt sé að virkja vatnsafl þar og á Norður-Ströndum. Ástæðan er sú að þeir sem byggja virkjanirnar þurfa sjálfir að kosta flutning orkunnar til næsta tengipunkts til að komast inn á landsnetið. Í tilviki Vestfjarða er sá punktur í Gilsfirði. Mismunandi vegalendir frá virkj- unum til tengipunkta getur skekkt mjög hagkvæmniút- reikninga virkjana. Nokkrir virkjanamöguleikar eru í Ísafjarðardjúpi og nágrenni. Hvalá í Ófeigsfirði er í nýtingarflokki ramma- áætlunar og Austurgilsvirkjun í Ísafjarðardjúpi er flokkuð í nýtingarflokk í þeirri tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar sem nú liggur fyrir Alþingi. Hafinn er undirbúningur að báðum þessum virkjunum. Skúfs- vatnavirkjun og fleiri en ein virkjun vestan Ísafjarð- ardjúps eru einnig til athugunar. Hægt að auka rannsóknir Kristinn Pétursson áætlar að þarna sé allt að 200 MW virkjanleg raforka. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra hefur nú undirritað breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga þar sem sett eru skilyrði vegna nýrra teng- inga og hvernig reikna eigi út framlög notenda til kerf- isins. Staðan á Vestfjörðum hefur sérstaklega ýtt eftir því að reglurnar yrðu settar. Kristinn segist ekki hafa séð reglurnar en fagnar þeim með þeim fyrirvara að hann hafi ekki reiknað út kostnaðinn. Segir hann að væntanlega verði nú hægt að leggja meira í rannsóknir á þessum virkjanakostum og gera áformin að veruleika. Hann tekur þó fram að öll þessi vinna taki langan tíma. Morgunblaðið/RAX Virkjunarkostir Hvalá í Ófeigsfirði er í nýtingarflokki rammaáætlunar en hér er Hvalsárfoss í öllu sínu veldi. Möguleikar á nýjum vatnsaflsvirkjunum  Nýr tengipunktur raforku á Vestfjörðum gæti orðið til Lilja Rafney Magnúsdóttir, al- þingismaður, mun leiða lista Vinstri grænna í Norðvestur- kjördæmi sam- kvæmt niður- stöðu forvals en atkvæði voru tal- in á sunnudags- kvöld. Alls voru 1.102 á kjörskrá og 859 tóku þátt í forvalinu sem er 78% kjörsókn. Lilja Rafney fékk 328 at- kvæði í 1. sæti en Bjarni Jónsson fékk 307 atkvæði í það sæti. Í næstu sætum voru Dagný Rósa Úlfars- dóttir, Lárus Ástmar Hannesson, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir og Rúnar Gíslason. Kjörstjórn mun leggja fram tillögu að heildarlista á fundi á Hvanneyri næstkomandi fimmtudag kl. 20. Lilja Rafney fékk 1. sætið í forvali VG Lilja Rafney Magnúsdóttir Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Viðræður eru hafnar á milli Alþýðu- sambands Íslands, ASÍ og Samtaka atvinnulífsins, SA, um keðjuábyrgð, en í henni felst m.a. að aðalverktaki eða verksali beri ábyrgð á því að undirverktaki vinni samkvæmt lög- um og kjarasamningum og greiði rétt laun. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir löngu tímabært að komist verði að samkomulagi um ábyrgð sem þessa. „Þetta hefur verið baráttumál ASÍ býsna lengi og nú erum við að fara yfir það saman með hvaða hætti við getum tekið þetta upp,“ segir Gylfi. „Þetta er mikið til um- ræðu innan Evrópusambandsins og við lítum m.a. til þess.“ Nýverið setti Landsvirkjun sér reglur um keðjuábyrgð sem munu koma inn í útboðsskilmála fyrirtæk- isins. Reglunum er ætlað að tryggja að allir sem vinna fyrir Landsvirkj- un á óbeinan hátt, t.d. hjá verktök- um, undirverktökum eða starfs- mannaleigum njóti þeirra réttinda og kjara sem lög og samningar kveða á um. Skiptir máli á ýmsan hátt Gylfi segir of snemmt að segja til um hvort niðurstaða viðræðna ASÍ og SA muni leiða til svipaðs fyr- irkomulags, viðræður séu nýhafnar og óljóst hverjar verði þar helstu áherslur. „En við fögnum því að sjálfsögðu að Landsvirkjun, sem hefur mesta reynslu af þessu, skuli taka þetta upp.“ Að mati Gylfa skiptir keðju- ábyrgð máli á ýmsan hátt. Deilur um uppgjör og réttindi starfsmanna geti t.d. komið niður á fram- kvæmdatíma og gæðum verka. „Þannig að það er mikilvægt að setj- ast yfir þetta verkefni,“ segir Gylfi. Útfærsla sem hentar hér á landi „Við erum að skoða hvort við getum komið með sameiginlegar tillögur um útfærslu sem hentar best í íslenskum aðstæðum,“ segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. „Þetta byggist á framkvæmda- tilskipun um útsenda starfsmenn sem við þurfum að innleiða hér á landi, þar er sérstök áhersla á byggingargeirann og ábyrgð verk- taka á launum útsendra starfs- manna undirverkans, sem er einn valkostur við innleiðingu þessarar tilskipunar. Það sem lögð er áhersla á er að tryggja að útsendir starfsmenn fái greidd sín laun. Keðjuábyrgðinni er stillt upp sem valkosti til að ná þessu markmiði,“ segir Ragnar. Litið til annarra þjóða Hann segir að litið sé til þess hvernig aðrar þjóðir hagi þessum málum, vinnumarkaðir séu byggðir upp á mismunandi hátt eftir lönd- um og ekki víst að það sama eigi við hér og annars staðar. „Það verður vinna vetrarins að ákveða hvort keðjuábyrgð sé besti kosturinn og ef svo er, hvernig á að útfæra hana,“ segir Ragnar sem segir vonir bundnar við að niður- staða fáist innan nokkurra mán- aða. ASÍ og SA ræða keðjuábyrgð  Hefur verið baráttumál ASÍ býsna lengi, segir Gylfi Arnbjörnsson  Von- ast eftir niðurstöðu á næstu mánuðum Gylfi Arnbjörnsson Ragnar Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.