Morgunblaðið - 27.09.2016, Side 16

Morgunblaðið - 27.09.2016, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2016 Verkfærasalan - Síðumúla 11 - 560-8888 - www.vfs.is Frábær verð! 6.990 Verð Kapaltromla 25m Framleidd í Þýskalandi. Leiðir 3G1,5, 25m. BR 10991503.690 Verð Rafmagnssnúra 10m Gúmmíkapall 10m. Leiðir 3G1,5, 25m. BR 1169870 3.990 Verð Kastari LED 10W Ljósmagn 700lm, IP65 Kapall 1,7m. TO YT81801 Rafmagnssnúrur og ljós 27. september 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 113.83 114.37 114.1 Sterlingspund 147.26 147.98 147.62 Kanadadalur 86.22 86.72 86.47 Dönsk króna 17.164 17.264 17.214 Norsk króna 14.009 14.091 14.05 Sænsk króna 13.325 13.403 13.364 Svissn. franki 117.57 118.23 117.9 Japanskt jen 1.133 1.1396 1.1363 SDR 159.25 160.19 159.72 Evra 127.96 128.68 128.32 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.7389 Hrávöruverð Gull 1336.3 ($/únsa) Ál 1637.5 ($/tonn) LME Hráolía 47.42 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Útboði á tæplega 14% hlut ríkisins í Sjóvá, sem tilkynnt var um eftir lokun markaða á föstu- daginn, lauk fyrir opnun markaða í gær, mánudag. Alls óskuðu fjár- festar eftir að kaupa sem nemur 18,3% af heildarhlutafé í tryggingafélaginu. Útboðið var með hol- lensku fyrirkomulagi sem felur í sér að öll samþykkt tilboð buðust tilboðsgjöfum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Tilkynnt hafði verið að lágmarksgengi í útboðinu yrði 12,85 krónur á hlut og reyndist sölugengi þegar til kom 12,91 króna á hlut. Nam heildar- söluverðmæti samþykktra tilboða rúm- lega 2,8 milljörðum króna. Gengi hluta- bréfa í Sjóvá var 12,95 krónur í Kauphöllinni í lok dags í gær og hafði þá lækkað um 1,5% yfir daginn. Ríkið seldi fyrir 2,8 milljarða króna í Sjóvá Sjóvá Ríkið hefur selt allan hlut sinn. STUTT BAKSVIÐ Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Þegar mest er leggjum við upp undir 20% af bílaflotanum okkar, þó að sú tala fari minnkandi vegna aukinnar eftirspurnar yfir vetrar- mánuðina,“ segir Steingrímur Birg- isson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, en bílaleigubílar í landinu eru orðn- ir svo margir að hætta er á að end- ursölumarkaðurinn taki illa við þeim fjölda bíla sem bílaleigur þurfa að losa vegna endurnýjunar. Steingrímur segir að Bílaleiga Akureyrar hafi selt hátt í 1.300 bíla á síðasta ári og ekki sé ólíklegt að samtals hafi allar bílaleigur lands- ins selt einhvers staðar í kringum 5.000 bíla. Hann býst þó ekki við því að fjöldinn sem komi inn á markað- inn í ár valdi einhverjum vand- ræðum. „Ég held að við séum ekki að horfa á neinar ofboðslega háar tölur bíla sem koma inn á markaðinn núna, heldur væri það frekar í lok næsta sumars sem við munum sjá töluvert fleiri bílaleigubíla á endur- sölumarkaðnum. Til lengri tíma verður þetta vandamál og mun hefta vöxt bílaleiga, enda liggur það ljóst fyrir að við getum ekki fjölgað bílum mikið meira en markaðurinn er tilbúinn að taka við í endursölu þegar kemur að endurnýjun.“ Erfitt að selja bíla til útlanda Rúmlega fjögur þúsund fleiri bílaleigubílar eru á skrá í dag en voru í upphafi árs 2015. Þá eru þeir tæplega átta þúsund fleiri en í byrj- un árs 2014 og má því búast við enn frekari fjölgun bílaleigubíla á næstu árum. Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Procar-bílaleig- unnar, segist nú þegar finna fyrir þeim fjölda bílaleigubíla sem er að koma inn endursölumarkaðinn en telur það enn ekki vera vandamál. „Við erum aðeins farin að finna fyrir fjöldanum og auðvitað þarf að finna lausn til frambúðar. Það er alltaf gott að leysa mál áður en þau verða að vandamáli,“ segir Gunnar og bendir á möguleikann að selja bíla úr landi. „Til að hægt sé að selja bíla úr landi á samkeppnishæfu verði verð- ur að koma til einhvers konar end- urgreiðsla á vörugjöldum og virð- isauka.“ Eins og mál standa í dag er auk þess erfitt að selja bíla úr landi að sögn Gunnars vegna legu landsins. „Það getur bæði verið erfitt að finna markaði úti og þá búum við einnig við þann þröskuld að flutn- ingur bíla frá landinu kostar sitt.“ Hvorki Procar né Bílaleiga Akur- eyrar eru að selja bíla úr landi í dag en bæði Steingrímur og Gunnar telja mikilvægt fyrir áframhaldandi vöxt hjá bílaleigum á Íslandi að vörugjöld og virðisaukaskattur verði endurgreidd með einhverjum hætti þegar bíll er seldur úr landi. Íslenski endursölumarkaðurinn muni ekki geta tekið við fjölgun bílaleigubíla á næstu árum. Endursölumarkaðurinn heftir vöxt hjá bílaleigum Morgunblaðið/Ómar Endursölumarkaður Bílaleigubílum hefur fjölgað um 8.000 á tveimur árum og voru samtals 21.665 í lok ágúst.  Bílaleigur vilja opinber gjöld endurgreidd þegar bílar eru seldir úr landi Verðmæti útfluttra sjávarafurða dróst saman um 22 milljarða króna, eða tæplega 14%, á fyrstu sjö mán- uðum ársins miðað við sama árshluta í fyrra. Nam útflutningsverðmætið samtals 138,5 milljörðum króna frá janúar til júlí en það var 160,4 millj- arðar á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í Hagsjá hagfræðideild- ar Landsbankans. Samdrátt í verðmæti útfluttra sjávarafurða má bæði skýra með 8,6% styrkingu á gengi krónunnar á tímabilinu og með minni veiðum. Út- flutningur loðnuafurða dróst saman um helming í tonnum talið á fyrstu sjö mánuðum ársins miðað við sama tímbil í fyrra og fór útflutningsverð- mætið úr 22,9 milljörðum króna árið 2015 niður í 11,9 milljarða í ár. Í um- fjöllun Landsbankans er bent á að þrátt fyrir að loðnan sé veidd á fyrstu þremur mánuðum ársins stendur útflutningur á henni yfir í nokkra mánuði eftir að hún er veidd. Þá drógust veiðar á rækju saman um 18% milli ára og minnkaði út- flutningsverðmætið um 3,4 milljarða króna eða um rúmlega þriðjung. Af botnfisktegundum drógust veiðar á ýsu og ufsa saman og var samanlagt útflutningsverðmæti þeirra 2,7 milljörðum króna minna en í fyrra, eða sem nemur 13,5%. Veiðar á þorski jukust hins vegar um 13,5% milli ára og jókst útflutn- ingsverðmætið um 4,1% á fyrstu sjö mánuðum ársins. Landsbankinn bendir á að lækkun útflutningsverðmætis sjávarafurða milli ára endurspegli ekki endilega versnandi afkomu sjávarútvegs- fyrirtækja, enda hafi viðskiptakjör Íslands batnað um ríflega 10% á undanförnum tveimur árum. Morgunblaðið/Golli Sjávarfang Útflutningur var 22 milljörðum minni janúar til júlí. Verðmæti sjávar- afurða minna í ár  Viðskiptakjör hafa þó batnað undanfarin 2 ár Fjöldi skráðra bílaleigubíla Heimild: Samgöngustofa *staðan: 26. 07. ’16 **staðan: 26.09. ’16 Ártal Fjöldi 2014 13.723 2015 17.510 2016* 21.539 2016** 21.665

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.