Fréttablaðið - 10.11.2016, Page 64
HBO-þáttaröðin Westworld er í
fullum gangi og hafa sumir gengið
svo langt að tala um að þættirnir
séu arftaki Game of Thrones-þátta-
raðarinnar – hér verður þó ekkert
fullyrt um það en Westworld hefur
samt vakið mikla athygli enda eru
þættirnir uppfullir af spennu, for-
vitnilegum spurningum, ofbeldi og
nekt – allt það sem fólk vill fá út úr
HBO-þáttaröð í raun og veru.
Árið 1973 kom út kvikmyndin
Westworld og eru þættirnir byggðir
á henni. Þetta var fyrsta kvikmyndin
sem Michael Crichton leikstýrði
og hann skrifaði einnig handritið.
Mich ael Crichton er kannski þekkt-
astur fyrir Jurrasic Park-myndirnar
sem eru byggðar á skáldsögu Crich-
tons og mögulega líka þekktur
fyrir ofsahræðslu sína við tækni og
vísindi, enda virðast allar sögurnar
hans fjallar um stórkostleg tækni-
afrek sem enda svo með að verða
algjört stórslys þar sem slatti af fólki
fellur í valinn.
Westworld er þar engin undan-
tekning. Myndin fjallar um tvo
félaga í nálægri framtíð sem skreppa
í frí í skemmtigarðinn Delos þar sem
vélmenni í mannsmynd eru til í alls
konar sprell með gestum garðsins.
Garðurinn skiptist í þrennt – heim
villta vestursins, miðaldir og Róm
til forna. Líkt og í þáttunum er
hægt að misþyrma mennsku vél-
mennunum á margs konar hátt, þar
á meðal er hægt að skjóta þau í spað
og í Vestragarðinum er til að mynda
eitt aðalatriðið Byssumaðurinn (The
Gunslinger), sem er leikinn er af Yul
Brynner, sem er sérstaklega gerður
til að fara í einvígi við gesti sem
hann tapar svo auðvitað alltaf. Það
er nefnilega þannig að vélmennin í
garðinum eru vopnuð byssum sem
geta ekki skotið á lífverur með heitt
blóð enda eru þær með innbyggðan
hitaskynjara.
Eins og við er að búast fer auð-
vitað allt í háaloft í Delos og röð
bilana gerir vélmennin gjörsamlega
sturluð og þau ganga berserksgang.
Margir sem eru að lesa þetta kann-
ast mögulega við þennan söguþráð
úr æsku sinni. Það er nú líka út af
því að þessi söguþráður hefur verið
nýttur í annan vinsælan sjónvarps-
þátt. Við erum auðvitað að tala um
The Simpsons, en í fjórða þætti í
sjöttu seríu The Simpsons er nefni-
lega þátturinn Itchy & Scratchy
Land – þar fer Simpson-fjölskyldan
í frí í skemmtigarðinn Itchy &
Scratchy Land þar sem Itchy- og
Scratchy-róbótarnir sem skemmta
gestum þar gjörsamlega sturlast og
ganga berserksgang.
Punkturinn hér er auðvitað bara
einfaldur – allt hefur verið gert í The
Simpsons áður. Allar mögulegar til-
vísanir í kvikmyndir og sjónvarps-
þætti, bókmenntir og viðburði í
mannkynssögunni – þetta hefur
allt verið notað sem efniviður í
þessum ótrúlega langlífa og, leyfist
mér að segja, besta sjónvarpsþætti
allra tíma. The Simpsons hafa verið
í gangi síðan árið 1989 og þætt-
irnir eru orðnir yfir 600. Í viðtali
sagði sjálfur Matt Groening að það
erfiðasta við að búa til nýja þætti
væri að fá hugmyndir sem hafa ekki
verið notaðar í The Simpsons áður
en það er spurning hvort atburðir
í raunheiminum séu ekki farnir að
verða full líkir söguþræði einhvers
þáttar The Simpsons og hvort það sé
í raun eitthvað eftir sem hefur ekki
komið þar fram – í þættinum Bart
to the Future var Donald Trump for-
seti Bandaríkjanna og setti þjóðina
á hausinn. stefanthor@frettabladid.is
Frá Westworld til Donalds Trump
Hvað eiga HBO-þættirnir Westworld, samnefnd kvikmynd frá 1973, tæplega tuttugu og tveggja ára
gamall Simpsons-þáttur og Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, sameiginlegt?
Westworld er einn vinsælasti þátturinn í dag og hérna má sjá aðalleikarana saman
komna undir merkjum HBO þar sem þættirnir eru sýndir. NOrdic PHOtOs/Getty
simpson-fjölskyldan flýr undan bil-
uðum vélmennum.
Westworld frá 1973 var stórskemmti-
leg mynd og um margt framúrstefnuleg
þegar hún kom í bíó á sínum tíma.
Eign við
sjávarsíðuna
með góðum
anda
Vorum að fá í einkasölu einstaklega fallega,
nýuppgerða eign við Sæbraut. Glæsilegt útsýni
yfir Faxaflóa. Hluti eignarinnar er undir súð og
því er gólfflötur töluvert stærri en uppgefnir
fermetrar. Tengi fyrir þvottavél innan íbúðar.
SJÁVAR-ÚTSÝNI!
NÝTT
SKÓLP &
DREN!
MÖGU- LEIKI Á AÐ BYGGJA BÍLSKÚR!
WesTWorlD heFur samT
vakið mikla aThygli enDa
eru þæTTirnir uppFullir aF
spennu, ForviTnilegum
spurningum, oFbelDi og
nekT – allT það sem Fólk
vill Fá úTúr hbo-þáTTaröð í
raun og veru.
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
bíó
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
D
-C
0
4
4
1
B
3
D
-B
F
0
8
1
B
3
D
-B
D
C
C
1
B
3
D
-B
C
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K