Fréttablaðið - 10.11.2016, Side 72

Fréttablaðið - 10.11.2016, Side 72
Dmitry A. Torkin Tannlæknir Í kjölfar þess að hafa tilkynnt alþjóð þær hræðilegu fregnir að sonur hans þjáist af krabbameini hefur Michael Bublé tilkynnt að hann muni ekki koma fram á BBC Music Awards hátíðinni. Söngvarinn var á dagskrá hátíðarinnar en hún verður haldin 12. desember næstkomandi. „Við sendum innilegar samúðar- kveðjur til Michaels og fjölskyldu hans,“ segir tónlistarstjórnandi BBC í tilkynningu á BBC News. Bæði Bublé og konan hans, Luisana Lopilato, hafa sagst ætla að leggja feril sinn á hilluna og einbeita sér að syni sínum. – sþh Michael Bublé hættir við BBC Music Awards Michael Bublé. Fræga fólkið fagnaði lögleiðingu Kaliforníuríkis á kannabisefnum á Twitter í gærkvöldi. Nú er löglegt fyrir alla Kaliforníubúa eldri en tuttugu og eins árs að eiga, flytja og kaupa allt að þrjátíu grömmum af kannabisefnum til einkanota. Rapparinn Snoop Dogg var að sjálf- sögðu kátur og tísti: „Við lögleiddum marijúana í Kaliforníu,“ og smellti hasstagginu #smokeweed everyday auðvitað fyrir aftan, enda mjög þekktur fyrir neyslu sína á efninu og búsettur í ríkinu. Aðrir sem fögnuðu þessum nýju lögum voru Morgan Spurlock, Lisa Rinna, Zach Braff og Tommy Chong. – sþh Frægir fagna lögleiðingu Snoop Dogg. Skyndibitarisinn McDonald’s er ekki sáttur við yfirvöld í ítölsku borginni Flórens eftir að þau komu í veg fyrir að McDonald’s opnaði útibú rétt við hlið- ina á sögufrægri dómkirkju þar í borg. Í kjölfarið hefur McDonald’s kært borgina og vill fá skaðabætur upp á tuttugu milljónir dollara en staðinn átti að opna á dómkirkjutorginu, Piazza del Duomo, en það er einn fjölsóttasti staður í Evrópu. Umsókn McDonald’s var hafnað vegna nýrrar reglugerðar borgarinnar sem miðar að því að vernda sögu- lega miðborg Flórens gegn því að þar safnist upp fjöldinn allur af skyndi- bitastöðum. Þessi lög heimila einungis veitingastöðum sem nota hráefni upp- runnið í borginni eða nærsveitum að starfa í miðborginni  en Flórens er í Toskana-héraði. Borgarstjórinn ávarpaði nefndina við þetta tækifæri þar sem hann sagði að McDonald’s væri í fullum rétti til að sækja um plássið en að sama skapi væri borgin í fullum rétti til að hafna þessari umsókn keðjunnar. Lögsóknina byggir McDonald’s á því að keðjan hafi lagst í breytingar á rekstrinum til að uppfylla reglugerðar- ákvæði borgarinnar en hafi samt sem áður verið hafnað. – sþh McDonald’s stefnir Flórens Duomo-torg er oftast alveg stappað af túristum. Allir helstu stjórnmálaskýrendur og veðbankar spáðu því að Hillary Clinton myndi bera sigur úr býtum í forsetakosningunum. Þvert á þessar spár verður það Donald Trump sem mun taka við embætti forseta Bandaríkjanna í janúar á næsta ári. Hillary hafði her af stórstjörnum með sér í liði og þannig stýrðu Cher og Jennifer Garner kosningafundum fyrir hana. Lady Gaga og fleiri voru mjög virk á samfélagsmiðlum að gagnrýna Trump og hvetja fólk til að kjósa Hillary. Þrátt fyrir að milljónir sæju hvert einasta tíst, hverja ein- ustu færslu á Facebook og skoðuðu hverja einustu mynd sem birtist á Instagram var það Trump sem stóð uppi sem sigurvegari. Allt útlit er fyrir að Clinton hafi hlotið fleiri atkvæði en Trump en vegna þess hvernig kjörmannakerfi Banda- ríkjanna er byggt upp þýddu stórsigrar hennar í New York og Kaliforníu að atkvæði hennar nýttust verr en atkvæði Trumps. Trump hafði langt frá því sama fjölda af ofurstjörnum með sér í liði. Ein sú fyrsta sem óskaði Trump til hamingju var leikkonan Kirstie Alley sem tísti hamingjuóskir til hans með hástöfum. Fáar stjörnur sem studdu Trump eiga Óskarsverð- laun, Emmy-verðlaun eða nokkur verðlaun yfirhöfuð. Sé stjörnulisti Trumps skoðaður má þó finna nokkrar goðsagnir. Dennis Rodman, sem gerði garð- inn frægan í NBA, hvatti sína fylgj- endur á Twitter til að kjósa Trump á kosningadag. „Við þurfum ekki enn einn pólitíkusinn. Hann hefur verið frábær vinur í mörg ár og við þurfum mann eins og hann,“ sagði Rodman en hann er talinn einn af betri varnarmönnum NBA frá upp- hafi og vann til ótal verðlauna í NBA-deildinni. Bassagoðsögnin hjá Kiss, Gene Simmons, sagði við tíma- ritið Rolling Stone að Trump yrði frábær innspýting inn í úldið kerfi og studdi meðal annars hugmynd hans um vegginn marg- fræga. „Páfinn fór eitt- hvað að blanda sér í málið og sagði að hugmynd Trumps um vegginn væri ómannúðleg. Ég veit ekki betur en að það sé veggur í kringum Vatíkanið og páfinn og kardínálar vilji helst engan inn fyrir þann vegg,“ sagði rokkarinn. Leikstjórinn og leikarinn Clint Eastwood kvittaði undir orð Simm- ons um að Trump yrði frábær inn- spýting í úldið kerfi en neitaði að svara hvort hann væri sammála hugmyndunum um vegginn. Glímukappinn Hulk Hogan tísti einnig til stuðnings Trump þar sem hann lýsti því yfir að hann vildi helst vera hlaupafélagi Trumps á meðan hann væri forseti. Boxarinn Mike Tyson var ein af fyrstu stór- stjörnunum til að lýsa stuðningi sínum við Trump en Tyson er einn albesti þungavigtarboxari sögunnar. „Af hverju eigum við ekki að reyna eitthvað nýtt? Prófa að reka Banda- ríkin eins og fyrirtæki þar sem litar- haft skiptir engu og allir geta fengið vinnu? Hann á að vera forseti þessa lands,“ sagði Tyson við Live Magaz- ine í október. Honum er boðið í sigurveisluna. benediktboas@365.is Stjörnur sem studdu Trump Hillary Clinton hafði ótrúlegan fjölda stórstjarna með sér í liði í kosningabaráttunni gegn Donald Trump. Sá lét verkin tala og þó nokkrar stórstjörnur voru með honum í liði. Þó margir séu reiðir yfir úrslitum þá gladdist fjöldi fólks yfir tíðindum gærdagsins. Almenningur sem og nokkrar stjörnur studdu Donald Trump yfir marklínuna. FréTTABlAðið/GeTTy Kim Jong-Un og Dennis rodman á körfuboltaleik í Pyongyang. MynD/GeTTyJón Ólafsson og Mike Tyson á góðri stundu. Hulk Hogan. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r60 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 D -F 6 9 4 1 B 3 D -F 5 5 8 1 B 3 D -F 4 1 C 1 B 3 D -F 2 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.