Morgunblaðið - 04.11.2016, Síða 25
því að þetta eru líka þroskasögur persónanna.
Hvernig fólk mótast af umhverfinu og hvernig
venjulegt fólk leiðist út í það að gera hræðilega
hluti við ákveðnar aðstæður,“ segir Ragnar en
áhorfendur mega búast við að sjá söguna birt-
ast á skjánum eftir tvö ár ef allt gengur eftir.
Verðlaun og viðurkenningar
Ragnar er greinilega kominn á glæpasagna-
kortið og inn rignir viðurkenningum og tilnefn-
ingum til verðlauna. „Ég hef fengið tvær verð-
launatilnefningar á þessu ári og vann í annað
skiptið en það voru Mörda-verðlaunin fyrir
best þýddu glæpasöguna í Bretlandi árið 2015,
fyrir Náttblindu. Þetta er búið að vera ótrúlegt
ævintýri. Að sjá bækurnar fara á toppinn í
Amazon og svo þegar Snjóblinda var valin ein
af bestu glæpasögum ársins í Independent fyr-
ir jólin í fyrra. Það var líka mögnuð tilfinning
að fá dóma í blöðum eins og Times. Ég hef lesið
bókasíðurnar í Times í áraraðir og aldrei
hvarflaði að mér að þar yrði einhvern tímann
fjallað um bók eftir mig. Það er mjög óraun-
verulegt,“ segir Ragnar og nefnir einnig að það
sé stórskrítið að sjá bækur sínar á ýmsum
framandi tungumálum.
Búið er að selja útgáfuréttinn á bókum
Ragnars til þrettán landa og hafa bækurnar nú
þegar komið út á sjö tungumálum. Hann nær í
eintak af bók sinni á kóresku þar sem aug-
ljóslega skilst ekki eitt orð. „Hún er t.d. vænt-
anleg á japönsku, tyrknesku, arabísku og ar-
mensku,“ segir Ragnar.
Fékk útgefanda eftir tapleik
Fyrsta bók Ragnars kom út árið 2009 og það
var árið 2015 sem fyrsta bókin kom út á ensku.
Mikil vinna fór í það hjá Ragnari að kynna sig
erlendis en hann sótti bókmenntaviðburði víða
í mörg ár áður en hann sjálfur fékk útgefanda.
„Fyrstu árin þegar bækurnar komu aðeins út
hér heima þá notaði ég ritlaunin til að ferðast á
glæpasagnahátíðir og bókmenntaviðburði og
var duglegur að kynna mig úti. Ég mætti á
bókmenntahátíðir í Bretlandi og Bandaríkj-
unum þótt ég væri ekki með bók. Ég mætti
bara sem íslenskur höfundur. Þannig var ég í
mörg ár í raun að fjárfesta í sjálfum mér. Það
síðan skilar sér að lokum,“ segir Ragnar sem
segir tilviljun hafa ráðið samningi í Bretlandi.
„Það tók nokkur ár að fá þennan útgáfu-
samning í Bretlandi. En þetta datt samt inn
fyrir tilviljun. Ég lenti í því að spila fótbolta
með þessum útgefanda. Við vorum saman í
liði og það kom í ljós eftir leikinn að hún var
að stofna bókaforlag og var að leita að nýjum
höfundum og hafði heyrt af mér,“ segir Ragn-
ar.
„Þetta var á bókmenntahátíð þar sem fundið
var upp á þeirri nýjung að láta glæpasagnahöf-
unda frá Skotlandi keppa við Breta. Skotarnir
völdu mig í lið Breta af því þeir vissu að ég væri
ekkert mjög góður. Við töpuðum 14-0. Og í
þessu breska liði var kanadísk kona, Karen
Sullivan, sem endaði sem útgefandinn minn,“
segir Ragnar. „Það eru fáránlegar tilviljanir
sem keyra þetta áfram.“
Fótboltinn hjálpar á ný
Í sumar sem leið var Ragnar staddur í
Frakklandi að fylgjast með íslenska landsliðinu
í fótbolta. „Ég fór á fjóra leiki. Það vildi svo
skemmtilega til að Snjóblinda kom út í Frakk-
landi í maí og það komu hingað til Íslands
nokkrir blaðamenn frá stórum blöðum; Figaro,
Paris Match og ELLE og ég fór með þeim
norður til Siglufjarðar. Svo heppilega vildi til
að það snjóaði þar, í maí, þannig að þeir voru
mjög ánægðir. Þetta var eins og að stíga inn í
bókina,“ segir Ragnar og hlær.
„Ég sagði við blaðamennina að ef Íslandi
myndi ganga vel á EM hefði það kannski áhrif
á hvernig bókinni yrði tekið en auðvitað bjóst
maður ekki við að þeim myndi ganga svona vel.
Auglýsingaherferð fyrir bókina var að byrja
akkúrat í júní, það voru stórar auglýsingar á
lestarstöðvum og á flugvöllum. Svo bara gerist
þetta með íslenska landsliðið ofan í auglýsinga-
herferðina og blaðaumfjöllunina. Þetta var frá-
bær tímasetning og algjör tilviljun,“ segir
Ragnar en daginn eftir sigur Íslands á Eng-
landi birtist viðtal við Ragnar í stórblaðinu Le
Parisien og mynd af honum í íslensku fótbolta-
treyjunni. Þannig að velgengni íslenska liðsins
hjálpaði Ragnari en þar seldust á þriðja tug
þúsunda eintaka í sumar og von er á næstu bók
þar í maí.
„Það var afar ánægjulegt að sjá viðtökurnar
í Frakklandi þar sem bókin varð, þegar upp var
staðið, í fjórtánda sæti yfir mest seldu glæpa-
sögur sumarsins þar í landi,“ segir Ragnar sem
sér fram á spennandi tíma og fleiri morð. Morgunblaðið/Ásdís
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
Við skiljum eftir drauma í Póstboxi fyrir þá sem ætla sér stóra hluti
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA