Morgunblaðið - 23.11.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Amerískirbílar
Sími 4 80 80 80
2016 Suburban LTZ
7 manna bíll, fjórir kapteinsstólar, Blu Ray spílari í
sætum, sóllúga og fl. 5,3L V8, 355 Hö.
VERÐ 14.990.000,-
2017 Ford F-350 Lariat
með Utlimate- og krómpakka, upphituð/loftkæld sæti,
fjarstart,trappa í hlera og fl. 6,7L Diesel ,445 Hö.
VERÐ11.170.000,-
Eins og síðustu
fjögur ár verður
samstarf um jóla-
aðstoð milli
Hjálparstarfs
kirkjunnar,
Hjálpræðishers-
ins, Mæðra-
styrksnefndar
Akureyrar og
Rauða krossins við Eyjafjörð.
Markmiðið hefur verið að styðja
efnaminni fjölskyldur og einstak-
linga á svæðinu með greiðslukort-
um sem hægt er að versla fyrir í
ákveðnum verslunum. Auk þess er
fataúthlutun hjá Hertex og Rauða
krossinum og jólagjafir fyrir börn
sem safnað er á Glerártorgi. Þá
hefur aukist að fólki sé hjálpað til
sjálfshjálpar með námskeiðum,
sjálfseflandi verkefnum og ráðgjöf.
Sótt er um aðstoð í síma 5704090
milli kl. 10 og 12 virka daga frá 28.
nóvember til 9. desember. Bókað er
viðtal þar sem fyllt er út umsókn og
koma þarf með staðgreiðsluyfirlit
frá skattinum.
Samstarf um jólaað-
stoð við Eyjafjörð
Hægt var að
sækja nýja upp-
færslu netvafr-
ans Vivaldi í
gær.
Uppfærslan
nefndist Vivaldi
1.5. Í tilkynn-
ingu segir Jón
von Tetzchner,
forstjóri Vivaldi,
að áhersla sé
lögð á að búa til notendamiðaðan
vafra sem fólk geti sniðið að sín-
um þörfum og að hann sé
sveigjanlegur.
Fram kemur að Vivaldi sé fyrsti
vafrinn til að bjóða upp á lita-
stýringu á svonefndum snjall-
perum í gegnum vafur. Notandinn
velji hvaða ljósi Vivaldi eigi að
stýra og vafrinn samstilli litina í
nærumhverfinu og litina á vafr-
anum.
Þá séu margar endurbætur á
fyrri uppfærslum, m.a. sé nú hægt
að draga flipa, flipabunka og
flipaval milli glugga.
Ný uppfærsla á
Vivaldi-vafranum
Jón
von Tetzchner
Sigur rússneska áskorandansSergei Karjakin meðsvörtu í áttundu skákinni íheimsmeistaraeinvíginu í
New York setur spádóma um úr-
slitin í uppnám; staðan er nú 4½:3½
Karjakin í vil og aðeins fjórar skák-
ir eru eftir af einvíginu. Magnús
Carlsen var greinilega sleginn út af
laginu og mætti ekki á blaðamanna-
fund eftir á, eins og keppendur
verða að gera vilji þeir hlíta
einvígisskilmálum. Fyrir vikið á
hann yfir höfði sér sekt, en reglur
kveða á um að draga megi 5% verð-
launafjár frá hlut skákmannsins í
slíkum tilvikum.
Vandi Magnúsar er í hnotskurn
sá að hann hefur enga byrjun „sem
bítur“. Þá vekur taflmennska hans
spurningar um það hvernig undir-
búningi hans hefur verið háttað.
Skynsemi þess að tefla langt
hraðskákeinvígi við Nakamura rétt
fyrir stóra slaginn er hér með dreg-
in í efa. Auðvitað er hægt að vera
gáfaður eftir á og ekki má gleyma
því að Magnús hrekkur yfirleitt í
gang eftir dapurt gengi – en hrað-
skákir og kappskákir eru ólík
keppnisform.
Helsta ástæða þess að Magnús
tapaði á mánudag var fífldjörf tafl-
mennska í miðtaflinu. Í tímahraki
rétt fyrir 40. leik virtist Karjakin
hafa sigurinn í hendi sér en sást þá
yfir glæsilegan riddaraleik Magn-
úsar. En þá var eins og „orkan“
væri farin; Magnús var ekki með
verra en gekk illa að fást við frípeð
Karjakins á a-línunni og biskupnum
var haldið úti. Að lokum fann Kar-
jakin snjalla leið til að spinna mát-
net, með takmörkuðum liðsafla þó:
New York 2016; 8. einvígisskák:
Magnús Carlsen – Sergei Kar-
jakin
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 d5 3. e3 e6 4.
Bd3 c5 5. b3 Be7 6. O-O O-O 7.
Bb2
Drottningarpeðsbyrjun af þessu
tagi kemur ekki á óvart og trúlega
hefur Karjakin undirbúið sig fyrir
þessa „stöðutýpu“.
7. … b6 8. dxc5 Bxc5 9. Rbd2
Bb7 10. De2 Rbd7 11. c4 dxc4 12.
Rxc4 De7 13. a3 a5 14. Rd4 Hfd8
15. Hfd1 Hac8 16. Hac1 Rf8 17.
De1 Rg6 18. Bf1 Rg4 19. Rb5 Bc6
20. a4 Bd5 21. Bd4 Bxc4 22. Hxc4
Bxd4 23. Hdxd4 23. … Hxc4 24.
bxc4!?
Djörf ákvörðun „strategískt“ séð.
24. … Rf6 25. Dd2 Hb8 26. g3
Re5 27. Bg2 h6 28. f4 Red7 29.
Ra7 Da3!
Svarta staðan er ekki án gagn-
færa og Magnús spennir bogann
hátt.
30. Rc6 Hf8 31. h3?!
31. Hxd7 leiðir til jafnteflislegrar
stöðu.
31. … Rc5 32. Kh2 Rxa4 33. Hd8
g6 34. Dd4 Kg7 35. c5?
Skemmtilegur leikur en ekki góð-
ur. Jafnvægi var náð með 35. Hd7!
t.d. 35. … Dc3 36. Hb7! o.s.frv.
35. … Hxd8 36. Rxd8 Rxc5 37.
Dd6 Dd3?!
Betra var 37. … Da4! með yfir-
burðastöðu.
38. Rxe6+!
Bráðsnjallt. Hvítur er sloppinn.
38. … fxe6 39. De7+ Kg8 40.
Dxf6 a4 41. e4 Dd7 42. Dxg6+ Dg7
43. De8+ Df8 44. Dc6 Dd8 45. f5!
a3 46. fxe6 Kg7 47. e7?
Þetta peð átti hann ekki að gefa.
Hvítur er sennilega með heldur
betra eftir 47. Db5! t.d. 57. … Rxe6
48. Db4! Df8 49. Dxb6.
47. … Dxe7 48. Dxb6 Rd3 49.
Da5 Dc5 50. Da6 Re5 51. De6?
Tapleikurinn. Hann gat varist
með 51. h4!
51. … h5!
Fáir efuðust um að Karjakin
myndi finna þennan leik, sem
vinnur.
52. h4
52. … a2!
Hér er hugmyndin komin fram,
53. Dxa2 er svarað með 53. …
Rg4+ 54. Kh2 Dg1! 55. Db2+ Kg6!
Þar sem svarta drottningin valdar
a7- og b6-reitinn finnst engin vörn.
Magnús gafst því upp. Níunda
skákin verður tefld í kvöld og hefur
Karjakin hvítt.
Magnús tapaði og mætti ekki á blaðamannafund
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Spenna Mikil spenna hefur færst í heimsmeistaraeinvígi Carlsens og Kar-
jakins eftir að sá síðarnefndi vann áttundu einvígisskákina á mánudag.