Morgunblaðið - 28.11.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Vinsælt er að halda því fram aðhúsnæðiskostnaður sé hár hér
á landi og sumir ganga jafnvel svo
langt að nota þá staðhæfingu sem
röksemd fyrir því að Íslendingar
eigi að fara inn í brennandi hús
Evrópusambandsins.
Á dögunumbirti VR
efnahagsyfirlit
og samkvæmt því
er veruleikinn
talsvert annar.
Þar kemur tildæmis fram
að hlutfall landsmanna sem eru í
eigin húsnæði og búa við það sem
kallað er íþyngjandi húsnæð-
iskostnaður er um 7%.
Hlutfallið er mjög misjafnt ámilli landa, til dæmis lægra á
hinum löndunum á Norðurlöndum
en hærra í Þýskalandi og Hollandi
svo dæmi séu tekin. Á heildina litið
er Ísland mjög nærri því að vera
meðaldýrt á þennan mælikvarða.
Þegar horft er á þá sem búa íhefðbundnu leiguhúsnæði er
myndin enn betri fyrir Ísland. Um
fimmtungur þessara býr við íþyngj-
andi húsnæðiskostnað, en hann
telst íþyngjandi þegar hann nær
40% ráðstöfunartekna. Flest Evr-
ópuríki, þar með talin tvö landanna
á Norðurlöndum, standa verr að
þessu leyti.
Oft fer of mikið fyrir neikvæðriumræðu um hag landsmanna.
Staðreyndin er sú að Íslendingar
hafa það að flestu leyti afskaplega
gott.
Þetta felur ekki í sér að ekkertmegi bæta, en það er mikil-
vægt að hafa eðlilegt samhengi í
umræðunni.
Hóflegur hús-
næðiskostnaður
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.11., kl. 18.00
Reykjavík 5 léttskýjað
Bolungarvík 6 léttskýjað
Akureyri 7 skýjað
Nuuk -6 alskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki -4 snjókoma
Lúxemborg 5 skýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 5 alskýjað
London 7 skýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 4 heiðskírt
Berlín 5 léttskýjað
Vín 6 skýjað
Moskva 1 skýjað
Algarve 16 skýjað
Madríd 9 rigning
Barcelona 14 þrumuveður
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 15 alskýjað
Winnipeg -4 þoka
Montreal 0 skýjað
New York 7 léttskýjað
Chicago 2 þoka
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:39 15:54
ÍSAFJÖRÐUR 11:12 15:30
SIGLUFJÖRÐUR 10:56 15:12
DJÚPIVOGUR 10:15 15:16
Vænta má þess
að breytingar á
gjaldskrá Veitna
nú um áramótin
lækki veitugjöld
hvers heimilis í
Reykjavík um að
jafnaði 4.100
krónur á ári. Frá
áramótum lækk-
ar gjaldið fyrir
dreifingu rafmagns hjá Veitum um
5,8% en flutningsliðurinn er oft um
helmingur rafmagnskostnaðar
heimila. Þá lækkar verðið á köldu
vatni um að jafnaði 11,2%. Með
breytingum á vatnsgjaldi nú um ára-
mótin verður stigið skref í þá átt að
verðið fyrir þjónustu hverrar vatns-
veitu endurspegli rekstrarkostnað
hennar. Í Reykjavík og á Akranesi
lækkar vatnsgjaldið um 11,2% og í
Stykkishólmi um 8,8%.
Á sama tímapunkti og gjald fyrir
rafmagn og kalt vatn lækkar fer
gjaldskrártaxti hitaveitu og frá-
rennslis í hina áttina. Heita vatnið
hækkar í verði um 0,48%, frárennsl-
isgjöld um 1,%. Hvort tveggja er
rökstutt með fylgni við vísitölur og
eins miklum fjárfestingum, svo sem
endurnýjun á pípum milli Reykja-
víkur og jarðhitasvæða við Reyki í
Mosfellsdal og frá Deildartunguhver
um Borgarfjörð. sbs@mbl.is
Gjaldskrá
er breytt
Útgjöldin lækka
Hiti Leiðslan frá
Deildartunguhver.
Blæðing er á slitlagi á köflum á veg-
inum um Holtavörðuheiði frá Borg-
arfirði ofan í Hrútafjörð. Þetta segir í
tilkynningu frá Vegagerðinni í gær
en blæðing veganna hefur leikið bíla
mjög grátt.
„Þetta er heljarinnar vinna að þrífa
þetta. Það verður grjóthart ef það er
ekki hreinsað af strax,“ segir Grétar
Viðarsson, sem rekur fyrirtækið
Ekja á Akureyri. Hann rekur fimm
flutningabíla sem keyra á milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur en bíll frá
honum keyrði umræddan vegkafla í
fyrradag og segir hann tjöruna hafa
sest utan á bílinn, á raflagnir, dekk og
fjöðrunarbúnað bílsins. Hann og sam-
starfsmaður hans hafi því verið í sex
tíma að að þrífa tjöruna af bílnum.
Spyr hann hvar ábyrgð Vegagerð-
arinnar sé í málinu enda fari tjaran
mjög illa með bílana og skapi hættu
þegar hún festist við dekk á bílum
sem keyra þar sem hálka er en dekk-
in missi þar allt grip. Ef tjaran nær
að harðna á bílunum getur hún til
dæmis eyðilagt dekk, sest á fjöðr-
unarbúnað og nagað sig í gegnum
loftpúða auk þess að skemma raf-
magnslagnir. Sem dæmi um mögu-
legan kostnað vegna þessa segir
Grétar að hvert stykki af aft-
urdekkjum kosti um 100 þúsund
krónur og undir einum bíl séu átta
dekk Þá geti þrif á bílnum kostað um
hálfa milljón.
Sex tíma þrif eftir vegablæðingar
Blæðingar eru á slitlagi vega um Holtavörðuheiði frá Borgarfirði í Hrútafjörð
Blæðing Mikil tjara lagðist á bílinn.