Morgunblaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016 ✝ Freyja KolbrúnÞorvaldsdóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði 26. febrúar 1947. Hún lést á Landspít- alanum eftir skammvinn veik- indi 14. nóvember 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Bergþóra Árna- dóttir, f. í Holti á Barðaströnd 12. mars 1918, d. 8. september 2005, og Þorvaldur Kristinn Þorvaldsson frá Skerðings- stöðum í Grundarfirði, f. 23. maí 1916, d. 10. júlí 1993. Þau slitu samvistum. Freyja var elsta barn foreldra sinna, al- systir hennar er: Auður Sig- urdís, f. 21. janúar 1949, eig- inmaður hennar er Elí Halldórsson, f. 30. des. 1946. Sammæðra Aðalbjörg Sólrún, f. 19. september 1953, d. 1. febr- úar 2006, og samfeðra Maggý R., f. 26. janúar 1960. Árið 1967 giftist Freyja eft- irlifandi eiginmanni sínum, Herði Sigþórssyni, f. 2. ágúst 1947 á Siglufirði. Foreldrar hans eru Ásta M. Einarsdóttir, dóttir. 4) Árni Jón, f. 13. maí, 1973, börn hans eru a) Alex- andra, f. 17. október 1994. b) Hörður Róbert, f. 28. júlí 1998. c) Ísak Breki, f. 11. maí 2012. 5) Kolbrún Hrönn, f. 12. júlí 1978, eiginmaður hennar er Ólafur Eyberg Rósantsson, f. 6. febr- úar 1975. Börn þeirra eru a) Sunneva Lind, f. 17. desember 1997. b) Theódór Sölvi, f. 21. mars 2001. c) Viktor Freyr, f. 10. maí 2007. d) Rósant Leó, f. 3. ágúst 2009. Fyrstu árin bjó Freyja í Flat- ey á Breiðafirði, á Bergi, húsi sem amma hennar og afi áttu. Hún fluttist síðan með móður sinni og systrum sínum sam- mæðra á Hellissand en þar bjuggu þær til ársins 1958, þá fluttust þær til Reykjavíkur og svo í Kópavoginn. Árið 1964 kynnist Freyja eiginmanni sín- um, Herði. Þau bjuggu í Reykjavík flest sín hjúskaparár, lengst af í Efra-Breiðholti þar sem þau ólu upp börnin sín fimm. Árið 2013 fluttust þau á Akranes þar sem margir af af- komendum þeirra búa. Fyrstu hjúskaparárin var Freyja að mestu heimavinn- andi. Hún vann ýmis hlutastörf á meðan börnin voru enn ung, en réð sig síðar í fasta vinnu á Heilsugæslustöðinni í Mjódd og starfaði þar í rúma tvo áratugi áður en hún lét af störfum. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. f. 14. maí 1928, og Sigþór Guðnason, f. 16. ágúst 1925, d. 23. febrúar 1953. Fósturfaðir Harðar var Páll Gunn- laugsson Gunnólfs- son, f. 12. janúar 1931, d 11. ágúst 2016. Freyja og Hörður eignuðust saman fimm börn, þau eru 1) Birgitta, f. 19. júni 1966. 2) Hrafnhildur, f. 3. okt. 1967, eiginmaður hennar er Guðmundur A. Sig- urðsson, f. 8. júní 1965. Börn þeirra eru a) Arnór, f. 20. apríl 1988, hann er í sambúð með Birgittu Þuru Birgisdóttur, dóttir þeirra er Hafdís María. b) Andri, f. 8. ágúst, 1990, hann er í sambúð með Erlu Sif Krist- insdóttur, dætur þeirra eru El- ísabet Ásta og Vilborg Birta. c) Hulda Björk, f. 21. október 2001. 3) Ásta Pála, f. 27. júní 1970, eiginmaður hennar er Al- bert Sveinsson, f. 7. nóvember 1969. Synir þeirra eru a) Sindri, f. 29. nóvember 1990. b) Atli, f. 3. nóvember 1994. c) Albert Páll, f. 19. janúar, 1996, kær- asta hans er Emilía Halldórs- Hvernig kveður maður móður sína? Fyrir 11 árum síðan kvaddi mamma mín mömmu sína. Í minningu til hennar skrifar mamma þessa spurn- ingu. Ég stend núna í þessum sömu sporum og mamma mín fyrir 10 árum og kveð mína heittelskuðu mömmu. Sama spurningin brennur á mér, hvernig fer ég að því að kveðja þig? Mamma hefur verið til staðar allt mitt líf, stutt og hvatt áfram, faðmað og huggað, sam- glaðst og fagnað. Svona stór og mikilvægur að- ili í lífi manns, hvernig er hægt að kveðja? Ekki veit ég það og ekki veit ég hvernig maður held- ur áfram að lifa án móður sinn- ar. Aldrei hef ég fundið svona til, aldrei vissi ég að hægt væri að finna svona til. Mamma mín var allt í senn, fögur að utan sem innan, listræn í orði og verki, næm, umhyggjusöm, hug- ljúf og blíð. Börnin og barna- börnin voru henni allt. Að fylgj- ast vel með öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur, ráð- leggja og hvetja alveg fram á síðasta dag. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir, fullir af ótta, sorg og trega. Frá því að sjúkdómurinn válegi greindist í byrjun ágúst og þar til yfir lauk þann 14. nóv- ember sl hefur elskulega mamma mín staðið sig svo vel. Stundum leyfðum við okkur að vona og óskuðum svo heitt að mamma næði bata, gæti áfram átt með okkur góðar stundir. Það segir svo mikið til um hvernig mamma mín var að henni fannst svo vont að þurfa að fara frá okkur, hópnum sín- um sem hún vildi halda áfram að vernda og hlúa að. Ég veit það, elsku mamma mín, að þú heldur áfram að vaka yfir okkur, vernda og leiðbeina á besta veg. Ég lofaði þér að það yrði allt í lagi og ég stend við það. Elsku hjartans mamma mín besta, ég bið Guð að taka þig í sinn faðm og þangað til við sjáumst aftur ertu ávallt í hjarta mér Nú ertu farin frá mér, elsku mamma mín. Hvert tár á hvarmi mínum er minningin til þín. Það er svo sárt að missa, þó sérstaklega þig. Því alla mína ævi þú umvafið hefur mig. Þegar við hittumst aftur og alveg þangað til, viltu halda áfram að umvefja mig. (Höf. ÁPH) Fjölskyldan sendir starfsfólk- inu á deild 11G Landspítala við Hringbraut hjartans þakkir fyr- ir alla þá umhyggju og fag- mennsku sem mömmu og okkur öllum var sýnd. Eins og mamma sagði sjálf þá var hún umvafin englum á deild 11G. Þín dóttir, Ásta Pála. 4. ágúst sl. fengum við þær skelfilegu fréttir að mamma væri veik, með alvarlegan sjúk- dóm sem kom skyndilega og hratt. Mamma tók þessum frétt- um með stóískri ró og sagðist vera fegin að það væri hún sem hefði veikst enn ekki einhver af afkomendunum. Hún lagði síðan af stað í erfiða baráttu 5. ágúst, baráttu sem tók á líkama og sál. Baráttu sem lauk 14. nóvember sl. Ég var við hlið mömmu minn- ar þegar hún tók síðasta and- ardráttinn í þessum heimi og hélt af stað í ferðalagið sitt. Ferðalag sem hún hélt af stað í allt of snemma. Eftir sit ég dofin og full af söknuði yfir því sem var og því sem átti eftir að verða, öllum stundunum sem ég átti með mömmu og öllum stundunum sem ég gerði ráð fyrir að fá að eiga með henni. En ég er líka svo þakklát fyrir allar góðu minningarnar um yndislega konu sem ég var svo heppin að fá að kalla mömmu mína. Ég hugsa um æskuárin sem voru svo hlý og góð, lögin sem hún söng fyrir mig, trúna sem hún hafði á mér, hvað hún var stolt yfir öllu sem ég tók mér fyrir hendur, endalaus og skilyrðislaus ást sem ég fékk að njóta, faðmlög, þegar hún hélt í höndina á mér þegar ég sat við hliðina á henni. Ég hugsa um stundirnar þegar ég átti börnin mín og stolt hennar og gleði yfir þeim, áhugi hennar að vera ná- lægt þeim og vera til staðar fyr- ir þau, taka þátt í gleðistund- unum með þeim og hjálpa þeim þegar það voru erfiðleikar. Ég er þakklát fyrir stundirnar sem ég fékk með mömmu í sumarbú- staðnum Bergi, staðnum henn- ar, þar sem henni leið best, þar sem hún hlúði að öllu af alúð, naut þess að vera úti í nátt- úrunni og gróðursetti tré fyrir hvern afkomanda. Ég er þakklát fyrir morgunhittingana okkar, þar sem við sátum og ræddum um heima og geima. Ég er þakk- lát fyrir allar samverustundirn- ar og minningar sem ylja mér í þessari miklu sorg og söknuði sem ég finn fyrir núna. Fyrir 11 árum kvaddir þú mömmu þína með þessu ljóði og í dag kveð ég þig í hinsta sinn með sama ljóði: Tek ég úr gleymsku myrkri, móðir, minninganna spjöld, það er eins og englar góðir að mér svífi í kvöld, ástar stjarna eilíf skíni inn í myrkrið svart, er sem kalinn hugur hlýni, húmið verði bjart. Man ég alla ástúð þína, öll þín tryggðabönd, yfir barnabresti mína breiddirðu milda hönd, stundum vil ég vera góður vænsta yndið þitt. Það er svo gott að eiga móður sem elskar barnið sitt. Hver þekkir mátt, er móðir veitir, mild og kærleiksrík? Allri sorg í unað breytir, engin er henni lík. Hvar finnst vinur hlýr, svo góður, hjartans mýkja sár? Hvað er betra en blíðrar móður bros og hryggðartár? (Kristján Jónsson frá Skarði.) Takk fyrir þig, elsku mamma, best í heimi. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu og mundu „ég á þig og þú átt mig og aaaaaa“. Þín Kolbrún (Kolla). Eiginkona, móðir, amma, langamma, systir, frænka, vin- kona, listamaður, handverks- kona, náttúruunnandi, áhuga- söm um andleg málefni, umvefjandi, ástrík og hæglát. Sterkur og eftirminnilegur per- sónuleiki. Þetta og svo margt fleira kemur upp þegar ég leiði hugann að mömmu. Hennar bestu stundir voru þegar hún hafði allan skarann í kringum sig og er það enginn smáhópur. Alveg sama hvort húsnæðið var lítið eða stórt, alltaf var pláss fyrir alla. Við systkinin fengum það veganesti út í lífið að vera góðir og heiðarlegir einstaklingar sem trúa á það góða í hverjum manni og að láta gott af okkur leiða. Ekki slæmt veganesti það. Hið sanna ríkidæmi er í okkar nánustu og uppsker maður eins og maður sáir. Sást það svo glöggt á síðustu dögum mömmu er ljóst var í hvað stefndi að barnabörnin komu dag eftir dag til hennar og héldu í hönd henn- ar og áttu sínar stundir með henni. Stórt skarð er höggvið í okk- ar stóra hóp. Nú er það okkar sem eftir erum að passa upp á að framkvæma þá hluti sem voru mömmu kærastir og það er að hittast reglulega, sýna hvert öðru væntumþykju, stuðning og áhuga. Við lofuðum henni að þetta yrði allt í lagi. Hrafnhildur. Kveðja til ömmu Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka, amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig, elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu, góði guð, í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo, amma, sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Takk fyrir allt, elsku amma, við munum aldrei gleyma þér. Sunneva Lind, Theódór Sölvi, Viktor Freyr og Rósant Leó. Að líta dagsins ljós og alast upp fyrstu ár ævinnar á jafn yndislegum og öruggum stað og Flatey á Breiðafirði og það í faðmi stórfjölskyldunnar er for- Freyja Kolbrún Þorvaldsdóttir HINSTA KVEÐJA Kveðja til bestu ömmu sem hægt er að hugsa sér. Ömmur eru með mjúkar hendur sem taka utan um hendur manns, horfa á mann með aðdáun og vilja vita allt. Hlusta með ein- lægum áhuga, spyrja og ráðleggja. Prjóna og hekla eitthvað hlýtt, gefa kakó og kleinur. Faðma svo fast en samt svo ljúft. Eru alltaf til staðar með hlýju, trú, uppörvun og bros. Þannig varst þú, elsku amma okkar, Freyja. Við söknum þín, þínir strákar, Sindri, Atli og Albert Páll. ✝ Kristín Jón-asdóttir fæddist í Reykjavík 15. sept- ember 1921. Kristín andaðist á Land- spítalanum 18. nóv- ember 2016. Hún var dóttir hjónanna Jónasar Páls Árnasonar og Franzisku Sig- urjónsdóttur. Bræður Krist- ínar; Árni Jónasson, f. 2.6. 1925, d. 25.11. 2003. og Sigurjón Jón- asson. f. 6.4. 1929. Kristín giftist Snorra Guð- mundssyni. f. 29.11. 1914, d. 27.6. 1992, og eignuðust þau níu börn. Haukur Öxar, f. 17.3. 1945, lést af slysförum 19.9. 1969; Erla Hrönn, f. 9.6. 1946. Hún á þrjú börn og sex barnabörn og eitt barnabarnabarn, maki Guðjón Weihe, f. 4.6. 1945; Sig- mundur, f. 8.11. 1947, barn: Snorri Örn, f. 3. maí 1974, d. 28.3. 1977; Hrafn- hildur, f. 27.1. 1949, hún á þrjú börn og sjö barnabörn, maki Gísli Hauksson, f. 16.3. 1951; Bára, f. 23.1. 1950, hún á fjögur börn og níu barnabörn, maki Við- ar Marel Jóhannsson, f. 7.7. 1951; Bryndís, f. 28.2. 1954, hún á tvær dætur og fjögur barnabörn, maki Eiríkur Rafnsson, f. 26.4. 1958; Ásdís, f. 22.12. 1955, hún á tvær dætur og fimm barnabörn, maki Guðlaugur Þór Böðvarsson, f. 16.8. 1954; Birna, f. 7.8. 1958, hún á þrjár dætur og sjö barnabörn, maki Jón Halldórsson, f. 17.6. 1956; Snorri Birgir, f. 21.8. 1963, hann á þrjú börn, maki Petra Dís Magnúsdóttir, f. 30.6. 1979. Kristín ólst upp ásamt bræðr- um sínum hjá foreldrum sínum á Vatnsstíg 9 í Reykjavík, en fluttist með eiginmanni sínum í Akursel í Öxarfirði þar sem þau bjuggu til ársins 1960. Vegna veikinda Snorra brugðu þau búi og fluttu ásamt börnum sínum til Reykja- víkur og bjuggu lengst af í Breiðagerði 29. Kristín starfaði í Sælgætis- gerðinni Freyju og í mötuneyti Áburðarverksmiðjunnar í Gufu- nesi. Útför Kristínar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 28. nóv- ember 2016, kl. 13. Kristín Jónasdóttir, tengda- móðir mín, var alveg einstök kona, hjartahlý og gjafmild. Ég kynntist Kristínu fyrir 12 árum þegar ég og yngsti sonur hennar, Snorri Birgir, fórum að hittast. Kristín tók mér strax opnum örmum og var alveg yndisleg tengdamóðir, amma og vinkona allan þann tíma. Það var gaman að koma til hennar í kaffi, hún spurði alltaf frétta af börnum, öðrum afkom- endum og vinum okkar enda mjög áhugasöm um menn og mál- efni. Kristín fylgdist einnig vel með öllu sem var að gerast í þjóð- félaginu. Hún eignaðist níu börn og marga afkomendur. Hún sá til að allir fengu jóla og afmælisgjaf- ir á hverju ári. Þetta fór hún létt með alveg fram á síðasta dag og var ótrúlega fær í að velja fal- legar gjafir fyrir alla aldurshópa, hún var í raun í fullri vinnu við að gefa öðrum gjafir. Hún var mjög ráðagóð og það var alltaf gott að leita ráða hjá Kristínu um börn og barnauppeldi. Börnin elskuðu að koma til ömmu sinnar sem var með eindæmum gjafmild, gest- risin. Ég kveð Kristínu með söknuði og þakklæti fyrir allt. Petra Dís Magnúsdóttir. Elsku amma Stína. Það er skrýtið að hún, sem hefur verið til staðar frá því að við munum eftir okkur, sé farin. Þegar við hugs- um um ömmu Stínu koma fyrst upp í hugann bækur. Hún hafði yndi af því að lesa og við spjöll- uðum saman um bækur og sögur, sérstaklega þegar við vorum litl- ar. Hún las alls konar bækur, líka barnabækur, og kemur hún oft upp í hugann þegar maður sest niður með bók í hönd til að lesa fyrir sjálfan sig eða börnin. Þau voru svo heppinn að eiga lang- ömmu Stínu að fyrstu árin sín. Þau eiga líka margar bækur sem hún hefur gefið þeim og fannst alltaf gaman að koma til ömmu Stínu. Upp í hugann koma líka jóla- kjólar og jólaskór, Megas, Þver- brekkan, afi Snorri, myndin af síðustu kvöldmáltíðinni sem hékk í eldhúsinu, að sitja í glugganum í stofunni og reyna að sjá ljósin á Perlunni, Stöð 2, barnaefni sem hún tók upp á spólur handa okkur þegar við vorum í Ási, gamli Peu- geot-inn hennar, nammi, sterkir molar, kók, Maríubakkinn, sam- tölin við hana þegar við komum í heimsókn. Hún sneri skífunni á úrinu sínu alltaf inn á við, því þannig þurfti hún að hafa það þegar hún vann í Áburðarverk- smiðjunni í Gufunesi svo skífan myndi ekki rispast þegar hún gekk meðfram veggjunum. Hún hafði gaman af því að syngja og var með skemmtilega, fallega söngrödd sem margar konur í ættinni hafa síðan erft. Amma var líka búin að uppgötva Björk löngu áður en hún varð heimsfræg. Amma Stína var dugleg, sjálf- stæð og iðin og vissi upp á hár hvað hún vildi. Hún hafði alltaf allt á hreinu og það var gott að heyra í henni til að fá fréttir af fólkinu sínu. Hún hafði svo sann- arlega lifað tímana tvenna og það var gaman að heyra um allt það sem hún hafði upplifað, bæði sem barn í Reykjavík og ung móðir í Akurseli. Henni fannst einstak- lega gaman að gefa gjafir, bækur og fallega hluti og við höfum not- ið þess í gegnum tíðina. Minningarnar eru margar og góðar og eru órjúfanlegur hluti æsku okkar. Við kveðjum þig með söknuði, elsku amma Stína. Ólöf, Sunna og Hildur. Kristín Jónasdóttir er fallin frá og við söknum hennar mikið. Hún var alltaf til staðar fyrir okk- ur og lifði fyrir börnin okkar, Hrafnhildi Völu og Gísla Hrafn – hafði alltaf nægan tíma fyrir þau. Hún bjó í tæp 15 ár fyrir neðan okkur í Maríubakkanum og við kölluðum hana aldrei annað en ömmu niðri. Alla morgna fórum við niður til ömmu og þar var lagður grunnurinn að deginum, hafragrautur snæddur og málin rædd. Hún tók daginn alltaf snemma, hlustaði á fréttirnar klukkan sjö til að geta sagt okkur það helsta sem þar var í fréttum þegar við mættum í morgunmatinn. Það fór ekkert framhjá henni, var með tvö útvarpstæki þar sem annað var stillt á Bylgjuna og hitt á RÚV. Síðustu árin var sjónin farin að daprast og það varð henni erfitt því hún var alla tíð lestrarhestur mikill. Var full af fróðleik sem hún miðlaði til okkar sem yngri erum. Við vorum rík að eiga hana að og hún kenndi dótt- ur okkar, Hrafnhildi Völu, m.a. að lesa og skrifa þegar sú stutta var aðeins fimm ára gömul. Amma niðri var dugnaðarfork- ur og hraust alla tíð. Hún fékk ekki heimilislækni fyrr en hún var 93 ára gömul og segir það allt um hve heilsuhraust hún var. Mér varð það fljótt ljóst að hún hafði mjög ákveðnar skoðanir og ekki þýddi að rökræða við hana. Hún var snillingur í eldhúsinu enda kunni hún vel til verka þar. Það kom enginn að tómum kof- unum hjá henni í sambandi við eldamennsku. Alltaf var hægt að leita til hennar með uppskriftir af hinum ýmsu réttum. Hún elskaði að hlusta á tónlist og voru Megas og Björk í mestu uppáhaldi. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka henni samfylgdina og fyrir allar þær fjölmörgu stundir sem við deildum með henni. Það eru forréttindi að hafa átt hana að og við munum minn- ast hennar með mikilli hlýju alla tíð. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku amma niðri. Valur B. Jónatansson. Kristín Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.