Morgunblaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
Á HVERJUM DEGI
STUÐLUM VIÐ MÖRG
AÐ KYNFERÐISOFBELDI
MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA
Í HINA ÁTTINA.
Í HVAÐA ÁTT HORFIRU?
majubud.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Heimilistæki og innréttingar
Eirvík býður heildarlausn fyrir eldhúsið. Innréttingarnar okkar eru hannaðar
af íslenskum innanhússarkitektum og sérsmíðaðar í fullkominni verksmiðju í
Þýskalandi. Verið velkomin í Eirvík – hönnun og ráðgjöf á staðnum.
Blandari
Öflugur og hljóðlátur blandari sem nota
má t.d. til að mylja ís, búa til smoothie,
súpur og eftirrétti. Sterkbyggður og
framleiddur í Frakklandi.
Safa- og berjapressa
Sterkbyggð, afkastamikil og framleidd
í Frakklandi. Pressar safa úr öllum
ávöxtum, berjum og grænmeti. Góð
nýting á hráefni og mjög lítil froða í safa.
Matvinnsluvél
Ótrúlega fjölhæf vél sem nota má t.d.
til að skera, sneiða, rífa, blanda, þeyta,
hnoða og búa til safa. Sterkbyggð og
framleidd í Frakklandi.
Brauðrist
Gæðabrauðrist sem ristar, afþýðir og
hitar upp flestar gerðir af brauðum.
Baguette stilling möguleg þar sem önnur
hlið brauðsins er ristuð.
Einnig ber merki hans fjöldi kvik-
mynda, sjónvarpsþátta og söng-
leikja. Og ekki má gleyma hljóð-
blöndun á öllum tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Laugardalshöll í seinni tíð, fyrir
daga Hörpu.
Gunnar hefur mixað jólatónleika
Björgvins Halldórssonar í Laugar-
dalshöll alveg frá byrjun og mixaði
líka útsendingu jólatónleika Fíladel-
fíu í mörg ár og hefur verið að fara
einstaka sinnum í Hof á Akureyri í
svipuðum erindagjörðum, en hefur
minnkað þetta töluvert frá því sem
áður var.
„Ég hef bara einu sinni gefist upp
á að taka upp hljómplötu,“ segir
hann. „Sú var með Fræbblunum,
Viltu nammi, væna? Þá pöntuðu þeir
fjóra tíma í Hljóðrita og tóku upp 18
grunna. Og Valgarður Guðjónsson
hefur haft eftir mér að ég hafi sagt:
„Viljið þið koma þessum mönnum út
úr stúdíóinu.“ Þó að ég muni nú ekki
glöggt eftir því sjálfur hef ég enga
ástæðu til að ætla að þetta sé rang-
lega hermt. Pönkið skildi ég ekki
fyrr en mörgum árum síðar.
Ég mixaði líka Melarokk, það
voru tónleikar sem voru haldnir á
Melavellinum í Vesturbæ Reykja-
víkur á laugardegi 28. ágúst 1982.
Fyrir hljóðmann var þetta alveg
skelfilegt. Það var engin almennileg
hljóðkerfaleiga komin þá, og því
hrúgað saman hljóðkerfi úr öllu
mögulegu; það átti meira að segja
eftir að búa til eina snúru þegar tón-
leikarnir voru afstaðnir. En ein-
hvern veginn hafðist þetta nú. Það
voru margar hljómsveitir en engar
hljóðprufur, heldur bara stillt upp
og byrjað. Þetta voru yfirleitt svona
tvö lög á hljómsveit. Og þegar langt
var komið á seinna lagið, þá var
maður loksins byrjaður að ná tökum
á sándinu, en þá kom næsta hljóm-
sveit og maður þurfti að byrja upp á
nýtt í glímunni. En þetta var eft-
irminnilegt og mikil reynsla.“
Trölli og Viska
„Útvarpsdraumurinn hafði alltaf
fylgt mér,“ segir Gunnar. „Alveg frá
því ég fór að nota lóðbolta dreymdi
mig um að búa til útvarpssendi.
Pabbi var oft að gera við talstöðvar
þannig að hann þekkti til slíkra fjar-
skiptatækja innvortis og hjálpaði
mér af stað. Eftir allt þetta skóla-
útvarp, eftir að ég var kominn til
Siglufjarðar, nefndi ég við menn rétt
fyrir eitt Síldarævintýrið hvort við
ættum ekki að starfrækja útvarp
fyrir og á meðan hátíðin stæði. Og
það varð úr. Við fengum útvarpsleyfi
í eina viku. Þetta var svo endurtekið
í tvö eða þrjú ár, en svo ákvað ég
taka alfarið við keflinu og stækkaði
þetta og víkkaði. Nafnið Trölli kom
bara út af Tröllaskaganum.“
Í upphafi langaði hann einfaldlega
að útvarpa góðri tónlist sem ekki
væri með neinu tilgangslausu blaðri
á milli laga. Síðar bættist við dag-
skrárgerð. Trölli er núna hugsaður
eins og leiksvið fyrir þau sem vilja
og geta gert útvarpsefni. „Trölli náð-
ist fyrst bara í Siglufirði, en svo fékk
ég leyfi til að hafa sendi í Ólafsfirði,
og um svipað leyti í Hrísey, fyrir
norðanverðan Eyjafjörð, í austri og
vestri, og svo næst hann á einstaka
stað í Fljótum, í góðum tækjum, og á
Hvammstanga.“
Í dag vinnur Gunnar mest við vef-
forritun og líður þá aldrei betur en
með góða tónlist í eyrum.
„Síðustu 2-3 árin hef ég gengið
með þá hugmynd að hljóðvæða söfn,
setja inn hljóðmyndir til að skapa
viðeigandi andrúmsloft í söfnum
með því að koma fyrir nokkuð mörg-
um hljóðgjöfum á völdum stöðum í
hverju safni. Þannig mætti t.d.
hugsa sér að við hvern bryggjupolla
í Síldarminjasafninu væri sjávargutl
– hljóðritað hér á Siglufirði – ekki
bara eitt hljóð frá mörgum hljóð-
gjöfum, heldur sérstakt hljóð á
hverjum stað í safninu. Þetta hefur
hingað til verið mjög kostnaðarsamt,
en ég er núna að vinna að hugmynd
sem gerir þetta gerlegt með góðu
móti.“
Konur og börn og framtíðin
„Eftir að ég fór í Hljóðrita og upp
úr því tók stúdíóvinnan mann alveg.
Allt annað var á eftir því í röðinni.
Eins og gefur að skilja passaði þetta
illa við fjölskyldulífið. Það getur eng-
in kona endalaust búið við slíkt, allra
síst með lítil börn, og ég hafði engan
þroska til að átta mig á því að maður
þyrfti að sinna fjölskyldunni til jafns
við hitt, ef ekki meira, þannig að
fyrra hjónabandið fór, í góðu að vísu;
þetta einfaldlega gekk ekki upp. Og
seinna hjónabandið endaði af land-
fræðilegum ástæðum, því við vorum
þá komin norður á Siglufjörð, en
konan vildi flytja til Reykjavíkur,
aðallega vegna atvinnu sinnar.
Þegar ég er spurður út í það
hvernig ég hafi það svara ég því til
að ég hafi oftast verið miklu verri.
Ég á sex börn með þremur konum.
Þau eru: Sigrún Birna, bóndi á
Vatnsnesi, Helgi Hrafn, Pírati og
fyrrum alþingismaður, Arndís Anna,
lögfræðingur hjá Rauða Krossi Ís-
lands, Lísa Margrét, sem stefnir á
læknanám, Dagrún Birta, nemi á
listabraut MTR og Sara María,
skiptinemi í Japan. Barnabörnin eru
orðin fimm. Ég er því afskaplega
hamingjusamur í dag, á mjög góðum
stað í lífinu, er kominn í nýja sambúð
með yndislegri konu, Kristínu Sig-
urjónsdóttur ljósmyndara, og sé
ekkert nema bjarta tíma fram-
undan.“
t úr stúdíóinu
Heimsmeistarinn MagnúsCarlsen og áskorandihans, Sergei Karjakin,setjast niður kl. 19 í
kvöld að íslenskum tíma og tefla
tólftu og síðustu skákina í einvíginu
um heimsmeistaratitilinn, sem stað-
ið hefur yfir í New York síðan 11.
nóvember sl. Margt bendir til þess
að Norðmaðurinn muni tefla stíft til
sigurs í kvöld en hann er með hvítt
og eftir að hann jafnaði metin hefur
sjálfstraust hans aukist, eins og sást
þegar ellefta skákin fór fram á laug-
ardaginn en þar mátti Karjakin
gæta sín þó að hann hefði hvítt en
náði að knýja fram jafntefli með
þráskák. Staðan er því jöfn fyrir
skákina í kvöld, 5 ½ : 5 ½, og spenn-
an í hámarki.
Í sögulegu samhengi, og ef frá er
talið tímabilið 1993 – 2005 þegar
tveir heimsmeistaratitlar voru í
„umferð,“ þá er þetta í fimmta sinn í
sögunni sem slík staða kemur upp
fyrir lokaskák heimsmeistara-
einvígis: Botvinnik gegn Bronstein
1951, Botvinnik gegn Smyslov 1954,
Kramnik gegn Topalov 2006 og An-
and gegn Gelfand 2012.
Ljúki skákinni í kvöld með jafn-
tefli verða tefldar fjórar atskákir á
miðvikudaginn með tímamörkunum
25 10. Magnús vann heimsmeist-
aramótið í atskák 2014 og 2015 og er
sigurstranglegur á þeim vettvangi
en sé miðað við þá erfiðleika sem
hann hefur átt við að stríða í einvíg-
inu er ekkert gefið. Verði áfram
jafnt eftir atskákirnar eru á dagskrá
tvær hraðskákir, 5 3 og svo að lok-
um bráðabanaskák.
Sergei Karjakin hefur lengi alið
með sér þann draum að verða
heimsmeistari. Hann er yngsti stór-
meistari skáksögunnar, náði til-
skildum áföngum aðeins 12 ára
gamall. Hann er fæddur árið 1990 í
Simferopol í Úkraínu á áhrifasvæði
Rússa á Krímskaganum. Fyrir sjö
árum fluttist hann til Moskvu og
gerðist rússneskur ríkisborgari.
Taflmennska hans í einvíginu bendir
til þess að hann hafi dregið mikinn
lærdóm af öllum heimsmeistara-
einvígjum sem háð hafa verið frá
árinu 1951:
New York 2016; 11. einvígisskák:
Sergei Karjakin – Magnús Carl-
sen
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Spænski leikurinn hefur komið
fyrir í sjö af ellefu skákum einvíg-
isins.
3. … a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6.
d3 b5 7. Bb3 d6 8. a3 O-O 9. Rc3
Be6
Carlsen lék 9. ... Ra5 í 2. einvígis-
skákinni. Báðir leikirnir eru góðir.
10. Rd5 Rd4 11. Rxd4 exd4 12.
Rxf6 Bxf6 13. Bxe6
Dæmigert fyrir taflmennsku Kar-
jakin. Var ekki aðeins meira púður í
13. Bd5?
13. … fxe6 14. f4 c5 15. Dg4 Dd7
16. f5
Eftir mikil uppskipti sem þóttu
benda til þess að Magnús væri sátt-
ur við skiptan hlut virtist staða Kar-
jakin örlítið betri. En ekki er allt
sem sýnist.
16. … Hae8 17. Bd2 c4 18. h3 c3
19. bxc3 d5!
Tveir síðustu leikir Carlsens
þóttu bráðsnjallir þótt þeir nái ekki
að raska jafnvægi stöðunnar.
20. Bg5 Bxg5 21. Dxg5 dxe4 22.
fxe6 Hxf1+ 23. Hxf1 Dxe6 24. cxd4
Nú liggur beinast við að leika 24.
... exd3 25. cxd3 De3+ 26. Dxe3
Hxe3 27. Hd1 He2 og staðan er jafn-
teflisleg. En Magnús reynir að
hrista upp í stöðunni með því að
veðja á e-peðið.
24. … e3!? 25. He1 h6 26. Dh5 e2
27. Df3 a5 28. c3 Da2
Hótar 29. … Dd2 en Karjakin
finnur bestu varnarleiðina.
29. Dc6! He6 30. Dc8+ Kh7 31. c4
Dd2 32. Dxe6 Dxe1+ 33. Kh2 Df2
34. De4+
- og hér sættust keppendur á
jafntefli, hvítur þráskákar. Mælt er
með vefsvæðinu Chess24.com til að
fylgjast með skákinni í kvöld.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Spennan í hámarki –
úrslitaskák Carlsen og
Karjakin verður tefld í kvöld
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?