Morgunblaðið - 28.11.2016, Síða 29
réttindi. Að fá alla þá elsku sem
þar var að finna hjá mömmu,
pabba, afa, ömmu, móðursystur
og -bróður og öðrum ótöldum,
hlýtur að vera gott veganesti
hvers barns út í lífið. Freyja,
systir mín, var algert gullagull
og svo lánsöm að öðlast þessa
reynslu strax í upphafi lífsgöng-
unnar. Ekki spurning að þessi
fyrstu ár hafa mótað hana og
hennar lífssýn. Hún var víðsýn,
lærdómsfús, listræn á málun,
tálgun, prjón, saum og hekl.
Hafði gott vald á íslenskri
tungu, bæði tal og ritun, þar
sem hún lék sér á ljóðrænan
hátt, svo unun var að lesa. Hún
var ekta manneskja að innan
sem utan, en að sama skapi
mjög prívat. Hún elskaði fólkið
sitt framar öllu öðru og setti hag
þess alltaf framar sínum eigin.
Var ákaflega trygg þeim sem
hún unni, hvort heldur skyld-
fólki eða vinum og vildi allt fyrir
þá gera.
Eina systur eigum við sam-
feðra, Margréti sem kölluð er
Maggý, en við vorum þrjár syst-
urnar sammæðra og ólumst við
þrjár upp saman í móðurhúsum,
Freyja elst, þá ég og yngst var
Aðalbjörg Sólrún (látin 2006).
Það er sagt að enginn velji
sér ættingja, en vini velur mað-
ur sjálfur. Í tilfelli okkar systr-
anna vorum við svo lánsamar að
við öðluðumst hvort tveggja,
skyldleikann og vináttuna sem
haldið hefur óslitin öll þessi ár.
Núna er komið að kveðju-
stund, stund sem alla hræðir.
Hvernig er hægt að sætta sig
við að sú stund er óafturkræf og
endanleg? Aldrei framar spjall í
símann, göngutúrar, skrepp í
borgina, kaffihúsaferð, leikhús,
tónleikar og samverustundir yfir
handavinnu heimavið eða í sum-
arbústöðunum okkar, sem eru á
sama svæðinu og svo margt ann-
að sem við höfðum í bígerð og
sumt af því ætluðum við að
koma í framkvæmd næsta sum-
ar.
Ég kveð systur mína með tár-
um og sorg í hjarta, þakka henni
fyrir allar samverustundirnar
okkar og vona að allar kvalirnar
sem hún lagði á sig til að eiga
betri tíma framundan séu farn-
ar, að allt fólkið okkar sem á
undan er gengið vefji hana að
sér og hjálpi henni að komast yf-
ir erfiðasta hjallann.
Kvæðið sem fylgir þessum
línum er eins og skrifað um
hana Freyju systur mína:
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan
skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt
Um varpann leikur draumsins
perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.
(Davíð Stefánsson.)
Auður Sigurdís.
Elskuleg hjartans móðursyst-
ir okkar er fallin frá. Freyja
frænka, eins og við köllum hana
alltaf, og mamma voru nánar
systur og miklar vinkonur. Þær
voru báðar fæddar og uppaldar í
Flatey á Breiðafirði. Freyja var
mikill náttúruunnandi og elskaði
uppruna sinn í Flatey. Við
kveðjum elsku Freyju frænku
með ljóði Guðmundar Magnús-
sonar, Draumalandið:
Ó, leyf mér þig að leiða,
til landsins fjalla heiða,
með sælu sumrin löng.
Þar angar blóma breiða
við blíðan fuglasöng.
Þar aðeins yndi fann ég,
þar aðeins við mig kann ég,
þar batt mig tryggða band,
því þar er allt sem ann ég,
það er mitt draumaland.
(Jón Trausti)
Við systkinin vottum ástvin-
um okkar dýpstu samúð. Nú er
stórt skarð hoggið í fjölskyld-
una.
Anna Leif, Þóra Björg,
Sóley Ósk og Árni Freyr
Elíbörn.
Freyja Þorvaldsdóttir var
fyrsti ráðni starfsmaður okkar
Samúels J. Samúelssonar við
Heilsugæsluna í Mjódd. Freyja
var ráðin móttökuritari á árinu
1990 og vann við það allt þar til
hún lét af störfum að eigin ósk
2013.
Árið 1990 var þröngt í búi hjá
Íslendingum og þjóðin að sigla
inn í margra ára atvinnuleysi og
aðhald í peningamálum. Það var
ekki gæfulegt útlit hjá Freyju,
þegar hún sótti um þetta starf
enda umsækjendur ríflega
fjörutíu talsins. Freyja hafði
verið húsmóðir og alið upp mörg
börn frá því á unglingsárum.
Hún tók móðurhlutverkið fram
yfir nám í Kennaraskólanum.
Það var því frekar snúið fyrir
konu í hennar stöðu að fá hent-
ugt starf á þessum tíma. Allt
þetta lagði Freyja í hreinskilni á
borð með sér í eftirminnilegu
starfsviðtali. Freyja var djörf í
framkomu en hafði kurteislegt
og yfirvegað viðmót. Við vorum
ekki í vafa um hvaða umsækj-
andi ætti mest erindi í starfið.
Freyja stóð fyllilega undir öll-
um þeim væntingum, sem við
höfðum til hennar. Hún reyndist
traustur starfsmaður og ákjós-
anlegt „andlit“ stöðvarinnar.
Hún sýndi viðskiptavinum fulla
kurteisi og virðingu og reyndi að
leysa hvers manns vanda, þegar
svo stóð á.
Móttökuritarar á læknastof-
um bera mikla ábyrgð á, að
skjólstæðingar nái eyrum og at-
hygli þeirra sem heilbrigðis-
þjónustuna veita. Ótilhlýðilegur
dráttur má ekki verða á þjón-
ustu við þá sem hennar þarfn-
ast. Á þessum fyrstu árum urðu
móttökuritarar að leysa úr
mörgum þeim símtölum, sem
hjúkrunarfræðingar leysa nú.
Því reyndi á móttökuritarana að
skynja rétt mikilvægi þeirra er-
inda, sem borin voru upp við þá.
Freyja var næm á þessa hluti og
kunni vel að hlusta. Reynsla
hennar sem margra barna móðir
gerði hana vel hæfa til að ráða
fram úr þessu verkefni. Freyja
var vinsæl meðal skjólstæðing-
anna; það fengu læknarnir
gjarnan að heyra í læknisviðtal-
inu.
Freyja var góður og þægileg-
ur samstarfsmaður. Hún var fal-
leg kona, glæsileg á velli og
hafði þægilega nærveru og ró-
lega framkomu. Virðuleg kona.
Hún var ætíð glöð í hópi, tók
þátt í öllum viðburðum starfs-
manna, ef hún gat komið því við
og hafði góðan smekk fyrir við-
eigandi stemningu. Hún beitti
sér með lagni, tranaði sér aldrei
fram, föst fyrir, en svolítið við-
kvæm þegar æskuárin í Flatey á
Breiðafirði bárust í tal. Þá
meyrnaði Freyja og glitta mátti
í litla Breiðfirðinginn á bak við
reynsluboltann úr Breiðholtinu.
Við söknum Freyju eins og
við gerðum strax er hún hætti
störfum á sínum tíma. Nú verð-
ur ekki lengur spurt á göng-
unum: Hafið þið frétt hvernig
Freyja hefur það? Minningarnar
munu hins vegar ylja okkur
hverju og einu. Við sendum
Herði og öðrum ástvinum
Freyju okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Fyrir hönd starfsmanna
Heilsugæslunnar Mjódd,
Sigurbjörn Sveinsson.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 8.30-16. Botsía með Þóreyju kl. 9.30-
10.10, útvarpsleikfimi RÚV í matsal kl. 9.45-10, ganga um nágrennið
kl. 11-11.40, bútasaumur Ljósbrotsins kl. 11-15, handavinna kl. 12.30-
16.30, félagsvist með vinningum kl. 13-15, myndlist með Elsu kl. 16-
20.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30, bingó og myndlist kl. 13 og spjallhópur kl.
15-16.
Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.30, prjónaklúbbur og bútasaums-
hópur kl. 13.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi/Lindargata 59 Leirmótunarnámskeið
kl. 8-12, postulínsmálun kl. 9-12, lestur framhaldssögu kl. 12.30-13.
Frjáls spilamennska kl. 13-16.30, stólaleikfimi kl. 13-13.30. Nýtt!
Söngstund í matsal kl. 13.30-14.15, Sigríður Norðkvist leikur á flygil-
inn, bókbandsnámskeið kl. 13-17. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi/Lindargata 59 Handverksstofa opin og
spjall, leiðbeinandi kl. 10-12, bingó kl. 13.30-14.30. Allir hjartanlega
velkomnir! Föstudaginn 2. desember kl. 18: Jólahlaðborð, Ómar
Ragnarsson skemmtir, samsöngur, upplestur, jólahugvekja, happ-
drætti, kveikt á aðventukransinum og dansleikur með Vitatorgsband-
inu. Skráning og upplýsingar í afgreiðslu og í síma 411-9450. Skrán-
ingu lýkur miðvikudaginn 30. nóvember.
Garðabær Opið og heitt á könnuni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16, vatns-
leikfimi kl. 8 og 14, kvennaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 9.10, stólaleik-
fimi í Sjálandsskóla kl. 10, kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11, brids í
Jónshúsi kl. 13.
Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl. 9.10, gler- og postulínsmálun kl.
9.30, jóga kl. 10.50, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15.
Grensáskirkja Kynntar verða tvær nýjar bækur: Friðgeir Einarsson
les úr smásagnasafni sínuTakk fyrir að láta mig vita og Hermann
Stefánsson úr skáldsögu sinni Bjargræði sem fjallar um Látra-Björgu.
Að loknum upplestri þeirra er sameiginlegur kvöldverður á kr. 1.000.-
Vegna máltíðarinnar vinsamlega skráið ykkur í síma 528-4410 í s.l. á
hádegi í dag.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl.10, handavinna
og bridse kl. 13, félagsvist kl. 20, hárgreiðslustofa og fótaaðgerða-
stofa á staðnum, allir velkomnir!
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, léttar erobikk-
æfingar með Milan kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30.
Mömmuhópur kl. 12, spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30, við hringborðið kl. 8.50, glerlist kl.
9, hjá Ömmu kl. 9.30, ganga kl. 10. Botsía kl. 10.15, myndlist hjá
Margréti Zóphoníasd. kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl.
13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri
og búsetu. Nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla kl. 9 í Borgum, ganga frá Borgum, Grafarvogs-
kirkju og inni í Egilshöll kl. 10 í dag. Ljósmyndaklúbbur Korpúlfa kl. 10
í Borgum og góð heimsókn frá Ljósmyndaklúbbi Kópavogs, allir vel-
komnir. Línudans með Eddu kl. 11, síðasta skipti á þessu ári.Tréút-
skurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Félagsvist kl. 13 í Borgum og og qi-
gong kl. 16.30 í dag í Borgum.
Selið, Sléttuvegi Húsið er opið kl. 9.30-13.30 en starfsemi verður þó
fram til kl. 16. Upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi, gott að koma í spjall
og kíkja í blöðin, helgistund kl. 10.10, hádegismatur kl. 11.30-12.30,
félagsvist er kl. 13.15 í umsjón Sesselju og Erlu. Molasopinn er
frammi eftir hádegi og vestursalurinn opinn kl. 13.30-16. Allir hjartan-
lega velkomnir. Skráning í leikfimi hjá Guðnýju stendur yfir.
Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13, leir Skólabraut kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10, kafispjall í króknum kl. 10.30, jóga salnum
Skólabraut kl. 11, handavinna, leiðsögn, opinn salur kl. 13, vatnsleik-
fimi í sundlauginni kl. 18.30. Allra síðasti skráningardagur vegna
leikhúsferðar nk. sunnudag 4. desember og vegna jólahlaðborðsins á
Hótel Örk 7. desember Skráning og upplýsingar í síma 8939800.
Stangarhylur 4, Fræðslufundur FEB í dag mánudaginn 28. nóvem-
ber kl. 15.30. ,,TR og nýtt lífeyriskerfi“ - fulltrúar fráTR munu kynna
breytingar á lífeyrisgreiðslum almannatrygginga.
Stangarhylur 4, FEB Zumba Gold námskeið kl. 10.30, leiðbeinandi
Tanya. Danskennsla samkvæmisdansar kl. 17, línudans kl. 18 og
samkvæmisdansar framhald kl. 19, kennari Lizy Steinsdóttir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Verslun
UNDIR ÞESSU MERKI
SIGRAR ÞÚ
Hálsmen úr silfri 6.900 kr., gulli
49.500 kr., (silfur m. demanti 11.500
kr., gull m. demanti 55.000 kr.), silfur-
húð 3.500 kr.
ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
Póstsendum
Trúlofunar- og giftingarhringar
Auk gullhringa eigum við titanium-,
tungsten- og silfurpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Óska eftir
Staðgreiðum og lánum út á: gull,
demanta, vönduð úr og málverk!
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu
núna og fáðu tilboð þér að kost-
naðarlausu! www.kaupumgull.is
Opið mán.– fös. 11–16.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 782 8800
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Ódýru dekkin
Hágæða sterk dekk. Allar stærðir.
Sendum hvert á land sem er.
Bílastofan, Funahöfða 6,
sími 562 1351.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald fyrir
jólin
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 896 - 4019.
fagmid@simnet.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ!
MOGGINN Í
IPADINN
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD