Morgunblaðið - 28.11.2016, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2016
Hvarf bresku stúlkunnarMadeleine McCann íPortúgal í maí 2007kom fyrst upp í hugann
við lestur spennusögunnar, sem
hér er til umræðu. Munurinn ligg-
ur helst í því að í fyrrnefnda til-
vikinu er enn
engin lausn í
sjónmáli en í
bókinni skýrast
línur í lokin.
Hjónin við
hliðina er nokk-
uð óvenjuleg
saga. Hjón eru í
matarboði hjá
nágrönnum í
sama raðhúsi en fara heim til sín
til skiptis á hálftíma fresti til þess
að líta eftir sex mánaða gamalli
dóttur sinni, sem er ein heima.
Klukkan eitt eftir miðnætti er
komið að Anne og Marco fer með
henni. Vaggan er tóm.
Shari Lapena dregur upp ansi
trúverðuga mynd af stöðu mála,
viðbrögðum þeirra sem hlut eiga
að máli, sönnum skýringum og
ósönnum og ásökunum í allar áttir.
Þegar betur er að gáð virðast ansi
margir, sem tengjast stúlkunni á
einn eða annan hátt, hafa óhreint
mjöl í pokahorninu, spurningin er
bara hver er sekur í þessu máli.
Sagan er þrælspennandi og þar
sem reglulega kemur upp nýr flöt-
ur er ekki hægt annað en að halda
áfram að lesa, þar til málið skýr-
ist.
Rasbach rannsóknarlögreglu-
maður heldur vel um taumana og
veltir hverjum steini. Það eru
brotalamir hér og þar og hann er
fljótur að renna á lyktina enda
kemur lausn mála honum aldrei á
óvart.
Þessi glæpasaga er ekki aðeins
spennandi heldur vekur ýmsar
spurningar. Hvað hugsar þetta
fólk eiginlega? Hvers vegna hagar
það sér eins og það gerir? Svörin
liggja fyrir áður en yfir lýkur.
Ljósmynd/Joy von Tiedemann
Flétta Shari Lapena skrifar þræl-
spennandi sögu að mati rýnis.
Glæpasaga
Hjónin við hliðina bbbbn
Eftir Shari Lapena.
Ingunn Snædal þýddi.
Kilja. 310 bls. Bjartur 2016.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Launráð og svik
Rauði dregillinn og hvers kyns
prjál verður víðsfjarri þegar nýj-
asta kvikmynd Martins Scorsese,
sem nefnist Silence, verður frum-
sýnd í Vatíkaninu á morgun. Mynd-
in er afrakstur af 27 ára gamalli
hugmynd sem leikstjórinn hefur
sjálfur lýst sem þráhyggju.
Ekki er búist við því að páfinn
verði viðstaddur frumsýningu, en
um 400 prestar munu horfa á 159
mín. langa myndina sem byggist á
sönnum atburðum 17. aldar jesúíta-
trúboða í Japan. Silence byggist á
samnefndri skáldsögu eftir Shu-
saku Endo sem út kom 1966.
Samkvæmt frétt The Guardian
var stikla úr myndinni frumsýnd í
síðustu viku og gefur hún til kynna
að mikið sé um bæði ofbeldi og ang-
ist í myndinni. Í um 250 ár var
kristin trú bönnuð í Japan og fólk
pyntað fyrir trú sína. Myndin gerist
á 17. öld og þar afneitar Ferreira
(sem Liam Neeson leikur) trú sinni
af ótta við pyntingar og er neyddur
til að taka þátt í athöfn þar sem
kristin trúartákn eru vanhelguð og
eyðilögð. Tugir þúsunda Japana
voru ofsóttir, pyntaðir og myrtir
vegna trúar sinnar, en banni við
kristni var fyrst aflétt árið 1873.
Scorsese frumsýnir í Vatíkaninu
Afneitun Liam Neeson í hlutverki sínu sem Ferreira í myndinni Silence.
Tillaga Jóhannesar Dagssonar,
heimspekings og lektors við mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands,
varð hlutskörpust í lokavali á til-
lögum að haustsýningu í Hafnar-
borg fyrir árið 2017. Þetta er í sjö-
unda sinn sem slíkt val fer fram, sem
er í höndum Listráðs og forstöðu-
manns Hafnarborgar.
„Sýningartillagan sem ber vinnu-
titilinn „Málverk – eitthvað annað en
miðill“ fjallar um málverkið sem
nálgun við myndræna framsetningu,
burtséð frá miðli verksins og er
markmið sýningarinnar að veita
innsýn inní þessa þróun málverksins
og nýju stöðu þess,“ segir í tilkynn-
ingu frá Hafnar-
borg.
Jóhannes lauk
doktorsnámi í
heimspeki frá
Háskólanum í
Calgary í Kanada
2012. Áður hafði
hann lagt stund á
heimspeki og
bókmenntir við
Háskóla Íslands, þar sem hann lauk
meistaranámi í heimspeki 2009. Jó-
hannes er menntaður í myndlist frá
Edinburgh College of Art og hefur
tekið þátt í sýningum hér heima og
erlendis.
Málverk – eitthvað annað en miðill
Jóhannes Dagsson
Ævintýri Newt Scamander í leynilegu samfélagi
norna og galdramanna í New York, sjötíu árum
áður en Harry Potter les bók hans í skólanum.
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 65/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.10, 19.00, 20.00, 22.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 17.00, 18.00, 20.00, 21.00,
22.45
Sambíóin Akureyri 17.15, 20.00, 22.45
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.45
Fantastic Beasts and
Where to Find Them
Doctor Strange 12
Dr. Stephen Vincent Strange slasast illa á höndum. Til að leita
sér lækninga heldur hann út í heim og hittir að lokum „hinn
forna“sem kennir honum að nota hendurnar og hæfileika sína
á alveg nýjan hátt svo úr
verður hinn rammgöldrótti
og svo gott sem ofur-
mannlegi Doctor Strange.
Metacritic 74/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka
17.30, 20.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
The Accountant 16
Christian Wolff er stærðfræðingur sem hefur meiri áhuga á
tölum en fólki. Hann notar litla endurskoðunarskrifstofu í
smábæ sem yfirvarp, fyrir störf sín sem endurskoðandi fyrir
hættulegustu glæpa-
samtök heims.
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Akureyri 22.00
Lion Lion fjallar um hinn fimm ára
gamla Saroo sem týnist í
lest á leið í burtu frá heimili
sínu.
Metacritic 75/100
IMDb 6,4/10
Smárabíó 16.40, 17.10,
19.30, 20.00, 22.20
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
The Light Between
Oceans
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Egilshöll 17.10
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 17.30
Shut In
Metacritic 22/100
IMDb 4,9/10
Smárabíó 22.20
Arrival 12
Metacritic 80/100
IMDb 8,5/10
Smárabíó 20.00, 22.35
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40
Jack Reacher:
Never Go Back 12
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 22.45
Grimmd 12
Morgunblaðið bbbnn
IMDb 5,8/10
Smárabíó 17.45
Háskólabíó 18.00
Bíó Paradís 20.00
Hacksaw Ridge 16
Metacritic 66/100
IMDb 8,7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.45
Flöskuskeyti frá P 16
Metacritic 66/100
IMDb 7/10
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.40
Eiðurinn 12
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Háskólabíó 18.10
The Girl on
the Train 16
Metacritic 47/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Max Steel 12
Metacritic 22/100
IMDb 4,9/10
Smárabíó 15.30
Masterminds
Metacritic 47/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 20.10
Bad Santa 2 12
Enn á ný leggur hin fulli og
fúli Willie á ráðin með litla fé-
laga sínum Markus. Í þetta
sinn ætla þeir að ræna góð-
gerðasamtök í Chicago á að-
fangadag.
Metacritic 40/100
IMDb 5,5/10
Laugarásbíó 18.00, 20.00,
22.00
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.10
Smárabíó 17.45, 20.10,
22.20, 22.45
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.00
Sjöundi dvergurinn Sambíóin Álfabakka 18.00
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.30, 17.45
Storkar Metacritic 55/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.00
Middle School Metacritic 51/100
IMDb 5,8/100
Smárabíó 15.30
Innsæi
Bíó Paradís 22.00
Slack Bay
Bíó Paradís 20.00
Baskavígin
Bíó Paradís 20.00
Gimme Danger
Bíó Paradís 22.00, 22.15
Svarta gengið
Bíó Paradís 18.00
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 22.30
Rúnturinn I
Bíó Paradís 18.00
Nahid
Bíó Paradís 18.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna