Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 4
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 20154 Fréttir Atvinna í boði staða sölumanns Viltu skipta um vinnu? Vantar þig vinnu? Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan sölumann. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera duglegur, góður sölumaður, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, jákvæður, lausnamiðaður, skemmtilegur og hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði. Umsóknir sendist á steinn@dv.is n Klæddi sig úr sjálfur n Reyndur verjandi hefur ekki séð annað eins A nnar hælisleitendanna frá Sýrlandi, sem lögreglustjór­ inn á höfuðborgarsvæðinu vildi hneppa í gæsluvarð­ hald í byrjun vikunnar, var auk þess að vera handjárnaður leiddur nakinn fyrir dómara í Hér­ aðsdómi Reykjavíkur síðastliðinn föstudag. Maðurinn virtist í miklu andlegu ójafnvægi en skipaður verj­ andi hans ber að hann hafi sjálfur af­ klæðst áður en honum var lesinn úr­ skurður um að hann yrði ekki settur í gæsluvarðhald. Verjandi mannsis segist enn fremur ekki vita og ekki vilja tjá sig nánar um hvort mað­ urinn hafi verið kviknakinn eður ei. Hann var þó sveipaður teppi á meðan hann var í réttarsalnum og á göngum hússins. Verjandinn lofar lögregluna fyrir framgöngu hennar í málinu. „Það er rétt að hann var bú­ inn að rífa sig úr fötunum, en ég varð ekki vitni að því,“ staðfestir hann í samtali við DV. Það var þann 21. janúar síðast­ liðinn sem tveir menn, sýrlenskir bræður að eigin sögn, gáfu sig fram við lögregluna og sóttu um hæli á Ís­ landi. Þeir höfðu komið til Íslands daginn áður. Mennirnir komu frá Danmörku en höfðu samkvæmt upplýsingum DV ferðast norður í gegnum Evrópu með það fyrir aug­ um að komast til Íslands. Þeir sögð­ ust við yfirheyrslur hafa dvalið í Líbíu síðastliðin misseri en þar áður í heimalandi sínu, Sýrlandi. Til Ís­ lands komu þeir að lokum frá Dan­ mörku. Vildi taka þátt í stríði fyrir guð Hæstiréttur staðfesti á mánudag úr­ skurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði synjað þeirri beiðni lögreglu­ stjórans að úrskurða mennina tvo í gæsluvarðhald. Við yfirheyrslur hafði annar mannanna, samkvæmt héraðsdómi, lýst yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin ISIS. Hann vildi taka þátt í stríði fyrir guð. „Varn­ araðili hef ur á köfl um sýnt af sér ógn andi hegðun og til b urði í þá átt að skaða sjálf an sig, eins og rakið er í grein ar gerð sókn araðila. Þá bend ir skýrslu taka af hon um til þess að hann sé í nokkru and legu ójafn vægi, auk þess sem hann virðist sækja í mynd efni á in ter net inu sem teng ist ógn ar verk um hryðju verka sam taka bók stafstrú ar manna.“ Mikill hamagangur Jón Sigfús Sigurjónsson héraðs­ dómslögmaður var skipaður verj­ andi mannsins. Hann var, ásamt túlki, viðstaddur yfirheyrslur yfir mönnunum á fimmtudag en í kjöl­ farið voru þeir leiddir fyrir dómara. Það gekk að sögn Jóns þokkalega fyr­ ir sig, þó að umbjóðandi hans hafi ekki verið ánægður með stöðu mála. Það var svo á föstudaginn, þegar lesa átti upp úrskurðinn, sem mað­ urinn ungi lét ófriðlega. Raunar ber Jón, sem er reynslumikill lögmaður, í samtali við DV að hann hafi ekki áður orðið vitni að slíkum látum fyrir dómi. Heimildir DV herma að maðurinn, sem kveðst vera 16 ára, en greining leiðir í ljós að sé um tvítugt, hafi raunar verið algjörlega stjórnlaus. Hamagangurinn hafi ver­ ið mikill og það hafi ekki farið fram hjá þeim sem staddir voru í dómhús­ inu síðastliðinn föstudag. Jón er þess ekki fullviss að umbjóðandi hans hafi, sökum ójafnvægis, meðtekið þann úrskurð sem honum var les­ inn, þrátt fyrir að túlkur færi yfir það með honum. Lýsir aðdáun á lögreglunni Jón mótmælti á fimmtudeginum gæsluvarðhaldskröfunni og því tók dómari sér dags frest til að leggja mat á málið. Spurður hvort hann hafi gert athugasemdir við að þinghaldið færi fram undir þeim kringumstæð­ um sem við blöstu á föstudag, segist hann ekki hafa gert það. Öllum við­ stöddum hafi þó verið ljóst að mað­ urinn var í miklu ójafnvægi. Jón seg­ ist aðspurður ekki þekkja ástæður þess að maðurinn hafi verið svo óró­ legur. „Það örlaði ekki á því að að­ stæðurnar tengdust harðræði,“ segir Jón í samtali við DV. Hann hafi aldrei gefið það í skyn, hvorki við hann né túlk. „Ef eitthvað er þá get ég nánast lýst aðdáun minni á lögreglunni fyrir stillingu og góða stjórn á aðstæðum, sérstaklega þarna á föstudaginn.“ Aðstæður hafi alls ekki verið auð­ veldar viðfangs og raun fordæma­ lausar frá hans sjónarhóli. „Þetta var ekki einfalt mál.“ „Óheppilegt fyrir samfélagið“ Í dómi Hæstaréttar kom fram að maðurinn hafi sýnt af sér hegðun sem gefi til kynna að af honum stafi hætta. Hins vegar hafi lögreglu­ stjórinn ekki reynt vægari úrræði en gæsluvarðhald. Því var kröfunni hafnað og mennirnir látnir lausir. „Það er auðvitað óheppi legt fyr ir sam fé lagið að þar sé ein hver sem eng inn veit hver er, hvað hann heit ir, hvaðan hann kem ur eða hvers megi vænta af hon um,“ hafði mbl.is eftir Jóni H. B. Snorra syni, sak sókn ara og aðstoðarlög reglu stjóra höfuðborg­ ar svæðis ins, vegna málsins á mánu­ dag. Fram kemur í dómnum að þjóð­ erni mannanna liggi ekki fyrir en þeir segjast vera frá Sýrlandi. Einnig kemur fram að yngri maðurinn hafi viðhaft hótanir í garð starfsmanns Útlendingastofnunar og hótað að sprengja þúsund manns í loft upp ef hann yrði sendur frá Íslandi. Maður­ inn ber að hann sé alls ekki eldri en 16 ára en hann hefur gefið upp tvo ólíka fæðingardaga, báða árið 1998. Aldursgreining hjá tannlækni hefur aftur á móti leitt í ljós að maðurinn sé líklega á tuttugasta aldursári. Fara til Danmerkur Innanríkisráðuneytið hefur greint frá því að beggja mannanna bíði framsal til Danmerkur, en þaðan komu þeir til Íslands, á grundvelli Dyflinnar­ reglugerðarinnar. Þangað til eru mennirnir á framfæri Reykjavíkur­ borgar en að sögn aðstoðarlögreglu­ stjóra er fylgst með ferðum þeirra. n Stakk sig með eggvopni Fram kemur í greinargerð verkefnastjóra í málefnum hælisleitenda að maðurinn ungi hafi fljótlega eftir komuna farið að sýna af sér sjálfsskaðandi hegðun. Hann hafi meðal annars borið eld að rúmi sínu og gefið þær skýringar að hann væri að reyna að kveikja í sér. Þá greindi DV frá því þann 28. janúar síðastliðinn að sérsveit lögreglu hefði verið kölluð á vettvang vegna hnífsstungu Sýrlendings í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Lögreglu mætti alblóðugur maður en síðar kom í ljós að maðurinn, sem hér í fréttinni er fjallað um, hafði veitt sér áverkana sjálfur. Þess má geta að Rauði krossinn annast sálgæslu fyrir hælisleitendur þegar þörf krefur. Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Átök Maðurinn lét afar ófriðlega fyrir héraðsdómi síðastliðinn föstudag. Hælisleitandi leiddur nakinn fyrir dómara „Ef eitthvað er þá get ég nánast lýst að- dáun minni á lögreglunni fyrir stillingu og góða stjórn á aðstæðum, sérstaklega þarna á föstudaginn. Styður ISIS Ungur hælisleitandi, að sögn frá Sýrlandi, styður hryðjuverka- samtökin Íslamska ríkið, eða ISIS. Í landinu hafa ótal voðaverk verið framin síðustu misseri. Landsvirkjun hagnast um 10,4 milljarða Landsvirkjun hagnaðist um 78,4 milljónir Bandaríkjadala, jafn­ virði 10,4 milljarða króna, á síð­ asta ári samanborið við um fimm milljarða tap árið 2013. Rekstrartekjur námu 57 millj­ örðum sem er hækkun um 3,6 prósent frá árinu áður og nettóskuldir lækkuðu um 31 millj­ arð króna milli ára. Landsvirkjun skuldaði 295 milljarða í árslok 2014 en skuldirnar hafa lækkað um 80 milljarða frá árslokum 2009. „Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2014 þrátt fyrir krefj­ andi rekstrarumhverfi, einkum vegna lágs álverðs og takmörk­ unar á afhendingu raforku vegna slakrar vatnsstöðu. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði var um 19 milljarðar króna, hækkaði um 20% frá fyrra ári og hefur ekki ver­ ið meiri áður,“ segir Hörður Arnar­ son, forstjóri Landsvirkjunar. „Með aukinni fjármuna­ myndun vegna aukinnar orku­ sölu, hærra raforkuverðs og lægri skuldsetningar munu tækifæri til arðgreiðslna aukast verulega á næstu árum.“ Milljarðar í skoðunarferðir Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna í janúar sýnir að er­ lendir gestir eyddu um níu pró­ sentum meira í janúar en í des­ embermánuði á undan. Þetta kemur fram í tölum sem Rann­ sóknasetur verslunarinnar birti á fimmtudag. Þar kemur fram að sú grein ferðaþjónustunnar sem bar mest úr býtum í janúar er sú sem bauð skipulegar ferðir, skoðunarferðir og fleira. Erlendir ferðamenn greiddu með kortum sínum liðlega tvo milljarða króna fyrir slíkar ferðir sem er 71 pró­ sents aukning frá janúar í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.