Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Page 6
6 Fréttir Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Hólmaslóð 2 . 101 Reykjavík . www.tolli.is
Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17
Níu hafa sótt um að reka Nasa
N
íu manns hafa sótt form-
lega um að reka Nasa en um-
sóknarfrestur rann út fyrir
rúmum mánuði. Enn fleiri
sýndu rekstrinum áhuga og sendu
inn fyrirspurnir. Ákvörðun varðandi
nýjan rekstraraðila verður tekin á
næstu dögum eða vikum.
Með umsóknunum fylgdu tillögur
um reksturinn en Elín Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri eignarhaldsfé-
lags eignarinnar, segir þær vera af
ýmsum toga. „Við höfum ákveðið að
halda trúnað við umsækjendur og
ræða ekki hugmyndir þeirra fyrr en
búið er að semja við aðila,“ segir Elín.
Ólafur Björnsson keypti fasteign-
irnar á Landsímareitnum í desember
og lýsti því yfir í kjölfarið að athugað
yrði hvort forsendur væru fyrir því að
hefja rekstur á Nasa að nýju. Húsið
er að Thorvaldsensstræti 2, þar sem
skemmtistaðurinn Nasa var starf-
ræktur frá 2001 til 2012. Forsætis-
ráðherra friðlýsti salinn að tillögu
Minjastofnunar í desember. Mennta-
og menningarmálaráðherra hafði
áður friðað húsið árið 2011.
Spurð hvort líkur séu á því að tón-
leikar verði haldnir á Nasa í fram-
tíðinni segir Elín: „Það eru líkur
á því að þarna verði tónleikahald
í einhverjum mæli en aðrar hug-
myndir eru einnig skoðaðar.“
Hún segir húsið bjóða upp á
marga möguleika. „Mér líst mjög vel
á þetta húsnæði. Þetta er fallegt hús
með mikla sögu og sjarma.“ n
freyr@dv.is
Líklegt er að tónleikahald verði þar í einhverjum mæli í framtíðinni
Stuð á Nasa Fjölmargir tónleikar voru
haldnir á Nasa áður en staðnum var lokað.
Skagafjörður kynntur
fjárfestum í París
n Fulltrúi frá sveitarfélaginu fer á koltrefjaráðstefnu í Frakklandi
B
æjaryfirvöld í Skagafirði
ætla að senda fulltrúa frá
sveitarfélaginu á stóra kol-
trefjaráðstefnu í París í
mars til að kynna áform UB
Koltrefja um byggingu verksmiðju
í firðinum. Félagið, sem er í eigu
Kaupfélags Skagfirðinga, Bjarna
Ármannssonar fjárfestis og sveitar-
félagsins, hefur unnið að undir-
búningi verkefnisins í tæp sjö ár án
þess að ákvarðanir um fjárfestingar
hafi verið teknar. Með ferðinni á
að vekja athygli á Skagafirði sem
vænlegum kosti fyrir framleiðslu
koltrefja og koma á frekari sam-
skiptum við fulltrúa erlendra trefja-
framleiðenda.
„Eftirspurn eftir koltrefjum er að
aukast aftur eftir mikinn samdrátt
þannig við viljum raunverulega
bara halda áfram að vinna í verk-
efninu. Við höfum verið í sambandi
við erlend fyrirtæki, og þá fleiri en
eitt, sem hafa sýnt því áhuga í gegn-
um tíðina og erum að skoða hvaða
möguleikar eru í stöðunni,“ segir
Gunnsteinn Björnsson, formaður
atvinnunefndar Skagafjarðar.
Samdráttur í sölu eftir hrun
UB Koltrefjar var stofnað vorið
2008 en forsvarsmenn einkahluta-
félagsins stefndu þá að byggingu
verksmiðju með afkastagetu upp á
1.500 til 2.000 tonn á ári. Heildar-
fjárfesting verkefnisins var þá
metin á fjóra til sex milljarða króna
en koltrefjar eru byggingarefni í
iðnaði og er oft notað í bíla, flugvél-
ar og reiðhjól, og er bæði léttara og
sterkara en ál.
Samdráttur varð í sölu á koltrefj-
um í kjölfar efnahagskreppunn-
ar og viðræðum við stóra erlenda
framleiðendur var hætt en sveitar-
félagið vann áfram að undirbún-
ingi verkefnisins. Komið var á fót
námsbraut í koltrefjaiðnaði í Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra
og haustið 2013 keyptu Skaga-
fjörður og Kaupfélag Skagfirðinga
bátasmiðjuna Mótun sem fram-
leiðir trefjaplastbáta.
„Þessi ráðstefna snýr að því að
halda tengslum við þá sem við höf-
um rætt við og fylgjast með því sem
er að gerast en þetta er stærsta ráð-
stefnusýningin í þessum geira,“ seg-
ir Gunnsteinn og bætir við að það
sé ekki enn komið á hreint hver fari
fyrir sveitarfélagið á ráðstefnuna
JEC Composites.
Hafa rætt við ráðherra
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, hefur sagst vera
bjartsýn á að erlend fyrirtæki sjái sér
hag í að hefja framleiðslu á koltrefjum
hér á landi. Í svari hennar við fyrir-
spurn Össurar Skarphéðins sonar,
þingmanns Samfylkingarinnar, sem
ráðherrann lagði fram á Alþingi í
apríl í fyrra, kom fram að Ísland væri
á meðal samkeppnishæfustu landa
heims á sviði koltrefjaframleiðslu í
kostnaðar legu tilliti. Stuttu eftir að
svar ráðherrans birtist hrósaði hún
Skagfirðingum í viðtali í Morgun-
blaðinu fyrir þann undirbúning sem
farið hefur í verkefnið.
„Við höfum náttúrlega komið
þeim skilaboðum inn í ríkisstjórn-
ina að við teljum okkur vera kom-
in býsna langt í undirbúningi að
því að geta tekið á móti svona verk-
efni. Þetta er eitt af því sem maður
horfir til varðandi uppbyggingu hér
á svæðinu. Við höldum því áfram
og vinnum í þessu en svona hlutir
eru alltaf langhlaup,“ segir Gunn-
steinn. n
Kaupfélagið á 40%
Kaupfélag Skagfirðinga og Gasfélagið ehf.,
sem er í eigu Bjarna Ármannssonar, eiga
bæði 40 prósent í eignarhaldsfélaginu UB
Koltrefjum. Sveitarfélagið Skagafjörður á
20 prósent.
Bjarni Ármannsson og Sigurjón Rúnar
Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri sitja í
stjórn UB Koltrefja samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins fyrir árið 2013. Bjarni segir í
samtali við DV að markaðsaðstæður hafi
orðið óhagstæðar eftir hrun og því hafi
verið ákveðið að bíða með verkefnið.
„Þetta er ennþá áhugavert og er enn til
skoðunar en það hafa engar ákvarðanir
verið teknar og því frá voða litlu að segja.
Við erum hvorki nær né fjær því að fara í
verkefnið,“ segir Bjarni.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Formaður atvinnunefndar
Skagafjarðar Gunnsteinn Björnsson,
segir eftirspurn eftir koltrefjum hafa aukist.
„Við höfum náttúrlega komið þeim skila-
boðum inn í ríkisstjórnina að við teljum
okkur vera komin býsna langt í undirbúningi
að því að geta tekið á móti svona verkefni
4 handteknir
eftir líkamsárás
Fjórir voru handteknir aðfaranótt
fimmtudags vegna gruns um lík-
amsárás í austurhluta borgar-
innar. Tilkynnt var um árásina
um klukkan hálf tvö og var fórn-
arlambið flutt á spítala með stóran
skurð á enni. Meintir árásarmenn
voru látnir gista fangageymslur og
yfirheyrðir á fimmtudag.
Verkefni lögreglu aðfaranótt
fimmtudags voru fleiri og af ýms-
um toga. Einn var handtekinn
vegna brots á vopnalögum en
hann reyndist vera með þrjá hnífa
og hafnaboltakylfu í fórum sínum.
Þá þurfti lögreglan sem sinnir
Breiðholti og Kópavogi að sinna
tilkynningu um heimilisofbeldi.
Gerandinn var farinn af heimilinu
þegar lögreglan kom á vettvang.
Málið er í rannsókn. Þá sótti móð-
ir sautján ára gamlan son sinn á
lögreglustöðina í Vesturbænum
en pilturinn hafði drukkið of mik-
ið og verið til vandræða sökum
ölvunar.
Selja dóp á
Facebook
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur undanfarnar
vikur handtekið á annan tug
manna og lagt hald á talsvert
af fíkniefnum í aðgerðum sem
beinast gegn sölu fíkniefna á
samfélags miðlum. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá lög-
reglu. Við húsleit tók lögreglan
í sína vörslu kókaín, LSD og
um 200 grömm af amfetamíni,
auk kannabisefna. Í hópi hinna
handteknu eru aðallega karlar
á þrítugsaldri, en ein kona var
handtekin í aðgerðunum. Að
mati lögreglu er umfang fíkni-
efnasölu á samfélagsmiðlum
verulegt, en aðgerðunum verð-
ur fram haldið. Þess má geta
að allnokkrum Facebook-síð-
um, sem hafa boðið fíkniefni til
sölu, hefur verið lokað.