Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 14
14 Fréttir Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Bankarnir settu alls
900 milljónir í Bónusa
n Kaupaukagreiðslur Arion banka og Íslandsbanka jukust um alls 135 milljónir króna í fyrra
A
rion banki og Íslands-
banki skuldbundu sig
til að greiða samtals 900
milljónir króna vegna
kaupaukagreiðslna til
rúmlega 200 starfsmanna bank-
anna og dótturfélaga þeirra á síð-
asta ári. Í tilviki Arion banka voru
542 milljónir króna gjaldfærðar
vegna bónusa til starfsmanna sam-
stæðunnar en 358 milljónir hjá Ís-
landsbanka. Framkvæmdastjórum
bankanna var lofað alls 46,4 millj-
ónum í árangurstengdar greiðslur
og bankastjórunum tveimur sam-
tals 11,1 milljón.
Aukning um 135 milljónir
Samkvæmt nýbirtum ársreikning-
um fyrirtækjanna jukust kaupauka-
greiðslur þeirra um samtals 135
milljónir króna í fyrra miðað við
árið á undan. Rúmlega hundrað
starfsmenn Arion banka fengu
bónusa og gjaldfærður kaupauki
samstæðunnar jókst um 48 milljón-
ir milli ára. Níu framkvæmdastjór-
um bankans var lofað alls 24 millj-
ónum í árangurstengdar greiðslur
sem gerir um 2,7 milljónir á hvern
stjórnanda. Höskuldur H. Ólafs-
son, bankastjóri Arion banka, fékk
vilyrði fyrir 6,3 milljóna kaupauka
á árinu.
Arion banki innleiddi kaupauka-
kerfi í júlí 2013. Um þrjátíu prósent
upphæðanna eru í formi launa-
tengdra gjalda og greiðslu 40 pró-
sents kaupaukans er frestað um
þrjú ár í samræmi við reglur Fjár-
málaeftirlitsins (FME) um ár-
angurstengdar greiðslur fjármála-
fyrirtækja.
Íslandsbanki útvíkkaði á síð-
asta ári kaupaukakerfi bankans
þannig það næði til um hundrað
starfsmanna en árið 2013 náði það
einungis til framkvæmdastjórnar.
Samstæðan gjaldfærði bónusa til
um hundrað starfsmanna í fyrra
og þar var aukning um 87 milljón-
ir milli ára. Átta framkvæmdastjór-
ar bankans fengu vilyrði fyrir alls
22,4 milljónum eða 2,8 milljónum
hver starfsmaður. Í ársreikningi
bankans kemur einnig fram að ár-
angurstengdar greiðslur til Birnu
Einarsdóttur, bankastjóra Íslands-
banka, námu 4,8 milljónum króna
í fyrra.
Rúmur 21 milljarður í laun
Alls 1.139 manns störfuðu hjá Arion
banka og dótturfélögum fyrirtæk-
isins í árslok 2014 en starfsmönn-
um samstæðunnar hafði þá fækkað
um sex milli ára. Starfsfólki bank-
ans fækkaði aftur á móti um 46 á
tímabilinu. Launagreiðslur sam-
stæðunnar námu 10.289 milljón-
um króna árið 2013 en 10.903 millj-
ónum í fyrra sem er aukning um 3,2
prósent.
Framkvæmdastjórar Arion
fengu samtals 227,5 milljónir
í laun á síðasta ári. Hver fram-
kvæmdastjóri var því með um 25,3
milljónir í árslaun eða 2,1 millj-
ón á mánuði. Árslaun Höskulds
H. Ólafssonar bankastjóra námu
52,2 milljónum og hækkuðu um 1,5
milljónir milli ára.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, fékk 38,6 milljónir
króna í árslaun í fyrra en 36,4 millj-
ónir árið 2013. Launagreiðslur til
framkvæmdastjóra bankans námu
alls 198,7 milljónum og stjórnend-
urnir átta voru því með um 25 millj-
ónir í árslaun hver.
Um 1.200 manns störfuðu hjá Ís-
landsbanka og dótturfélögum í lok
2014. Starfsmenn samstæðunn-
ar fengu samtals 10.193 milljónir
króna í laun á árinu sem er lækkun
um 27 milljónir milli ára. n
Engin áform um bónusa
Landsbankinn hefur ekki tekið upp kaupaukakerfi og samkvæmt upplýsingum frá bank-
anum stendur ekki til að greiða starfsmönnum árangurstengdar greiðslur á næstunni.
Um 1.400 fyrrverandi og núverandi starfsmenn fyrirtækisins, sem er nánast alfarið í
eigu íslenska ríkisins, fengu hins vegar um 0,8 prósenta eignarhlut í bankanum í fyrra í
samræmi við samkomulag íslenska ríkisins og gamla Landsbankans (LBI hf.) frá árinu
2009. Skattalegt verðmæti hlutabréfanna nam þá 4,7 milljörðum króna.
„Það var hluti af samkomulaginu milli ríkisins og gamla bankans á sínum tíma en
starfsmenn geta ekki selt bréfin fyrr en eftir þrjú ár. Kaupaukakerfi hefur ekki komið til tals
og engin ákvörðun verið tekin um að taka slíkt kerfi upp af hálfu bankaráðs Landsbank-
ans,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is