Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 18
18 Fréttir Erlent Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Fílasteikur og
gríðarleg fátækt
n Robert Mugabe heldur upp á afmæli sitt í skugga fátæktar þjóðar sinnar
Í
næstfátækasta ríki heims verða um
helgina haldin mikil hátíðarhöld
til heiðurs forseta ríkisins. Á golf-
velli verða bornar fram vísunda-
lundir og fílasteikur, en tilefnið er
91 árs afmæli Roberts Mugabe, for-
seta Simbabve. Þá verða kúdúna-
antílópur og impala-antílópur á
boðstólum, en forsetanum verður að
auki fært uppstoppað ljón og krókó-
díll. Verðmiðinn fyrir kræsingarnar í
veislunni hljóðar upp á um 13 millj-
ónir íslenskra króna en veislan sjálf
ætti að kosta um eina milljón dollara.
Afmælisveisla forsetans er árlegur
viðburður og er yfirleitt afar umdeild.
Sjálfur afmælisdagurinn var fyrr í vik-
unni en veislan verður haldin um
helgina. Hátíðarhöldin, sem verða
öll hin veglegustu, þykja taktlaus og
skammarleg fyrir forseta þjóðar sem
býr við gríðarlega fátækt.
Óðaverðbólga
Í ríkinu er óðaverðbólga og er efna-
hagur þess í miklum ólestri. Ætla má
að íbúar Simbabve lifi margir á um
50 krónum á dag. Merkja má nokkrar
framfarir í Simbabve, til dæmis með
því að horfa til Evrópusambandsins
sem hefur að nýju hafið að veita þró-
unaraðstoð til ríkisins og hefur dreg-
ið úr refsiaðgerðum gagnvart stjórn-
málamönnum þar í landi. Mugabe
er að auki um þessar mundir forseti
Afríkusambandsins. Þrátt fyrir það
er ástandið afar slæmt í ríkinu og þá
berast fregnir af því að Mugabe hafi
annaðhvort afhent eiginkonu sinni,
Grace Mugabe, forsetavald eða verið
neyddur til þess. Hann hefur sjálfur
gefið til kynna að hann hygðist bjóða
sig fram til forseta í kosningunum
árið 2018, en þá yrði hann 94 ára, og
sitja til 100 ára aldurs. Hann hefur nú
þegar stýrt Simbabve í 35 ár.
Robert Mugabe hefur sagt að það
arfleið sína að koma hvítum mönn-
um frá öllum völdum í Afríku og hef-
ur titlað sig „Hitler Afríku“.
„Guð hefur hugsað“ um hann
Stuðningsmenn Mugabes segja
hann vel á sig kominn, þrátt fyrir ald-
ur og fyrri störf. Sjálfur þakkar hann
guði heilsu sína og velferð. „Guð hef-
ur hugsað vel um mig,“ segir hann.
Veisluhöldin munu fara fram
á golfvelli nærri Victoria-fossum í
Simbabve. Þar býr að sögn dyggur
stuðningsmaður Mugabes, bóndi,
Tendai Musasa, sem hyggst gera
vel við forsetann og gesti hans. Sagt
er hann hyggist drepa antílópurn-
ar fyrir Mugabe, en Musasa sér-
hæfir sig í ræktun sjaldgæfra dýra.
Musasa segir veisluna vera nokkurs
konar uppskeruhátíð fyrir Muga-
be og sýni að framfarir hafi verið
miklar að undanförnu í ríkinu. „Við
erum afrakstur sögulegra og mikil-
vægra umbóta í landinu. Við erum
að gefa til baka manninum sem hef-
ur gefið okkur allt. Mugabe er hetj-
an okkar.“ Undir þetta tekur amma
Musasas, sem segir að hún sé þakk-
lát fyrir langlífi forsetans. „Ég er bara
svo glöð yfir því hvað hann hefur lif-
að lengi. Leyndarmálið að baki slíku
langlífi er að hlýða því sem foreldr-
ar þínir segja þeir að gera, þeir vita
muninn á réttu og röngu,“ segir Ell-
ina Maphosa, 95 ára.
Að sögn stjórnarliða mæta for-
ystumenn nágrannaríkja Simbave til
veislunnar og hafa stjórnmálamenn í
Mósambík, Suður-Afríku, Angóla og
Namibíu boðað komu sína.
Neyddir til að borga
Þrátt fyrir mikla fátækt og skort eru
borgarar í Simbabve neyddir til að
greiða fyrir veisluna og hafa kennur-
um til dæmis verið gert að greiða um
10 dollara hver án þess þó að vera
boðið. „Við vitum að í mörgum hér-
uðum hefur fólk verið neytt til þess
að greiða upp í kostnaðinn við af-
mælið og við vitum að þeir ætluðu
að nota féð til að fá flugvél og greiða
fyrir afskaplega dýra veislu,“ segir leið-
togi framsýnna kennara, Raymond
Majognwe. Mörg einkafyrirtæki segj-
ast hafa fundið fyrir þrýstingi um að
taka þátt og munu að sögn hafa feng-
ið þau skilaboð þegar þau streittust á
móti að gripið yrði til aðgerða. Þá hafa
ríkisrekin fyrirtæki verið skikkuð til að
greiða fyrir kostnaðinn sem hlýst af því
að koma gestunum á golfvöllinn. n
Rekin á brott
Ung kona eldar við bágar aðstæður.
Ríkisstjórn Simbabve hafði stuttu
áður gert landsvæðið þar sem hún
bjó að þjóðlendu og þar á að byggja
skemmtigarð. Konan hafði búið á
svæðinu, Mazou við Mazowe, ásamt
200 öðrum en landið höfðu þau byggt
frá 2001 þegar það var gert upptækt
og hvítir ábúendur þess reknir þaðan.
Veisla Mugabes verður haldin á svæði
sem á sér sömu fortíð; áður voru
ábúendur þar hvítir og voru reknir á
brott.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is „Við erum að gefa
til baka mannin-
um sem hefur gefið okk-
ur allt. Mugabe er hetjan
okkar
„Guð
hefur
hugsað vel
um mig
Robert Mugabe
Robert Mugabe
hefur verið forseti
Simbabve í 35 ár.
MyNd ReuteRS