Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Qupperneq 20
20 Fréttir Erlent Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Við lifðum af
E
bólufaraldurinn í Vestur-Afr-
íku hefur verið skæður en
nú lítur út fyrir að hann sé á
undanhaldi. Í janúar lýstu
Sameinuðu þjóðirnar og rík-
isstjórn Malí því yfir að enga ebólu-
sjúklinga væri að finna í landinu og
að síðasta smit hefði greinst rúmum
mánuði fyrr.
Þá hefur ebólutilfellum farið hríð-
fækkandi í Síerra Leóne, Líberíu og í
Gíneu en þessi ríki hafa farið hvað
verst út úr faraldrinum. Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin segir að 9.541 hafi
látist vegna ebólu frá því í ársbyrjun
2014 og fram til dagsins í dag. Alls
smituðust 23.539 manns.
Á meðfylgjandi myndum má
sjá myndir af fólki sem smitaðist
af ebólu en hefur náð sér að fullu.
Í flestum tilfellum er um að ræða
hjálparstarfsmenn eða heilbrigðis-
starfsfólk en einnig má sjá fólk sem
smitaðist í umhverfi sínu og hefur
jafnvel misst ættingja eða vini vegna
sjúkdómsins. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Sameinaðir
Musa Pabai heldur á syni
sínum, Oliver, í fyrsta sinn
eftir langan aðskilnað.
Myndin er tekin í febrúar
2015. Musa er hér kominn
heim til sín í Walakor í
Líberíu. Hann smitaðist af
ebólu og komst í nóvember
að á sérhæfðu sjúkrahúsi
sem sinnir aðeins
ebólutilfellum. Í kjölfar
útskriftarinnar óttaðist
hann smithættuna og vildi
ekki leggja það á fjölskyldu
sína að fara aftur heim.
Hann óttaðist að geta
smitað unnustu sína af
sjúkdómnum í gegnum
kynmök. Rannsóknir hafa
sýnt að ebóla getur verið í
sæði í 82 daga eftir að
einstaklingur sýnir fyrst
einkenni sjúkdómsins. Engar
vísindalegar rannsóknir
segja að sjúkdómurinn geti
smitast með þessum hætti
en þó er talið að þess séu
dæmi í Vestur-Afríku og
hefur fólk því verið hvatt til
þess að stunda ekki kynmök
í þennan tíma. Musa var því
áfram í sjálfskipaðri útlegð
en sneri heim þann 15.
febrúar.
Fékk tilraunalyf Kent Brantly smitaðist af ebólu þegar hann var við
læknisstörf í Líberíu í Vestur-Afríku. Kent stendur hér með eiginkonu sinni, heill heilsu, á
blaðamannafundi í ágúst 2014. Þá hafði hann fengið lækningu eftir að hafa fengið sérstakt
leyfi til að fá tilraunalyf sem talin eru geta sigrast á sjúkdómnum.
Forsetafaðmlag
Barack Obama, Bandaríkjaforseti,
faðmar hér að sér hjúkrunarkonuna
Ninu Pham á forsetaskrifstofunni.
Nina, sem er frá Dallas í Bandaríkj-
unum, veiktist af ebólu þegar hún
sinnti manni sem hafði smitast og
kom á sjúkrahús í borginni.
Maðurinn lést vegna veikindanna.
Nina náði fullum bata og óskaði
forsetinn eftir fundi við hana
stuttu eftir að hún var útskrifuð af
sjúkrahúsi. Annar starfsmaður sem
smitaðist, Amber Wilson, náði
einnig fullum bata.
Þétt faðmlag Amber
Vinson faðmar hér hjúkrunarfólk á
sjúkrahúsi í Atlanta í Bandaríkjunum sem
sinnti henni eftir að hún smitaðist af ebólu.
Vinson sem er 29 ára smitaðist þegar hún
sinnti ebólusmituðum manni á sjúkrahúsi í
Dallas. Hjúkrunarkonurnar sem smituðust
voru tvær, Amber og Nina Pham, og náðu
báðar fullum bata.
Fyrst til að smitast Spænska hjúkrunarkonan Teresa Romero smitaðist
af ebólu á Spáni og var fyrsta manneskjan sem smitaðist utan Vestur-Afríku. Teresa hafði hlúð
að hjálparstarfsmanni sem smitaðist í Afríku og var fluttur til Spánar til meðferðar. Starfsmað-
urinn lést, en Teresa náði fullum bata og sést hér yfirgefa sjúkrahúsið í nóvember 2014.
Langvarandi áhrif Romeo Doe stendur hér fyrir utan ebólusjúkrahús í Monróvíu. Romeo, sem er 29 ára, smitaðist í
Líberíu og missti sjö fjölskyldumeðlimi úr sjúkdómnum. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að hann fékk að fara heim og mun líklega verða
öryrki vegna fylgikvilla sjúkdómsins. Hann hefur fundið fyrir stöðugum þrýstingi í augum eftir útskrift en það er talið vera hliðarverkun.
Þetta hefur mikil áhrif á sjón hans sem þýðir að hann er óvinnufær en hann starfar sem klæðskeri.
n 23.539 smituðust af ebólu og tæplega tíu þúsund létust n Ebólutilfellum fækkar