Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Page 27
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015 Umræða Stjórnmál 27
Fangelsi í Japan, öll sund lokuð
Eins og menn vita þá fór það svo á
endanum að Bobby var handtekinn
í Japan, vegabréfið tekið af honum
og hann lokaður inni í rammgerðu
fangelsi. Öll sund virtust honum lok
uð, Bandaríkjamenn ætluðu að hafa
sitt fram, eina leiðin fyrir hann út var
fangaflutningur heim til Ameríku
þar sem hans beið hörð refsing og
langur fangelsisdómur. Hann átti sér
auðvitað gamla vini og stuðnings
menn víða um lönd, og líka fólk sem
hreinlega vorkenndi honum – þess
um mikla snillingi sem hafði lokast
og einangrast inni í eigin hugarór
um, þráhyggju og bábiljum. En ekk
ert stjórnvald í heiminum sá sér fært
sér að leggja honum lið. Engin ríkis
stjórn treysti sér til að sýna banda
ríska heimsveldinu fingurinn með
því að veita þessum manni, sem
nú var búið að króa út í horn, ríkis
borgararétt; Japönum kom það ekki
til hugar, og eiga þeir þó ýmislegt
undir sér; engin ríkisstjórn í heim
inum vildi reita bandarísk stjórn
völd til reiði, enda stórveldin vön að
hefna sín grimmilega fyrir slíka sví
virðu, og það við fyrsta tækifæri. Á Ís
landi voru góðir menn að vinna í að
reyna að bjarga Fischer. Formaður
„Robert James Fischernefndarinn
ar“ var móðurbróðir minn og nafni,
Einar S. Einarsson, fyrrverandi for
seti Skáksambandsins. Með honum
voru Sæmi rokk Pálsson, einkavinur
heimsmeistarans, og fleiri gegnheilir
sómamenn. Þeir heimsóttu Fischer í
Japan og ræddu við íslenska forystu
menn, meðal annars Davíð Oddsson
forsætisráðherra.
Pólitíkusar sem láta ekki
formsatriði stoppa sig
Ég man eftir því, þegar við Thor heit
inn Vilhjálmsson vinur minn og fleiri
vorum að stofna Bókmenntahátíð
ina í Reykjavík, að þá var leitað eft
ir styrk úr ríkissjóði. En beiðnin kom
of seint til að geta fengið rétta lög
formlega afgreiðslu það árið. Og var
mönnum vandi á höndum. Albert
Guðmundsson var þá fjármálaráð
herra, en aðalstjarnan í pólitíkinni
var hinn ungi og litríki borgarstjóri
Davíð Oddsson. Thor fékk fund hjá
Albert vegna þessa vandamáls og
sagði eitthvað á þessa leið: „Það eru
tveir stjórnmálamenn á Íslandi sem
þora að bjarga svona málum upp á
eigin spýtur og án þess að láta reglu
gerðafargan þvælast fyrir sér; það
eru Davíð Oddsson borgarstjóri og
Albert Guðmundsson fjármálaráð
herra!“ Albert fannst hrósið gott,
og vildi ekki vera minni maður en
Davíð, og mig minnir að hann hafi
skrifað ávísun á ríkissjóð með eigin
hendi þarna á skrifstofunni og af
hent bókmenntahátíðinni.
Var afskiptanna
af Fischer hefnt?
Hvernig sem þetta var nú nákvæm
lega þá held ég að það sé hafið yfir
vafa að Davíð forsætisráðherra átti
mikinn þátt í því að íslensk stjórn
völd hjuggu á hnútinn, glúpnuðu
ekki af ótta við stórveldið eins og all
ar aðrar ríkisstjórnir heimsins, létu
ekki „reglugerðafargan þvælast fyrir
sér“ heldur sendu Fischer íslenskt
vegabréf, og hingað kom hann og bjó
hér á landi ævidaga sína á enda, laus
undan hrammi bandarísku réttvís
innar.
Hann varð íslenskur ríkisborgari
2005. Og bandarísk stjórnvöld urðu
brjáluð. Þau höfðu verið svikin og
niðurlægð af smáríki! Hvað gat stór
veldið gert? Árið eftir, 2006, lokuðu
þeir reyndar herstöðinni á Miðnes
heiði og kvöddu í fússi, en ljóst var
að það var þeim ekki nægileg hefnd.
Einn vinur minn sem hrærist í al
þjóðaviðskiptum hitti Ameríkana
sem hefur starfað fyrir alríkisstjórn
ina í Washington og er vel kunn
ugur því sem fram fer í utanríkis
þjónustu stórveldisins. Vinur minn
spurði þennan mann hvernig á því
hefði staðið að beiðni íslenska seðla
bankans og ríkisstjórnarinnar um
lánafyrir greiðslu hefði verið svarað
neitandi árið 2008, í aðdraganda al
þjóðlegu bankakrísunnar. Þetta hef
ur verið mönnum ráðgáta æ síðan,
enda sendu stjórnir allra norrænu
ríkjanna þannig beiðni vestur um
haf og öllum hinum ríkjunum bárust
góðfúsleg og jákvæð svör, nema Ís
landi, sem fékk þvert og órökstutt nei.
Öllum til mikillar furðu. Og var þó út
látaminnst fyrir stórveldið að láta ör
ríkinu Íslandi slíka fyrirgreiðslu í té.
Þetta óvænta nei frá Bandaríkjunum
hefur verið talið mjög afdrifaríkt um
það hvernig fór nokkrum mánuðum
síðar; á fundi í Háskólanum nýverið
sagði Hannes Hólmsteinn að ef slík
„lánalína“ hefði verið opin hefðu ís
lensku bankarnir einfaldlega ekki
farið á hausinn, og enginn varð til
að andmæla því á fundinum. Um
ræddur Ameríkani var semsé spurð
ur hverju þetta sætti. Og hann brosti
umburðarlyndur, en þó örlítið hissa
yfir því hvað Íslendingar væru sein
ir að fatta. Sagði svo: „Þið blönduðuð
ykkur freklega í bandarísk innanrík
ismál með því að veita eftirlýstum
glæpamanni ríkisfang. Og það á
enginn að fá að halda að ríki komist
upp með slíkt ókeypis!“ n
Var það út af Bobby Fischer
að bankarnir fóru á hausinn?„Hann varð íslenskur
ríkisborgari 2005.
Og bandarísk stjórnvöld
urðu brjáluð. Þau höfðu
verið svikin og niðurlægð
af smáríki! Hvað gat stór-
veldið gert? Árið eftir,
2006, lokuðu þeir reyndar
herstöðinni á Miðnesheiði
og kvöddu í fússi, en ljóst
var að það var þeim ekki
nægileg hefnd.
Skáksnillingurinn Bobby Fischer „Alla tíð var hann auðvitað mikil og að sumu leyti heillandi ráðgáta.“ mynd reuterS
davíð Oddsson Lét ekki reglugerða-
fargan þvælast fyrir sér.
Vita Biosa PROBIOTIC
M EIRI NÆRINGARUPPTAKA
B ETRI MELTING
B ETRI LÍÐAN
Fæst í: Heilsuhúsinu Kringlunni, Lágmúla, Laugarvegi, Smáratorgi, Selfossi og Akureyri, Gló Fákafeni, Lifandi makaði, Mamma veit best, Heilsuverinu Suðurlandsbraut,
Lyfsalanum Glæsibæ, Lyfjavali Mjódd, Apótekinu í Spöng, Heilsutorginu Blómavali, Græna hlekknum, Systrasamlagið Seltjarnarnesi, Akureyrarapóteki og organic.is
ÁVÍSUN Á BETRI HEILSU 2015
... E IN MEST SELDA GÓÐGERLABLANDA Í DANMÖRKU UNDANFARIN 10 ÁR ...
„Vita Biosa getur haft mikil áhrif
á bakflæði, brjóstsviða, andremmu,
candida, þvagfærasýkingar, niðurgang,
hægðartregðu og margt fleira. Hann hefur
reynst bæði mér og mínum skjólstæðingum
ákaflega vel. Ég mæli hiklaust með daglegri
neyslu hans fyrir fólk á öllum aldri sem vill
koma meltingunni í lag og halda henni í lagi.”
Hallgrímur Þ. Magnússon
Læknir