Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Qupperneq 31
Bjór - Kynningarblað 3 27. febrúar–2. mars 2015 B ruggsmiðjan Kaldi hóf starf- semi sína á Árskógsströnd árið 2006 og var framleiðslu- getan þá 170 þúsund lítrar á ári. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað með hverju ári og er ársfram- leiðslan nú komin upp í 650 þúsund lítra. Starfsmenn eru á bilinu 10 til 12 talsins. Mikil ásókn er meðal hópa, bæði innlendra sem og erlendra, í að skoða verksmiðjuna, en fyrirtækið býður upp á slíkar kynnisferðir. Alls heimsóttu um 8.000 manns verk- smiðjuna á liðnu ári og segir Agnes Sigurðardóttir framkvæmdastjóri að áhugi almennings á að skoða brugg- húss, starfrækt á landsbyggðinni sé mikill. Kaldi framleiðir alls tíu tegundir af bjór, fimm árið um kring og jafn- margar tegundir falla í flokk árstíða- bundnu bjóranna, þeirra sem kom á markað á þorra, um páska, sumar, í október og um jól. Nýr bjór á markað í hverjum mánuði Árið 2015 sendir Kaldi frá sér nýjan bjór á markað, einn í hverjum mánuði. „Fyrstu tveir eru þegar komnir í sölu og hafa viðtökur ver- ið góðar,“ segir Agnes. Bjórinn er eingöngu til sölu á dælu og á þeim veitingahúsum sem selja Kalda. Sigurður Bragi Ólafsson bruggari hjá Bruggsmiðjunni ber hitann og þungann af þróunarvinnunni ásamt öðrum starfsmönnum fyrirtækisins. Sigurður segir að það sé mikið fjör hjá þeim og skemmtilegir tímar fyr- ir bruggara að fá tækifæri til að þróa nýjar vörur, bjóða upp á nýjungar og auka fjölbreytni á markaðinum. Fyrstu tveir á markað eru Kaldi IPA og Kaldi Barley Vine Fyrsti bjórinn á markað er Kaldi IPA, India Pale Ale sem er mjög humlarík- ur bjór. „Þetta er nokkuð beiskur bjór, í honum er fjölbreytt samsetning af humlum, bæði fyrir beiskju og lykt. Það er krefjandi ævin týri fyrir bragðlauk- ana að drekka hann,“ segir Sigurður Bragi, en bjórinn er 7,3% að styrkleika. Bjór- inn kom á markað síðla í janúar og hefur verið vel tekið. Annar bjórinn á markað er Kaldi Barley Vine, sem er kröftugur, með miklu malti og þægilegri beiskju, en bjórinn er 10% að styrkleika. „Þetta er skemmtilegur bjór, rammur og hefur þann eigin- leika að batna með aldrinum. Það kem- ur því vel til greina að brugga meira magn og setja hann á markað aftur síð- ar, þá aðeins eldri,“ segir Sigurður Bragi. Þriðji bjórinn væntanlegur í vor Þriðji bjórinn í röð mánaðarbjóra lítur dagsins ljós á vor- dögum, Kaldi Belgískur Trippel, með 8% alkó- hólmagni, nokkuð sterk- ur en þó mjúkur að sögn bruggarans. „Þessi bjór er í belgíska ölstílnum, í honum er töluvert magn bæði af tékkneskum og belgískum humlum, en til að fá í hann sætu not- um við kandísbrjóstsykur sem er einkennandi fyr- ir þessa tegund og gerir bjórinn frábrugðinn öðr- um,“ segir Sigurður Bragi. Kaldi Imperial Pilsner er eins konar stóri bróðir ljósa Kaldans, sem löng- um hefur notið hvað mestra vin- sælda meðal neyt- enda Kaldabjór- anna. „Hann er á flestan hátt líkur Kalda sem fyrir er á markaði, en er, ef svo má segja, meira af öllu. Þetta er mjúkur bjór með þéttri fyllingu og léttri beiskju og verður 7,7%,“ segir Sigurð- ur Bragi. Fleiri tegundir væntanlegar síðar á árinu Fleiri tegundir eru væntanlegar þegar líður á árið, en þar má nefna Baltic Port- er og Kalda Russian Stout sem báð- ir eru í þróun í verksmiðju Bruggs- miðjunnar um þessar mundir. Sá síðarnefndi gæti að sögn Sigurðar Braga komið á markað næsta vetur og hentar í raun vel þeim árstíma. „Hann er svolítið í þyngri kantinum, við höfum prófað okkur áfram með hann í smáum stíl og framhaldið lof- ar góðu.“ n ragna@dv.is Tveir nýir bjórar komnir á markað Ársframleiðsla Kalda er 650 þúsund lítrar Framleiðslugeta Framleiðslugeta er nú um 650 þúsund lítrar á ári. MyNd RúNAR ÞóR Bruggmeistarinn Sigurður Bragi Ólafsson er 23 ára. MyNd MyNdRúN eFh
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.