Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Síða 35
Kynningarblað - Bjór 7 27. febrúar–2. mars 2015 „Löwenbräu var mest seldi bjórinn á fyrsta söludegi“ Löwenbräu Af þeim átta bjórtegundum sem seldar voru hér á landi er bjórbannið rann sitt skeið þann 1. mars 1989 voru fimm erlendar og þeirra á meðal hið þekkta ljónabrugg eða Löwenbräu. Ljónið sló rækilega í gegn hjá landsmönnum, en eins og Halldór Ægir Halldórsson, markaðsstjóri bjórs hjá Haugen-Grubben segir: „Lövenbräu varð mest seldi bjór landsins, auk þess að vera mest seldi bjórinn á fyrsta söludegi. Í dag er Löwenbräu mest seldi þýski bjór lands- ins,“ segir Halldór. Líkt og svo mörg brugghús í Þýskalandi á Löwen- bräu sér langa og merkilega sögu. Það var stofnað árið 1383, hefur ávallt bruggað samkvæmt þýsku hreinleikalögunum, bjórinn var einn af upprunalegu Októberfest-bjórunum og áfram mætti lengi telja. Í glasi er hann ljósgullinn með stórum skýhvítum haus sem sest fljótt. Í nefi er hann léttur og sætur með snert af korni, grasi, blómum og sítrus. Í bragði er hann léttur með vott af biturleika, meðalfyllingu, milda kol- sýru og létt og sæt/biturt eftirbragð með snert af pipar. Bjór eins og Löwenbräu á fyrst og fremst að vera svalandi, léttur og frískandi og það tekst honum svo sannarlega. Með Löwenbräu fær maður snert af bjór- menningu Íslands eins og hún var þegar banninu var aflétt og hverjum sönnum bjóráhugamanni hlýtur að finnast það áhugavert. Beck's Hinn þýski Beck's er einn af þessum gamalgrónu hlutum íslenskrar bjórmenningar því þótt hann hafi ekki verið einn af hinum uppruna- legu átta, þá var hann orðinn fáanlegur hérlendis seinna árið 1989 og undir lok ársins var hann orðinn þriðji mest seldi bjór landsins. Saga Beck's nær aftur til 1873 þegar brugghúsið Kaiserbrauerei Beck & May var stofnað í Bremen í Þýskalandi. Beck's er bruggaður sam- kvæmt hinum þýsku hreinleikalögum (Reinheitsgebot) frá 1516, en þau eru gamalt skjal sem sagði hvað bjór mætti innihalda og hvað ekki. Skjaldarmerki Beck's líkir eftir skjaldarmerki heimabæjarins Bremen og hefur fast verið haldið um taumana í bruggunarferlinu því aðeins sex bruggmeistarar hafa starfað hjá Beck's í 140 ára sögu bjórsins. Í glasi er Beck's fölgullinn með snjóhvíta froðu. Í nefi eru nettir kryddaðir og grösugir tónar með daufum humlum og því sem best verður lýst sem ferskleika. Í munni eru grösugir og blómlegir tónar með smá biturleika og sætu. Smá sítrus í bakgrunninum. Budweiser Annar af þeim fimm erlendu bjórum sem fáanlegir voru þann 1. mars 1989 var hinn heimsþekkti Budweiser. Bjórþyrstir Íslendingar hafa augljóslega tekið þessum erlendu gestum opnum örmum því heill gámur af Bud- weiser seldist upp á fyrsta degi sölu og var þar með uppseldur. Þessi tiltekni útlendingur hvarf þó síður en svo af sjónarsviðinu enda hefur Budweiser verið fyrirferðarmikill í bjórdrykkju landans allar götur síðan. Hinn bandaríski Budweiser á uppruna sinn að rekja til Belgíu, Tékkóslóvakíu sem var, og Þýskalands, en kom til Bandaríkjanna árið 1876. Á þeim tíma var gríðarleg bjórframleiðsla í Bandaríkjunum og hafði verið allt frá lokum frelsisstríðsins. Bjórinn var bruggaður í hinu sögufræga Anheuser-Busch brugghúsi og varð fljótt einn sá mest seldi í Bandaríkj- unum. Í dag er hann kominn skrefinu lengra og er sá mest seldi í heim- inum. Í glasi er Budweiser fölur lagerbjór, afar ljósgulur á lit, með ský- hvítan froðutopp. Í nefi er lítil lykt, en þó vottar fyrir grösugu korni og humlatónum. Í munni er vottur af korni, grösugir tónar og votti af leðri. Lítil fylling. Líkt og með Löwenbrau á bjór eins og Budweiser fyrst og fremst að vera svalandi og frískandi. Budweiser er bjór sem maður opnar á heitum sumardegi, standandi yfir grillinu. Budweiser er bjór sem maður opnar yfir boltanum með strákunum. Félagarnir komnir saman á laugardegi að grípa sér pítsusneið og horfa á enska. Klassík. Leffe Samhliða bjórvakningu síðustu ára hafa sérbjórar og fínna öl loks hlot- ið þá virðingu sem það á skilið. Slíkir bjórar eru gjarnan framleiddir í smærra upplagi þar sem haldið er í gamlar hefðir. Af klausturbjórum gamla heimsins hlýtur Leffe að teljast til þeirra þekktustu og vinsæl- ustu. Sögu Leffe má rekja aftur til 1152 þegar klaustrið Notre-Dame de Leffe var stofnað við Meuse-ána í suðurhluta Belgíu. Þar nýttu munkarnir nærliggjandi hráefni á borð við vatnið úr ánni og jurtir í skógum til að brugga bjór sem þótti einstakur og var aðeins fá- anlegur í klaustrinu. Ein helsta ástæðan fyrir bjórbruggun innan klaustursins var mikill og stöðugur gestagangur, en líkt og með önnur klaustur á þessum tíma var Leffe byggt í alfaraleið milli bæja og tók reglulega á móti pílagrímum og öðrum ferðalöngum í gistingu og uppihald. Þetta var jafnframt tími mikilla farsótta og menn vissu að vatn gat verið hættulegt en bjórinn var örugg- ur til drykkju. Í gegnum tíðina hefur ýmislegt gengið á og hefur Leffe-klaustrið meðal annars lent í flóði, eldsvoða og nokkrum styrjöldum. Það var eyðilagt í frönsku byltingunni og fór illa út úr báðum heimsstyrjöldum, en alltaf var það endurreist og munkarnir héldu ótrauðir áfram. Hér á landi má finna tvær tegundir af Leffe, Brune og Blonde eða dökkan og ljósan. Brúni er dökkur í glasi með þykkan froðutopp sem gjarnan einkennir klausturbjór. Í nefi er þetta einkennandi klausturger sem gefur sæta ávaxtaríka og kryddaða tóna en einnig nett korn. Í munni er bjórinn sætur og manni detta í hug dökkir ávextir, hnetur, karamella og smá súkkulaði. Ljósi er, eins og nafnið gefur til kynna, ljósari eða gulltóna með fallega beinhvíta froðu. Í nefi má greina korn og humla auk smá sýru og mildra ávaxta. Í munni er hann léttur með milda, beiska tóna, smá sætu og blómlega létta ávexti. Hoegaarden Hoegaarden er hinn fullkomni sumarbjór, léttur og svalandi í hitanum. Í raun má segja að Hoe- gaarden sé sá fyrsti sinnar tegundar, en það var í samnefndu þorpi í flæmsku Belgíu sem bruggun hinna ofurléttu hvítbjóra (witbier), sem Hoe- gaarden tilheyrir, hófst fyrst, árið 1445. Það sem einkennir þennan stíl er að til að bragðbæta er ýmist ekki notast við humla eða aðeins í litl- um mæli. Notast var við ýmiss konar krydd, jurtir og ávexti en seinna meir varð það staðl- að að nota appelsínur og kóríander, í bland við humla, við bruggum witbier. Hoegaarden er fölgulur á lit með snjóhvíta froðu. Í nefi má greina þessa klassísku witbier-lykt á borð við banana, negul, kóríander og kardimommur í bland við daufan sítrus. Í munni er nettur hveitikeimur í bland við appelsínur og skemmtilega óræða kryddaða tóna. Franziskaner Góðir hveitibjórar eru sérstök listgrein og skiptast þeir í tvo meginflokka, hina belgísku witbier og hina þýsku weissbier. Munurinn liggur í krydduninni þar sem witbier á borð við Hoegaarden er bragðbættur með appelsínum og kóríander, á meðan gerið í þeim þýsku er í aðalhlutverki. Sögu Franziskaner-bjórsins má rekja alla leið aftur til 1397 þegar brugghúsið Welser Prew var stofnað í München við Franciscan-klaustrið. Franziskaner bjórinn hefur lengi gert mikið úr þessari fornu tengingu við klaustrið og munkana og núverandi flöskuút- lit hefur verið notað síðan 1935. Á Íslandi má fá tvær tegundir frá Franziskaner, hinn ljósa hveitibjór Franziskaner Hefe-Weissbier og hinn dökka hveitibjór Hefe-Weissbier Dunkel. Sá ljósi er dökkgullinn í glasi með perluhvíta froðu. Í nefi má greina klassíska hveitibjóratóna á borð við banana og smá kúlutyggjó, en þarna er einnig ljóst malt og nettir kryddaðir tónar á borð við negul. Í munni má greina ljósa maltaða sítrustóna og nett fransbrauð. Sá dökki er, eins og nafnið gefur til kynna, brúnleitur í glasi með ögn gulleita froðu. Í nefi má finna ristað hveiti og ristað malt, dökkt brauð og smá karamellu. Í munni fá finna svipaða tóna og í lyktinni, dökkt brauð, dökka ávexti og smá beiskju. Báðir eru ljómandi skemmtileg dæmi um hvað gera má góðan bjór úr hveiti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.