Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Qupperneq 44
36 Lífsstíll Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
Rasistadeit Koddahjal
Umsjón: Sirrý Margrét Lárusdóttir
og Smári Pálmarsson
S
æl Ragga.
Ég er bæði vondauf og ráða-
laus og finnst eins og engin
lausn finnist á vandamáli
mínu. Ég vona samt að þú
eigir einhver ráð fyrir mig. Fyrir
tveimur árum skildi ég og á sama
tíma skildi besti vinur minn við kon-
una sína. Við erum bæði rúmlega
fertug. Upp úr því varð ég hrifin af
besta vini mínum og rómantíkin
blómstraði milli okkar. Við eigum
sameiginlegt áhugamál sem við
sinnum á fullu, hann er skemmtileg-
ur og hinn fullkomni félagi.
Biðum með kynlífið
Við byrjuðum ekki strax að stunda
kynlíf og mér fannst bara pínu
spennandi að bíða. Þegar það loks
gerðist fékk hann ekki standpínu
og þetta gekk illa en hann bjarg-
aði sér fyrir horn með ansi mögnuð-
um munnmökum. Ég gaf þessu samt
séns – sagði sjálfri mér að þetta væri
stress og ekkert að marka. Ég neitaði
að trúa því að þegar ég hafði loksins
fundið mér fullkominn félaga væri
kynlífið ekki að ganga upp. Hann var
auðvitað líka miður sín og ég sagði
að við skyldum bara gefa þessu góð-
an tíma.
Svo fórum við að búa saman.
Hann flutti til mín með brotna ung-
lingsstúlku og ég á einn lítinn strák
sem er mikill gleðibolti. Allt small
saman um leið og fjölskyldulíf-
ið gengur eins og í sögu. Við erum
meira að segja samtaka um skipt-
ingu verka á heimilinu og okkur þyk-
ir rosalega vænt um hvort annað.
Þoli ekki þetta lessukynlíf
En kynlífið gengur ekki – hann full-
yrðir að þetta hafi ekki verið vanda-
mál í hans fyrra sambandi, sem mér
finnst skrýtið en held samt að hann
segi satt. Hann er búinn að ganga í
gegnum ítarlegar læknisrannsókn-
ir og það er ekkert að honum líkam-
lega enda er hann í mjög góðu lík-
amlegu formi. Ég lifi bara einhverju
lessukynlífi og er að tryllast yfir því.
Mig langar að berja hann þegar ég
finn þetta grautlina typpi.
Ég er búin að reyna að sjúga
hann, nudda hann, sýna honum
klámmyndir, klæða mig sexý – ekkert
dugar. Stundum nær hann honum
upp í smá tíma en svo lyppast hann
aftur niður inni í mér. Nú langar mig
ekki í hann lengur, því ég verð alltaf
fyrir vonbrigðum – mér finnst hann
kyndaufur og fyrirsjáanlegur. Mín-
ar tilfinningar eru örugglega ekkert
að hjálpa honum heldur – ég er búin
að missa trúna á að þetta muni lag-
ast. Hann er duglegur að knúsa mig
og nudda sem mér finnst gott en um
leið og snertingin verður kynferðisleg
langar mig ekki lengur.
Örugg, sexí og gröð
Sem betur fer er ég nokkuð örugg með
sjálfa mig. Ég lít vel út og er í góðri
þjálfun – ég er sexí og mikil kynvera,
fæ auðveldlega fullnægingar og get
suma daga orðið brjálæðislega gröð.
Núna vel ég frekar að stunda kyn-
líf með sjálfri mér heldur en að leita á
hann. Ég viðurkenni að ég er farin að
horfa á aðra karlmenn – bara af því
að mig langar að fá almennilega að
ríða, verða tekin og fá það almenni-
lega. Ég mundi samt aldrei vilja
halda fram hjá honum. Á milli okkar
er of mikið traust til þess að ég gæti
nokkurn tíma farið á bak við hann.
Komin að því að kýla hann
Staðan er svona: Ég get ekki hugs-
að mér að enda þetta samband,
mér hefur aldrei fundist ég jafn ör-
ugg á ævinni, ég finn ég er elskuð, ég
er fjárhagslega örugg, ég á yndislegt
fjölskyldulíf. Ég get ekki hugsað mér
að splundra tilveru barnanna okkar
sem blómstra þannig að eftir því er
tekið allt í kringum okkur.
Ég get samt ekki hugsað mér að
lifa áfram við þetta kynlífsleysi – enn
ein misheppnuð tilraun og ég kýli
hann. Þessi brjálæðislega reiði sem
komin er í mig er mér líka óskiljanleg
– kannski er mælirinn bara orðinn
fullur. Hvað get ég gert? Kær kveðja,
Alfríður
Kæra Alfríður.
Úr vöndu er að ráða. Í samböndum
er oft einhver fórnarkostnaður – en
að fórna kynlífi fyrir smá nudd og
átakalausa verkaskiptingu er líklega
ásættanlegt fyrir fáa. Hér vil ég þó
taka fram að ég hvet fólk iðulega til
að einblína ekki á samfarir sem upp-
haf og endi alls í gagnkynhneigðu
kynlífi – en það er ljóst á bréfi þínu
að þú vilt láta ríða þér og engar refjar.
Þú tekur ekki fram hvort
náunginn er búinn að prófa stinn-
ingarlyf. Ef hann laðast að þér og
verður graður ætti það að virka eins
og bráðið smjör á humar. Í guðanna
bænum, ræðið þetta við heimilis-
lækninn í næstu heimsókn. Hann er
alls ekki of ungur til að stinningarlyf
geti gagnast – og það er svo sannar-
lega engin skömm að slíku.
En er hann að segja satt? Gæti
eitthvað annað búið hér að baki?
Gredda er órætt og afstætt fyrirbæri
og flestir sem hafa reynslu af lengri
samböndum hafa upplifað misræmi
sem hefur neikvæð áhrif á kynlífið.
Hann gæti verið í lægð – en hann
gæti líka verið með öllu ógraður.
Rúnkar hann sér til að mynda? Hef-
ur hann áhuga á einhverju kynlífi?
Ef þetta á fyrir þér að liggja og þú
vilt ALLS ekki slíta sambandinu gæt-
uð þið íhugað að opna sambandið
þannig að þú fengir þínar líkamlegu
þarfir uppfylltar annars staðar. Sam-
bönd eru alls konar og í sumum til-
fellum er svo margt annað en kyn-
lífið mikilvægt að fólk finnur viðlíka
lausnir til þess að allir lifi af. Ef það
er gjörsamlega út úr myndinni verð-
ur þú bara að hætta að væla og fá þér
lögulegan gervilim.
Bestu kveðjur og ég vona sannar-
lega að þið finnið lausnina sem
virkar fyrir ykkur, Ragga n
n Allt gengur upp nema kynlífið n Konan er að gefast upp„Ég er sexí og mikil
kynvera, fæ auð-
veldlega fullnægingar
og get suma daga orðið
brjálæðislega gröð.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Misræmi í greddu
Er í lagi að fórna
kynlífinu ef allt annað
gengur upp?
Hatar þetta grautlina typpi
Lostavakar í
helgarmatinn
Ertu að spá í eitthvað sniðugt til að
hafa í helgarmatinn? Ýmsar fæðu-
tegundir hafa orð á sér fyrir að auka
á losta hjá þeim sem leggja sér þær
til munns. Hér eru nokkrar sem
þið ættuð að prófa: Chili-ávöxtur
- inniheldur efnið capsacin sem
þekkt er fyrir að auka blóðflæði og
örva taugaboð. Avókadó - hefur að
geyma ríkulegt magn E-vítamíns
en það hefur örvandi áhrif á fram-
leiðslu hormóna eins og testó-
steróns, sem er lykilþáttur í kynörv-
un hjá báðum kynjum. Granatepli
- eru rík af andoxunarefnum sem
hvetja til aukins blóðflæðis. Gott
blóðflæði eykur næmni í kynfær-
um. Lax - fullur af omega-3 fitusýr-
um sem tryggja heilbrigða fram-
leiðslu kynhormóna.
Með ofangreint á matseðlin-
um ætti helgin að verða safarík hjá
lesendum Kynlífspressunnar!