Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Síða 46
38 Skrýtið Sakamál Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
w
w
w
.z
en
b
ev
.is
-
U
m
b
o
ð
: v
it
ex
e
h
f
Betri dýpri svefn - Engin eftirköst eða ávanabinding
100% náttúruleg, lífræn fæða án aukaefna
Vísindaleg sönnun á virkni
ZenBev er einstök blanda innihaldsefna, hrein graskersfræ hafa ekki sömu áhrif
Streitulausir dagar og fr iðs ælar næ tur - Fæst í apótekum og heilsubúðum
Melatónin - Seratónin
Tvöföld virkni - Vellíðan dag og nótt
Náttúrulegt Triptófan
úr graskersfræjum
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
NÝTT
Komið aftur
fyrri sending
seldist upp
N
ítján ára piltur í ríkisháskól-
anum í Illinois í Chicago-
borg í Bandaríkjunum,
Mohammad Hossain, hefur
verið ákærður fyrir kynferðislegt
ofbeldi gegn samnemanda sínum.
Sjálfur segist hann hafa verið að
endurgera atriði úr kvikmyndinni
„Fifty Shades of Grey“ með sam-
þykki stúlkunnar, sem einnig er
nítján ára. Chigaco Tribune grein-
ir frá þessu.
Atvikið átti sér stað síðastliðinn
laugardag. Hossain á að hafa bund-
ið hendur stúlkunnar við rúmið
fyrir ofan höfuð með belti. Annað
belti hafi hann notað til að binda
fæturna á henni og síðan stungið
hálsbindi upp í munninn á henni.
Eftir að hafa afklætt stúlkuna byrj-
aði Hossain að slá hana í líkamann
með belti. Eftir að hafa slegið hana
nokkrum sinnum bað stúlkan hann
um að hætta, hristi höfuðið og grét.
Hossain hélt hins vegar áfram að
berja stúlkuna, meðal annars með
hnefunum, eins og fram kemur í
lögregluskýrslu. Þegar hún náði að
losa á sér hendurnar mun hann
hafa haldið þeim niðri og beitt
hana kynferðislegu ofbeldi. Stúlkan
náði að flýja þegar herbergisfélagi
Hossains kom heim og hringdi hún
strax í lögreglu. n
Neitaði að hætta
í BDSM-leik
Nítján ára piltur ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi
Ákærður fyrir kynferðisofbeldi
Pilturinn segist hafa verið að endurgera
atriði úr kvikmyndinni „Fifty Shades of
Grey“ með samþykki stúlkunnar.
Í
apríl 2008 var mexíkósk kona,
Juana Barraza, dæmd til 759 ára
fangelsisvistar. Juana var sak-
felld fyrir að hafa banað nokkrum
öldruðum konum. Fyrsta morðið
sem henni var eignað var framið
seint á tíunda áratug síðustu aldar,
en sögum ber ekki saman um ná-
kvæma dagsetningu. Almennt er
talið að Juana hafi framið á bilinu
24 til 49 morð. Fórnarlömbin voru
flestöll eldri konur og fyrir vikið fékk
Juana viðurnefnið „La Mataviejitas“,
morðingi aldraðra kvenna.
Uppruni og bernska
Juana Barraza fæddist í Hidalgo,
strjálbýli norður af Mexíkó-borg, árið
1958. Hún átti vægast sagt ömur lega
bernsku; móðir hennar var alkó-
hólisti og segir sagan að hún hafi
veitt karlmanni einum ítrekað heim-
ild til kynmaka við hana, gjaldið var
þrír bjórar fyrir hvert skipti. Um síð-
ir varð Juana barnshafandi og ól son.
Juana eignaðist fjögur börn allt í
allt en frumburður hennar beið bana
í ránárás. Juana heillaðist síðar af
„lucha libre“, mexíkóskri glímu þar
sem glímuklæddir keppendur með
undarleg nöfn takast á í uppgerðar-
átökum, að sögn þeirra sem til þekkja.
Strembin leit
Sem fyrr segir einbeitti Juana sér
að eldri konum og voru öll hennar
fórnar lömb eldri en sextugt og
bjuggu ein. Alla jafna fyrirkom Juana
konunum með því að annaðhvort
kyrkja þær eða berja til dauðs.
Yfirsaksóknari Mexíkó- borgar,
Bernardo Bátiz, sagðist telja
morðingjann „þrælgáfaðan, nokkuð
snjallan og varkáran“. Sagði Bernardo
að líklega kæmi morðinginn sér í
mjúkinn hjá fórnarlömbunum og
öðlaðist traust þeirra áður en hann
léti til skarar skríða.
Vegna þess hve misvísandi all-
ar vísbendingar voru reyndist leitin
að morðingjanum æði flókin. Á ein-
um tímapunkti var lögreglan sann-
færð um að um tvo morðingja væri
að ræða. Einnig lenti lögreglan á villi-
götum þegar rannsókn leiddi í ljós
að þrjú fórnarlambanna höfðu átt
eftirprentun af „The Boy in the Red
Vest“ eftir franska 18. aldar málarann
Jean-Baptiste Greuze. Þar ku hafa
verið um einfalda tilviljun að ræða.
Yfirvöld gagnrýnd
Hvorki gekk né rak í rannsókn lög-
reglunnar og sumarið 2005 voru yf-
irvöld gagnrýnd harkalega fyrir
að hafa afgreitt þá staðreynd að
raðmorðingi gekk laus í Mexíkó-borg
sem „fjölmiðlafár“. Ekki bætti úr skák
þegar lögreglan réðst gegn samfélagi
klæðskiptinga í vændi af slíku offorsi
að fólki fannst nóg um. Þær aðgerðir
skiluðu engu.
Í nóvember það ár sendu yfirvöld
frá sér yfirlýsingar vitnis sem gáfu
ástæðu til að ætla að morðinginn
klæddist kvenmannsfötum til að
komast inn til fórnarlambanna. Í
einu tilviki sást til stórvaxins kven-
manns í rauðri blússu yfirgefa heim-
ili myrtrar konu.
Þann 25. janúar 2006 hljóp á snær-
ið hjá lögreglunni þegar tókst að hafa
hendur í hári manneskju sem hljóp
sem fætur toguðu frá heimili síðasta
fórnarlambs raðmorðingjans, Önu
Maríu de los Reyes Alfaro, 82 ára,
sem hafði verið kyrkt.
Kona með krafta í kögglum
Það kom mörgum í opna skjöldu
að ekki var um karlmann að ræða
heldur kvenkyns glímukappa, Juönu
Barraza, sem var betur þekkt sem
„Hljóðláta daman“.
Reyndar höfðu vitni áður lýst
meintum morðingja sem kraftalegri
konu og lögreglan leitað í samfé-
lagi klæðskiptinga. Lögreglan viður-
kenndi síðar að Juönu svipaði til
samsettra mynda sem gerðar höfðu
verið eftir lýsingum vitna.
Fingraför Juönu fundust, að sögn
saksóknara, á vettvangi að minnsta
kosti tíu morða af þeim 40 sem voru
eignuð henni.
Juana ku hafa játað á sig morðin
á Önu Maríu de los Reyes Alfaro og
þremur öðrum konum, en neitaði
aðild að öllum hinum.
Réttarhöld og dómur
Vorið 2008 var réttað yfir Juönu og
sakaði ákæruvaldið hana um allt
að 40 morð. Þá játaði hún eingöngu
á sig morðið á Önu Maríu og sagði
ástæðuna hafa verið langvarandi
vanþóknun hennar á móður sinni
fyrir að hafa leyft því ofbeldi sem hún
sætti í bernsku að viðgangast.
Þann 31. mars var Juana sakfelld
fyrir 16 morð og innbrot. Dómurinn
var kveðinn upp í apríl og var Juana,
sem fyrr segir, dæmd til 759 ára fang-
elsisvistar. Í Mexíkó er sá háttur hafð-
ur á að dómar eru afplánaðir sam-
tímis, ekki í framhaldi hver af öðrum,
og því mun Juana að öllum líkindum
dvelja í heildina um 60 ár á bak við
lás og slá. n
759 ára fangelsisdómur
n Morðingja aldraðra kvenna tókst að forðast laganna verði í langan tíma
Hljóðláta daman Juana Barraza var
þekkt glímukona.
Í höndum réttvísinnar
Vitni höfðu lýst Juönu sem
kraftalegri konu.
„Yfirsaksóknari
Mexíkó-borgar,
Bernardo Bátiz, sagðist
telja morðingjann „þræl-
gáfaðan, nokkuð snjallan
og varkáran“