Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Síða 47
Skrýtið 39Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015
LEIKURINN OKKAR
FYRSTI VINNINGUR STEFNIR Í 90 SÖGULEGAR MILLJÓNIR L AUGARDAGINN 28. FEBRÚAR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
7
6
0
2
Á EKKI AÐ SKELLA SÉR Á MIÐA?
Elstu EinEggja
tvíburar hEims
Systurnar Florence Davies og Glenys Thomas hafa alla tíð verið óaðskiljanlegar
s
ysturnar Florence Davies
og Glenys Thomas eru
elstu eineggja tvíburasystur
heims. Þær eru 103 ára að
aldri. Leiðir þeirra systra
hafa ekki skilið í ríflega heila öld.
Systurnar fæddust árið 1912,
árið sem Titanic sökk, og hafa á
langri ævi upplifað tvær heims-
styrjaldir, gífurlegar samfélags-
breytingar; samgöngu- og tækni-
framfarir. Þrátt fyrir þetta hafa þær
aldrei farið af bæ. Þær hafa alla
tíð búið í litlum bæ, Abertridwr í
Caerphilly í Wales.
Aldrei til útlanda
Fjölskylda systranna er þess fullviss
að þær séu elstu eineggja tvíburar
í heiminum og segja að langlífi
þeirra sé að þakka kyrrlátu og ró-
legu lífi þeirra. Daily Mail hefur
eftir Gwendu Stacey, 65 ára dóttur
Glenys, að hvorki móðir sín né
frænka hafi nokkru sinni ekið bif-
reið. „Þær fóru aldrei til útlanda en
hafa alltaf verið hamingjusamar og
ánægðar.“ Gwenda rifjar upp frá-
sagnir móður sinnar frá því úr æsku.
„Afi minn var námuverkamaður og
mjög handlaginn. Hann smíðaði
leikföng fyrir stelpurnar sínar og
móðir þeirra, amma mín, saumaði
föt. Lífið snerist um kirkjuna og
samfélagið sem þau bjuggu í. Mað-
ur varð að hugsa um samfélagið því
það var ekki á allra færi að ferðast.“
Ólust upp við guðsótta
Þær systur fengust báðar við þrif
á starfsævi sinni; þær þrifu heim-
ili ríka fólksins. „Þeim stóð ekki
til boða að sækja skemmtanir eða
haga sér eins og unglingar gera.
Foreldrar þeirra voru mjög trúaðir
og þær ólust upp við guðsótta.“
Árið 1932 flutti Glenys að heiman.
Þá giftist hún námuverkamanni en
þau gátu ekki eignast barn. Þess
vegna ættleiddu þau Gwendu.
Maðurinn hennar, William
Scrivens, lést 67 ára gamall en hún
giftist öðrum manni þegar hún var
sextug. Florence flutti að heiman
tveimur árum á eftir Glenys og gift-
ist manni sem lést þegar hann var
48 ára. Hún gifti sig ekki aftur.
Gwenda segir að þær systur
hafi fyllst aðskilnaðarkvíða þegar
sú fyrri flutti að heiman. Þær
voru vanar að vera alltaf saman.
Úr varð að þegar Florence flutti
líka að heiman keypti keypti hún
næsta hús við systur sína. Öll sín
hjúskapar ár lifðu þær hlið við hlið.
Þær ólu börnin sín upp saman,
versluðu saman og elduðu matinn.
Ellin segir til sín
Á tíræðisaldri fór ellin að segja
til sín og systurnar fluttu á hjúkr-
unarheimili. „Mamma og Flo voru
alltaf svo sjálfstæðar og duglegar. Á
níræðisaldri tóku þær enn saman
strætisvagn til að fara að versla.
Þeir vildu líta vel út og keyptu oft
eins föt,“ segir Gwenda og bætir við
að þær hafi alla tíð hugsað hvor um
aðra. „Það var stöðugur samgangur
á milli heimila. Við vorum ein stór
fjölskylda,“ segir hún en bætir við
að auðvitað hafi stundum kastast í
kekki, eins og gerist hjá öllum, en
það hafi aldrei bitnað á börnunum.
Nú búa þær systur í herbergj-
um hlið við hlið, og það er innan-
gengt á milli. Gwenda segir að sam-
búðin gangi vel ef frá er talið óþol
Florence fyrir söng systur sinnar.
Ellihrörnun gerir það að verkum
að verkum að hún kyrjar stöðugt
velskt lag sem hún lærði í barna-
skóla, Calon Lan. „Líkamleg heilsa
þeirra er ennþá góð en það er hug-
urinn sem er að fara. Þær virðast
stundum fjarlægar og muna ekki
eftir fjölskyldumeðlimum. Þær
spyrja þó enn hvor um aðra. Á milli
þeirra eru enn sterk bönd.“ n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Óaðskiljanlegar
Systurnar hafa átt hvor
aðra að í meira en heila
öld. MynD WAlEs nEWs sErvicE
„Það var
stöðugur
samgangur á milli
heimila. við vorum
ein stór fjölskylda.
t
uttugu og ára Bandaríkjamað-
ur, Thomas Standley, á yfir
höfði sér ákæru fyrir að ráð-
ast á kærustuna sína, Willie
Frances Robinson, sem er 92 ára.
Standley var handtekinn á miðviku-
dag eftir að dóttir Willie, sem býr í
næsta húsi við þau, heyrði móður
sína öskra.
Þegar hún fór yfir til að athuga
með ástand móður sinnar brást
Standley hinn versti við og ýtti henni
úr dyragættinni. Þá hringdi dóttirin á
lögreglu.
Að því er Huffington Post greinir
frá fór kærustuparið að rífast vegna
þess að Willie var treg til að taka lyfin
sín þennan daginn. Rifrildið vatt upp
á sig og er Standley sagður hafa sleg-
ið Willie og ráðist á hana með ofbeldi.
Til að bæta gráu ofan á svart var þetta
ekki í fyrsta skipti sem Standley beitir
kærustu sína ofbeldi, að sögn Willie,
sem sagðist vera hrædd og ekki þora
að yfirgefa kærasta sinn.
Standley var færður í fanga-
geymslur lögreglu þar sem hann er
enn í haldi. Verði hann fundinn sek-
ur um ofbeldi gæti hans beðið refsi-
vist í fangelsi. n
réðst á 92 ára
gamla kærustu
Árásarmaðurinn er innan við þrítugt