Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Blaðsíða 49
Sport 41Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015 6 Tottenham Gæti keypt: Varnarmann Gæti einnig skoðað: Miðjumenn Möguleg skotmörk: Ignacio Camacho og Morgan Schneiderlin Tottenham á enn ágæta möguleika á fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni þó að sá draumur hafi fjarlægst nokkuð að undanförnu eftir tap gegn Liverpool og jafntefli gegn West Ham. Liðið er vel mannað framarlega á vellinum þar sem Harry Kane og Christian Eriksen eru fremstir meðal jafningja. Liðið hefur þó á köflum átt í talsverðu basli í varnarleiknum eins og sést á fjölda marka sem liðið hefur fengið á sig. Liðið hefur fengið á sig 36 mörk sem er meira en lið á borð við Hull og Sunderland hafa fengið á sig. Tottenham gæti þurft á öflugum leiðtoga að halda í miðja vörnina. Tottenham hefur verið orðað við nokkra miðjumenn að undanförnu þótt liðið sé með marga slíka í sínum röðum. Talið er að félagið fylgist vel með Ignacio Camacho, leikmanni Malaga á Spáni, og þá er löngu vitað að Mauricio Pochettiono, stjóri liðsins, hefur mikinn áhuga á sínum gamla lærisveini hjá Southampton, franska miðjumanninum Morgan Schneiderlin. Þetta þurfa stórliðin að gera fyrir næsta tímabil United þurfa að kaupa miðvörð en Arsenal varnarsinnaðan miðjumann 4 Manchester United Gæti keypt: Varnarmann Gæti einnig skoðað: Sóknarmann og miðjumann Möguleg skotmörk: Mats Hummels, Aymeric Laporte, Paul Pogba og Robert Lewandowski Þó að United sé í 4. sæti úrvalsdeildarinnar og í harðri baráttu um sæti í Meistara- deildinni að ári verður ekki framhjá því horft að spilamennska liðsins í vetur hefur á heildina litið verið slök. Það er ljóst að United þarf á frekari liðstyrk að halda til að blanda sér í baráttuna um Englandsmeistaratitilinn að nýju. Vörn liðsins hefur á köflum verið brothætt og hafa tíð meiðsli í varnarlínunni ekki bætt úr skák. Þegar Rio Ferdinand og Nemanja Vidic fóru frá félaginu í fyrrasumar hvarf gríðarleg reynsla og tókst forsvarsmönnum United ekki að fylla þau skörð sem Vidic og Rio skildu eftir sig. Forgangsatriði í sumar hlýtur að vera að finna leiðtoga í miðja vörnina og jafnvel nýjan hægri bakvörð þar sem vængmaðurinn Antonio Valencia hefur spilað lengst af í vetur. Þá hafa Robin van Persie og Radamel Falcao ekki fundið sig í framlínu United í vetur og þykir ólíklegt að United splæsi í Falcao sem er í láni hjá félaginu frá Monaco. United hefur verið orðað við Robert Lewandowski, framherja Bayern München. United hefur einnig verið orðað við nokkra miðjumenn. Ber þar helst að nefna Paul Pogba, leikmann Juventus, og Kevin Strootman, leikmann Roma. Sá síðarnefndi er að vísu frá vegna slæmra hnémeiðsla. 5 Liverpool Gæti keypt: Miðjumann Gæti einnig skoðað: Framherja Möguleg skotmörk: Miralem Pjanic, Radja Nainggolan, Danilo, Alvaro Morata Liverpool hefur rétt úr kútnum að undan- förnu eftir afleita byrjun á tímabilinu. Liðið er taplaust á þessu ári og virkar í mjög fínu standi. Brendan Rodgers, stjóri liðsins, þarf þó að huga að nokkrum þáttum fyrir næsta tímabil. Ljóst er að Steven Gerrard yfirgefur herbúðir félagsins í sumar og þarf Rodgers að finna öflugan mann í hans stað. Joe Allen er ekki í uppáhaldi hjá stuðnings- mönnum liðsins og gæti liðið þurft á öflugri manni að halda við hlið Jordans Hend- erson, sérstaklega þar sem Lucas hefur verið gjarn á að meiðast. Miralem Pjanic, leikmaður Roma, hefur verið nefndur sem hugsanlegur arftaki Gerrards og þá hefur liðið verið orðað við ungan varnarsinnaðan leikmann, Danilo, sem leikur með Braga í Portúgal. Þá er óvíst hvað Rodgers gerir við framherjana þrjá; Rickie Lambert, Mario Balotelli og Fabio Borini. Enginn þeirra hefur náð sér á strik í vetur og gæti vel farið svo að Liverpool freisti þess að fá ferska fætur í framlínuna í sumar. Belginn ungi, Divock Origi, mun þó koma til félagsins frá Lille en spurningin er hvort hann sé tilbúinn strax. Liverpool hefur verið orðað við Alvaro Morata, framherja Juventus, að undanförnu. L iverpool og Manchester City mætast í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Segja má að leik- irnir á laugardag séu aðeins upphitun fyrir það sem koma skal á sunnudag þegar þrír hálfgerðir stór- leikir fara fram. Leikur Liverpool og Manchester City hefst í hádeginu á sunnudag. Liverpool hefur ekki tapað í tíu úrvalsdeildarleikjum í röð, eða síðan liðið steinlá gegn Manchester United á Old Trafford í desember. Þrátt fyr- ir gott gengi að undanförnu er Liver- pool í 6. sæti deildarinnar með 45 stig en Manchester City er í 2. sæti með 55 stig. Leikurinn hefst klukkan 12 á hádegi á sunnudag. Klukkan 14.05 fer fram leikur Arsenal og Everton í London. Arsenal hefur verið á fínu skriði undanfarna vikur og situr í 3. sæti deildarinnar með 48 stig. Hjá Everton hefur hins vegar allt gengið á afturfótunum að undanförnu og er liðið í 12. sæti með 28 stig og hvergi nærri sloppið við falldrauginn. Chelsea og Tottenham fá frí í úrvalsdeildinni um helgina en þau mætast í úrslitaleik enska deilda- bikarsins klukkan 16 á sunnudag. Á laugardag mætir Manchester United Sunderland og þarf United nauðsynlega á sigri að halda í bar- áttunni um 4. sætið. United er með 47 stig í 4. sætinu en Southampton, Liverpool og Tottenham anda ofan í hálsmálið á Louis van Gaal og félög- um. Sunderland þarf einnig að fara að hala inn stig en liðið er í 16. sæti deildarinnar með 25 stig, þremur stigum frá fallsæti. n Risaleikur á Anfield n Ofursunnudagur í enska boltanum n Liverpool tekur á móti Manchester City Hvað gerir Sterling? Raheem Sterling hefur skorað sex mörk og lagt upp sjö í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Hvað gerir hann gegn City?. Vissir þú … … að Aston Villa er eina liðið í úrvalsdeildinni sem ekki hefur fengið víti á leiktíðinni? .… að Southampton er eina liðið í úrvalsdeildinni sem hefur ekki fengið dæmt á sig víti á leiktíðinni? … að aðeins Fraser Forster (12) og Ben Foster (10) hafa haldið oftar hreinu í úrvalsdeildinni en Simon Mignolet (9)? … að Liverpool hefur nú haldið hreinu í fimm útileikjum í röð í úrvalsdeildinni í fyrsta skipti síðan 1985? … að 17 prósent marka Leicester á leiktíðinni hafa verið skoruð gegn Liverpool? … að Everton hefur aðeins skor- að tvö mörk á síðustu 590 mínútum í úrvalsdeildinni? … að Joey Barton hjá QPR hefur fengið spjald í síðustu átta leikjum sínum í úrvalsdeildinni, sjö gul og eitt rautt? … að það tók Wayne Rooney, leikmann Manchester United, 560 mínútur að koma skoti á markið á árinu 2015? Það gerðist í síðasta deildarleik. Rooney til vorkunar hefur hann að mestu spilað á miðjunni að undanförnu. Verstu töpin Arsenal undir stjórn Wengers Arsenal tapaði illa gegn Monaco á heimavelli, 3–1, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meist- aradeildarinnar. Flestir bjugg- ust við sigri Arsenal og kom tapið því flatt upp á marga. Vefmiðill- inn goal.com hefur tekið saman verstu töp Arsenal undir stjórn Arsenes Wenger. Arsenal 0–5 Chelsea Ár: 1998 Leikurinn fór fram í enska deildabikarnum og tefldi Wenger fram ungum leikmönnum að mestu. Þó ber að hafa í huga að á þessum tíma var Chelsea langt í frá það stórveldi sem það er í dag. Þetta er enn þann dag í dag eitt stærsta tap Arsenal á heimavelli í sögunni. Tottenham 5–1 Arsenal Ár: 2008 Eins og Chelsea-leikurinn fór þessi leikur fram í deildabikarnum. Fyrri leikur liðanna á Em- irates fór 1–1 en Tottenham rúll- aði yfir lánlausa leikmenn Arsenal í seinni leiknum. Arsenal 1–2 Birmingham Ár: 2011 Það bjuggust allir við sigri Arsenal þegar liðið mætti Birmingham í úrslitaleik deilda- bikarsins á Wembley. Þótt ótrú- legt megi virðist tapaði liðið fyrir Birmingham sem féll með stæl úr úrvalsdeildinni síðar um vorið. Manchester United 8–2 Arsenal Ár: 2011 Skytturnar hans Wengers voru leiknar grátt í ágústmánuði 2011. Þetta er versta tap Arsenal frá árinu 1896. Liverpool 5–1 Arsenal Ár: 2014 Arsenal var í harðri toppbaráttu áður en að þessum leik kom á síðustu leiktíð og aðeins stigi á eftir Chelsea. Liverpool rúllaði yfir Arsenal-liðið, 5–1, og var staðan eftir 20 mínútur 4–0. Sigurinn var síst of stór.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.