Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Side 62
Helgarblað 27. febrúar–2. mars 201554 Fólk
Skrýtnar stúlkur og
sterkari sjálfsmynd
Kitty von Sometime vinnur vídeóverk sem styrkja sjálfsmynd kvenna
B
reska listakonan Kitty von
Sometime er þekktust fyrir
vídeóverk sín sem hún vinn
ur undir merkjum „The Weird
Girls Project“. Hún undirbýr
þessa dagana næsta verkefni skrýtnu
stúlknanna, en eins og oft áður er
umfjöllunarefnið sjálfstraust og lík
amsmynd kvenna, og stendur Kitty
fyrir hópfjármögnun á vefnum Indie
gogo.
Kitty kom fyrst til Íslands árið 2000
til þess að fjalla um Airwaveshátíð
ina. „Ég lenti á skemmtilegu fylleríi
og vaknaði daginn eftir með 50 millj
ónir nýrra vina í kringum mig. Á þess
um tíma bjó ég í London og var í vel
launaðri vinnu og fór að koma til Ís
lands eina og eina helgi. Ég eignaðist
strax marga vini og var fljótlega
ákveðin í að flytja hingað ein
hvern tímann. Sprengjuárásirnar
í London 2005 urðu svo til þess að
ég ákvað mig endanlega.“
Óánægðar konur
Áður en Kitty flutti til Íslands
átti hún að mestu karlkyns vini
– en hér eignaðist hún fjöldann
allan af vinkonum: „Það var nýtt
fyrir mig að umgangast kon
ur svona mikið. Ég fór að fylgjast
með þeim taka sig til fyrir djam
mið og hlusta á neikvæðnina sem
þær höfðu gagnvart eigin útliti, og
hvernig hún skapaði streitu. Þær
voru ekki nógu grannar, ekki nógu
svalar eða áttu ekki nógu smart
föt. Þegar ég kynntist þeim betur
komst ég að því hversu hátt hlut
fall þeirra átti sögu um misnotkun,
ofbeldi, átraskanir, kvíða og ýmis
legt annað sem hafði áhrif á sjálfs
mynd þeirra. Stundum var þó engin
dramatík í bakgrunninum en samt
þessi neikvæða sjálfsmynd. Þetta
vildi ég vinna með í verkum mínum
því ég trúi á að hafa jákvæð áhrif á líð
an fólks.“
Áhrif MTV á listina
„The Weird Girls Project“ varð til 2007,
en verkin eru listræn myndbönd þar
sem áhersla er lögð á hið sjónræna og
tónlist skipar stóran sess.
„Ég er af fyrstu MTVkynslóðinni
og það hefur mikil áhrif á list mína.
Tónlistarmyndbönd gera listina að
gengilega og ég nota það form í mín
um verkum þó að ég sé klárlega ekki
tónlistarkona. Formið er líka hentugt
fyrir pólitísku skilaboðin og leyfir
virka þátttöku kvennanna.“
Hingað til hefur Kitty fram
leitt 25 myndbönd og unnið með
yfir 100 konum. Flest verkanna eru
unnin á Íslandi, með íslenskum kon
um, en hún hefur einnig unnið í Kína
og Þýskalandi.
Ólíkar konur í ólíkum löndum
„Það var mjög skemmtilegt að fá að
vinna með konum í öðrum löndum.
Í Kína var sláandi hversu hlédrægar
konurnar voru og þar þurftum við
virkilega að sýna fordæmi svo þær
fylgdu eftir. Þýsku konurnar voru hins
vegar svo einbeittar og ákveðnar í að
láta allt ganga upp. Í því verki voru
konurnar í leikgervi sem lokaði alveg
fyrir munninn á þeim svo þær gátu
hvorki borðað né talað. Ég bauð þeim
að taka pásu til þess að borða, en allar
vildu halda áfram og klára tökurnar.“
Hittir alla umsækjendur sjálf
Allar konur geta sótt um að taka þátt í „The Weird Girls Project“, en Kitty er
í dag með langan biðlista. Hún hittir
sjálf alla umsækjendur yfir kaffibolla
og útskýrir hvað verkefnið snýst um:
„Það er mikilvægt að konurnar skilji
að þetta snýst ekki um hégóma, eða
að fá flotta mynd til að birta á Face
book. Þær verða að vera tilbúnar til
að leggja mikið á sig því tökurnar
geta verið flóknar og erfiðar. Í staðinn
fá þær tækifæri til að styrkja sjálfs
myndina og styrkjast í gegnum þátt
töku í einstöku verkefni.“
Smitaðist af áræðni Íslendinga
Ísland og Íslendingar hafa mikil áhrif
á listsköpun Kitty: „Áður en ég kom
hingað þorði ég ekki að sýna nein
um verkin mín og hélt alltaf að ég
þyrfti að vera betri eða klárari til að
mark yrði tekið á mér. Hér smitaðist
ég fljótlega af áræðni Íslendinga og
þessum krafti sem fær fólk til að hella
sér út í alls konar misgáfulega hluti.
Auðvitað virkar þetta ekki alltaf, eins
og við sáum til dæmis í kringum fjár
málahrunið, en oftar er þetta til góða.
Ísland hefur gefið mér sjálfstraust og
þor til að vinna verkin mín og standa
með þeim. Auðvitað er veðrið glatað
og hér er sjúklega dýrt að lifa – en á
Íslandi á ég heima,“ segir þessi litríka
listakona að lokum.
Hægt er að sjá fyrri verk „The Weird
Girls Project“ og nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu verkefnisins www.
theweirdgirlsproject.com. Konur sem
hafa áhuga á þátttöku geta haft sam-
band við Kitty með tölvupósti: kitty-
vonsometime@gmail.com n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Eflandi fyrir konur Áhersla er lögð á að konur efli sjálfstraust sitt með þátttöku.
Mynd ÓSKaR HallgRÍMSSon
Starfar á Íslandi Kitty hefur gert flest
vídeóverkanna á Íslandi. Mynd KRiSTinn MagnúSSon
Kitty von
Sometime
Listræn
myndbönd
hennar styrkja
sjálfsmynd
kvenna. Mynd
JEanEEn lund
Vinnur með
konum
Allar konur geta
sótt um að taka
þátt í „The Weird
Girls Project“.
Mynd Héðinn EiRÍKSSon
Hópfjármögnun
á Indiegogo
Áttu dollara aflögu
Kitty safnar nú fyrir næsta verkefni „The
Weird Girls Project“ á hópfjármögn-
unarvefnum Indiegogo. Hægt er að láta
hvaða upphæð sem er af hendi rakna, en
markmiðið er að safna 2.500 dollurum
sem samsvara um 330 þúsund krónum.
náttúra og búningar Hið sjónræna er í
forgrunni í verkum Kitty. Mynd HEllERT
„Ég lenti á
skemmti-
legu fylleríi og
vaknaði daginn
eftir með 50
milljónir nýrra
vina í kring-
um mig.
Marta kennir
réttu handtökin
Smartlandsstýrunni, kraftlyft
ingakonunni, rithöfundinum
og tískulöggunni Mörtu Maríu
Jónas dóttur er ótal margt til lista
lagt. Eins og kunnugir vita gaf
Marta María út sína fyrstu mat
reiðslubók fyrir jólin og nú er hún
í kjölfar útgáfunnar farin að halda
matreiðslunámskeið. Næsta
námskeið fer fram á Salt en þar
mun Marta kenna áhugasömum
hollar, sykurlausar og aukaefn
islausar uppskriftir að girnilegum
réttum fyrir fjölskylduna. Mat
reiðslubók Mörtu Maríu, MMM,
var tilnefnd til Gourmandverð
launanna í flokknum Skandinav
ískar matreiðslubækur.
„Leiktu þér
með þetta“
Kærasta Sigmars Guðmundssonar
hrekkti hann á Facebook í vikunni
með því spyrja vini hans álits á því
hvort hann ætti að fara í klippingu
eða safna hári. Og hvort hann ætti
kannski að lita gráu hárin, líkt og
Logi Bergmann. Með stöðuupp
færslunni birti hún tvær myndir
af honum. Á annarri var hann ný
klipptur og fínn, en á hinni frekar
úfinn og rytjulegur. Fjörlegar um
ræður sköpuðust á þræðinum
og margir lögðu orð í belg, þar á
meðal Sigmar sjálfur sem vildi
frekar spyrja hvort hann ætti að fá
sér nýja kærustu. Egill Einarsson,
betur þekktur sem Gillz, blandaði
sér líka í umræðurnar. „Leiktu þér
með þetta, taktu sénsa, róteraðu
hárgreiðslum, óhræddur við að
lita þetta. Áður en þú veist af þá
er þetta búið! Nýta tímann!“ Ekki
er ljóst hvort Sigmar ætlar í klipp
ingu eða ekki.
Valur á von
á barni
Tónlistarmaðurinn Valur Heið
ar Sævarsson, sem eitt sinn
var kenndur við hljómsveitina
Butter cup, á von á sínu fyrsta
barni ásamt unnustu sinni,
Hrafnhildi Ragnarsdóttur, núna
í sumar. Hann birti sónarmynd
á Facebooksíðu sinni í vikunni
með tilkynningu um væntan
legan erfingja. „Fékk að finna
fyrstu spörkin í gegnum magann
núna á sunnudaginn svo að þetta
varð allt miklu raunverulegra
fyrir okkur þó að við værum búin
að sjá krílið busla í sónar,“ skrifaði
hann. Þá sagði hann líka að þau
væru auðvitað gríðarlega spennt
að takast á við þetta nýja hlutverk
í lífi sínu, en þetta er líka fyrsta
barn Hrafnhildar.