Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Qupperneq 4
Helgarblað 23.–26. október 20154 Fréttir
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Jólin í skó-
kassanum
Verkefnið „Jól í skókassa“ fer
af stað á næstu dögum í tólfta
skiptið, en það er samstarfsverk
efni KFUM og KFUK á Íslandi og
KFUM í Úkraínu.
Verkefnið gengur út á að fá
fólk á öllum aldri til að útbúa og
gefa skókassa með jólaglaðningi
fyrir fátæk og munaðarlaus börn
í Úkraínu. Síðustu ár hafa fjöl
margir lagt verkefninu lið og
meira en 40 þúsund skókassar
með jólagjöfum hafa verið sendir
með gámi til Úkraínu.
Lokaskiladagur Jól í skókassa
2015 í Reykjavík er laugardagur
inn 14. nóvember. Fjölmargir kass
ar hafa þegar borist og er tekið við
kössunum alla virka daga, sem og
lokadag verkefnisins.
Að jafnaði er lokaskiladagur
verkefnisins á landsbyggðinni um
viku fyrr en í Reykjavík. Á þeim
stöðum þar sem ekki eru tengiliðir
og formleg móttaka má koma
kössum í afgreiðslu Eimskipa
Flytjanda, sem eru dyggir
stuðningsaðilar verkefnisins.
Frekari upplýsingar á: www.
skokassar.net.
Háskólagarðalóðin
metin á tvo milljarða
n Verðmat á lóðum styrkti fjárhag Háskólans í Reykjavík n „Hófstillt mat“
Þ
etta er hófstillt mat enda var
það aldrei tilgangur okkar
að hámarka einhverja eign
enda háskólinn rekinn án
hagnaðarsjónarmiða,“ segir
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól
ans í Reykjavík (HR), um verðmat
á byggingarétti vegna ónýttra lóða
skólans en samkvæmt því er svæð
ið norðan háskólabyggingarinnar
metið á tvo milljarða króna. Matið
var unnið í fyrra og við það batnaði
fjárhagur skólans til muna.
„Okkur var úthlutað þessu landi
til framtíðar en við höfðum ekki farið
í verðmat á því síðustu ár enda vor
um við þá ekki að horfa til þess að
nýta það. Núna erum við hins vegar
komin af stað með áform um upp
byggingu Háskólagarða HR þar sem
við ætlum að byggja 350 íbúðir fyrir
okkar fólk og nemendur og því var
eðlilegt að taka þetta skref,“ segir Ari.
2,1 milljarður í plús
HR kynnti í júní síðastliðnum áform
um háskólagarðana og að þeir eigi
að rísa á 30.000 fermetra landsvæði
skólans vestan Öskjuhlíðar. Matið
á byggingaréttinum vegna lóða há
skólans nam eins og áður segir
tveimur milljörðum króna. Þar er
undanskilin lóðin sem húsnæði
háskólans stendur á í Nauthólsvík.
Bókfært eigið fé HR jókst þá úr 218
milljónum árið 2013 í 2.100 millj
ónir í árslok 2014. Eiginfjárhlutfall
skólans var þá 72%.
Stjórnendur HR fengu tvo fast
eignasala til að vinna verðmatið
samkvæmt ársreikningi skólans
fyrir árið 2014. Háskólinn lagði í
kjölfarið byggingaréttinn fram sem
endurgjald fyrir hlutafé í dóttur
félagi sínu Grunnstoð ehf. HR keypti
dótturfélagið af Íslandsbanka í mars
2014 og eignaðist þá húsnæði skól
ans í Nauthólsvík. Samtök atvinnu
lífsins og Samtök iðnaðarins lögðu
Grunnstoð þá til aukið hlutafé, að
upphæð 100 milljónir króna, og
eignuðust þar með 5% hlut í því á
móti 95% eignarhlut HR.
„Grunnstoð er það félag sem
við munum nýta til uppbyggingar
á háskólasvæðinu og þannig halda
þeirri vinnu utan reksturs háskól
ans sjálfs,“ segir Ari.
Samkvæmt áætlun
Við kaupin á Grunnstoð var gengið
út frá því að húsaleiga HR frá og með
2014 verði reiknuð út þannig að hún
standi undir afborgunum og vöxtum
af langtímaskuldum dótturfélagsins.
Unnið er að hönnun og fjármögnun
háskólagarðanna en um er að ræða
350 nýjar íbúðir, einstaklingsher
bergi, auk leikskóla og þjónustuhús
næðis. Ari býst við að framkvæmdir
geti hafist á næsta ári.
„Vinnan er öll samkvæmt áætl
un og vinna við grunnhönnun og
fjármögnun er í gangi og það stend
ur enn til að framkvæmdir hefj
ist á næsta ári. Svæðið verður fyrst
og fremst fyrir nemendur en það er
einnig möguleiki að erlendir sér
fræðingar sem koma tímabundið geti
nýtt húsnæðið.“ n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
„Þetta er hófstillt mat enda var
það aldrei tilgangur okkar að
hámarka einhverja eign enda háskólinn
rekinn án hagnaðarsjónarmiða
Rektor Ari Kristinn Jónsson ítrekar að
verðmat byggingaréttarins sé að hans mati
hófstillt. Mynd GiGja EinaRSdottiR 2015
Byggingareiturinn
Háskólinn í Reykjavík ætlar að
byggja 350 námsmannaíbúðir
norðan við háskólabygginguna.
Mynd SiGtRyGGuR aRi
Nemendafjöldi
tvöfaldast
Áttatíu skráðir í tveggja ára nám
N
emendafjöldi í löggildingar
námi fasteignasala hefur tvö
faldast frá fyrri árum. Aukn
inguna má rekja til nýrra laga
um sölu fasteigna og skipa sem tóku
gildi í sumar. Eins og DV greindi frá
í byrjun júlí var strax ljóst að starfs
grundvöllur allra sölumanna á fast
eignamarkaði var í uppnámi, jafn
vel þeirra sem höfðu áralanga
starfsreynslu. Tilgangur laganna var
góðra gjalda verður, að hefta aðgengi
nýrra misvel undirbúinna sölumanna
en gagnrýnt hefur verið að enginn að
lögunartími hafi gefist fyrir starfandi
sölumenn til að sækja sér menntun.
Löggildingarnámið er kennt á fjór
um önnum hjá Endurmenntun Há
skóla Íslands og kostar 830 þúsund
krónur. „Það eru um 80 nemendur
sem hófu löggildingarnámið í haust,
samanborið við um 40 nemendur
árin áður,“ segir Elín Júlíana Sveins
dóttir verkefnastjóri. Inntökuskilyrðin
í námið eru stúdentspróf eða sam
bærileg menntun og að sögn Elínar
hlutu allir inngöngu sem uppfylltu
þau skilyrði. Þeir sem höfðu langan
starfsaldur og einhverjar einingar í
átt að stúdentsprófi gátu skilað inn
sérstakri umsókn og mat prófnefnd
hverja umsókn fyrir sig. Nokkrir um
sækjendur með slíkan bakgrunn voru
teknir inn í námið í ár.
Haft hefur verið eftir Brynjari
Níelssyni alþingismanni að hann telji
að gengið hafi verið of langt með laga
setningunni. „Ég mun leggja til að
þetta verði endurskoðað í nefndinni,
með hugsanlega lagabreytingu í
huga, þannig að við getum tryggt
það að þeir geti haldið störfum að
einhverju leyti,“ sagði Brynjar. Hann
bætti við að hann vildi tryggja að
fólkið gæti sótt nám, þó að það hefði
ekki stúdentspróf, þannig að reynsla
þeirra yrði metin til jafns á við stúd
entspróf. Þannig væri hægt að tryggja
það að menn gætu aflað sér nauðsyn
legra réttinda. n bjornth@dv.is
Brynjar níelsson Telur Alþingi hafa geng-
ið of langt í lagasetningu sinni. Mynd SiGtRyGGuR aRi
M
y
n
d
G
u
n
n
a
R
G
u
n
n
a
R
SS
o
n
Borgin bíður
Reykjavíkurborg bíður börnum
og foreldrum þeirra upp á
afþreyingu næstu daga, en
vetrarfrí verða í grunnskólum
borgarinnar föstudaginn
23. október og mánudag og
þriðjudag 26.–27. október.
Fullorðnir í fylgd með
börnum fá frítt inn á
borgarsöfnin; Listasafn
Reykjavíkur, Kjarvalsstaði og
Ásmundarsafn, svo fá séu
nefnd. Borgarbókasafnið
býður upp á dagskrá,
krakkabingó og í Gerðubergi
verður skrímslasmiðja fyrir
alla fjölskylduna. Þá eru
frístundaheimili borgarinnar
með þéttskipaða dagskrá.