Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 24
Helgarblað 23.–26. október 201524 Fólk Viðtal A ndrea er klædd í her­ mannajakka og með sól­ gleraugu þegar hún mætir á fund okkar á kaffihúsinu í Þjóðminjasafninu. Hún er eitursvöl og með þétt handtak. Einu sinni var Andrea blaða­ maður. „Ég var reyndar aðallega prófarkalesari á Þjóðviljanum en leysti af blaðamenn á sumrin. Blessuð vertu, ég gerði allt á þessu blaði, bar það út, vann í afgreiðsl­ unni, í ljósmyndasafninu, í umbrot­ inu, bara svona það sem þurfti, en skemmtilegast þótti mér að skrifa um tónlist.“ Nornin Patti Smith Við dettum í smá spjall um viðtöl, ég játa fyrir henni að ég hafi ekki gúglað hana sérstaklega mikið fyrir viðtalið og ekki lagt út mörg njósna­ net. Hún er sammála því að oft hafi bara verið gott að vita sem minnst. Talið berst að því þegar Andrea tók viðtal við goðsögnina og rokk­ hetjuna Patti Smith fyrir Rás 2. „Það var ótrúlega skemmtilegt viðtal. Ég tók það upp á einhverja græju en var þó svo klók að punkta eitt og annað niður með blýanti. Það var líka eins gott því þegar ég ætlaði að skrifa viðtalið upp eftir á, hafði ekkert tekist upp á bandið. Hún hafði samt svo mikil áhrif á mig og áhugi minn var það mikill að svörin sátu í mér, svo ég henti mér í að skrifa við­ talið og birti það á síðunni okkar. Það undarlega var að ég hitti skömmu seinna blaðamann á einhverju blaði sem hafði lent í nákvæmlega því sama, upptakan klikkaði. Við komumst saman að þeirri niður­ stöðu að Patti Smith væri norn.“ Andrea byrjaði á Rás 2 um hálfu ári eftir að stöðin var stofnuð, eða 1984. „Fyrsti þátturinn minn hét „Úr kvennabúrinu“ og ég spilaði bara tónlist með konum eða eftir kon­ ur. Það er stórmerkilegt að svona þáttur á líklega fullan rétt á sér enn í dag, töluvert hefur breyst en það hallar ennþá á konur í tónlist. Það er nú einu sinni þannig að karlar virðast afskaplega hrifnir af körlum, það er eitthvað mjög svo samkyn­ hneigt við það, eins og sást svo vel þegar uppgangur fjármálabólunnar stóð sem hæst og Kauphöllin var stofnuð. Þá drógu fjölmiðlamenn unga fjármáladrengi, sem allt þóttust vita, í sjónvarpsþætti. Ég varð mjög hneyksluð þegar RÚV bættist í þann hóp. Kannski er þessi samkynhneigð sérstaklega áberandi hjá íslenskum yfirmönnum, sem flestir eru karl­ kyns, eða bara hnattrænt fyrirbæri.“ Of löt fyrir pólitík Úr umræðu um stöðu kynjanna í fjöl­ miðlum og menningu berst talið að pólitík. Ég segist gera ráð fyrir því að Andrea sé vinstrikona. „Ég vil frekar kalla mig félagshyggjukonu. Það segir nú ýmislegt um hægrimenn að þeir vilji skilgreina félagshyggjuna til vinstri. Ég hef aldrei verið í pólitík, en heldur ekki legið á minni skoðun um ýmis málefni. Ætli ég verði ekki sett í neðsta heiðurssætið á einhverjum lista þegar ég verð 95 ára. Áhuginn var kannski meiri fyrir löngu, en núna er ég of löt og góð við sjálfa mig. Ég vil bara gera það sem mér þyk­ ir skemmtilegt. Mér dettur ýmislegt í hug, en stend mig verr í að hrinda hugmyndunum í framkvæmd. Ég held að flestir sem sitja á Al­ þingi vilji vel, en þó eru þar inni að­ ilar með djöfla á báðum öxlum, ein­ hverja einkahagsmunapotara sem anda niður í hálsmálið á þeim. Að­ allega finnst mér umræðan ósköp leiðinleg.“ Bjarni og sá skólausi Ég skýt inn spurningu um núverandi ríkisstjórn, og segist gera ráð fyrir því að hún hugnist Andreu ekki. „Alls Leti, rokk og Librium Andrea Jónsdóttir er löngu orðin goðsögn í lifanda lífi. Hún er plötusnúður, útvarpskona og tónlistargagnrýnandi og nýtur virðingar bransafólks og tónlistarunnenda. Ragnheiður Eiríksdóttir blaða- maður og Andrea hittust á dögunum og ræddu saman um rokk, dóp, forsetann, ömmuhlutverkið og að sjálfsögðu ástarlíf Andreu. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is „Manni finnst bara ótrúlegt að fólk, sem hefur aldrei þurft að hugsa um peninga eða velta fyrir sér afkomu sinni hvern mánuð, geti skilið almenning og einkum þá sem eiga erfitt eða hafa lítið milli handanna. Andrea í stúdíói Hefur verið starfandi á Rás 2 nánast frá stofnun. MyNd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.