Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 36
Helgarblað 23.–26. október 201536 Lífsstíll Blá birta um allan heim Á morgun, laugardaginn 24. október, munu frægar byggingar og minnismerki um allan heim skarta blárri lýsingu. Tilefnið er að nú eru 70 ár liðin frá stofnun Sameinuðu þjóðanna. Alls munu rúmlega tvö hund- ruð þekkt minnismerki eða byggingar um allan heim skarta litnum, og þar af fjögur í Reykja- vík. Það eru Harpa, Forsætisráðu- neytið, Ráðhúsið í Reykjavík og Friðarsúlan í Viðey. Einnig munu Empire State-byggingin, Skakki turninn í Pisa, Kristsstyttan í Ríó og Óperuhúsið í Sidney skarta bláu, svo dæmi séu tekin. Eftir bleika daga undanfarið er nú framundan fremur blá helgi! H önnunarmiðstöð óskar nú eftir tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands 2015. Hægt er að benda á eig- in verk eða tilnefna aðra til miðnættis sunnudaginn 25. október. Markmið- ið með því að biðla til almennings er að tryggja að afburðaverk muni ekki fara framhjá dómnefnd. Hönnunarmiðstöð Íslands ásamt Hönnunarsafni Íslands, Listaháskóla Íslands, Samtök- um iðnaðarins og Samtökum at- vinnulífsins standa að verðlaunun- um sem nema um 1.000.000 króna. Hönnunarverðlaun Íslands eru einungis veitt til hönnuða, arkitekta, hönnunarteyma eða -stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka og verða vinningshafar að vera félagar í einu af aðildarfélögum Hönnunar- miðstöðvar Íslands eða vera fag- menn á sínu sviði. n Veist þú um hönnuð sem á skilið verðlaun? Óskað eftir tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands Leturhönnun nútímans Hönnunarteymið Gunmad rekur einu sérhæfðu letursmiðju landsins L eturhönnun er gömul list sem rekja má langt aftur í mannkynssöguna. Mismun- andi tegundir leturs gefa til kynna mismunandi gildi, til- gang, uppruna og bera texta fram með mismunandi áhrifamætti. Ef við hugsum til rómverskra mynta, víkingarúnanna fornu eða forn- grískra texta sjáum við að öll bera þessi letur sinn einstaka karakter. Þessi tegund listar hefur í aldanna rás fylgt manninum og eftir tilkomu tölvunnar þróast ansi ört eins og svo margt annað. Letur- hönnun hefur því orðið sérhæft svið innan grafískrar hönnunar. Meðal annars taka hönnunarstofur að sér að búa til nýjar leturtegund- ir eftir óskum viðskiptavina með það að leiðarljósi að koma til skila vissum karakter og áhrifum. Times New Roman er dæmi um leturgerð sem flestir þekkja, en letrið var á sínum tíma hannað fyrir Lundúna- blaðið The Times og þykir ein auð- lesnasta leturgerð sem völ eru á. Tilraunasamstarf Grafíska hönnunartvíeykið Guð- mundur Úlfarsson og Mads Freund Brunse, einnig þekktir undir nafn- inu Gunmad, voru heiðursfyrir- lesarar á SmallTalks-ráðstefnunni sem haldin var í Hörpu í vikunni. SmallTalks er fyrirlestraröð á veg- um Hönnunarmiðstöðvar Íslands sem haldin er reglulega í sam- starfi við Listaháskóla Íslands og Hörpu. Markmið fyrirlestranna er að halda uppi lifandi umræðu um það sem helst er að gerast innan hönnunarheimsins. Gunmad-tvíeykið vann upphaf- lega saman að tilraunasamstarfi í litlum leturgerðarverkefnum sem síðan þróuðust yfir í mun stærri verkefni. Í dag nota aðilar, eins og Sundance Film Festival og The New York Times Magazine, letur frá þeim. Í dag reka þeir Or Type sem er eina sérhæfða letursmiðja Íslands. Þar sem letur er að finna alls staðar í kringum okkur leyn- ast verkefnin víða og vönduð letur- hönnun margfaldar áhrif texta. n Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is Hönnun Gunmad Leturgerðin Motion Dazzle er eitt af verkefnum hönnunarteymisins. Innblástur á Instagram Samfélagsmiðillinn Instagram er fullur af skemmtilegum not- endum sem vert er að fylgja. Margir hönnuðir og hönnunar síður birta myndir sem geta veitt innblástur og kveikt hugmyndir að einhverju skemmtilegu. Hér eru nokkrir skemmti- legir Instagram-notendur sem vert er að fylgja: able_ground: Fallegar myndir af kristöllum eftir af- skaplega smekklegan verslun- areiganda í Brooklyn. sheila_gim: Hún býr í Los Angeles og hefur einstakt auga fyrir liti og form. sam_kalda: Teiknari og listamaður frá Brooklyn sem birtir verk sín og fleira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.