Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 39
Helgarblað 23.–26. október 2015 Menning 39 Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af Á flótta frá plágunni Það er síðasti dagur fyrir vetrar- fríið, en allar áætlanir um nota- legt frí fara fyrir lítið þegar plága brýst út. Eftir það hugs- ar enginn um neitt annað en að bjarga lífi sínu. Þetta er söguefnið í nýrri bók Hild- ar Knútsdóttur sem hefur titilinn Vetrarfrí. Hljómar spennandi! Nýjar bækur Ævintýri afa Ótrúleg ævintýri afa – Leyndardómur erfingjans er barnabók eftir Guðna Líndal Benediktsson. Kristján litli húkir aleinn á köldu sjúkra- húsi þegar afi birtist með æsispennandi sögu. Árið 2014 fékk höf- undurinn Ís- lensku barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Ótrúleg ævin- týri afa – Leitin að Blóðey. Skrímslasaga Í nýjustu bók sinni, Drauga- Dísa, sækir Gunnar Theo- dór Eggerts- son efnivið í þjóðararfinn og erlendar hrollvekjur. Dísa, sem er í níunda bekk, fer með for- eldrum sínum upp í sveit. Þrjú hundruð árum fyrr býr strákur í sama dal og bíður eftir að ófreskja skríði úr eggi. Þurfum að rækta útópíurnar nýjum aðferðum á nýrri öld n Almenningsbókasöfn og Wikipedia eru raunverulegar útópíur En það er líka hægt að horfa á samfélagið eins og lífkerfi, til dæmis stöðuvatn. Það er staðsett á ákveðnu svæði, hefur ákveðnar vatnsuppsprettur, ákveðið gróður- far og margar ólíkar dýrategundir. Allt þetta hefur áhrif á hvert annað, en þetta eru ekki hlutar sem hafa fyrir framgefna virkni fyrir heildina. Ef þú bætir við nýrri fisktegund í líf- ríki vatnsins mun hún að öllum lík- indum deyja strax, hún gæti líka komið sér fyrir í einu horninu og lifað þar í friði, eða jafnvel ef þetta er ágeng tegund mun hún smám saman taka yfir allt vatnið. Ég lít á efnahagskerfið eins og lífkerfi, núna eru kapítalísk valdatengsl ríkjandi og þau ákvarða að mestu leyti hvernig fólk getur orðið sér út um lífsviður- væri. Kapítalisminn er ráðandi fisk- urinn í tjörninni okkar í dag en í henni eru mörg ókapítalísk form, og sum þeirra skapa jafnvel möguleika á annars konar lífi og gætu orðið stærri hluti af efnahagskerfinu. Þá er spurningin fyrir and-kapítalist- ann: hvernig getum við lagt rækt við jafnari og lýðræðislegri gerðir efna- hagsathafna ofan í kapítalísku tjörn- inni. Með það fyrir augum að í fram- tíðinni verði kapítalismanum ýtt úr hinni ráðandi stöðu.“ Jöfnuður er nauðsynlegur lýðræðinu Sú útópíska hugmynd sem Wright telur að geti haft hve mest áhrif á samfélagið og möguleika einstak- linga til góðs lífs er skilyrðislaus grunnframfærslu einstaklinga, eða það sem hefur verið kallað borgara- laun. „Ég myndi segja að beint lýðræði og lýðræði á sviði efnahagslífsins séu í grundvallaratriðum samtengd. Möguleikinn á að taka á virkan og raunverulegan hátt í pólitískri lýð- ræðisvinnu veltur á þeim aðgangi að gæðum sem fólk hefur. Borgaralaun gefa fólki frjálsari tíma til að það geti tekið þátt í lýðræðislegu stjórnmála- starfi. Það er vonandi að lýðræðis- flokkar eins og Pírataflokkurinn muni hugsa ítarlega um þetta þegar hann þróast og og sjái að það verða að liggja sömu lögmál jöfnuðar og lýðræðis í efnahagslífinu og innan ríkisstofnana.“ Hann segir að vegna fólksfæðar og náttúruauðlinda ættu Íslendingar að geta tekið frumkvæði á þessum vettvangi. „Þetta er lítið hagkerfi en hefur nokkrar mjög mikilvægar auð- lindir sem eru í sameign allra íbúa landsins: fiskurinn og orkan. Þetta er í raun ekki einkaeign. Þetta þýð- ir að íslenskt samfélag fær borgað frá alþjóðasamfélaginu og það ger- ir þessari litlu þjóð kleift að lifa jafn vel og þið gerið. Þessum ágóða gæti hins vegar verið skipt á jafnari hátt sem skilyrðislaus grunnframfærsla til allra einstaklinga.“ n Bókasöfn eru kommúnísk Wright segir almenningsbókasöfn vera í grunninnn mjög kommúnísk fyrirbæri, allir geti fengið aðgang og enginn geti borgað til að fá betri þjónustu eða forgang í röðinni. Mynd 123rf.coM risafyrirtæki í eigu starfsmanna Fyrirtækjasamsteypan Mondragon í Baskalandi er í eigu og er stjórnað lýðræðislega af um 70 þúsund starfsmönnum. frí alfræðiorðabók Wright nefnir Wikipedia sem dæmi um raunverulega útópíu, þar deila netverjar þekkingu sinni á algjörum jafnræðisgrundvelli – og markmiðið er aldrei peningalegur gróði stofnendanna. stórfyndin og fallega framsett, vel sungin og frábærlega leikin. Rakar- inn hefur verið settur upp af metn- aði og það skilar sér til áhorfenda. Þótt þeim sem þetta ritar finnist að spara megi bravóin fyrir það sem færir mörkin endanlega úr stað voru áhorfendur á öðru máli og salurinn var allan tímann á barmi þess að tryllast af gleði. Það segir sitthvað, jafnt um gæði verksins og uppfærsl- unnar. n 199 ára grín Rakarinn frá Sevilla eftir Rossini er ein vinsælasta grínópera allra tíma. Mynd JóhAnnA ólAfsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.