Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 23.–26. október 201544 Fólk S lúðurmiðlar vestanhafs halda ekki vatni yfir hraust- legu útliti Kourtney Kar- dashian og halda því fram að raunveruleikastjarnan hafi sjaldan eða aldrei litið jafn vel út. Skilin í formi Eins og þeir vita sem fylgjast með stjörnunum í Hollywood þá er þessi þriggja barna móðir nýhætt með barnsföður sínum, djammaran- um, Scott Disick, eftir áralangt sam- band. Kourtney er dugleg að birta myndir af sér á samfélagsmiðlunum og sér í lagi þegar hún er í ræktinni. Á Instagram-reikingi sínum birti Kourntey nýlega glæsilega mynd af sér þar sem hún sagðist fara í rækt- ina til að losna við stress en eins og kunnugir vita er sjaldan lognmolla í kringum Kardashian-systur. Mágurinn á sjúkrahúsi Kourtney og Scott eiga saman börnin Mason, Penelope og Reign Aston sem fæddist fyrir tæpu ári. Samband þeirra hefur oft staðið á brauðfótum en upp úr því slitnaði endanlega fyrir þrem- ur mánuðum. Mikið álag hefur verið á fjölskyldunni eftir að fyrrverandi körfuboltastjarn- an Lamar Odom, fyrrverandi eigin- maður Khloé, systur Kourtney, lá fyrir dauðan- um eftir að hafa misst meðvitund á vændishúsi. Lam- ar dvelur enn á sjúkrahúsi en sam- kvæmt fréttum fer ástand hans hægt batnandi. Scott í meðferð Fleiri en Lamar dvelja á sjúkrastofnunum því degi eftir að íþróttastjarnan var lögð inn skráði Scott sig í með- ferð en hann hefur lengi barist við áfengis- og fíkniefnavanda. Scott hefur djammað stíft eftir sambands- slitin sem hann tók mjög nærri sér eins og áhorfendur Keeping up with the Kardashians sáu í tárvotum sjónvarps- þætti þar sem Disick ræddi um skilnaðinn. Fær ekki að hitta börnin Kunnugir segja Scott hafa náð botninum og sé loksins tilbúinn til að leita sér hjálpar. Kourtney hafi bann- að honum að umgang- ast börnin nema und- ir eftirliti og fréttirnar af Lamar, vini hans, hafi sett hlutina í sam- hengi. „Hann hringir reglulega í Kourtney til að fá fréttir af Lamar og var svo glaður þegar hann frétti að hann væri að jafna sig. Hann vildi geta heimsótt hann á sjúkrahúsið en verður að huga að eigin heilsu fyrst,“ lét ónafngreindur vinur Scotts hafa eftir sér við blaða- mann tímaritsins Hollywood Life. n Losnar við stressið í ræktinni Kourtney Kardashian hefur aldrei litið betur út Hætt kominn Íþróttastjarnan og fyrrverandi maki Khloé Kardashian var hætt kominn eftir að hafa misst meðvitund á vændishúsi. Systur Það er sjaldan lognmolla í kringum Kardashian-systur. Gella Kourtney hefur verið dug- leg í ræktinni eftir skilnaðinn. Burt með stressið Raunveruleika- stjarnan segist sigrast á álaginu með því að vera dugleg að hreyfa sig. Þegar allt lék í lyndi Að sögn vina Scotts hefur hann náð botninum og tilbúinn til að fá hjálp. JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.