Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 34
Helgarblað 23.–26. október 201534 Lífsstíll B andaríkin eru oft kölluð land tækifæranna og það var einmitt þess vegna sem Fanney Rut ákvað að leita að vinnu sem barnfóstra (au pair) vestanhafs. Upp hófst mik- ið ævintýri sem ekki sér fyrir end- ann á en í dag hefur Fanney Rut búið í Texas í tæp fjögur ár, er gift 49 ára gömlum Texas-búa og er ástfangin upp fyrir haus. Í einlægu og opinskáu viðtali við DV fer Fann- ey Rut yfir ótrúlegt ævintýri sitt, for- dómana sem hún hefur orðið fyrir vegna aldursmunar á henni og eig- inmanninum og að sjálfsögðu lífið í sólinni í Texas. En hvernig hófst allt þetta ævin- týri? „Þetta byrjaði bara þannig að ég fór að gúggla „au pairs in America“ og fann síðuna hjá Nínukoti. Í kjöl- farið sótti ég um og fór til Banda- ríkjanna. Þar hitti ég fyrir fjölskyldu sem átti tvö börn og ég bjó hjá þeim og sá um heimilið og börnin. Með- an á þessu ári stóð skildu foreldrar barnanna og umgengnin við börnin var þannig að þau voru hjá mömmu sinni en fóru síðan í „pabbahelgar“ og ég fór alltaf með,“ segir Fanney Rut sem á þessum tíma var tæplega tvítug. Féll fyrir pabbanum „Ég byrjaði að falla fyrir pabbanum á þessum pabbahelgum og í kjölfar- ið fórum við að hittast,“ segir Fanney Rut og bætir við að hún og Randy hafi ver- ið staðráðin í að halda áfram að hittast. Sam- band þeirra virtist þó ætla að fjara út þegar atvinnuleyfi Fanneyjar Rutar var að renna út. Þá voru góð ráð dýr fyrir turtildúfurnar tvær en að öllu óbreyttu þyrfti Fanney Rut að flytja aft- ur til Íslands og kveðja Randy fyrir fullt og allt. Maðurinn sem Fann- ey Rut féll fyrir heitir Randy Dishaw og er 49 ára gamall Texas-búi sem starfar á olíubor- palli í Brasilíu. Hann á þrjú börn, þar af tvö á grunnskólaaldri, og býr núna ásamt Fanneyju Rut rétt fyrir utan Bellville í Texas. Börnin heita Tess Nicola Dishaw sem verður 12 ára núna í desember og Sandor Brodie Dishaw en hann varð 10 ára núna í september. „Hann bað mig um að giftast sér rétt áður en atvinnuleyfið rann út og ég sagði að sjálfsögðu já,“ seg- ir Fanney Rut, sem samkvæmt bandarískum lögum þurfti að ferð- ast aftur til Íslands á meðan unnið var í landvistarleyfinu. Þegar Fann- ey Rut kom heim beið hennar það taugatrekkjandi verkefni að segja fjölskyldu sinni og sínum nánustu vinum að hún væri trúlofuð manni sem væri 26 árum eldri en hún. Ekki nóg með þær fregnir þá ætl- aði Fanney Rut líka að tilkynna fjöl- skyldu sinni að hún ætlaði að flytja út fyrir fullt og allt. „Auðvitað voru allir í sjokki“ „Ég sagði öllum frá og auðvitað voru allir í sjokki yfir þessu. Þarna var ég, rétt um tvítugt, að fara að flytja til Texas og giftast manni sem var 26 árum eldri en ég. Mér var alveg sama hvað allir sögðu því ég elskaði þennan mann,“ segir Fanney Rut. Eftir að hafa hlaðið batteríin í faðmi fjölskyldunnar og sagt þeim stóru fréttirnar lá leið hennar aftur til Bandaríkjanna þar sem ástin beið. „Ég fékk til að byrja með svona „fiancée VISA“ þar sem við vorum „Mér er alveg sama um aldursmuninn“ Fanney Rut gerðist au pair í Texas 19 ára. Á endanum giftist hún fjöl- skylduföðurnum, Randy. Á milli þeirra er 26 ára aldursmunur. Núna eiga þau gríðarstórt land og eru yfir sig ástfangin. Atli Már Gylfason atli@dv.is Fanney Rut og Randy Ástfangin upp fyrir haus en Fanney Rut segir 26 ára aldursmun engu máli skipta. Hún elskar Randy og ástin spyr ekki um aldur. MyndiR ÚR einkAsAFni Gríðarstórt land Landið sem þau eiga eru fjórir hektarar, eða í kringum 40 þúsund fermetrar. Báturinn við fljótið Fanney Rut gerir ýmisleg t yfir daginn þegar Randy er við vinnu á olíuborp allinum. Eins og til dæmis að þrífa bátinn þeirra eða sigla ho num út. H Á R Þ Y K K I N G A R M E Ð F E R Ð H Á Þ R Ó U Ð O G M A R G P R Ó F U Ð Fæst í apótekum um land allt, í Hagkaup og á heimkaup.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.