Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 23
Helgarblað 23.–26. október 2015 Umræða 23 hinn hefðbundna meðal-pólitíkus. Ef ætti að gefa því nafn væri kannski hægt að tala um Kennedí-týpuna, eftir John heitnum F. Kennedy Bandaríkjaforseta. Þetta eru auðvit- að sléttir og felldir og heldur fríð- ir karlmenn komnir á miðjan aldur eða að nálgast það, með standard- menntun úr háskólum, hag-, lög- eða stjórnmálafræðum. Ég hef ekk- ert á móti svoleiðis mönnum, enda er til margt gott fólk einmitt af þessu tagi. Fólk getur litið yfir forystufólk, forseta og ráðherra á Vestur löndum síðustu hálfa öld eða svo til að sjá hversu ótrúlega útbreitt það er að svona manngerð sé sett til valda; það myndi nægja að vísa til forystu- manna helstu Evrópuríkja nú um stundir. Frægar undantekningar En það merkilega er að örlítið óvenjulegra fólk úr röðum pólitíkusa sem samt kemst til metorða reyn- ist oft jafn vel, eða betur dugandi; maður gæti bent á þungavigtar- manneskjuna meðal evrópskra þjóðarleiðtoga á vorum dögum, Angelu Merkel, sem dæmi um slíkt. Og dæmin sýna líka að fleiri en hag- fræðingar og lögfræðingar reyn- ast mjög þarfir í pólitík – þar mætti nefna forystufólk úr verkalýðs- hreyfingunni, og flugfreyjur hafa reynst okkur vel. Merkasti stjórn- málamaður Íslandssögunnar, sjálf- stæðishetjan Jón Sigurðsson, sem við köllum jafnan forseta – hann var bókmenntafræðingur, og vann lengst af á því sviði. Eða stórmenni breskrar sögu á tuttugustu öld: Win- ston Churchill; hann var sömuleiðis bókmenntamaður, afbragðs rithöf- undur og reyndar ágætur frístunda- málari sömuleiðis. Það skrýtnasta við Jóhönnu þegar hún var að hefja sinn pólitíska fer- il var, ótrúlegt en satt, að hún var kona. Við sem lifað höfum mikl- ar breytingar í þeim efnum síðustu tvo, þrjá áratugi eigum bágt með að átta okkur á þessu, en svona var það nú samt. Það var hreinlega eitthvað stórundarlegt við konur sem ætl- uðu sér eitthvað upp á dekk í pólitík. Og þessi sérstaða Jóhönnu er dregin mjög sniðuglega fram strax í upphafi umræddrar bíómyndar; það er verið að bæta við nýrri mynd á vegg sem er fullur af portrettmyndum af forsætis- ráðherrum landsins fyrr og síðar. Allt karlmenn að sjálfsögðu – og svo Jó- hanna. Vissulega voru konur komn- ar í pólitík á undan henni, en eins og sagt hefur verið þá voru það undan- tekningar, og að sumu leyti hugsaðar meira upp á punt. „Svona raddir“ Ég held að framan af hafi margir talið gott að hafa Jóhönnu með í flokki og pólitík, kannski út frá þeirri hugmynd að „svona raddir verði að heyrast“, en að hún hafi þótt allt of undarleg, allt of sérviskuleg, með sína prinsippfestu og óbilgirni, til að menn hafi talið hana henta til for- ystu. Þetta kom meðal annars í ljós undir síðustu aldamót þegar var verið að stofna Samfylkinguna, fyrst og fremst upp úr Alþýðuflokknum, Alþýðubandalaginu og Þjóðvaka; flokknum sem Jóhanna stofnaði þegar hún varð undir í Alþýðuflokkn- um, eftir átök við Jón Baldvin. Kannanir á þeim tíma sýndu að hún naut mest fylgis til að verða forystu- maður hins nýja flokks, en samt fór það svo að foringjar Alþýðuflokks og Alþýðubandalags buðu Margréti Frí- mannsdóttur, þeirri mætu konu, að verða talsmaður flokksins – Jóhanna þótti ekki passa. Á okkar dögum eiga raddir eins og hennar mun frekar upp á pallborðið, eins og sést á gengi Corbyns í Bretlandi, Bernie Sand- ers í Bandaríkjunum, eða hversu vel menn taka ýmsum samfélagsboð- skap Frans páfa. „Minn tími!“ En „hennar tími kom“ eins og all- ir vita. Ríkisstjórn hennar sat 2009– 2013, og vann ýmis afrek, til dæmis tókst að bjarga þjóðinni frá því yfir- vofandi gjaldþroti sem flestir spáðu að biði handan hornsins þegar hún tók við. Björn Þorláksson orðar þetta ágætlega í pistli sem hann birti fyr- ir skömmu á Hringbraut: „Vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fór um síðir á taugum þótt Jóhanna gerði það ekki. Stjórninni tókst ekki að skapa traust milli stjórnmála og almennings þótt margt ágætt væri gert. Þjóðin ber nú eiginleika Jó- hönnu saman við eiginleika forsætis- ráðherra dagsins í dag. Sumpart má segja að Íslendingar hafi kosið yfir sig andstæðu Jóhönnu fyrir rúmum tveimur árum. Ríkisstjórn ríka fólks hefur hún verið kölluð og sannarlega er Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forríkur maður. En þannig tal er retorísk einföldun. Á þessu landi er það jafnan ekki þannig að stjórnir séu annaðhvort algóðar eða alvond- ar fyrir almenning í landinu. Um- ræðan er pólaríseruð og öfgafull. En þegar gruggið fellur til botns minn- ist þjóðin Jóhönnu Sigurðardóttur með hlýju. Þakkar henni framlagið eins og fram kom í Vikunni hjá Gísla Marteini í gær.“ Pólitískt klúður Það sem helst varð til þess að stjórn- arflokkarnir fengu slæman skell í lok kjörtímabilsins var trúlega það hvernig Icesave-málið hafði þróast. Á einhvern óskiljanlegan hátt tókst að stilla umræðunni þannig upp að Icesave hefði verið uppfinning Jó- hönnu og Steingríms, og að það hefði verið eitthvert sérstakt baráttumál þeirra tveggja að gera þjóðina ábyrga fyrir því klúðri. Á meðan staðreyndin er auðvitað sú að þarna var þegar orðinn til sligandi klafi sem vinstrist- jórnin fékk á sínar herðar þegar hún var mynduð. Þeim var seinna legið á hálsi fyrir að fara í samningaviðræð- ur við Breta og Hollendinga, í stað þess að segja þessum þjóðum bara að éta skít, eins og sumir pólitíkus- ar voru farnir að segja efnislega und- ir lok kjörtímabilsins að hefði átt að gera, og af innistæðulítilli kokhreysti. Allt hafði verið áður gert og ákveðið En sannleikurinn er auðvitað sá að Alþingi hafði þegar samþykkt að gengið yrði til slíkra samninga áður en stjórnin var mynduð, og að um það var mjög breið þverpólitísk sam- staða. Og að fyrsti samningurinn sem gerður var – og sá versti segja menn – fékkst samþykktur af nær öll- um þingheimi. Og var staðfestur af Ólafi Ragnari forseta, án þess ég ætli að gera lítið úr því að hann reyndist okkur þarfur í þessu máli. Hinu má heldur ekki gleyma að upphaf þessa máls má rekja aftur til einkavæð- ingar Landsbankans, sem Jóhanna og co. höfðu ekkert með að gera, og ekki var það hún sem fór um löndin og mærði snilli íslensku bankanna, eins og þeir væru óskabörn þjóðar- innar; ekki var það Jóhanna Sig sem mánuðina fyrir hrun hvatti Breta og Hollendinga til að treysta þessum innlánsreikningum, meðal annars með vísan til þess að ríkissjóður ís- lands væri svo vel stæður að hann gæti auðveldlega hlaupið undir bagga ef illa færi! En þannig töluðu sumir íslenskir frammámenn í er- lendum fjölmiðlum á þeim dögum. Þegar gruggið fellur Í blindhríð dægurdeilnanna sér oft ekki út úr augum; pólitíska arga- þrasið sem alltaf er í gangi með til- heyrandi moldroki og svikabrigsl- um byrgir gjarnan sýn. Þannig týndust mikilvæg verk stjórnar Jó- hönnu í yfirboðahávaða baráttunn- ar fyrir síðustu alþingiskosningar. En auðvitað mun gruggið falla, eins og blaðamaðurinn sem ég vitnaði til hér fyrr í þessari grein orðaði það – þá mun líka renna upp fyrir ýms- um á vinstrivængnum hversu vit- laust það hefur verið þegar menn með hrópum hafa reynt að kenna Davíð Oddssyni einum manna um Hrunið (og þá er ég ekki að tala um „þetta svokallaða“) – gera einn mann ábyrgan fyrir þeirri kollekt ívu klikkun sem greip hér um sig eins og faraldur í mestöllu viðskiptalíf- inu og fór eins og logi yfir akur um þjóðfélagið. Og mátti ekki linna degi seinna en raunin varð. Það væri fínt að fá fleiri heim- ildamyndir eins og þessa nýju og ágætu sem gerð hefur verið um Jó- hönnu, þar sem sagan er sýnd en ekki útskýrð – atburðirnir birtast og það án þess að vera matreiddir og hártogaðir af misvitrum röddum. n Jóhönnu þakkað Samkvæmt nýlegri könnun er hún besti forsætisráðherra síðustu áratuga. Mynd Sigtryggur Ari davíð Oddsson „Þá mun líka renna upp fyrir ýmsum á vinstrivængnum hversu vitlaust það hef- ur verið þegar menn með hrópum hafa reynt að kenna Davíð Oddssyni einum manna um Hrunið.“ Skelegg „Nei,“ svaraði mamma gallhörð á svip, „ég ætla að kjósa Jóhönnu. Hún er alltaf svo skelegg á móti forréttinda- pakkinu!“ Mynd rAkel ÓSk SigurðArdÓttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.