Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 46
Helgarblað 23.–26. október 201546 Fólk É g tala um að ég sé misskilin og fer inn á fordóma, mína og annarra, rasisma og steríó týpur,“ segir uppistandarinn Þórdís Nadia Semichat sem mun hita upp fyrir Ben Kronberg og Dagfinn Lyngbo á Reykjavík Comedy Festival sem fram fer í Hörpu um helgina. Ekkert stressuð Þórdís Nadia er að taka þátt í hátíð- inni í fyrsta skipti en Kronberg er einmitt einn af uppáhaldsuppistönd- urum hennar. Þrátt fyrir það er hún hvergi bangin. „Ég verð með mitt uppistand á íslensku svo hann á ekki eftir að skilja neitt. Ég er bara spennt og hlakka mikið til. Ég fékk líka góða þjálfun þegar ég gerði útskriftarver- kefnið mitt á sviðshöfundabraut í Listaháskóla Íslands en verkefnið var klukkutíma langt uppistand sem ég hélt í Þjóðleikhús kjallaranum. Þar var ég dæmd af dómurum svo ég hef ekki verið stressuð við uppistand síðan.“ Hrósað fyrir íslenskuna Þórdís Nadia notar uppruna sinn í gríninu en hún á rætur að rekja til Túnis. „Pabbi er frá Túnis en mamma er íslensk og ég er fædd og uppalin hérna. Samt lendi ég ítrekað í því að fólk talar við mig ensku eða hrósar mér fyrir íslenskukunnáttu,“ segir Þór- dís Nadia og bætir aðspurð við að oft- ast komi þetta henni ekki úr jafnvægi. „Ég er orðin vön þessu. Svona hefur þetta alltaf verið. En ég viðurkenni þó, að ég get orðið reið þegar ég tala ís- lensku en fólk svarar mér á ensku.“ Allt má í gríni Þórdís Nadia segir ástæðu brandar- anna skipta máli í uppistandi. „Að mínu mati má tala um allt í gríni en það fer eftir því hvernig þú gerir það og af hvaða ástæðu þú setur brandar- ann fram. Það þarf að vera einhver tilgangur svo brandarinn floppi ekki,“ segir hún og viðurkennir að sjálf fari hún oft alveg út á jaðarinn. „Ég reyni samt að pæla ekki of mikið í því. Ef ég veit hvað ég er að segja, af hverju ég er að segja það og get rökstutt það finnst mér það allt í lagi.“ Feimin og vandræðaleg Auk þess að hafa atvinnu af uppi- standinu starfar Þórdís Nadia sem textasmiður á auglýsingastofu og sem danskennari. „Ég hef alltaf haft áhuga á gríni og uppistandi og tel mig vera ágætlega fyndna mann- eskju í lífinu. Svo hef ég líka alltaf haft gaman af því að segja og skrifa sögur. Þetta lá því beint við. Það kom samt mörgum á óvart að ég skyldi velja þessa leið því ég hef alltaf verið feimin og er yfirleitt mjög vandræða- leg manneskja svona dagsdaglega.“ Fáar konur Sjálf ætlar Þórdís Nadia ekki að missa af uppistandi Snjólaugar og Bylgju, vinkvenna sinna á Comedy Festival. „Snjólaug verður á föstudaginn en Bylgja á sunnudaginn og svo ætla ég að reyna að sjá sem flest og helst alla sem koma fram.“ Þórdís segir ekki margar konur koma fram en getur ekki útskýrt af hverju konur standa síður í uppistandi. „Ætli það skorti ekki bara fyrirmyndir hjá konunum. Annars er Amy Schumer orðin frekar stórt nafn svo það á vonandi eftir að breytast.“ n indiana@dv.is n Þórdís Nadia er feiminn og vandræðalegur uppistandari n Á rætur að rekja til Túnis Gerir GríN að uppruNaNum „en ég viðurkenni þó, að ég get orðið reið þegar ég tala íslensku en fólk svarar mér á ensku Þórdís Nadia Þórdís á rætur að rekja til Túnis en sjálf er hún fædd og uppalin á Íslandi. MyNd Sigtryggur Ari ATN Zebra 16 Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin • Diesel • Vinnuhæð: 16,4m • Pallhæð: 14,4m • Lágrétt útskot: 9,3m • Lyftigeta: 230kg • Aukabúnaður: Rafmagns- og lofttenglar í körfu. • Til afgreiðslu strax Ýmsar aðrar ATN spjót- og skæralyftur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.