Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 6
Helgarblað 23.–26. október 20156 Fréttir TOYOTA AVENSIS SOL ← Fyrsta skráning 12/2010. Ekinn 87 þús. km. Sjálf- skiptur. Álfelgur. Handfrjáls búnaður. 2ja svæða tölvustýrð miðstöð og fullt af lúxus. Tveir eigendur frá upphafi. Ekki fyrrverandi bílaleigubíll. Minnst ekni og ódýrasti bíllinn á markaðinum í dag. Okkar verð: 2.960.000 KR. Mismunun í styrkjum til endurhæfingar geðsjúkra n Hugarafli synjað um styrki sem sambærileg félagasamtök fá n Krefja ráðherra svara V ið sjáum á samanburði við önnur félagasamtök að við erum langneðst. Þannig að það er eitthvað bogið við þetta og okkur þykir þetta mjög skrýtið,“ segir Auður Axelsdóttir, forstöðukona Hugarafls, sem kveðst ósátt við hvernig félagasamtökum sem veita geðsjúkum endurhæfingu virðist mismunað í fjárveitingum frá ríkinu. Umsóknum Hugarafls um styrki hefur ítrekað verið hafnað af fé- lags- og húsnæðismálaráðherra. Staða Hugarafls varð til þess að Erna Indriðadóttir, varaþingmað- ur Samfylkingarinnar, lagði í vikunni fram fyrirspurn á þingi til Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðis- málaráðherra. Þar er hún krafin svara við því hvernig stæði á þessari mis- munun og hvers vegna umsóknum Hugarafls um styrki hafi verið hafnað. Aðrir fá tugi milljóna Í greinargerð með fyrirspurninni bendir Erna á að nokkur félagasam- tök veiti geðsjúkum endurhæfingu. „Staða þeirra er mjög mismunandi þótt starfsemi þeirra sé sambæri- leg. Hugarafl fær þannig tvær millj- ónir frá heilbrigðisráðherra en Geð- hjálp, Geysir og Hlutverkasetur fá tugi milljóna í styrki frá velferðarráðu- neytinu beint og óbeint. Umsókn- um Hugarafls til velferðarráðuneytis- ins um sambærilega styrki hefur hins vegar verið hafnað.“ Þær upplýsingar fengust hjá Hugarafli að vissulega muni um að samtökin séu í fríu húsnæði. Eirík- ur Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Hugarafli, bendir á til samanburðar að á meðan Hugarafl búi við þröngan fjárhagslegan kost þá fái samtök eins og Geðhjálp, sem hann segir vissulega gera ágætis hluti, fullt af peningum. Bendir hann á að samkvæmt ársreikn- ingi hafi þau átt 145 milljónir í eigið fé og keypt húsnæði á rúmar 90 milljón- ir í febrúar síðastliðnum. Geðhjálp fær 17 milljónir í framlög frá ríkinu á ári og 5 milljónir frá Reykjavíkurborg. Auður segir að Hugaraflsfólk sé slegið yfir því að vera synjað um styrki og einu styrkveitingar til samtakanna séu tvær milljónir á ári sem sótt sé um árlega hjá heilbrigðisráðherra þegar auglýst er eftir umsóknum. Fátt um svör frá ráðherra „Við teljum okkur vera einn virkasta hópinn sem er að starfa í þessu og erum brautryðjandi í bæði batahug- myndafræðinni og valdeflingunni – sem er tískuorð í dag, en við höfum unnið með í þrettán ár.“ Aðspurð seg- ir Auður að þrátt fyrir að fundað hafi verið með félagsmálaráðherra árlega síðan hún tók við embætti hafi engar skýringar fengist á þessari útilokun. Samkvæmt upplýsingum frá Hugarafli eru samtökin með um 50 þúsund komur á ári og sinna 39 þús- und komustundum. Margir koma vissulega oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. „Við erum að fá 50 krónur á hverja komu meðan aðrir eru kannski að fá 4.000 krónur á komu einstaklings,“ segir Auður. Hún segir að Hugarafls- fólk sem er í bata gefi gríðarmikið af sér til samtakanna og vinni baki brotnu í sjálfboðavinnu. „Það er af- skaplega vanmetið.“ Vanmetið starf Hún kveðst bíða spennt eftir skriflegu svari ráðherra við fyrirspurn Ernu á þingi en það verði ekki endir máls- ins. „Við munum reyna að átta okkur á þessu og af hverju starf með fólki, þessi endurhæfing, sé svona vanmetin. Starf sem unnið er í samstarfi fagfólks og notenda með reynslu. Og af hverju má endurhæfing ekki taka tíma?“ En hvað er það sem Hugarafl ger- ir? Auður segir að í einföldu máli þá styðji Hugarafl fólk við að ná bata eft- ir geðræn veikindi og við að komast aftur út í samfélagið og bæði miðla reynslu fólks sem komist hefur þang- að sem og veita faglega þjónustu. Einnig sé unnið mikið hópastarf og boðið upp á margvíslega dagskrá og ótal valmöguleika. „Það er mikið val sem fólk hefur til að byggja sig upp. Það getur kom- ið hingað og verið eins lengi og það þarf. Það er ekki verið að þrýsta á fólk á einhverjum þremur mánuðum heldur færðu leyfi til að vinna í þinni endurhæfingu sem tryggir svolítið að þú hefur meiri möguleika á að ná bata og meiri möguleika á að komast aftur til starfa eða í skóla eða hvað það er sem þú ert að gera. Síðan vinnum við mikið með fjölskyldunni og það eru fáir hópar sem gera það.“ n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Þetta bjargaði lífi mínu á þessum tíma- punkti,“ segir Sigurborg Sveinsdóttir sem er á meðal þeirra fjölmörgu sem eru þakklát fyrir það starf sem unnið er hjá Hugarafli. Sigurborg greindist með alvarlegt þunglyndi og kvíða árið 2007 sem hafði raskað verulega lífi hennar og vinnu. Hún hafði leitað sér aðstoðar, bæði sálfræðinga og geðlækna, sem hún segir að hafi reynst sér ágætlega. Það var hins vegar í júní 2013 sem hún var komin á endastöð og var hætt að geta unnið sökum veikinda sinna. Eftir nokkurra mánaða einangrun og erfiða tíma leitaði hún til Hugarafls í janúar 2014. „Ég vissi alltaf af þeim og þekkti lítillega til starfseminnar en það er erfitt að fara af stað. Þarna var í fyrsta lagi tekið ofboðslega vel á móti mér. Ég fann mikla hlýju og samkennd á tímapunkti þar sem ég var mjög óörugg og leið ekki vel. Mjög fljótt fann ég fyrir öryggi þarna og upplifði sterkt að fólk hafði mikla trú á mér. Það var mjög góð tilfinning,“ segir Sigurborg. Einn mikilvægasti þátturinn að hennar sögn var jafningjastuðningurinn, eitt aðalsmerkja Hugarafls. „Þarna gat ég rætt við fólk sem var komið í bata og lýsti leið sinni að þeim bata. Þetta gaf mér ofboðslega mikla von því ég kom mjög vonlítil þarna inn. En að heyra frá fólki með sömu reynslu, lýsa því að það náði bata og var komið í gott jafnvægi í lífinu veitti mér sterka og góða von.“ Sigurborg segir að hún hafi fljótt fengið ábyrgð á verkefnum sem hafi eflt hana mikið. Þar gafst henni tækifæri til að sinna verkefnum sem hæfðu menntun hennar. Í dag vinnur hún að stóru verkefni innan Hugarafls sem ber heitið Skjólhús. Sigurborg segir að þar sé verið að móta nýtt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu, sem einnig væri sólahringsúrræði þar sem notendur yrðu nýttir sem starfskraftur auk fagfólks. „Þetta gerist ótrúlega hratt þegar manni er treyst og trúað fyrir verkefnum og gefin þessa sterka von. Ég er í bata og ég væri sennilega komin af stað í vinnu ef það væru ekki aðrir, líkamlegir, kvillar að hrjá mig núna. En ég hef fulla trú á að ég fari aftur á vinnumarkaðinn, von sem ég hafði ekki fyrir. Ég blómstra þarna innanhúss og maður er að sjá kraftaverkin gerast allt í kringum sig.“ Sigurborg er ekki í neinum vafa um að vinn- an með Hugarafli hafi bjargað lífi hennar. „Maður fékk þau skilaboð frá kerfinu að maður væri bara með þennan sjúkdóm og yrði bara að taka tillit til þess. En þarna fannst mér ég endurheimta sjálfa mig og ég væri ekki „greiningin“, ég væri svo margt annað og hefði meira fram að færa þó að ég hefði veikst á sínum tíma. Mér finnst ráðamenn vera að missa þarna af ótrúlegu tækifæri til að koma fólki í bata og inn í lífið aftur.“ „Það er eitthvað bogið við þetta og okkur þykir þetta mjög skrýtið. „Bjargaði lífi mínu“ Sigurborg segir Hugarafl hafa veitt henni von Sitja ekki við sama borð Auður Axelsdóttir, forstöðu- kona Hugarafls, segir að þar á bæ skilji fólk ekki hvers vegna sambærilegir styrkir og önnur félög sem veita geðsjúkum endurhæfingu fáist ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.