Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 10
Helgarblað 23.–26. október 201510 Fréttir Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta Umhverfisvænir pokar sem brotna niður í umhverf inu Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 • Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar • Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni • d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma þe irra loknum svo að þe ir samlagist nát túrunni á sama hát t og laufblað Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt fengið hjá okkur íblöndunarefni. Pokar í s töðluðum stærðum eða séráprentaðir „Bara sóðaskapur og ekkert annað“ n Safnaði saman taumendum sem hún fann á veiðislóð í sumar n Vandamál á Þingvöllum M ér blöskrar umgengnin,“ segir veiðimaðurinn María Petrína Ingólfs­ dóttir í samtali við DV. Hún hefur í vinsælum hópi veiðimanna á Facebook birt myndir af því girni sem hún hefur tínt upp á veiðislóð í sumar. Myndirnar má sjá hér með fréttinni en girnið fann hún aðallega við Hlíðarvatn, Þingvallavatn og Veiðivötn. „Þetta er bara sóðaskapur og ekkert annað.“ Fræðslufulltrúi við þjóðgarðinn á Þingvöllum segir að sóðaskapur veiðimanna sé viðvarandi vanda­ mál við vatnið og aukið rusl hald­ ist í hendur við aukna sókn í vatnið. Flestir hegði sér þó vel. Afrakstur eins sumars María segir að í vor hafi, í Face­ book­hópnum Veiðidellan er frábær, verið birtar myndir af á sem hafi við Vogsósa við Hlíðarvatn fest sig illa í girni. Við myndina skapaðist nokkur umræða um sóðaskap veiðimanna. Þá hafi hún sagst ætla að hirða upp allt girni sem hún fyndi á veiðislóð í sumar og birta af því mynd. Við það stóð hún núna í vikunni. Eins og sjá má er um mikið magn girnis að ræða. Aðeins er um að ræða það girni sem hún sjálf hefur hirt upp eft­ ir aðra veiðimenn. María sinnir veiðum nokkuð vel, að sögn. Hún segir að sums staðar sé sóðaskapurinn slíkur að hún þurfi að byrja á því að þrífa þegar hún mætir. Girnið getur grandað lífi fugla og dýra og eyðist seint í náttúrunni. María segist endrum og eins vör við fugla sem hafi fest sig og drepist í girni, eða séu illa haldnir. „Ég sá önd í Veiðivötnum í sumar með tvö stór flotholt sem héngu út úr kjaftinum. Hún sveltur væntanlega til dauða.“ Losun sorps við Kleifarvatn Aðspurð segir María að sóðaskapur­ inn við veiðisvæðin einskorðist ekki við veiðimenn. Þannig hafi hún orðið vitni að miklum sóðaskap veg­ farenda við Kleifarvatn. Þar sé um­ gengnin afar slæm. Í eitt skipti hafi einhver hent þar pappakassa utan af heilum fataskáp. „Ég tók það saman og fór með í Sorpu.“ Hún segir það ekki hafa verið í fyrsta sinn sem hún hafi þurft að fara með rusl af veiðislóð í móttökustöð fyrir sorp. Hún hafi í gegnum tíðina tekið upp ótal síga­ rettustubba við bakka ár og vatna auk þess sem hún stundi það að elta uppi fólk sem hún sér að hendir rusli út um bílglugga. „Fólk verður yfirleitt eitt stórt spurningarmerki í framan en ég forðast að munnhöggvast við það.“ Hún telur að þessi hegðun stafi af hugsunarleysi. „Fólk hugs­ ar kannski með sér að einn taumur geti ekki gert svo mikinn skaða. En ef allir þeir sem veiða hugsuðu svona þá verður þetta mikið magn af rusli. Það væri bara sorglegt.“ Fleiri skussar samhliða fjölgun veiðimanna Einar Sæmundsen er fræðslufull­ trúi við þjóðgarðinn á Þingvöllum. Hann segir að töluvert sé um að landverðir hirði upp girni, sígarettu­ stubba og jafnvel tómar bjórdósir, en Þingvallavatn er líklega fjölsótt­ asti veiðistaður landsins. Hann segir að stærstur hluti veiðimanna hegði sér vel. Aðsóknin í vatnið sé mikil og ruslið haldist í hendur við þá fjölgun sem orðið hafi. „Þegar stangveiði er orðin vinsælli og aðgengið að vatn­ inu betra, með tilkomu veiðikorts­ ins, þá fjölgar skussunum við vatnið,“ segir hann við DV. Hann segir erfitt að sporna við sóðaskapnum. „Það á ekki að þurfa skilti til að segja mönnum að ganga vel um.“ Einar segir að eftirlit með veiðum sé betra en oft áður. Þar muni mestu um hóp sjálfboðaliða úr röðum veiðimanna. Þeir gangi úr skugga um að menn hafi leyfi til veiða og að rétt sé að þeim staðið. Þrátt fyrir þetta segir Einar brögð að því að menn noti beitu við veiðar, eitthvað sem er bannað við þjóð­ garðinn. Þannig hafi veiðiverðir fundið sardínudósir og önnur um­ merki um óleyfilega beitu. Þörf á sektarheimildum Einar segir ekki hafa komið til þess að veiðimenn hafi verið kærðir fyrir sóðaskap við vatnið. Þá skorti heim­ ildir landvarða til að sekta menn fyrir að fleygja rusli. „Ef það væru klár viðurlög við að skilja eftir girni eða annað rusl, þá myndu menn líklega hugsa sig tvisvar um áður en þeir hentu slíku frá sér.“ n Flækja Hér má sjá girnið sem María fjarlægði af veiðislóð í sumar. Myndir MAríA PetrínA ingóLFsdóttir Baldur guðmundsson baldur@dv.is Veiðir mikið María með fallegan silung í hreinni náttúru. „Það á ekki að þurfa skilti til að segja mönnum að ganga vel um. girnisbútar María hefur líka tekið upp sígarettustubba og annað rusl sem veiðimenn hafa skilið eftir. Stundum hefur hún tekið upp svo mikið af rusli að hún þarf að fara beina leið á Sorpu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.