Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 14
Helgarblað 23.–26. október 201514 Fréttir Erlent Vesturhrauni 5 Garðabæ S: 530-2000 Bíldshöfða 16 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 Akureyri S: 461-4800 www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland Bætiefni fyrir allar vélar BENSÍN BÆTIEFNI Fyrir allar bensínvélar með eða án hvarfakúts · Hreinsar bensíndælu, leiðslur og innspýtingarkerfi. · Kemur í veg fyrir botnfall í soggrein, túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun · Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnisskynjara. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í elds-neytiskerfi og sprengirými. · Kemur í veg fyrir stíflaða ventla. · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í umhverfið. Inniheldur yfirborðsvirk efni, tæringar- og ryðvörn. DÍSEL BÆTIEFNI Fyrir allar díselvélar þ.m.t. common rail og öðrum olíuverkum · Hreinsar eldsneytiskerfi og brennslukerfi. · Bætir útblásturinn og minnkar losun út í umhverfið. · Kemur í veg fyrir botnfall í túðum, ventlum og ventlasætum. · Minnkar eldsneytisnotkun. · Tryggir nákvæma stjórnun eldsneytisloka. · Kemur í veg fyrir tæringu í eldsneytisgeymi. · Minnkar bank í mótor. Inniheldur yfirborðsvirk efni, tæringar- og ryðvörn. SÓTAGNASÍUHREINSIR Hreinsiefni til að hreinsa kolefni og sótagnir úr sótagnasíum. · Losar um og fjarlægir kolefnisagnir úr sótagnasíu. · Ekki þarf að taka kút úr við hreinsun. · Sparar peninga þar sem ekki þarf að skipta um sótagnasíu. (þetta fer eftir ástandi á sótagnasíu) · Efnið er ekki eldfimt. · Málm- og öskulaus formúla · Gufar upp án þess að skilja eftir sig óhreinindi E iginmaður konu sem lést eftir að smáforrit (app) leiddi þau ranga leið nærri Rio de Jan- eiro í Brasilíu segist kenna forritinu um dauða hennar. Konan, Regina Murmura, hafði treyst leiðbeiningum Waze-forritsins, sem er landakort sem notar GPS-stað- setningar til að vísa veginn, en ekki vildi betur til en svo að forritið leiddi þau hjónin inn á rangar slóðir, yfir í hættulegt hverfi borgarinnar. Þegar þangað var komið hóf einhver skot- hríð og Regina lést af áverkum sem hún hlaut í árásinni. Regina var sjö- tug og starfaði hjá ferðaskrifstofu. Eiginmaður hennar, Fransisco, hlaut minniháttar áverka. Leiddi þau á glapstigu Forritið átti að leiða þau hjónin á vinsælan ferðamannastað í Niteroi, sem er borg skammt frá Rio de Jan- eiro. Þess í stað leiddi forritið þau á aðra götu, með sama nafni, fá- tækrahverfi í talsvert verri hluta borgarinnar. Einhver dró upp byssu og skaut alls tuttugu skotum á bifreið þeirra hjóna. Fransisco náði að aka á brott en Regina særðist og lést stuttu síðar. Lögreglan veit ekki af hverju árásin var gerð, en segir að skotárásir og ofbeldi sem tengjast fíkniefna- málum séu daglegt brauð á þessum slóðum. Þess má geta að lögreglan lenti sjálf í skothríð í hverfinu við rannsókn málsins. Engan sakaði, en telur hún sig hafa sökudólginn í sigtinu. Sorglegt en engin ber ábyrgð Aðstandendur Waze, Google, segja að þeir harmi það sem gerðist, en geti ekki borið ábyrgð á því þegar fólk velji ranga áfangastaði með for- ritinu eins og gerðist í þessu tilviki. Jafnvel þeir sem búi í fátækrahverf- um eigi rétt á að finna leiðina heim í forritinu. „Fólk sem býr þar verður að geta komist heim,“ segir í yfir- lýsingu. Fransisco Murmura segist þrátt fyrir það kenna forritinu um það sem gerðist. „Það leiddi okkur þangað. Ég hef engar efa- semdir um að það beri ábyrgðina. Í dag er ég svo miður mín að ég get ekki hugs- að, en er þetta forrit til vandræða? Já, það er það,“ segir hann. Lenti í því sama Mál Reginu er ekki einstakt, en brasil- ísk leikkona varð fyrir skoti þegar hún gerði sömu mistök og Regina fyrir rúmum tveim- ur mánuðum. Hún lifði af og er á bata- vegi Hvort sem að- standendur Waze kunna að bera ein- hverja ábyrgð í þessu máli, varpar það ákveðnu ljósi á áhyggjur margra af Ólympíuleik- unum í Rio á næsta ári. Þeir sem þurfa að ferðast um borgina þvera og endilanga gætu lent í svipuðum vand- ræðum, sérstaklega á vinsælum ferða- mannastöðum sem eru í næsta ná- grenni við hverfi sem þykja hættu- leg og eru jafnvel í heljargreipum glæpamanna. Mikil fátækt er í Rio og hafa ráðamenn verið gagnrýndir harðlega fyrir íburðinn sem felst í Ólympíuleikunum og öllu um- stanginu í kring um heimsmeistara- mótið í knattspyrnu sem haldið var sumarið 2014. Hafa fátækrahverfi verið rifin til að rýma fyrir íþróttaleik- vöngum. Ætla má að um 85 þúsund öryggisverðir verði að störfum á leik- unum næsta sumar. Aðstandendur Waze hyggjast funda með borgaryfirvöldum í Rio fljótlega til að kanna hvort eitthvað megi betur fara til að tryggja öryggi notendanna, hvort sem það eru ferðamenn, íþróttamenn eða íbúar borgarinnar. n Kennir smáforriti um dauða n Sjötug kona villtist í Rio og lést í skotárás n Var að nota Waze-forritið n Hafa áhyggjur af ÓL 2016 Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Í dag er ég svo miður mín að ég get ekki hugsað ÓtryggtÓlympíuleikarnir eiga að vera allir hinir veglegustu, en vandræðin með smá- forritið hafa varpað ljósi á að margt er enn ótryggt varðandi öryggi þeirra sem ætla að keppa og sækja Rio heim í sumar. Mynd EPA Erfitt að taka ábyrgð Waze er smáforrit og leiðarvísir sem notar GPS til að vísa fólki veginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.