Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2015, Blaðsíða 30
Helgarblað 23.–26. október 201530 Fólk Viðtal hverfið í Los Angeles, afskaplega kósí og fallegt. Við höfum búið í þessu hverfi í meira en sex ár.“ Skiptir útlitið miklu máli í Los Angeles? „Þessi borg er mikil jóga-, pilates-, fitness-, hlaupa- og gönguborg þar sem allir eru „vegan“, á djús kúr eða einhverjum hreinsikúr. Og svo eru það auðvitað lýtaaðgerðirnar sem fólk hér nýtir sér óspart. Sjálf er ég skíthrædd við að fara til tannlæknis þannig að ég mun örugglega aldrei geta farið í neitt slíkt.“ Sjúk í lakkrís „Ég er ótrúlega löt við líkamsrækt og hef alltaf verið en ég geng mikið. Mér finnst gaman að ganga og gæti geng- ið í marga klukkutíma. Stundum hugsa ég um mataræðið en stundum ekki, það fer eftir skapi. Ég er heppin að vera með ótrúlega hraða brennslu og á því mjög erfitt með að fitna. Ég þarf samt að hugsa um hvað ég borða upp á andlega líðan og orku. Ég er með alvarlegt járnleysi og þarf að huga að því. Þetta snýst því meira um að borða oftar og meira hjá mér og kannski aðeins hollara. Og ekki bara drekka Pepsi og borða lakkrís eins og ég geri stundum. Ég gæti lif- að á lakkrís.“ Er mikið um djamm? „Við vinnum í djamminu því okk- ar vinna felst í því að skemmta öðr- um seint á kvöldin. Þegar við erum ekki að vinna viljum við frekar eyða kvöldinu í rólegheitum með vinum og góðum mat. En svo koma tarnir með alls kyns partíum og uppá- komum sem tengjast bransanum. Það er þá einhvers konar vinna því þá hittir maður fólk og myndar sam- bönd. Það getur verið skemmtilegt en stundum líka þreytandi.“ Hefur bílslysið sem hljómsveitin lenti í árið 2008 enn áhrif á ykkur? „Við finnum öll fyrir líkamleg- um kvillum í kjölfar slyssins. Sum- ir meira en aðrir. Ég hef verið mjög bakveik og reyni því að hreyfa mig mikið. Einar slasaðist mest og var á spítala í fjóra mánuði og stríðir við alls kyns kvilla. Það er kraftaverk að hann lifði af. Við kvörtum ekki. Við erum bara svo þakklát fyrir að hafa lifað þetta af. Maður tekur einn dag í einu og tekst á við þetta með jafnaðar geði. Eftir slysið hef ég verið ofsalega bílhrædd en vonandi kemst ég yfir það einn daginn.“ Enn jafn skotin Hvernig viðhaldið þið neistanum eftir svo langt samband? „Við byrjuðum saman 4. mars 1994 þegar við vorum í gaggó en hættum nokkrum sinnum saman á menntaskólaárunum eins og gengur og gerist þegar maður er unglingur. Við höldum neistanum gangandi með því að vera bara alltaf kærustu- par þó svo að við höfum gift okkur árið 2013. Við gerum litla sæta hluti fyrir hvort annað og erum svo ein- faldlega alltaf jafn skotin í hvort öðru eins og þegar við vorum krakkar. Við erum alveg sömu vitleysingarnir og sömu manneskjur, kannski bara að- eins þroskaðri. Einar er besti vinur minn, sálufé- lagi og elskhugi. Það er enginn sem þekkir mig jafnvel. Stundum erum við eins og sama persónan. Það get- ur verið örlítið óhugnanlegt hvað við getum lesið huga hvort annars. Við erum alltaf á sömu bylgjulengd.“ Ertu náin fjölskyldunni? „Ég, mamma, pabbi og Krummi erum ein heild. Við Krummi erum eins og tvíburar því það eru bara tvö ár á milli okkar. Við höfum alltaf verið mjög náin og afar miklir vinir frá því við vorum börn í bleiu. Fjöl- skyldan styður hvert annað í öllu og einu og það getur verið mjög fyndið að hitta okkur öll. Við tölum öll svo hátt, erum öll svo ákveðin og svo ástríðufull. Við erum svona eins og ítölsk mafíufjölskylda og erum mik- ið fyrir að hlæja og grínast. Húmor gegnir mjög stóru hlutverki í okkar fjölskyldu.“ Áttu ráð handa ungu fólki sem vill ná langt í tónlist? „Aldrei láta neinn eða neitt stoppa sig. Það er ekki nóg að hafa hæfileika. Maður verður að hafa drifkraft, aga og sjálfstraust til að ná langt og smá heppni hér og þar. Það er enginn sem færir manni velgengni á silfurfati, maður þarf að vinna fyrir henni.“ Stolt af pabba „Sumir halda því fram að ég hafi náð langt út af pabba en það er mik- ill misskilningur. Pabbi hefur alltaf stutt mig og bróður minn í öllu sem við höfum tekið okkur fyrir hendur en hann vildi aldrei að við færum út í tónlist og reyndi aldrei að trana okkur fram eða nota einhvern klíku- skap. Þvert á móti vildi hann að við gerðum þetta á okkar eigin forsend- um og á okkar hæfileikum og getu. Við Krummi höfum líka verið mest- megnis erlendis að vinna í okkar tónlist og þar er ekkert hægt að not- færa sér nafnið hans pabba. Við höf- um því komið okkur áfram á eigin verðleikum og ég er mjög stolt af því. Ég er afar stolt af pabba og svo þakk- lát fyrir allt sem hann hefur kennt mér en ég hef aldrei viljað nota hans nafn eða hans sambönd til að koma mér áfram.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar? „Fjölskyldan mín. Mamma mín, Ragnheiður, og báðar ömmurnar mínar, Svala og Sigríður, eru stórkost- legar konur sem hafa kennt mér svo mikið um lífið, og sér í lagi að sælla sé að gefa en þiggja. Ég hef alltaf lifað samkvæmt því. Í tónlistinni lít ég upp til Krumma bróður míns og pabba. Þeir hafa alltaf verið samkvæmir sjálfum sér og alltaf gert sitt besta í öllu sem þeir gera tónlistar lega. Mér finnst það virðingarvert.“ Ertu trúuð? „Ég trúi á svo margt en tilheyri ekki einhverri einni trú. Ég trúi á álfa og tröll, kraftaverk og orku, drauga og geimverur. Bara að vera lifandi er svo klikkað. Það er svo margt sem ég get ekki útskýrt í þessum veruleika og svo ótrúlega margt óútskýranlegt í þessum heimi okkar.“ Óttast dauðann Hvað óttastu mest? „Ég óttast mest að deyja eða að missa vitið. Það hefur fylgt mér frá æsku. Og mín kvíðaröskun hefur mikið tengst þessum ótta. Þegar ég fæ mín hræðilegu kvíðaköst óttast ég að deyja eða missa vitið. Ég er alltaf að vinna í þessum ótta og það geng- ur ágætlega. Ég veit að ég er ekki ein á báti með þetta.“ Hvað drífur þig áfram? „Einhver innri kraftur. Ég hef barist við alvarlega kvíðaröskun síð- an ég var 16 ára en styrkurinn sem hefur orðið til við að berjast við geð- heilsuna hefur ýtt mér áfram í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Ég á stundum mjög erfiða daga þar sem kvíðinn nær yfirhöndinni og mér finnst eins og það sé engin leið út og finn fyrir miklum ótta, en sem betur fer kemur svo alltaf þessi tilfinning að ég veit að á morgun er nýr dag- ur og ný tækifæri og það finnst mér alltaf jafn spennandi. Það ýtir mér áfram.“ Hvað gerir þig hamingjusama? „Mér líður langbest þegar ég er uppi á sviði að syngja. Þar finn ég ró og hamingju. Svo elska ég líka að vera heima með Einari mínum og kisunni minni, henni Lúsí. Það er ekkert betra en karlinn minn og hátt mal í kisunni minni.“ Elska að gefa „Ég elska líka að gefa gjafir eins og þeir sem þekkja mig vita. Það gerir mig svo hamingjusama að gefa en ég vil samt aldrei fá gjafir sjálf. Ég vil vera sú sem gef gjafirnar. Svo verð ég líka alltaf mjög hamingjusöm þegar ég kaupi föt, rétt eins og svo margar aðrar konur.“ n Ljósmyndari: Sigtryggur Ari Jóhannsson Hár: Ásgeir Hjartarson Förðun: Bergþóra Þórsdóttir Stílisti: Rebekka Jónsdóttir Fatnaður: Another Creation og REY „Sumir halda því fram að ég hafi náð langt út af pabba en það er mikill misskilningur Elskar að ganga Svala segist löt í ræktinni en hefur mjög gaman af því að ganga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.